Þjóðviljinn - 28.11.1972, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 28. nóvember 1972 þjöÐVILJINN — SIÐAl 13.
43
Alistair Mair:
Það
var sumar í
flæðiengið, reist skýlin fyrir
laugardagsveiðina. A heimleið-
inni kom hann við á lækningastof-
unni og fann skýrsluna i póstin-
um. Og i henni var ekkert sér-
stakt sem vakti kviða.
Hemóglóbinið var i minna lagi
eins og hann hafði átt von á. Ög
sökkið var óeðlilega hátt. Að öðru
leyti virtist ástandið nokkurn
veginn eðlilegt.
Hann kveikti sér i sigarettu og
tyllti sér niður til að athuga
skýrsluna nánar. Þarna var um
smávægileg frávik að ræða, ekk-
ert afgerandi. En hugboð hans
sem læknis sagði honum ótvirætt
að þarna væri eitthvað alvarlegt
að.
Hann reis upp úr stólnum. Hann
leit á úrið sitt. Klukkan var
fjögur. Hann gæti farið á Kastala-
hótelið til hennar. Hann var
næstum staðráðinn i að fara. En
um leið gerði hann ser ljóst, að
óvænt koma hans myndi vekja
kviða hennar. Hún fengi
áhyggjur, vegna þess að hún
myndi gizka á að hann hefði
áhyggjur. Hún var enginn kjáni.
Enda gat hann ekkert gert. Næsta
skrefið var sjúkrahúsrannsókn,
röntgenmyndir, efnagreining
blóðs og ýmislegt annað sem
sveitalækni án sjúkrahússeðstöðu
var meinað að fást við.
Hann bölvaði lágt og setti
skýrsluna i veski sitt. Ef hlutverk
hanshéðanaf yrði vikapiltsins, þá
gæti hann eins vel gegnt þvi á
laugardagsmorguninn, eftir
komu hennar, eins og núna,
siðdegis á þeim degi sem honum
var ætlaður sem fridagur.
En þetta angraði hann fram
eftir kvöldinu. Hann fór i tvær
vitjanir eftir kvöldverðinn, leitaði
siðan á náðir njósnarasögu sem
Simon hafði keypt. Elisabet
brosti i kampinn þegar hún kom
inn.
— Ja , hérna, sagði hún, — það
er gaman að þú skulir ennþá geta
komið mér á óvart. Ég hef ekki
séð þig lesa svona bók árum
saman.
—- Það er einn liðurinn i nýja
lifinu, sagði Peter, — leyfðu mér
að lesa hana i friði.
Hann var kominn á blaðsiðu
hundrað og fimmtiu og kominn á
kaf i flækjur sögunnar, þegar
siminn hringdi. Elisabet lagði frá
sér bréfið sem hún var að skrifa.
— Ég skal svara, sagði hún.
Hann starði á siðuna án þess að
lesa orð þangað til hún kom til
baka
— Það er ekki vitjun, sagði
hún. — Það er spurt um þig .
Ungfrú Fenwick.
— Ungfrú Fenwick?
Hann reis upp i flýti.
— Þú þarft ekki að hlaupa,
sagði Elisabet. — Það er innan-
bæjar.
Hann gekk hratt, en gaf sér
samt tima til að loka stofu-
dyrunum áður en hann tók upp
tólið.
— Halló!
— Halló, sagði hún. — Þetta er
Anna Fenwik.
Rödd hennar var lægri i sim-
ann, dálitið hás. Hún var undar-
lega náin svona nærri eyra hans
— Já?
— Það er ekkert áriðandi,
sagði hún. — En mér fannst samt
rétt að hringja til yðar. Það hefur
ýmislegt gerzt þessa siðustu daga
og ég vildi láta yður vita af þvi.
— Fyrst vil ég fá að vita hvern-
ig systur yðar liður? sagði Peter.
— Ágætlega að þvi er virðist,
sagði Anna. — Það hefur ekkert
oröið að henni siðan þér lituð á
hana. En ég veit að þér áttuð von
á henni á stofuna á morgun og ég
hringdi til að láta yður vita að hún
er farin aftur til Glasgow.
— Farin?
Þennan möguleika hafði hann
alls ekki ihugað.
— Já, nú i kvöld.Þau eru búin
að skoða húsið hans félaga yðar,
Robin svipaðist vandlega um og
þau virðast helzt á þvi, að þetta sé
eftir þeirra höfði. Og nú þarf
aðeins að semja um verðið við
lögfræðinginn og það er eins vel
hægt að gera i Glasgow. Það var
ástæðulaust fyrir þau að dveljast
hér lengur.
— Ég skil.
—- Þaðeina sem var ófrágengið
var blóðrannsóknin og ég lofaði
að hringja til yðar, gefa yður
heimilisfang þeirra og biðja yður
að láta þau vita, ef eitthvað væri
ekki eins og það ætti að vera.
— Ég er búinn að fá niðurstöðu
rannsóknarinnar, sagði Peter. —
Hún kom i dag.
— Jæja? Þeim mun betra. Þá
getið þér sagt mér frá henni núna.
Var allt i lagi?
— Að mestu leyti, sagði Peter
varfærnislega. — Hún er að visu
blóðlitil-
— Og þér áttuð von á þvi.
— Satt er það.
— En engin merki um ... það
sem ég minntist á:
— Engin.
— Jæja... Hann heyrði að hún
varp öndinni léltar — Ég get
aðeins sagt að við erum yður
mjög þakklát.
— En það er eitt sem enn hefur
ekki fengizt skýring á,
sagðiPeter. — Þessi stækkaði’eit-
ill.
— Tja, við höfum talað saman
umþað. Hún segir að þetta hafi
verið svona i marga mánuði. Hún
vill helzt láta þetta allt eiga sig
þangað til þau flytja hingað, og
láta yður þá um að géra þær ráð-
stafanir sem yður finnst ástæða
til.
— En hvenær verður það?
— Ef þau fá húsið, þá getur það
oröið eftir sex vikur. Eða seinna.
Þegar málararnir eru búnir með
sitt verk. Þau vilja gjarnan geta
flutt fyrir jól.
— Það er of löng bið.
Brúðkaup
Laugardaginn 14. okt. voru gefin saman I liáteigskirkju, af séra Óskari J. Þorlákssyni, ungfrú Sigur-
björg Þorsteinsdóttir og hr. Jóhannes H. Ragnarsson, ungfrú Viiborg Þorsteinsdóttir og hr. Jóhannes
Eggertsson, ungfrú Svanhildur Svansdóttir og hr. Svanur Þorsteinsson, ungfrú Jónína Þorsteinsdóttir
og hr. Guðjón Þorbergsson.
(Ljósmyndastofa Þóris).
ÞRIÐJUDAGUR 28. nóvember
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00
Morgunbæn kl. 7.45. Morg-
unleikfimi kl. 7.50. Morgun-
stund barnanna kl. 8.45:
Arnhildur Jónsdóttir byrjar
að lesa söguna um „Fjár-
sjóðinn i Árbakkakastala”
eftir Eilis Dillon i þýðingu
Jóns G. Sveinssonar. Til-
kynningar kl. 9.30. Þing-
fréttir kl. 9.45. Létt lög á
milli liða. Við sjóinn kl.
10.25: Frá Fiskmati rikis-
ins. Morgunpopp kl. 10.40:
Dr. Hook and the Medicine
Show leitfa og syngja. Frétt-
ir kl. 11.00. Hljómplöturabb
(endurt. þáttur Þ.H.)
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Eftir hádegið. Jón B.
Gunnlaugsson leikur létt lög
og spjallar við hlustendur.
14.15 Fræðsluþáttur um al-
mannatryggingar ■ Fjallað
um ellilifeyri (endurt.)
14.30 Bjallan hringir. Niundi
þáttur um skyldunámsstig-
ið, verklegar greinar. Um-
sjón hafa Þórunn Friöriks-
dóttir, Steinunn Harðardótt-
ir og Valgerður Jónsdóttir.
15.00 Miðdegistónleikar:
Rudolf Serkin og Sinfóniu-
hljómsveitin i Filadelfiu
leika Búrlesku i d-moll fyrir
pianó og hljómsveit eftir
Richard Strauss, Ormandi
stj. Licia Albanese sópran-
söngkona og sellósveit flytja
„Bachianas Brasileiras”
nr. 5 eftir Villa-Lobos,
Stokowski stj. Werner Haas
leikur á pianó ,,Við gröf
Couperins” eftir Ravel.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.
16.25 Popphornið- Þorsteinn
Sivertssen kynnir.
17.10 Framburðarkennsla i
þýzku, spænsku og
esperanto.
17.40 Útvarpssaga barnanna:
„Sagan hans Hjalta litla”
eftir Stefán Jónsson. Gisli
Halldórsson leikari les (16).
18.00 Létt lög. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöidsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Frcttaspegill.
19.35 Umhverfismál-
19.50 Barniö og samfélagið
Gyða Ragnarsdóttir talar
um leiki barna.
20.00 Lög unga fóIksins.Sig-
urður Garðarsson kynnir.
20.50 íþróttir. Jón Asgeirsson
sér um þáttinn.
21.10 A bókamarkaðinum
Andrés Björnsson útvarps-
stjóri sér um kynningu á
nýjum bókum.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Rannsókn-
ir og fræðiJón Hnefill Aðal-
steinsson fil.lic. talar við dr.
Bjarna Einarsson um Egils
sögu.
22.35 Harmonikulög, Reynir
Jónasson leikur nokkur af
vinsælum lögum siðustu
ára.
23.00 A hljóðbergi.Kæra Kon-
stanze. Heinrich Schweiger
les úr bréfum Mozarts.
23.40 Fréttir i suttu máli.
Dagskrárlok.
Þriöjudagur 28. nóvember 1972
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.35 Ashton-fjölskyIdan.
Brezkur framhaldsmynda-
flokkur 31. þáttur. Ilvar er
mamma? Þýðandi Heba
Júliusdóttir. Efni 30.
þáttar: Porter-hjónin koma
til að dveljast um jólin hjá
tengdafólki sinu. Frú Porter
er leiðinlegri en nokkru
sinni fyrr. Hún stelur bréfi
til Margrétar, sem Michael
hefur skrifað, og kemst
þannig að leyndarmáli
þeirra. Maður hennar sér að
hætta er á ferðum og neyðir
hana til að láta sem ekkert
sé. Davið Ashton eyðir
jólunum i London hjá vin-
konu sinni, en Sheila er ein
heima og unir illa hag
sinum. A jóladag drekkur
hún sig ofurölvi. Colin
kemur i heimsókn og hún
tekur honum bliðlega, en
hann forðar sér út og vill
ekki notfæra sér ástandið.
21.50 Vinnan. Fjallað er um
Alþýðusamband Islands,
hlutverk þess og stefnu og
rætt við forystumenn sam-
takanna og fólk á ýmsum
vinnustöðum. Umsjónar-
maður Baldur Öskarsson.
21.30 Tónleikar i sjónvarpssal.
Sandra Wilkes og Neil
Jenkins syngja létt lög.
Ólafur Vignir Albertsson
leikur með á pianó.
22.35 Dagskrárlok.
m ht
M INDVERSK UNDRAVERÖLD >
Nýjar vörur komnar.
Vorum að taka upp mjög mikið úrval af
sérkennilegum austurlenzkum skraut-
munum til tækifærisgjafa.
Mabgs konar indverskur fatnaður; blússur,
kjólar, mussur, kirtlar og fleira. Einnig
Thai- silki i samkvæmiskjóla. Margar
nýjar gerðir af reykelsi og reykelsis-
kerjum.
JASMIN, við lllemmtorg.
tsitB) mmmttttB
—------------------------------1
Auglýsingasími ÞjÖÐVELjANS
er 17500
MÚÐVIUINN