Þjóðviljinn - 28.11.1972, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 28.11.1972, Blaðsíða 12
l2«&tÐA ^JÓÐVI-LJINN ^riðjitdagur 28. nóv|mber 1972 ————-----------------\--------------- SKIIJN EFTÍR . . . Teiknimyn dasaga frá Kma 41. Þráttfyrir reiði sina verður Shih-meiað þola söng Hsiang-lien. Og áður en hún hefur loki” 'yrstu vfsunni sem hljóðar svo: Bóndi minn svelgir vln i háum sölum. En kona hans syngur fyrir brauði — kafnar rödd hennar i andvörpum 42. Wang getur ekki iátið hjá liða að erta Shih-mei. „Er hún sjálf ekki þessi kona? segir hann. Ég hefði gaman af þvi að vita hver þessi „hús- bóndi” er”. Shih-mei lætur sem hann heyri ekki, lyftir glasi sinu og segir við gest sinn: „Drekktu, drekktu”. Félag járniðnaðarmanna. F élagsfundur verður haldinn i kvöld 28. nóvember 1972 kl. 8.30 e.h. i Félagsheimili Kópavogs. DAGSKRÁ: 1. Félagsmál. 2. Fréttir frá MSÍ og ASÍ þingum. 3. Önnur mál. Mætið vel STJÓRNIN. LEIKFANGAMARKAÐUR Hverfisgötu 44. Mikið magn af leikföngum og gjafavörum verður selt næstu daga með miklum afslættí. Komið og gerið góð kaup. Leikfangamarkaðurínn Hverfisgötu 44. ! í Síendurteknum brot um þýzkra togara mótmælt — og vestur-þýzki sendiherrann bar fram mótmœli sín Sendiherra Sambands- lýðveldisins Þýzkalands bar á laugardag fram mót- mæli vegna þess atburðar, er varðskipið Ægir klippti annan togvír vestur-Þýzka togarans Erlangen BX-699 og báða víra togarans Arcturus BX-729. Var fullyrt i mótmælunum að einn skipverja á fyrrnefnda togaranum hefði slasazt. Mótmælin voru afhent Ingva Ingvasyni, skrifstofustjóra utan- rikisráðuneytisins. Ingvi tók fram við það tækifæri að land- helgisgæzlan hefði engin afskipti haft af togaranum Erlangen, en hefði eftir itrekaðar aðvaranir, kiipptá togvira Arcturusar. Ingvi mótmælti yfirgangi vestur-þýzku togaranna og „siendurteknum brotum þeirra i islenzkri fiskveiðilandhelgi” segir i frétt þeirri, er blaðinu barst um þetta efni i gærdag. STAKK RÆNDI KONU OG MANN MEÐ HNlFI 1 ANDLITIÐ Um kl. 22 á sunnudagskvöldið var kona á gangi á Þórsgötunni i Reykjavik, þegar grimuklæddur maður vatt sér aö henni og rændi hana veskinu með þvi að slita veskishankann. Ekki var kraftur- inn meiri en svo i þeim.er ránið framdf,að konan gat fylgt honum eftir lengi vel og reyndi að tala um fyrir manninum, enda var hún aö koma af fundi hvitasunnu- manna og með guð i hjartanu. Maðurinn gengdi konunni engu og hætti hún þá eftirförinni. En svo gerist það stuttu siðar að maður kemur og biður um vistun á gistiskýlinu i Þingholtsstræti, en var synjað um gistingu vegna ölvunar. örskömmu siðar fannst einn af hinum föstu gestum gistiskýlis- ins, með áverka i andliti, og sagðist hafa verið stunginn með hnifi i andlitið. Þessi maður, sem er prúðmenni og ekki liklegur til að standa á átökum, gat lýst árasarmanninum og var hann handtekinn skömmu siðpr. Við yfirheyrslur kom i ljós að þarna var kominn sami maðurinn og rænt hafði veski konunnar fyrr um kvöldið. Hafði hann hirt nokkra muni úr veskinu , en engin verðmæti voru i þvi. Veskið með Nýja testamentinu i, hafði maðurinn látið niður i öskutunnu skammt frá. Hann játaði á sig báða þessa verknaði, en sagðist ekki hafa stungið manninn með hnifnum, heldur hefði hann otað honum að manninum og hann rekizt utan i hann. Getur þetta alveg staðizt, að þvi er lögreglan segir, enda var áverkinn i andliti mannsins litill. Að þvi er rannsóknarlögreglan segir þyrfti árásarmaðurinn frekar að komast undir læknis- hendur en lögreglunnar og hefur svo lengi verið, en maðurinn hefur áður gerzt brotlegur við lögin. — S.dór. Dagvistim bama og kynning á starfinu — á fundi Rauðsokka annað kvöld Dagvistun barna, Óbreytt við- liorf við breyttar þjóðfélags- aðstæður og Gluggað i náms- bækur , eru efni sem fjallað verð- ur um á útbreiðslu- og kynningar- fundi Rauösokka í Norræna húsinu annað kvöld. miðvikudag- inn 29. nóvember kl. 20.30. Auk þess verður starfsemi Rauösokkahreyfingarinnar kynnt, að þvi er segir i fréttatil- kynningu frá henni og á eftir verða frjálsar umræður. Kaffi- stofan verður opin i fundarhléi og nýútkomið blað Rauðsokka, Forvitin rauð, verður selt á fundinum. Allt áhugafólk er vel- komið. Að þvi er Björg Einarsdóttir, ein af fjórum i miðstöð hreyfingarinnar, sagði Þjóðviljanum, eru dagvistunar- málin tekin sérstaklega fyrir á þessum fundi, þar sem Rauð- sokkar eru nú i samvinnu við Kvenréttindafélag Islands og Úur, að safna undirskriftum til að knýja á um afgreiðslu frumvarps, sem nú liggur fyrir alþingi og fjallar um hlutdeild rikisins i byggingu og rekstri dagvistunar- heimili. Nýbúið er að skipta um i miðstöð Rauðsokka- hreyfingarinnar og er það gert árlega, en verkefni miðstöðvar er að vera tengiliður milli starfs- hópa, en ekki stjórnarstörf eins og i öðrum félögum, sagði Björg. t miðstöð eru nú auk hennar Guðrún Ágústsdóttir, Lilja Ólafs- dóttir og Rannveig Jónsdóttir. Fyrsta málfræði- ritgerðin á ensku Út kemur i dag bókin The First Grammatical Treatise eftir próf. Hrein Benediktsson. Er hér um að ræða útgáfu á Fyrstu mál- fræðiritgerðinni, sem svo er að jafnaði nefnd, þar sem hún er hin fyrsta i röðinni af fjórum stuttum ritgerðum um málfræðileg efni, sem skotið er inn i Snorra Eddu i ýmsum handritum hennar frá 14. öld eða siðar. Fyrsta málfræðiritgerðin er samin um eða eftir miðja 12. öld af ónafngreindum tslendingi, sem vildi með henni koma á framfæri tillögum um endurbætur á is- lenzkri stafsetningu. Tók hann sér fyrir hendur að gera tslend- ingum sérstakt stafróf, reist á iatneska stafrófinu, en með breytingum, bæði úrfellingum og viðaukum, sem höfundurinn byggir á eigin athugunum á is- lenzku máli. En öll efnistök hans eru með þeim hætti, aö segja má, að ritgerðin hafi nokkra sérátöðu meðal gjörvallra málfræðibók- mennta miðalda að þvi leyti, aö hún hefur enn verulegt gildi fyrir norræn málvisinsi nú á timum og ér raunar undirstöðuheimildarrit um islenzkt mál og norræna mál- sögu á elzta stigi. Hefur ritgerðin og verið gefin út margsinnis, allt frá þvi að hún kom fyrst út árið 1818, þó að hún hafi aðeins einu sinni komið út á prenti hérlendis áður, i útgáfu Sveinbjarnar Egilssonar 1848. Fyrsta útgáfan (1818) var hins vegar gerð af Ras- musi Kristjáni Rask, en svo skemmtilega vill til, að er rit- gerðin er nú gefin út aftur hér- lendis eftir eina öld og aldarfjórð- ungi betur, ber útgáfudagurinn upp á 185. afmælisdag Rasks, en hann fæddist 22. nóv. 1787. Útgáfa próf. Hreins Benedikts- sonar hefur að geyma texta rit- gerðarinnar, bæði prentaðan og ljósprentaðan eftir handriti, textaskýringar, enska þýðingu og orðasafn. Auk þess er i inngangi (bls. 13-203) fjallað um þau fræði- leg viðfangsefni, sem tengjast rit- gerðinni, svo sem handritavarö- veizlu aldur og höfundareir.kenni og heimildargildi ritgerðaiinnar fyrir islenzka fornskriftarfræði og bókmenntasögu. En megin- áherzla er lögð annars vegar á gildi ritgerðarinnar fyrir rann- Frh. á bls. 15 Yfirlýsing Vegna ummæla Guðnýjar Sigurðardóttur á félagsfundi Starfsstúlknafélagsins Sóknar mánudaginn 13. nóvember s.l. , þar sem hún ásakar mig fyrir að hafa tekið siðustu viku sumarfris mins á mesta annatima skrifstofu Sóknar svo að þurft hefði að kaupa vinnukraft til að leysa mig af, vil ég taka það fram, að ég hafði snemma i sumar ákveðið að taka þessa viku i sumarfrj og gat nánast ekki breytt þvi þó ég hefði viljað. Hélt ég raunar að það væri svo algengt að greitt væri fyrir afleysingu sumarfria að ég sá, og sé enn, ekkert athugavert við það. Þá vil ég algerlega hreinsa mig af þeim orðrómi, sem gengur hér á vinnustöðum Sóknar, að ég hafi framið það trúnaðarbrot að gefa Guðnýju upplýsingar um laun þau,er greidd voru fyrir að vinna við kjörskrá og kosningar i Sókn. Skora ég hér með á Guðnýju að birta opinberlega hvaðan henni komu þessar tölur. Ég hef ekki i þau 9 ár, sem ég hef unnið hér á skrifstofunni, slúðrað um mál félagsins og afbið mér slikar aðdróttanir. Maria Þorsteinsdóttir.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.