Þjóðviljinn - 27.08.1972, Side 12
12. SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 27. ágúst 1972
Tízka9 tízka,
hvert leiðir þú
Duttlungar tizkunnar
eru merkilegir — en oft-
ast nær eru þeir, þegar
nánar er að gáð, tengdir
boðum og bönnum i kyn-
ferðislifi. Þjóhnappar
kvenna hafa lengi þótt
merkileg hvatning karl-
peningi, og sjaldan munu
þeir hafa gegnt þvi hlut-
verki sem hjá sjóræningj-
um þeim, sem skáru þá af
kerlingu einni, vinkonu
Birtings, sem Voltaire
skrifaði um fræga sögu,
og höfðu þá sér til hress-
ingar i hungursneyð.
Sálfræðingar tala um
það, að hjá Búskmönnum
hafi þjóhnappar kvenna
orðið mjög fyrirferðar-
miklir i sambandi við
,,sérhæfingu kynferðis-
boða” (sjá mynd til
vinstri). Hið sama gerðist
hjá efnafóki i Evrópu á
liðinni öld, þegar konum
var með tæknibrellum út-
búið segl á borð við það
sem neðri myndin sýnir.
KV ÖLDSKÓLINN
Eins og undanfarna vetur verður gagn-
fræðadeild rekin i húsakynnum Gagn-
fræðaskólans við Laugalæk. Kennsla hefst
ýmist kl. 18,15 eða kl. 19,00. Kennt er fimm
kvöld vikunnar alls 21 timi. Kennslugjöld
kr. 3000,00 á mánuði.
Innritun fer fram i Laugalækjarskóla
(húsinu nær Sundlaugavegi) miðvikudag-
inn30. og fimmtudaginn 31. ágúst klukkan
20—22.
Skólinn verður settur fimmtudaginn 28.
september kl. 20.30. Skólastjórn.
SUNNUDAGUR 27. ágúst
8.00 Morgunandakt. Biskup
tslands flytur ritningarorð
og bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir.
8.15 L é 11 morgunlög,
Manhattan pinókvartettinn
leikur þekkta valsa. Fritz
Wunderlich syngur lög úr
óperettum.
9.00 Fréttir. Útdráttur úr
forustugreinum dagblað-
anna.
9.15 Morguntónleikar. a.
Divertimento i C-dúr nr. 1
op. 5 eftir Frantisek Xaver
Richter, Kvartett úr
tékknesku Filharmóniu-
hljomsveitinni leikur. b.
Kvartett fyrir pianó, flautu,
selló og fagott eftir Antonin
Rejcha. Josef Hála leikur á
pianó, Josef Mokros á
flautu, Bohumil Malotin á
selló og Frantisek Stenha á
fagott (Hljóðritun frá út-
varpinu i Prag).
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Loft, láð og lögur.Eyþór
Einarsson grasafræðingur
talar um jurtalif á Horn-
ströndum.
10.45 Tónleikar. Rita Streich
syngur nokkur lög ásamt
drengjakór dómkirkjunnar i
Regensburg.
11.00 Messa i Hóladómkirkju
(Hljóðritað á Hólahátið 13.
þ.m.) Séra Pétur Sigur-
geirsson vigslubiskup og
séra Gunnar Gislason i
Glaumbæ þjóna fyrir altari.
Séra Sigurður Pálsson
vigslubiskup flytur
predikun. Kirkjukór Sauð-
árkróks syngur, organ-
leikari og söngstjóri Frank
Herlufsen. I upphafi gúðs-
þjónustunnar leika félagar i
Kirkjutónlistarsveitinni á
Akureyri, Roar Kvam stj.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 Landslag og leiðir
JóhannesSigurðss. talar um
leiðina út með Skagafirði að
austan.
14.00 Miðdegisdónleikar. a.
Serenata i Es-dúr (K375)
fyrir blásturshljóðfæri eftir
Mozart. Blásarasveit
Lundúna leikur, Jack
Brymer stj. b. Konsert fyrir
tvö pianó og hljomsveit i As-
dúr eftir Mendelssohn.
OrazioFrugoni og Annarosa
Taddei leika með Sinfóniu-
hljómsveitinni i Vin, Rudolf
Moralt stj. c. Sinfónia nr. 7 i
A-dúr op. 92 eftir
Beethoven. Filharmóniu-
hljómsveitin i Berlin leikur
Herbert von Karajan.
15.30 Kaffitiminn Louis Arm-
strong syngur og leikur.
15.55 Frá tslandsmótinu I
knattspyrnu: Útvarp frá
KeflavikLýst siðari hálfleik
milli Keflvikinga og Akur-
nesinga.
16.40 Sunnudagslögin.
16.55 Veðurfregnir.
17.00 Barnatimi: Pétur
Pétursson stjórnar a.
Skroppið á skektu með
Nonna og Manna.Jón Aðils
leikari les bókarkafla eftir
Jón Sveinss. b. Kikt á kort i
simaskránni og flett forn-
sögum. Pétur Pétursson
talar um gatnanöfn i
Reykjavik. c Margrét Jóns-
dóttir les kafla um „Lillu
Heggu”, enn fremur tón-
leikar. d. framhaldssagan:
„Hanna María” eftir
Magneu frá Kleifum Herdis
Norðfjörð les (5).
18.00 Fréttir á ensku.
18.10 Stundarkorn með
bandariska píanóleikar-
anum Rosalyn Turek.
18.30 Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Frá ólympiu
MÁNUDAGUR 28. ágúst
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 815 (og
forustugr. landsmálabl.),
9.00 og 10.00 Morgunbænkl.
7,45 Auður Eir Vilhjálms-
dóttir cand. theol. (a.v.d.v.)
Morgunleikfimi kl. 7,50:
Valdimar örnólfsson og
Magnús Pétursson
pianóleikari (alla virka
daga vikunnar). Morgun-
stund barnanna kl. 8.45:
Guðjón Sveinsson les fram-
hald sögu sinnar um „Gussa
á Hamri”. (11) Til-
kynningar kl. 9.30. Létt lög
milliliða. KL. 10.25: Tónlist
eftir Saint-Saens: Sinfóniu-
hljómsveitin i Boston leikur
„Gulu prinsessuna” forleik,
Charles Munch stj. /Arthur
Grumiaux og Lamoureux
hljómsveitin leika Konsert
fyrir fiðlu og hljómsveit nr.
3 i h-moll, op. 61, Manuel
Rosenthal stj. Fréttir kl.
11.00. Tónleikar: John
Ogdon og Konunglega fil-
harmóniuhljómsveitin i
Lundunum leika Konsert
fyrir pianó og hljómsveit i
F-dúr op. 102 eftir Sjostako-
vitsj, Lawrence Foster stj. /
Filharmóniuhljómsveitin i
New York leikur Sinfóniu
nr. 5 op. 50 eftir Carl
Nielsen, Leonard Bernstein
stj.
12.00 Dagskráin, Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Síðdegissagan: „Þrútið
loft” eftir P.G. Wodehouse
Sunna Stefánsdóttir is
lenzkaði. Jón Aðils leikari
les ( 11 ) .
15.00 Fréttir. Tilkynning-
ar.15.15 Miðdegistónieikar:
Tónlist eftir Richard
Wagner. Eileen Farrell
syngur „Wesendonck-
söngva”. Sinfóniuhljóm-
, leikunum í MUnchen. Jón
Asgeirsson talar.
19.40 Ertu með á nótunum?
báttur um tónlistarefni i
umsjá Knúts R. Magnúss.
20.25 „Július Ceasar” eftir
William Shakespeare.Ævar
R. Kvaran fer með nokkur
atriði úr leiknum i þýðingu
Matthiasar Jochumssonar.
21.05 Einsöngur í Dómkirkj-
unni. Guðmundur Jónsson
syngur lög eftir Giordani og
John Prindle Scott. Við
orgelið: Guðmundur Gils-
son.
21.30 Árið 1945, fyrra misseri
Kristján Jóhann Jónsson
sér um þáttinn.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
sveitin i Chicago leikur
hljómsveitarþætti úr
„Meistarasöngvurunum”,
Fritz Reiner stj. Christa
Ludwig syngur lokasöng
Brynhildar úr óperunni
„Ragnarök”.
16.15 Veðurfregnir. Létt lög.
17.00 Fréttir. Tónleikar.
17.30 „Sagan af Sólrúnu” eftir
Dagbjörtu Dagsdóttur.
Þórunn Magnúsdóttir leik-
kona les (13).
18.00 Fréttir á ensku.
18.10 Létt lög. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Frá ólympfuleikunum i
M'únchen-
19.40 Daglegt mál Páll
Bjarnason menntaskóla-
kennari flytur þáttinn.
19.45 Um daginn og veginn.
Ingi Tryggvason bóndi á
Kárhóli talar.
20.05 Mánudagslögin.
20.30 Noregur og Efnahags-
bandalag Evrópu. Erindi
eftir Mikael Mikalesson
tæknifræðing í Noregi.
Gunnar Stefánsson flytur.
21.05 Hljóðritun frá austur-
ríska útvarpinu Kór Tón-
listarfélagsins i Vin og Sinf-
oníuhljómsveit austurriska
útvarpsins flytja verk eftir
Handel, Mozart, Eybler,
Beethoven, Haydn og Franz
Schmidt, Helmuth
Froschauer stj.
21.30 Útvarpssagan „Dalalif”
eftir Guðrúnu frá Lundi
Valdimar Lárusson les(16).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Búnaðar-
þáttur Gisli Kristjánsson
ritstjóri flytur Minni bænda
eftir Helga Haraldsson á
Hrafnkeisstöðum.
22.40 Hljómplötusafnið i um-
sjá Gunnars Guðmunds-
sonar.
23.35 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
SUNNUDAGUR 27. ágúst 1972.
17.00 Endurtekið efni. Svip-
myndir frá Ólafsvöku.
Kvikmynd sem islenzkir
sjónvarpsmenn tóku i Fær-
eyjum i fyrrasumar. Um-
sjónarmaður og þulur Tage
Ammendrup. Aður á dag-
skrá 7. ágúst siðastliðinn.
17.30 Mandala. Hljómsveitin
Trúbrot flytur frumsamin
Ijóð og lög. Aður á dagskrá
9. júni siðastliðinn.
18.00 Teiknimyndir.
18.10 Chaplin.
18.30 Nikita sterki. Sovézk
teiknimynd, byggð á æva-
gamalli þjóðsögu frá þeim
tima, er rússneska rikið var
enn ekki orðið til, en borgin
Kiev, eða Kænugarður, var
höfuðborg hins svonefnda
Garðarikis. Sútari nokkur,
Nikita að nafni tekur við
hlutverki herforingja og
heldur af stað með mönnum
sinum að hefna þjóðhöfð-
ingjans, sem her aðvifandi
ójafnaðarmanna hefur lagt
að velli.
18.50 IUé.
20.00 Fréttir.
20.20 Veður og auglýsingar.
20.25 Frá þvottakonu keisar-
ans og fleira fólki i Japan.
Gisli Gestsson, kvikmynda-
tökumaður, tók þessa mynd
fyrir Sjónvarpið, er hann
var á ferðalagi i Japan fyrr
á þessu ári.
20.45. Böl jarðar. Framhalds-
leikrit, byggt á skáldsögu
eftir Gustav Wied. 4. þáttur.
Þýðandi Dóra Hafsieins-
dóttir. Efni 3. þáttar: Manu-
el fer með köttinn og hanann
til Myllubæjar, til þess að
fullvissa sig um, að þeir
komist þangað lifandi. Dag-
inn eftir vinnur hann stórfé i
happdrætti. Knagsted fær
boð um að heimsækja
konsúlinn, sem liggur fyrir
dauðanum, og segir honum
nú frá erfðaskrá sinni. Meg-
inhluti eignanna rennur til
fátækra, en Knagsted fær
einnig riflegan skerf. Þann-
ig komast Manuel og Knag-
sted báðir i efni á sama
tima. (Nordvision —
Danska sjónvarpið)
21.35 Maöur er nefndur.
Kristján Aðalsteinsson,
skipstjóri. Arni Johnsen
ræðir við hann.
Frh. á bls. 15