Þjóðviljinn - 12.11.1972, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 12.11.1972, Blaðsíða 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 12. nóvember 1972 Ríkisstofnun óskar eftir að ráða stúlku til vélritunarstarfa og skjalavörzlu. Góð islenzkukunnátta áskilin, en þekking i erlendum tungumálum ekki nauðsynleg. Tilboð með upplýsingum um fyrri störf sendist blaðinu fyrir 21. þ.m. merkt skrif- stofustúlka 17502. FRA SJÚKRASAMLAGI REYKJAVfKUR Trésmiði og yerkamenn vantar við Flensborgarskóla i Hafnar- firði. Upplýsingar gefur verkstjóri á staðnum. Simi 5:5018. HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN ríkisins j mmm 2IA OG 3JA HERBERGJA ÍBÚÐIR TIL SÖLU 90 SÖLUÍBÚÐIR Auglýstar eru til sölu 90 ibúðir, sem verið er að byggja á vegum Framkvæmdanefndar byggingaáætlunar i fjölbýlishúsum við Gyðufell, 12-16 og Iðufell 2-12 i Eeykjavik. Eru ibúðir þessar tveggja og þriggja herbergja. Þær verða seldar fullgerðar (sjá nánar i skýringum með umsóknunum) og afhentar þannig á timabilinu júni -september 1973. Kost á kaupum á ibúðumþessum eiga þeir, sem eru fullgildir félagsmenn i verkalýðsfélögum (innan A.S.I.) svo og kvæntir/giftir iðnnemar. Brúttóflatarmál 3ja herbergja ibúðanna (með hlut i stigahúsi og einkageymslu) er 80,7 fermetrar og áætlað verð þeirra er kr. 1.640.000,-. Brúttóflatarmál 2ja herbergja ibúðanna (með hlut i stigahúsi og einkageymslu) er 65,5 fermetrar og áætlað verð þeirra er kr. 1.320,-. 3ja herbergja íbúðirnar eru 54 talsins og 2ja herbergja ibúðirnar eru 36 talsins. Þeim er hyggjast sækja um kaup á 4ra herbergja ibúðum skal bent á, að þær verða auglýstar til sölu fyrri hluta næsta árs. GREIÐSLUSKILM ALAR: Greiðsluskilmálarerui aðalatriðum þeir, aðkaupandi skal, innan 3ja vikna frá þvi að honum er gefinn kostur á ibúðarkaupum, greiða 5% af áætluðu ibúðarverði. Er ibúðin verður afhent hon- um skal hann öðru sinni greiða 5% af áætluðu ibúðarverði. Þriðju 5% greiðsluna skal kaupandi inna af hendi einu ári eftir að hann hefur tekið við ibúðinni og fjórðu greiðsluna skal hann greiða tveim árum eftir að hann hefur tekið við ibúðinni. Hverri ibúð fylgir ibúðarlán stofnunarinnar til 33ja ára, er svarar til 80% af kostnaðarverði. Nánari upplýsingar um allt, er lýtur verði, frágangi og söluskil- málum eraðfinna i skýringum þeim, sem afhentar eru með um- sóknareyðublöðunum. Umsóknir um ibúðarkaup eru afhentar i Húsnæðismálastofnuninni. Umsóknir verða að berast fyrir kl. 17 hinn 8. desember n.k. Reykjavik, 8. nóvember 1972, Ilúsnæðismálastofnun rikisins. HÚSNÆÐISMALASTOFNUN RlKISINS LAUGAVEGI77, SlMI 22453 Elísabet Stefánsdóttir F. 8. sept. 1917 — Dáin 5. nóv. 1972. Fáein minningarorð. Elisabet Stefánsdóttir, hús- móðir, Meðalbraut 14 i Kópavogi andaðist i Landakotsspitala þann 5. þ.m. 55ára að aldri. Verður út- för hennar gerð frá Fossvogs- krikju á morgun. Ebba , eins og hún var alltaf nefnd af vinum og vandamönn- um, hafði átt við langvarandi van heilsu að striða. Kom þvi fráfall hennarþeim er vel þekktu til ekki á óvart. Hitt gegndi meiri furðu af hviliku þreki og bjartsýni henni tókst að mæta veikindum sínum og hve frábært úthald hún hafði i orustunni við skæðan sjúkdóm. Ekkert var fjær henni en uppgjöf eða vonleysi og það jafnt þótt augljóst væri að hverju dró. Af vörum hennar heyrðist aldrei æðruorð eða kvörtun um eigin hag hversu nærri sem sjúkdómur inn gekk henni. Langtum fremur hafði hún oft á orði að margir aðrir bæru þyngri byrði veikinda og vanliðunar. Ég hefi engri manneskju kynnzt sem haldið hefur jafn vel hugarró og lifs- gleði, þrátt fyrir þungbær veik- indi og sjúkrahúslegur árum saman. Ebba var gædd óvenju sterkri lifslöngun og lífstrú og þeir eignleikar entust henni þar til yfir lauk. Ebba var fædd á Kolbeinsá i Bæjarhreppi i Strandasýslu 8. sept. 1917. Foreldrar hennar voru hjónin Jóhanna Lýðsdóttir og Stefán ólafsson, er þar bjuggu. Hún missti föður sinn kornung, en móðir hennar hélt þar áfram bú- skap og ól upp börn sin bæði, Ólaf og Ebbu. Óx Ebba upp við venju- leg skilyrði i sveit á þeim árum og vandist öllum störfum er þar féllu til. Á Kolbeinsá var mikil fjöl- breytni i störfum þvi ásamt venjulegum búskap i sveit þurfti að nýta margháttuð hlunnindi, svo sem selveiði, æðarvarp, fuglatekju og reka. Gekk Jó hanna móðir hennar að þeim störfum öllum af einstakri alúð og atorku og naut til þess aðstoðar barna sinna er þau komust á legg. Eftir að Ebba fluttist hingað suður minntist hún oft glaðra stunda i uppvexti sinum i Hrúta- firði . Hafði hún jafnan yndi af að heimsækja sveitungana og æsku- stöðvarnar og rifja upp gamlar endurminningar i þeirra hópi. Sveitungarnir komu einnig oft á heimili hennar og voru þar vel- komnir. Siðustu ferðina norður á æskustöðvarnar fór hún með vin- um og frændfólki sumarið 1971 og hafði mikla ánægju af þeirri för. Dáðist samferðafólkið að dugnaði hennar, er hún þrátt fyrir veik- indi sin og bilað þrek lét ekki sinn hlut eftir liggja i gönguferðum um landareignina, skoðunarferð- um um fjörur, vikur og nes, þar sem ungt fólk undi sér bezt á áhyggjulausum æskudög- um. Ebba lærði ljósmóðurfræði i Landsspitalanum og var um tima ljósmóðir i Bæjarhreppi ög siðar stundaði hún þau störf i Kópavogi. Var hún heppin og vin- sæl ljósmóðir og kunni þvi starfi ágætlega. Síðar starfaði hún við hæli vangefinna i Kópavogi og var sérstaklega vel látin af sam- starfsfólki o'g sjúklingum. Henni var einkar lagið að hjúkra og hjálpa og lagði sig fram i þvi efni langt fram yfir það sem þrekið leyfði siðustu árin. Ebba giftist þann 15. mai 1943 Sigurði Ólafssyni verzlunar- manni, siðar skrifstofustjóra Kópavogskaupstaðar, miklum ágætis- og mannkostamanni. Var hjónaband þeirra ákaflega far- sæit og þau samhent við að leysa hvern þann vanda er að höndum bar og takast á við mótlæti og erf- iðleika. Þau eignuðust fjögur börn, Jóhönnu, Snorra, Jón og Arndisi, og ólu einnig upp dóttur Sigurðar, Ásthildi. Eru þær hálf- systurnar Ásthildur og Arndis báðar giftar og búsettar i Vest- mannaeyjum, Jón og Snorri dvelja enn i foreldrahúsum, en Jóhánna er á hælinu að Sólheim- um i Grimsnesi. Umhyggja og ástúð einkenndi allt viðhorfið til barnanna og þá ekki sizt til dótt- urinnar sjúku, sem oft dvaldi á heimili þeirra, einkum á hátiðar- stundum, og var heimsótt austur eins oft og kostur var á. Oll framkoma og viðhorf barn- anna til móður sinnar var einnig til sannrar eftirbreytni. Hjálp- semi þeirra og hugulsemi i henn- ar garð var einstök og samheldni allrar fjölskyldunnar vakti at- hygli allra er til þekktu. Móðir Ebbu, Jóhanna heitin Lýðsdóttir, skildi aldrei við dóttur sina og lézt öldruð á heimili hennar og Sig- urðar fyrir allmörgum árum. Jó- hanna var dugmikil heiðurskona og voru miklir kærleikar með þeim mæðgum og Jóhanna i sér stöku afhaldi hjá fjölskyldunni allri. Er óhætt að fullyrða að Jó- hanna átti góða elli hjá dóttur sinni, tengdasyni og barnabörn- um og lá heldur ekki á liði sinu heimilinu til gagns. Ebba var ágætlega greind og hafði til að bera rika réttlætis- kennd. Hún var einörð i skoðun- um en ákaflega orðvör og umtals- góð. Samúð hennar með þeim sem minna máttu sin eða halloka fóru i lifinu var einlæg og heit. I brjósti hennar vakti sterk þrá eft- ir betra og réttlátara þjóðfélagi. Ebba var eindreginn verkalýðs- sinni og sósialisti allt frá æskuár- um og hafði mikinn áhuga á framgangi allra mála er alþýðu mátti til heilla verða. Áttu þau Sigurður I þvi efni sem öðrum fulla samleið. Ekkert hefði ferið fjær skap ferli Ebbu en margorðar harma- tölur við þær aðstæður sem nú eru orðnar. Ekki skal þó undandregið hve eftirlifandi eiginmaður, börn- in og fjölskyldan öll hefur mikils misst við fráfall hennar og hve söknuður þeirra er þungbær. Og sá söknuður nær einnig til okkar hinna sem lengst og bezt höfum þekkt hana og heimilið og notið vináttu þeirra allra. Mikið skarð er ófyllt við andlát hennar. En að svo miklu leyti sem það verður bætt mun samheldni og samstaða fjölskyldunnar, arfurinn sem Ebba skilur eftir sig, verða þyngst á metunum og drýgst til þess að draga úr erfiðleikum og græða sárin. Fjölmennur hópur vina og frændfólks vottar þeim öllum einlæga samúð. Ekki sízt vil ég votta Sigurði, börnum hans, tengdasonum og barnabörnum innilega hluttekningu mína og konu minnar, en hún á nú á bak að sjá náinni vinkonu og frænku sem tengd var henni traustum bönd- um allt frá uppvaxtarárunum nyrðra. Guðmundur Vigfússon. Útvarp íeinutæki Gengur bæöi fyrir rafmagni og rafhlöðum Góöurgripur góó gjöf á aóeins kr. 12.980 n C ) KLAPPARSTlG 26, SlMI 19800, RVK. OG VbÚ Ð I N BREKKUGÖTU 9, AKUREYRI, SlMI 21630 Læknaskipti Þeir samlagsmenn Sjúkrasamlags Reykjavíkur, sem óska að skipta um heimilislækni frá næstu áramótum, gefi sig fram við afgreiðslu samlagsins Tryggvagötu 28, fyrir 13. desember. Skrá um þá heimilislækna, sem um er að velja, liggur frammi i afgreiðslunni. Vinsamlegast hafið meðferðis samlags- skírteini er læknaval fer fram. SJÚKRASAMLAG REYKJAVÍKUR Auglýsingasími ÞJÖÐVILJANS er 17500 DJOÐVIUINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.