Þjóðviljinn - 27.08.1972, Side 1
Alþýðubankinn hf
ykkar hagur
okkar metnaóur
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLA í KRON
Samræmdar aðgerðir EBE-ríkja
gegn útfærslu landhelginnar
Fréttir berast nú af þvi, að fyrrverandi tilvon-
andi þúsundára-riki hafi samið hegðunarreglu-
gerð fyrir togara sina að veiðum við ísland eftir
1. september, og er fréttin höfð eftir formanni
togaraeigendafélagsins i Bremerhaven i V-
Þýz.kalandi.
Þessi v-þýzki formaður
hefur láfið hafa það eftir
sér, að togaraskipstjórar
v-þýzkra togara fengju
skipanir um það hvernig
þeir ættu að haga sér við
veiðarnar og hvernig þeir
ættu að koma í veg fyrir,
að íslenzka landhelgis-
gæzlan geti tekið þá.
Blaðið hafði í gær sam-
band við Hannes Jónsson
blaðaf ulltrúa ríkisstjórn-
arinnar til þess að spyrj-
ast fyrir um hvort ríkis-
stjórninni hefði borizt er-
indi um fyrirhuguð við-
j brögð Þjóðverja, en
blaðafulltrúinn kvað svo
; ekki vera.
' EBE-SAMSTADA GEGN
UTFÆRSLUNNI.
Bretar hafa beitt sér
fyrir samstöðu togaraeig-
endafélaga innan EBE-
landanna með það fyrir
augum að samræma að-
gerðir þessara landa
vegna útfærslu fiskveiði-
lögsögu okkar.
Hafa EBE-ríkin stofnað
með sér sameiginlegan
sjóð, sem standa á straum
af kostnaði við áróðurs-
rekstur hér uppi á Islandi,
i öðrum Evrópulöndum og
í Ameríku.
Þau lönd sem sótt hafa
um aðild að EBE eiga
einnig að verða aðilar að
þessum sjóði og leggja fé í
hann.
Þegar er búið að leggja
85 þúsund sterlingspund í
sjóðinn, eða sem svarar 20
miljónum islenzkra
króna, en fyrirhugað er að
sjóðurinn verði 300 þúsund
pund, eða um 70 milj.
Þegar hefur um 240
þúsund krónum úr þessum
sjóði verið varið til
rekstrar tveggja isl. dag-
blaða, en sjóður þessi
borgar auglýsingar þær
sem blöð þessi hafa birt
frá andstæðingum okkar í
landhelgismálinu.
Afkoma frystihúsanna lakari vegna
MINNI
AFLA Á
MIÐUNUM
Að undanförnu hafa birzt
miklir kveinstafir í stjórn-
arandstöðublöðunum
vegna þess að afkoma
frystihúsanna sé bágborin.
í þessum blöðum er að
sjálfsögðu reynt að kenna
stjórninni um vanda frysti-
húsanna — en svo einfalt er
málið ekki, því miður.
Erfiðleikar frystiiðnað-
arins stafa einfaldlega af
þvi, að afli hefur minnkað
mjög á islandsmiðum og
þess vegna hefur minna
fiskmagn borizt til frysti-
húsanna á fyrri hluta þessa
árs en þeim barst á sama
tima i fyrra.
Erfiðleikar frystiiðnaðarins
sanna þvi enn og aftur, að íslend-
ingar verða að færa út landhelg-
ina og þeir verða að hafa stjórn á
ásókninni á fiskimiðin umfram
það sem verið hefur. Það er
kjarni málsins. Og þaö er ekki
unnt að áfellast núverandi rikis-
stjórn fyrir athafnaleysi i land-
helgismálinu: Landhelgin verður
færð út 1. september — á föstu-
daginn kemur.
Fischer
heims-
meistari
strax
í nœstu
viku?
10 1/2- 7 1/2 er staðan i heims-
meistaraeinviginu núna. Eftir er
að tefla sex skákir i mesta lagi.
í dag verður 10. skákin tefld. Tapi
heimsmeistarinn hcnni, þarf
Kiseher aðeins einn vinning i við-
bót lil þess að ná heimsmeistara-
tililinum. en Spasski þarf þá að
vinna allar skákirnar sem eftir
verða til þess að halda titlinum.
Verði Ijórar næstu skákir jafn-
tefli, hefur Kischer unnið titilinn.
Króttamenn dagblaða og skák-
timarita velta nú vöngum yfir úr-
slitunum. Nær allir telja Kischer
eiga sigurinn visan úr þessu. En
enn getur allt gerzt. — Myndin er
af þeim Gligoritsj og Ingvari Ás-
mundssyni i herbergi frétta-
manna.
Er réttur leigutaka enginn?
Varið ykkur á leigu
samningum!
Þegar leiguokrið
blómstrar og eitt her-
bergi með aðgangi að
snyrtingu er leigt fyrir
(5000 krónur, og tveggja
herbergja ibúðir fyrir
rúmlega 10 þúsund
krónur á mánuði, er
vissulega ástæða fyrir
opinbera aðila að kanna
bakgrunn sliks ástands.
Blaðið varð sér úti um uppkast
að leigusamningi hjá Húseig-
endafélagi Reykjavikur, en eftir
þess konar uppkasti munu flestir
húsleigusamningar vera undirrit-
aðir. 1 plaggi þessu koma fram
margir eftirtektarverðir þættir
sem sýna glöggt hvernig leigutaki
stendur gagnvart leigusala, ef á-
kvæðum sliks samnings er fylgt
eftir.
t samningi þessum stendur svo
m.a.: - Yfirlcitt skal liið leigða
vera i leigufæru standi, er leigu-
taki tekur það lil afnola. . . —
Hvorki meira né minna!
Siðan segir frá þvi, að hefjist
leiguafnot eftir samningsgerð og
húsnæðið ekki i leigufæru standi
þegar það er tekiö á leigu, beri að
tilkynna leigusala það tafarlaust
skriflega, ,,en gctur alls ekki síð-
ar gert neina kröfu gildandi á
liendur leigusala varðandi þelta
atriði.”
t samningnum er siðan klásúla
um viðhaldsskytdur og viðgerð-
arskyldur leigutaka, og þar segir
með öðru, að legutaka sé ætið
skylt að kosta viðhald og viðgerð
á rörum. Þetta þýðir einfaldlega,
að eyðileggist hitakerfi eða
vatnskerfi þarf leigutaki að
standa straum af kostnaði við við
gerðir þó svo að hann hafi ekki átt
nokkurn þátt i biluninni, heldur sé
Frh. á bls. 15