Þjóðviljinn - 28.11.1972, Qupperneq 11
Þriðjudagur 28. nóvember 1972 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
;
Það kom greinilega i ljós, i leik Fram og FH s.l.
sunnudagskvöld, að ef Fram-liðið fær ekki að
leika göngubolta og tefja eins og þvi sýnist, getur
liðið ekki svarað, þegar hraðinn er skrúfaður
upp. Magnús V. Pétursson dæmdi réttilega töf á
Framliðið eftir aðeins 3 minútur af leik, er liðið
sýndi engin merki þess að það ætlaði að ógna,
aðeins leika hægt og rólega fyrir framan FH-
vörnina. Þegar Framarar sáu að þeim leiðst ekki
þessi leikleysa og það varð að reyna að svara
með hröðum leik, varð heldur fátt um fina drætti
hjá liðinu og FH náði um tima yfirburðastöðu,
sem það að visu fór illa með, svo sigurinn varð
minni en efni stóðu til. En þess verður einnig að
geta að Framarar voru mjög óheppnir á stund-
um. Og i rauninni jafn óheppnir i þessum leik og
þeir voru heppnir i leiknum gegn Val á dögunum.
:
Vissulega átti þetta ólán,
sem elti liðið lengi vel, sina
sök a þvi hve FH náði mikilli
yfirburðastöðu. En ég er þó
ekki viss um að allt það sem
leit út fyrir að vera óheppni
hafi verið það i raun og veru.
Nú þurftu Framarar, eftir að
gönguboltinn var tekinn af
þeim, að framkvæma ýmsa
hluti á meiri hraða og ferð en
þeir hafa þurft i meira en eitt
ár og liðsmenn voru alls ekki
undir slikt búnir. Svo ég álit að
sumt hafi verið hrein vangeta,
sem leit út sem óheppni. Að
sjálfsögðu voru 3 misheppnuð
vitaköst i fyrri hálfleik hrein
óheppni og höfðu sitt að segja i
að draga Framliðið niður.
FH beitti mjög miklum
hraða á stundum, raunar
meiri hraða en liðið ræður við,
en þó kom fyrir að það náði að
skora stórglæsileg mörk eftir
eldsnöggar sóknarlotur. En
það kom lika i ljós að liðið
dettur mjög mikið niður kafla
og kafla i leiknum og það svo,
að veikustu lið geta notfært
sér það, eins og kom fram i
leiknum við KR á dögunum.
Viðar Simonarson skoraði
fyrsta mark leiksins og gaf FH
þar með tóninn sem liðið hélt
það sem eftir var, þvi að Fram
náði aldrei forustu i leiknum.
Aðeins var jafnt 1:1 en siðan
ekki söguna meir. FH komst i
3:1 og 4:2, 6:3og 7:4 og þegar 5
minútur voru eftir af fyrri
hálfleik var staðan orðin 8:4
FH i vil. I leikhléi var staðan
er það skemmtileg tilbreyting
frá göngubolta flestra liðanna
i 1. deild. Geir, Auðunn, Hjalti
og Gunnar Einarsson voru
menn dagsins hjá FH og er
greinilegt að Auðunn er að
komast i sitt fyrra form og er
þá um leið orðinn einn okkar
beztilinumaður. Manni virðist
vörn liðsins ekki jafn sterk og
oftast undanfarin ár, hverju
sem það er að kenna. En
markverzlan er góð hjá liðinu
með tvo landsliðsmarkverði
innan sinna vébanda.
Framarar mega gæta sin
verulega, ef dómararnir taka
loks uppá þvi að stöðva göngu-
boltann, sem þeim ber að
gera. Ef svo verður, þá trúi ég
vart að Fram verði með i
toppbaráttunni i vetur.
Ingólfur óskarsson bar af i
þessum leik eins og gull af eir.
Þeir Sigurbergur og Björgvin
komu sæmilega frá leiknum
en aðrir áttu vart umtalsverð-
an leik.
Mörk FH: Geir 6 (2 viti),
Auðunn 3, Ólafur 2, Arni 2,
Gunnar 2, Viðar 2 og Þórarinn
1 mark.
Mörk Fram: Ingólfur 8 (6
víti), Sigurbergur 2, Pétur 2,
Sveinn 2, Guðmundur og
Björgvin 1 mark hvor.
Breiðablik byrjar vel
2. —deildarkeppninni
Hún breyttist svo i 11:5 i
byrjun siöari hálfleiks og var
það mesti munurinn i leikn-
um. Það voru einkum þeir
Auðunn Óskarsson og Geir
Hallsteinsson, sem skoruðu
mörkin fyrir FH á þessum
tima, og voru þessir tveir
raunar beztir FH-liðsins.
En þá kom allt i einu einn af
þessum slæmu leikköflum FH
og Fram tók að saxa á forskot-
ið unz það var ekki orðið nema
eitt mark, 16:15 þegar 2 min-
útur voru til leiksloka. Aftur
varð 2ja marka munur 17:15,
en Ingólfur Óskarsson, sem
bar af i Fram-liðinu, skoraði
16. mark Fram. Þá tóku
Framarar að leika maður á
mann en réðu ekki við það og
Árni Guðjónsson skoraði siö-
asta mark leiksins, 18. mark
FH.
Það er alveg öruggt að FH-
liðiö verður með i toppbarátt-
unni I vetur, en hvort þvi tekst
að komast alveg á toppinn
skal ósagt látið. Liðiö beitir
hraðanum sem aðalvopni og
Eftir leiki FH og Fram og
Hauka og KR er staðan i 1,-
deildarkeppninni i handknatt-
leik þessi:
ÍR 2 2 0 0 38:27 4
FH 2 2 0 0 33:29 4
Víkingur 1 10 0 16:15 2
Valur 2 1 0 1 38:29 2
Fram 2 10 1 34:31 2
Haukar 2 1 0 1 36:32 2
Armann 2 0 0 2 23:42 0
KR 3 0 0 3 44:57 0
Breiöablik hlaut sin tvö
fyrstu stig i 2.-deildar-
keppninni i handknattleik i
fyrsta ieik sinum, er það
mætti liði Stjörnunnar úr
Garðahreppi s.l. sunnudag.
Breiðablik sigraði 18:13 i all-
skemmtilegum leik.
Framan af var leikurinn
nokkuð jafn og var staðan i
leikhléi 8:8. En er liða tók á
siðari hálfleik tóku Breiða-
bliksmenn frumkvæðið i leikn
um og sigur þeirra varð
nokkuð stór eins og að framan
Markahæstu leikmenn.
Haukur Ottesen KR 17 (3)
Gcir Ilallsteinsson FH 13 (2)
Bergur Guðnason Val 11 (2)
Ólafur Ólafsson
Haukum 11 (2)
Brynjólfur Markússon
1R 10 (2)
Ingólfur Óskarsson
Fram 9 (2)
Vilhjálmur Sigurgeirsson
ÍR 9 (2)
Björn Pétursson KR 8 (3)
Þóröur Sigurðsson
Haukum 8 (2)
greinir. Merkja má framfarir
á leik beggja liðanna frá þvi i
fyrravetur og má einnig telja
vist að tilkoma 3. deildar verði
til þess, að lið leggi meira á sig
i 2. deild til að falla ekki niður.
Ekki er sennilegt að þessi lið
komi til með að blanda sér i
toppbaráttuna i 2. deild.
Umsjón Sigurdór
Sigurdórsson: