Þjóðviljinn - 02.09.1972, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN>augardagur 2. september 1972
DJOÐVIUINN
MÁLGAGN SÖSÍALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÖÐFRELSIS
Útgefandi: Útgáfufélag Þ|óðvil|an*.
Framkvamdastióri: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Sigurður Guðmundaaon,
Svavar Geataaon (áb.).
Auglýaingaatjóri: Haimir Inginrwsraaoii.
Ritstjórn, afgreiðsla, augiýsingar:
Skólav.at 19. Simi 17500 (5 linur).
Aakriftarvarð kr. 225.00 á mánuðf.
Lauaasöluverð kr. 15.00.
Prentún: Blaðaprent h.f.
HEFÐBUNDINN ARÐRÁNSRÉTTUR OG PÓLITÍSKT SIÐLEYSI
Segjum að þú eigir ibúð, jafnvel þótt hún
sé litil. Segjum að þú hafir setið lang-
timum saman i biðstofum bankastjóranna
til þess að slá fyrir ibúðinni, að þú hafir
sveitzt blóðinu i aukavinnu fram á nætur
við að eignast þessa ibúð og þér sé þess
vegna sárt um hana og viljir fyrir alla
muni halda i ibúðina. Hún er réttilega eign
þin. Setjum svo að siðan komi atvinnu
rekandi þinn til þin einn góðan veðurdag
og segi: Nú hefur þú unnið hér i 30 ár. Ég
hef grætt á þvi að kaupa vinnuafl þitt og
þess vegna hef ég hefðbundinn rétt til að
græða á þér. Þú ert aftur á móti farinn að
eldast og til þess að tryggja að ég geti
grætt á þér jafnmikið i framtiðinni verður
þú einnig að afhenda mér arðinn af ibúð
þinni. Segjum að atvinnurekandinn beiti
fantaskap og ofbeldi til þess að knýja fram
þessa sérdeilis óbilgjörnu ósk.
Þetta sem hér er sagt kann að virðast
fjarstæða — en hliðstæð dæmi eru til og
það i samskiptum þjóða. Þessum eða hlið-
stæðum aðferðum er beitt af þjóðum sem
sjálfar telja sig aðalmálsvara lýðræðis og
frelsis — jafnvel af rikisstjórn sem hefur
handhafa friðarverðlauna Nóbels i broddi
fylkingar. íslendingar hafa ákveðinn sið-
gæðismælikvarða, samkvæmt þeim mæli-
kvarða er framkoma atvinnurekandans i
dæmisögunni hér á undan siðlaus og svi-
virðileg. En litum á afstöðu Breta og Vest-
ur-Þjóðverja i landhelgismálinu:
Litil þjóð— sem á engin önnur auðæfi en
fiskinn á miðunum — færir út landhelgi
sina samkvæmt aðferðum sem gilt hafa
með öllum þjóðum alla tið. Að undanförnu
hafa aðrar þjóðir fært út landhelgi sina i
allt að 200 milur — og enginn hefur mót
mælt þvi hvað þá leyft sér að brjóta lög-
sögu þessara þjóða eftir útfærsluna. Við
Island gerist það aftur á móti að tvær
þjóðir senda skip á íslandsmið til þess —■
undir vernd stórra skipa — að brjóta lög-
sögu Islendinga. Þessi lögbrot eru framin
eingöngu á þeirri forsendu — samkvæmt
upplýsingum forustumanna togara-
eigenda þessara þjóða — að þeir hafi hefð-
bundinn arðránsrétt gagnvart íslending-
um. Þannig er framkoma þeirra hliðstæð
ofbeldisaðferðum atvinnurekandans sem
minnzt var á hér að framan. En forustu-
menn þessara þjóða bæta gráu ofan á
svart: Þeir blanda saman alls óskyldum
málum og neita að standa við gerða
samninga. Islendingar höfðu undirritað
samkomulag um ákveðin viðskipti við
Efnahagsbandalagið. Þegar íslendingar
svo ákveða að færa út landhelgi sina, rifta
sömu aðilar samningunum við Islendinga
og neita að endurnýja þá nema þvi aðeins
að Islendingar falli frá þvi að færa út land-
helgina i 50 milur. í kjölfar þessa fylgja
hótanir um verzlunarbann, um hafnbann,
um einangrun íslendinga á viðskipta-
sviðinu og efnahagslegt samsæri riku
þjóðanna gegn Islandi.
Þetta eru aðfarir sem eru fordæmanleg-
ar út frá pólitisku siðgæðismati. Hefð-
bundinn réttur til aðrðráns er að sjálf-
sögðu ekki til og hann munu íslendingar i
engu virða — en tilraunin til þess að
þrengja að fslendingum og eiangra þá
er dæmd til þess að mistakast og mun
einungis auka fyrirlitningu íslendinga á
slikum aðförum og auka samheldni þeirra
og styrk til þess að vinna fullnaðarsigur.
VIÐ HVIKLJM EKKI ÞUMLUNG
Islenzka rikisstjórnin sýndi það með
samningatilboðum sinum fyrir 1. septem-
ber að hún var reiðubúin til þess að veita
Bretum umþóttunartima innan islenzku
landhelginnar. Rikisstjórnin verður þvi á
engan hátt sökuð um óbilgirni gagnvart
þeim þjóðum sem hafa veitt á miðunum
umhverfis landið. Það sýna lika
samningarnir við Færeyinga sem gerðir
voru I siðasta mánuði. Nú hefur hins vegar
tvennt gerzt sem hlýtur að hafa áhrif á af-
stöðu islenzku þjóðarinnar i þessum efn-
um: Hið fyrra er úrskurður alþjóðadóm-
stólsins, sem torveldar beinlinis að unnt sé
að ná nokkru samkomulagi. Hið siðara er
alvarlegra, en það eru lögbrot Breta og
Vestur-Þjóðverja innan islenzku land-
helginnar. Lögbrotin hafa það i för með
sér að íslendingar erustaðráðniríað hvika
ekki þumlung frá rétti sinum til 50 milna
fiskveiðilögsögu. Lögbrjótar eru yfirleitt
ekki verðlaunaðir með sérstökum ivilnun-
um og það á heldur ekki að eiga sér stað
með Breta og Vestur-Þjóðverja i land-
helgismálinu. Lögbrotin hafa þvi engin
áhrif önnur en þau að þjappa tslendingum
fastar saman um þá skoðun að hvika
hvergi og gefa ekki þumlung eftir.
Forsíður blaðanna fyrir 14 árum
iðBViuiMer
(Hí ríkí uöurkéiina miííi.i íaod-
hiöjjiiia i vcrki - ncrna Hri'lar
i* 4Í V&a&jMMn yn&t vztmi xr**#-* btrtfáí**
Bmar rödast m í íslerrkö Jœié
' i". ,4 eg f®RB i skjáfi tervalds
Alþúöublaöiö
isfaárí
sw>fot*&!t****% ■... - .
tAí-.-i i
Brezki flotinn iátinn vernda veíði-
jjjófa í íslenzkri íiskveiðiíandltclgi
im Msr iMJsr
hwtói v i>>4rekat<ö*
'■ .' .;• ■ ■.'V • .
Ireiplan sújldi i
ve<t iyrir
Y/. rrf.t »*.•.* V, • • ...,•■•.***
strax komið til átaka á Morgunblaðið:
miðunum. Fyrirsagnir „Brezk herskip fremja
blaðanna sýna það ofbeldisverk I islenzkri
ótvirætt: landhelgi.”
Nú hafa lesendur
blaðanna séð forsiður
þeirra frá landhelgisút-
færslunni 1972 og tii
samanburðar birtum við
hér myndir af forsiðum
blaðanna frá útfærslu
landhelginnar 1958. 1.
september bar þá upp á
sunnudag þannig að
blöðin gátu öll skýrt
itarlegar frá þvi sem
gerzt hafði á miðunum
en unnt var i morgun-
blöðunum í gær. Af for-
siðunum frá landhelgis-
deginum fyrir 14 árum
má ráða að þá hefur
★
Þjóðviljinn: „öll riki
viðurkenna 12 milna
landhelgi i verki —
nema Bretar.
Bretar ráðast inn i
islenzka landhelgi og
ræna i skjóli hervalds.”
¥
Alþýðublaðið: „Utan-
rikisráðherra mótmælir
ofbeldi Breta harðlega.”
¥
Timinn: „Brezki
flotinn látinn vernda
veiðiþjófa i islenzkri
fiskveiðilandhelgi. ’ ’
„íslenzk varðskip sem
litlar skeljar undir járn-
þili brezku vigdrek-
anna.”
★
Visir: „Freigátan
sigldi ætið i veg fyrir
varðskipin!’
Gífurleg aðsókn
að sænsku
heimilisiðnaðarsýningunni
Norræna húsið og
Heimilisiðnaðarfélag
islands í samvinnu við
Landssamband sænskra
heimilisiðnaðarfélaga
standa fyrir sýningunni,
sem opnuð var 26. ágúst.
Aðsókn hefur verið gífur-
leg, einn daginn komu 1.000
manns. — Margir munir
hafa selzt. Börnin flykkjast
i vefstólinn, þar sem þau fá
leiðbeiningar í að vefa. —
Sænsk kona á þjóðbúningi
leiðbeinir gestum, sem
óska eftir því. — Þetta er i
fyrsta sinn, sem svo yfir-
gripsmikil sænsk sýning er
sett upp utan Svíþjóðar.
A sýningunni kennir margra
grasa: ullarflikur, tin- og silfur-
munir, munir úr beinum, list
Lappa i Norður-Sviþjóð auk tré-
vara. Uppsetningin hefur hlotið
einróma lof sýningargesta.
Sýningin er opin daglega kl.
14—22 og lýkur henni 10. sept. n.k.