Þjóðviljinn - 22.12.1972, Síða 15
Föstudagur 22. desember 1972 I'JÓÐVIL.IINN — SÍÐA 15
Yietnam
Framhald af bls. 8.
landi, sjó og úr lofti. Arásinni
fylgdi blóðbað, þar sem allt að
20000 Vietnamar féllu, áður en
franski herinn náði borginni end-
anlega á sitt vald 28. nóvember.
Stjórnin i Paris. og yfirmenn
franska hersins i Saigon höfðu
ákveðið að sýna Viet Minh i tvo
heimana og nota átökin 20. og 21.
sem átyllu. Þessi áætlun gekk svo
vel, að ekki varð um frekari
samninga að ræða. Verður ekki
betur séð, en sú hafi verið ætlun
F'rakka frá upphafi að láta samn-
inga reka i strand, kenna Viet
Minh um, og hefja landvinninga-
strið á hendur Vietnömum. Þetta
var fullkomlega i samræmi við
yfirlýsta stefnu frönsku stjórnar-
inna'r. Þegar i janúar 1944 birti de
Gaulle yfirlýsingu af hálfu
Frjálsra Frakka, en þar sagði
m.a. að sjálfstjórn handa nýlend-
unum væri útilokuð um alla fram-
tið. Timinn hefur sannað inni-
haldsleysi þessara orða, en þau
sýna viðhorf franskra valdaaðila
betur en langar útskýringar.
Á hinn bóginn var þess ekki að
vænta að Frakkar gætu þegjandi
og hljóðlaust sézt i valdastólana
i Vietnam. Þegar Japanir gáfust
upp, tóku innlendir aðilar völdin
og nutu til þess fylgis yfirgnæf-
andi meirihluta þjóðarinnar. 1
kosningum sem fram fóru i
janúar 1946, þar sem kosið var til
þings, hlaut Viet Minh rúmlega
90% greiddra atkvæða. Erlendir
aðilar sem fylgdust með kosning-
unum töldu þær fullkomlega
heiðarlegar. Hið raunverulega
fylgi Viet Minh kom þó fyrst í ljós
er Frakkar hófu land-
vinningastrið sitt.
Opið hús
Framhald af 3. siðu.
t október var haldinn i félags-
heimilinu flokksstjórnarfundur
Alþýðubandalagsins og kom það
m.a. i hlut félagsins að vinna að
undirbúningi hans, og lögðu
margir félagar þar fram mikið og
gott starf.
Aðalfundur félagsins var
haldinn i nóvember og kaus hann
félaginu nýja stjórn. Þorkell
Guðmundsson, sem verið hefur
formaður félagsins undanfarin 3
ár,baðst undan endurkosningu og
voru honum þökkuð góð störf i
þágu félagsins.
Hin nýja stjórn er nú þannig
skipuð:
Formaður Kristmundur
Halldórsson, ritari Baldur
Jónsson, gjaldkeri Guðrún
Albertsdóttir. Aðrir i stjórn eru
Ólöf Hraunf jörð og Gautur
Gunnarsson. Varastjórn skipa:
Eyjólfur Agústsson og Ólafur
Jónsson.
Stjórnin hefur unnið að undir-
búningi starfsins eftir áramót, og
meðal þess sem hún hefur i
hyggju er að koma á rabbfundum
i félagsheimilinu með reglulegu
miilibili, hafa þar einskonar
„opið hús” þar sem félagarnir
geti komið saman yfir kaffibolla
og rætt ýmis mál. Er þannig
fyrirhugað að annan hvern mánu-
dag verði haldnir slikir rabb-
fundir og verði til skiptis rætt um
bæjarmál og ýmis þjóðmál.
Fyrsti fundurinn af þcssu tagi
er ákveöinn 10. janúar, og mun
Svava Jakobsdóttir alþingis-
maður koma á fundinn og ræða
viðhorfin i herstöövamálinu.
Þá er þess að geta að 5. febrúar
verður árshátið félagsins haldin i
Þinghól, en árshátiðir þess hafa
jafnan verið fjölsóttar og ánægju-
legar.
Sáttmáli
Framhald af bls. 16.
i ræðu scm Willy Brandt hélt
i vesturþýzka útvarpið af
þessu tilefni sagði kanzlarinn
þetta gcta orðið brú til frekari
samskipta Vestur- og Austur-
Evrópu. Hann sagði að hinn
þjóðskipulagslegi inunur
þýzku rikjanna minnkaði ekki,
en hér sem annars staðar væri
nauösynlegt að tryggja frið og
samkipti, þótt deildur væru
uppi.
Samkvæmt hinum nýju
samninguin verður mjög
greitt fyrir samgöngum Þjóð-
verja milli rikjanna. Þá eru
s a in n i n g a r n i r f o r s e n d a
þeirrar ráðstefnu um öryggi
Evrópu allrar, sem um þessar
mundir er verið að undirbúa i
llelsinki.
Útsvör
Framhald af bls. 1.
megin eru 21.970 miljónir króna.
Siðar verður gerð nánari
grein fyrir áfgreiðslu fjárlag-
anna, en nefna má hér, að
meirihluti fjárveitinganefndar
gerir ráð fyrir að tekjur frá
Áfengis- og tóbaksverzlun rikis-
in hækki um 420 miljónir frá
frumvarpinu. Niðurgreiðslur
verða alls 1686 miljónir.
Fjölskyldubætur verða kr.
13000 á hvert barn á ári. Lagt er
til að rikisstjórnin fái hei nild til
að skera niður útgjöld á ijárlög-
um, þau sem ekki eru lögbund-
in, um allt að 15%.
Verðlag
Framhald af bls. 1.
i borgarstjórn lögðu áherzlu á að
koma yrði i veg fyrir að útsvör og
fasteignagjöld yrðu innheimt með
álagi eins og gert var á þvi ári
sem er að liða.
Fulltrúar vinstri flokkanna
höfðu algera samstöðu um alla
afgreiðslu fjárhagsáætlunarinnar
á sama hátt og jafnan áður á yfir-
standandi kjörtimabili borgar-
stjórnar.
Fluttu vinstrimenn sameigin-
legar ályktunartillögur um
marga málaflokka. Má þar nefna
umhverfismál, um útrýmingu
heilsuspillandi húsnæðis, um
sparnað i rekstri borgarkerfisins,
um áætlun til byggingar leigu-
ibúða, um aðbúnað aldraðra, um
kaup á togurum til BÚR, um fjár-
mál borgarinnar of.fl.
— Umræður um fjárhags-
áætlun Reykjavikurborgar stóðu
enn yfir er blaðið fór i prentun um
miðnætti i nótt. thaldið felldi allar
rhegintillögur minnihluta-
flokkanna og stefnir að 10% álagi
á útsvörin og 50% á fasteigna-
skattana.
Afríkunegrar
lausir við menn-
ingarsjúkdóma
i Heilsuvernd, riti Náttúru-
lækningafélagsins, rákumst við á
cftirfarandi klausu:
Enskur læknir, Dennis C. Bur-
kitt að nafni, skýrði nýlega frá þvi
i fyrirlestri, er hann flutti við há-
skólann i Frankfurt i Þýzkalandi
— en þangað var honum boðið til
að taka á móti verðlaunum fyrir
störf á sviði læknisfræðinnar, —
að meðal negra i rikinu Uganda i
Austur-Alriku væru bakteriu-
sjúkdómar og aðrir sjúkdómar,
sem orsakast af snikjudýrum,
algengir, en hinir svokölluðu
menningarsjúkdómar að heita
má óþekktir. Taldi hann þeirra á
meðal hjartasjúkdóma, sjúk-
dóma i lungum og ristli, sykur-
sýki, æðasjúkdóma, svo sem æða-
stiflur, gyllinæð, gallsteina, botn-
langabólgu, tannátu og offitu.
Áleit hann þetta standa i sam-
bandi við mataræði negranna.
Burkitt komst að raun um það, að
þeir negrar, sem veiktust af ofan-
greindum sjúkdómum, töluðu
ensku og nærðust likt og Englend-
ingar eða Evrópumenn. (Iteform-
Rundschau)
Þau urðu hlutskörpust
um 800 þátttakenda.
Um 800 maiins tóku þátt i verð-
launasamkcppni um uppskriftir
að skyrréttum og var skilað milli
1500—2000 uppskriftum. Fyrstu
verðlaun lilaut Linda Wendel,
Blöndubakka 15, Reykjavik, fyrir
uppskrilt að bakaðri ýsu með
skyrsósu. Fjögur önnur vcrölaun
voru veitt, þar sem ekki var gert
upp á milli rétta. Illutu þau Guð-
björg Rlöndal, Melabraut 39, Sel-
Ijarnarncsi. fyrir síldarrétt með
skyri, Valur Þorvaldsson, Vall-
liolti 28, Selfossi, l'yrir fjalla-
grasaskyr, Þórunn Sigurðardólt-
ir, Vonarslræti 8, fyrir rétl, sem
luiii kallar Gerplu. og I.aila
Rjörnsson, Geitlandi 4. Reykja-
vik, l'yrir sinnepssild með skyri.
Formaður dómnefndar var
Vigdis Jónsdóttir, húsmæðra-
kennari.
Ödýrt erlent vinnuafl í EBE
Reykingar á vinnustöðum
og i járnbrautum.
Nýleg skoðanakönnun hefir
sýnt, að 81% manna eru á móti
reykingum á vinnustað. Einu ári
áður var sambærileg tala 76%.
Þeim fer stöðugt fjölgandi, sem
óska eftir járnbrautarklefum, þar
sem reykingar eru bannaðar,
þannig að slikum klefum hefir
þurft að fjölga. Til skamms tima
voru reykingaklefar miklu fleiri
en hinir, en eru nú álika margir.
(Reform-Rundschau)
\elmegun í Efnahagsbandalagslöndunum er ekki hvað sízt byggð á ódýru vinnuafli frá Suður-Evrópu
og Norður-Afríku. Danski teiknarinn Albrechtsen lítur þannig á málin — teikningunni fylgir te tinn
„Braðum liofum við i stækkuðu Efnahagsbandalagi um það bil 10 miljónir gestkomandi vcrkamanna til
Reykingar og andvana
fæðingar.
Athuganir gerðar af brezkum
læknum hafa leitt i ljós, að um
1500 börn fæðast andvana eða
deyja skömmu eftir fæðingu i
Bretlandi árlega sem afleiðing af
þvi, að konurnar reykja um með-
göngutimann.
(Reform-Rundschau)
Fgþakka vinumminumkveðjur, gjafir og samverustundir
15. desember.
oska ykkur öllum gleðilegra jóla.
ída Ingóllsdóttir
Steinahlið.