Þjóðviljinn - 23.09.1972, Side 9
Laugardagur 23. september 1972 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9.
EYROPU-
BIKARINN
Á MORGUN
Siðari leikur Víkings
frá Stavangri og Vest-
mannaeyja i UEFA-
keppninni verður leikinn
á Laugardalsvellinum á
morgun.
Unglinga-
meistaramót
Islands
í sundi
1 dag hefst i Sundhöll
Itcykjavikur unglinga-
meistaramót tslands i sundi
og liefst kl. 17.00. Mótinu iýkur
á morgun. Dagskrá mótsips er‘
þessi:
Laugardagurinn 23. septem-
ber kl. 17.00:
100 m fjórsund sveina.
100 m bringusund stúlkna.
100 m skriðsund drengja.
50 m skriðsund telpna.
50 m baksund sveina.
100 m baksund stúlkna.
50 m flugsund drengja.
50 m flugsund telpna.
50 m bringusund sveina.
200 m fjórsund stúlkna.
4x50 m fjórsund drengja.
4x50 m bringusund telpna.
Sunnudagurinn 24. scptember
kl. 15.00:
100 m fjórsund telpna.
100 m bringusund drengja.
100 m skriðsund stúlkna.
50 m skriðsund sveina.
50 m baksund telpna.
100 m baksund drengja.
50 m flugsund stúlkna.
50 m flugsund sveina.
50 m bringusund telpna.
Eins og kunnugt er lauk fyrri
leik liðanna, sem fram fór i
Noregi með eins marks sigri Vik-
ings og þótti jafnvel norskum
blöðum sigurinn óverðskuldaður.
Þannig er ekki óliklegt að leikur-
inn á morgun verði allfjörugur og
sigur Vestmannaeyinga gæti
tryggt þeim áframhald i keppn-
inni.
Þá er ekki óliklegt að islenzkum
áhorfendum gefist þarna siðasti
kostur á að sjá Asgeir Sigurvins-
son leika hér i bráðina^þvi hann er
á förum til Skotlands i boði 1.
deildarfélagsins Morton, og ekki
er óliklegt að hann fari þar i at-
vinnumennskuna.
Fram
Islands-
meistari
í 3. flokki
Framarar sigruðu KR i úrslita-
leik tslandsmótsins i 3. flokki með
einu marki gegn engu. Leikurinn
fór fram á Melavellinum i fyrra-
kvöld.
Meistaramót
Rvikur i frjálsum
iþróttum
Meistaramót Rvikur i frjálsum
iþróttum hefst á Laugardalsvell-
inum i dag kl. 16.00. Keppninni
lýkur á morgun.
Sundþ j álf arar
Aðalfundur Samtaka sundþjálf-
ara verður haldinn sunnudaginn
24. september og hefst kl. 10.00
f.h. i skrifstufu SSÍ i Laugardal.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundar-
störf.
Baldur Scheving, sá gamalreyndi Framari stendur nú á verðlaunapallinum og tekur við islands-
meistarabikarnum. Ifann er eini maðurinn úr gamla islandsmeistaraliði Fram, sem sigraði 1962,
sem enn er i fullu fjöri og leikur með keppnisliðinu.
Þessi mynd er tekin i leiknum viö KR nú fyrir stuttu.
SÍÐUSTU LEIKIR
ÍSLANDSMÓTSINS
1 DAG
Siöasti leikur íslands-
mótsins fer fram á
Melaveliinum í dag og er
hann milli Fram og
Vals. Fram hefur þegar
tryggt sér sigur í mótinu
og er með 23 stig. For-
leikur verður úrslita-
leikurinn i kvennaknatt-
spyrnunni milli Fram og
Ármanns. Eftir 1.
dei Idarleikinn leika
Breiðablik og Vaiur til
úrslita i 4. flokki. Þannig
fær Melavöllurinn gamli
og góði mikið að gera i
dag.
Leikur Fram og Vals i 1.
deildinni er þýðingarlaus leik-
ur fyrir bæði liðin. Framarar
hafa tryggt sér Islands-
meistaratitilinn, og þótt þeir
eigi einum ieik ólokið hafa
þeir 3 stig fram yfir næsta lið.
Glæsilegur sigur það.
Að leiknum loknum verða
úrslit mótsins kunngerð og
Frömurum veittur Islands-
meistarabikarinn. Hann hlutu
þeir siðast árið 1962, eða fyrir
10 árum. Einn leikmaður
stendur aftur á verðlaunapall-
inum núna, Baldur Scheving.
Og áhorfendur fá að sjá
meira heldur en einn leik i
dag. Úrslitaleikurinn i
lslandsmóti kvenna utanhúss,
þvi fyrsta sem haldið er hér á
landi, fer fram sem forleikur
og leika þar Fram og Armann.
Að lrdeildarleiknum loknum
fer siðan fram úrslitaleikurinn
i 4. flokki og leika þar Breiöá-
blik og Valur. Þar eru bráð-
efnilegir drengir á ferð og
grunar mig að betri samleikur
sjáist ekki hjá islenzkum lið-
um en i þessum aldursflokki.
Þá er aðeins eftir að fá úrslit
i 2. flokki.en þar leika þrju lið
um Islandsbikarinn. Þau eru
Fylkir úr Reykjavik, Akranes
og Vestmannaeyjar.
Aftur óvœnt úrslit í
bikarkeppninni
Haukar sigruðu Breiðablik
1:0
óvæntast af öllu óvæntu
sögðu dagblöðin í vor þegar
Breiðablik sigraði Vest-
mannaeyjar i 1. leik
islandsmótsins með 3—2.
urslitín i leik Hauka og
Breiöabliks i bikarkeppn-
inni í fyrrakvöld urðu þó að
vissu leyti enn óvæntari.
Munurinn á þessum tveim-
ur ,,óvæntu úrslitum" er
aðeins sá, að sigur Breiða-
bliks i vor var jafn sann-
gjarn og sigur Haukanna
var ósanngjarn. Þó var
barátta þeirra og dugnaður
lofsverður, og mikill sigur-
vilji réttlætir það að
Haukar spörkuðu Breiða-
bliki úr keppninni.
Leikur Breiðabliks og Hauka
var frá upphafi frekar slæmur
knattspyrnulega séð. Mikill
kraftur var i liði Haukanna og
gáfu þeir Breiðabliksmönnum
engan frið til að byggja upp spil
sem leitt gæti þá inn i teig og
þannig skorað mörk.
I fyrri hálfleik áttu Blikarnir þó
ógrynni tækifæra, svo mörg að
blaðamenn voru steinhættir að
punkta niður þótt bjargað væri á
linu, skotið i stöngina eða mark-
tækifæri klúðrað af marklinu.
Þaö var hreint ótrúlegt hvernig
Breiðablik fór að þvi að skora
ekki 3—4 mörk i fyrri hálfleik og
svo virtist sem þar væri kæru-
leysi einu um að kenna.
Haukarnir náðu nokkrum
sóknarlotum i fyrri hálfleik og
uppskáru þar eina mark leiksins.
Að flestra áliti gerðust þarna einu
stóru mistök dómara og linu-
varða, þe. markið var skorað úr
svo mikilli rangstöðu að það er
afrek út af fyrir sig að geta lokað
augunum fyrir þvi. En Magnús
Fétursson, annars ágætur dómari
leiksins, gerði engar at-
hugasemdir og sigurmarkið var
staðreynd.
Markið kom er u.þ.b. 15 min.
voru liðnar og virkaði það sem
vitaminsprauta á áhugasamt og
baráttuglatt lið Haukanna.
Leikurinn jafnaöist nokkuð, en
Kópavogsbúar áttu þó allan tim-
ann frumkvæðið en ekki vildi
boltinn i netið. Markvörðtir Hauk-
anna hafði einnig að þvi er virtist
ósköp takmarkaðan áhuga á að
sækja boltann i netið hjá sér og
varði hann oft stórglæsilega.
Þar með eru tvö 1,- deildarlið
fallin úr keppninni, Islands-
meistararnír i Fram og Breiða-
blik sem lék úrslitaleikinn i
bikarkeppninni i fyrra gegn
Vikingi og tapaði þá með 1:0.
Auglýsingasíminn
er 17 500 Þjóðviljinn
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavik, ýmissa lögmanna,
banka og stofnana fer fram opinbert uppboð að Siðumúla
30, hér i borg (Vöku h.f.) laugardag 30. september 1972, kl.
13.30 og verða þar seldar eftirtaldar bifreiðar:
R.368, R.4613, R.5881, R.6076, R.6781, R.9422, R.10606,
R.12287, R.13275, R.13456, R.14807, R.15885, R.16081,
R.16553, R.17004, R.18227, R.20049, R.20497, R.21005,
R.21130, R.22545, R.22598, R.23061, R.23267, R.23471,
R.2.3703, R.24043, R.24539, R.25117, R.25208, R 25956,
R.26899, R.28165, R.28230, G.6545, L.610, Y.948,
Y.2138, óskrásett bifreið, Morris minor, óskrás. Volvo
Amason, og óskrás. kranabill Koering. Ennfremur
traktorsgrafa Rd.198, og jarðýta.
Greiðsla við hamarshögg.
Avisanir ekki teknar gildar nema með samþykki upp-
boðshaldara.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.