Þjóðviljinn - 23.12.1972, Síða 10
ÍO.SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN l.augardagur 23. desembcr 1072
Verzlunin GELLIR selur v-þýzkar úrvalsvörur
frá ITT SCHAUP-LORENZ. Kynnist tæknilega
fullkominni framleiðslu. Ferðaviðtæki, segul-
bönd, STEREO-hljómtæki og sjónvörp.
Það borgar sig að kaupa það vandaða.
Veitum heiðruöum viðskiptavmum okkar full-
komna varahluta- og viðgerðaþjonustu._
Verzlunin
GELLIR =
Garðastræti 11 sími 20080 I
Skiladagur í dag —
Happdrætti
Þjóðviljans
GLENS
Brézjnéf hélt ræðu á
hátíðarfundi í Kreml
í ræðu sem Brézjnéf aðal-
ritari Kommúnistaflokks
Sovétrikjanna, flutti á há-
tíðafundi í tilefni 50 ára
afmælis ríkisins i gær,
sagði hann m.a. að framtíð
sovézk-bandarískra sam-
skipta væri m.a. háð friðar
gerð í Víetnam. Hann
sagði að Kinverjar hefðu
neitað að gera griðasátt-
mála við Sovétríkin.
Brézjnéf boðaði m.a. gerð
nýrrar stjórnarskrár fyrir
landið.
Brézjnéf vék fyrst að sam-
búðarmálum Sovétþjóða sem
hann taldi að leyst hefðu verið
fyrir fullt og alll; mestu skipti i
þvi sambandi að tekizt hefði að
jalna mun á efnahagsþróun hinna
ýmsu landa, og hefði það verið
unnt með margþættri aðstoð af
hálfu þeirra héraða sem þróuðust
voru og þá einkum af hálfu rúss-
neskra verkamanna.
Brézjnéf lagði til, að afmælis-
dagur rikisins, 30.desember, yrði
gerður að opinberum hátiðisdegi.
Ilann sagði að timi væri til þess
kominn að ljúka gerð nýrrar
stjórnarskrár. Sovétrikin hefðu
breytzt úr riki „alræðis
öreiganna” i „sósialiskt riki allra
vinnandi manna” og bæri að
breyta stjórnarskránni i sam-
ræmi við það.
Mikili hluti ræðunnar fjallaði
um alþjóðamál og þá aðgerðir
Sovétrikjanna i friðarmálum.
Brézjnéf lagði áherzlu á að
árásarstrjöldin gegn Vietnam
væri óþverralegust allra
styrjalda i bandariskri sögu. Eitt
höfuðverkefni sovézkrar utan-
rikisstefnu er að slökkva ófriðar-
bálið i Indókina. Sovétrikin sýna
samstöðu sina með þjóð Viet-
nams i verki eftir mörgum
leiðum.
Stefna kinverskra forystu
manna, sagði Brézjnéf, miðar að
þvi að valda Sovétrikjunum sem
mestu tjóni. Þetta er i hæsta máta
óeðlileg afstaða og i óhag kin-
Brezjncf
versku þjóðinni. Sovétrikin gera
engar landakröfur eða efnahags-
legar kröfur á hendur Kina.
Peking hefur hafnað þvi að gera
griðasamning milli rikjanna að
tillögu Sovétmanna, en sovézka
þjóðin trúir þvi, að þegar allt
kemur til alis muni hagsmunir
beggja þjóða, lögmál sögunnar,
hafa sitt fram og sovézk-kinversk
vinátta muni endurreist. Er það
undir Kinverjum komið hvenær
af þvi verður.
Bréznjéf minntist á samskipti
Sovétrikjanna við lönd Asiu,
Afriku og Römönsku Ameriku.
Sovétrikin veita virkan stuðning
þjóðfrelsisbaráttu og framfara-
stefnu nýfrjálsra rikja. Allir sem
vilja i raun efla frið i heiminum,
hljóta, sagði ræðumaður, að
vinna i auknum mæli að þvi að
slökkva glæður ófriðar i Austur-
löndum nær og kveða niður
árásarstefnu Israels.
í Evrópu er það á dagskrá að
draga með róttækum hætti úr
spennu. Samningar Sovét-
rikjanna og Póllands við Vestur-
Þýzkaland, samkomulag um
Vestur-Berlin og samningur um
samskipti Vestur-Þýzkalands og
DDR eru helztu áfangar á þeirri
leið. öryggismálaráðstefna
Evrópurikja mun byrja nýjan
kapitula i sögu álfunnar. Sovét-
rikin munu stefna að þvi að þetta
frumkvæði sósialiskra rikja leiði
til verulegs árangurs fyrir alla
þátttakendur ráðstefnunnar.
Sovétrikin eru, sagði ræðu-
maður, hlynnt alvarlegum við-
ræðum um takmarkanir á vig-
búnaði og herstyrk i Evrópu, sem
og þróun alhliða samstarfs á sviði
efnahags- og menningarmála.
Ræðumaður skilgreindi fram-
tiðarhorfur i sovezk-bandariskum
samskiptum og lagði áherzlu á að
mikilvægi þeirra samninga sem
þegar hafa verið gerðir og mögu-
leika á aö ná nýjum áföngum.
En margt mun háð þvi hvernig
atburðir þróast á næstunni og þó
einkum hvaða stefnu viðræður
um vopnahlé i Vietnam taka.
Brézjnéf sagði, að Sovétrikin
hefðu borið fram hugmynd um
mótun sameiginlegs öryggis-
kerfis i Evrópu, sem ekki væri
beint gegn Kinverjum. Sovét
rikin gerðu ráð fyrir að Kina yrði
aðili að sliku kerfi með jöfnum
rétti við aðra.
Sovétrikin eru reiðubúin til að
semja við hvaða kjarnorkuveldi
sem er um gagnkvæmar
skuldbindingarum að hafna vald-
beitingu og þá notkun kjarna-
vopna.
Stéttarleg barátta tveggja
kerfa á sviði efnahagsmála,
stjórnmála og hugmyr.dafræða
mun halda áfram, en
Kommúnistaflokkurinn og
sóvézka rikið munu beita sér fyrir
þvi, að þessi sögulega óumflýjan-
lega barátta fari fram i þeim far-
vegi, sem ekki býður upp á hættur
. i styrjöldum, hættulegum
árekstrum, stjórnlausu vig-
búnaðarkapphalupi.
Brézjnéf vék að efnahags-
málum. Sagði hann að verulegur
hagvöxtur hefði átt sér stað i
undirstöðuiðngreinum sl. tvö ár.
Þrátt fyrir mikla þurrka i sumar
hefði kornuppskeran orðið 168
miljónir smálesta og myndi
„eðlilegt líf landsrns” ekki
truflast. 34 milljónir manna hefðu
fengið kauphækkun eða hækkun
lifeyris á sl. tveim árum og 23
miljónir hefðu flutt i nýjar ibúðir.
Niðurstöður skoðanakannana
BYRLEGA BLÆS FYRIR
FRÖNSKUM
VINSTRIMÖNNUM
Birtar hafa veriö niöur-
stööur fyrstu skoöanakann-
ana sem fram fara fyrir
næstu þingkosningar í
Frakklandi. Þær benda til
þess, aö foringi sósíalista,
Francois Mitterand, hafi
veriö óþarflea svartsýnn,
þegar hann fyrir hálfu ári
kom í heimsókn til danskra
sósialdemókrata. Þá trúöi
hann Jens Otto Krag fyrir
því, aö hann vonaöist að
(leorges .Marchais — 45%
kjoscnda sem skiptast nokkuð
jafnt milli kommúnista og
sosialista.
visu til þess aö vinstriöflin
ynnu á, en hann gerði ekki
ráö fyrir raunverulegum
sigri.
Franska stofnunin Sofres
upplýsir i blaðinu Le Figaro, að
bandalag sósialista og
kommúnista geti búizt við að fá
45% atkvæða. Hér er um 3%
aukningu að ræða siðan i október.
Stuðningsmenn þessa bandalags
skiptast nokkuð jafnt — 22%
styðja kommúnista en 23% sósial-
ista, og kemur þetta sér vel fyrir
Mitterand, sem má oft heyra frá
hægri raddir um aö hann sé gisl
kommúnista. Aðalritari Gaullista
hefur mjög gaman af myndrænu
máli. Hefur hann fundið upp nýja
likingu með vinstra bandalaginu
og bil. Situr þá kommúnistafor-
inginn Georges Marchais við
stýrið, en Francois Mitterand við
hlið hans, i þvi sæti sem kallað er
slysasætið.
Flokkar þeir sem styðja stjórn
Pompidous geta hinsvegar búizt
við 38% stuðningi. 20% styðja
Gaullista, 15 óháða repúblikana
og 3% ..lýðra’ðis- og framfara-
sinnaða miðjumenn”. Gaullistar
þurfa þvi að taka á hinum stóra
sinum i myndrænni sköpun ef þeir
ætla að breyta þessari afstöðu.
Að lokum má þess geta að
„umbótasinnar” Servans-
Schreibers og Jean Lecanuets
Mitterand, leiðtogi sósialista.
Gaullistar segja að hann sitji i
slysasætinu.
geta búizt við stuðningi um 15%
kjósenda, og getur mikið oltið á
þeim hluta F'rakka.
önnur athugun sýnir, að aðeins
24% Frakka eru hræddir við að
sjá kommúnista i rikisstjórn, en
59% finnst að það sé beinlinis
aðlaðandi tilhugsun að þeir séu
þar. Það er þvi i ráun og veru um
að ræða breiða og ómótstæðilega
sókn á vinstra armi franskra
stjórnmála — og þessi velgengni
hefur þegar dregið til sin siðustu
efasemdamennina meðal sósial-
ista.
Smáflokkar lengst til vinstri
eru til dæmis knúðir til þess,
nauðugir viljugir, að játa
Frh. á bls. 15