Þjóðviljinn - 07.01.1973, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 7. janúar 1971!
af erlendum vettvangi
Ástralía og Nýja- Sjáland:
Að standa á eigin
fótum úti í Kyrrahafi
Það vakti mikla athygli
þegar verkamannaflokkar
sigruðu í þingkosningum í
þeim gömlu íhaldsvirkjum
Ástralíuog Nýja-Sjálandi á
dögunum, og sæmilega
frísklegir vindar tóku að
blása um utanrikisstefnu
þessara ríkja, sem áður
voru stundvisir meðreiðar-
sveinar Bandaríkjanna og
Bretlands til hvers leiks.
Hér fer á eftir stutt f rásögn
af forsendum kosninga-
sigra þessara og fyrstu að-
gerðum stjórna verka-
mannaflokkanna.
Verkamannaflokkarnir i báð-
um þessum löndum gátu óspart
hamrað á almennum leiða manna
á værukærum stjórnvöldum, sem
lengi hafa stjórnað. Hinn ihalds-
sami Þjóðarflokkur Nýja-Sjá-
lands hafði setið að völdum i 12
ár, og Verkamannaflokkur
Astraliu hafði verið utan stjórnar
i hvorki meira né minna en 23 ár.
Samt sem áður kom hinn mikli
kosningasigur Normans E. Kirks
og sósialdemókrata hans á Nýja-
Sjálandi þeim sjálfum á óvart.
Þeir ætluðu varla að trúa þvi, að
þeir hefðu fengið 56 þingsæti, en
andstæðingar þeirra aðeins 31.
Þeim vegnaði vel i borgum — en
mest kom það á óvart hve mikinn
stuðning þeir fengu hjá smá-
bændum sem eru venjulega hinir
ihaldssömustu. Bændur komust
úr pólitisku jafnvægi við það, að
með inngöngu Bretlands i Efna-
hagsbandalagið skerðist verulega
sá markaður sem þeir — eins og
bændur annarra samveldislanda
Styður Möltu
VALETTA 5/1 Lýbiustjórn
hefur heitið Möltustjórn stuðningi
ideilu Möltustjórnar við Bretland
og önnur NATO-riki vegna leigu
af herstöðvum á eynni.
Mintoff forsætisráðherra Möltu
er nýkominn úr heimsókn til
Lýbiu, þar sem hann ræddi við
Gaddafi forseta og ráðherra i
stjórn Lýbiu. t opinberri heimild
Möltustjórnar segir að Gaddafi
hafi heitið Möltu fullum stuðningi
og að hann hafi heitið á öll araba-
riki við Miðjarðarhaf■ að styðja
Möltu gegn Bretum. Mintoff
krefst 10% hækkunnar á leigunni
vegna verðfalls sterlingspundsins
á siðasta ári.
— hafa haft i gamla móðurland-
inu. En Verkamannaflokkurinn
hét þvi að hefja öfluga markaðs-
leit fyrir landbúnaðarafurðir i
Asiu og hafði það sitt að segja.
Læröi af Brandt
Leiði á ráðamönnum var jafn-
vel enn sterkari i Ástraliu en
Nýja-Sjálandi — einhver blaða-
mannsgárungi komst svo að orði,
að Ástraliumenn væru löngu
dauðir úr leiðindum ef að
MacMahon forsætisráðherra væri
ekki jafnvel giftur og raun ber
vitni. Verkamannaflokkur
Goughs Whitlams tapaöi að visu
dálitlu af atkvæðum i ihaldssöm-
um sveitahéruðum, en hann vann
á um fimm til sjö prósent i Sidney
og Melbourne og héruðunum þétt-
býlu þar i kring, og nægði það til
20 þingsæta íorskots fram yfir
samsteypu Frjálslyndra og
Bændaflokksins.
Brezka blaðið Economist held-
ur þvi fram, að Whitlam hafi lært
kosningalist af Willy Brandt.
Hann hafi fyrst og fremst reynt
að veiða millistéttirnar i net sitt
og sparað mjög róttækni i orðum
og tillögum til að styggja ekki
jafn ihaldsssmt fólk og það, sem
finna mátti einhvers staðar á
milli stærstu flokkanna. Aftur á
móti hafði hann miklu meira
fram að færa á sviði húsnæðis-
mála, náttúruverndar og fræðslu-
mála heldur en fyrri ráðamenn.
Æskufólk þakkaði flokki hans
fyrir þetta með þvi að greiða hon-
jm röskan helming atkvæða
sinna.
Kvenhylli
thaldsmenn, vitnandi til fornra
Gough Whitlam: með Rauösokka
i pokahorninu
dyggða, höfðu það mjög á lofti i
kosningabaráttunni, að siðleysi
mundi brjótast út ef Whitlam
kæmi til valda — en hann talaði
um að breyta refsilöggjöfinni að
þvi er varðar hómósexúalisma,
fóstureyðingar og klámrit. Engu
að siður tókst Whitlam vel að ná
til kvenna, en þær hafa til þessa
stutt hægriöflin i enn rikari mæli
en karlar.
Meðan á kosningabaráttu stóð
héldu kvenfrelsiskonur af hinum
nýja skóla uppi harðri hrið á
stjórnmálamenn. Þær spurðu
hvernig á þvi stæði, að engin kona
sæti á þingi, engin kona hefði
verið ráðherra. Hvers vegna þær
þyrftu að greiða háa tolla á getn-
aðarverjum rétt eins og um
snyrtivörur væri að ræða og hvers
vegna lögbundin lágmarkslaun
væru 12 dollurum á viku lægri
fyrir konur en karla. Whitlam lof-
aði að taka þetta til athugunar, og
honum var betur treyst til efnda.
Þeir Kirk og Whitlam eru menn
ólikir sagðir um margt, en þeir
virðast hafa mjög svipaðar til-
hneigingar i utanrikismálum.
Kemur þetta einkum fram i við-
leitni til að skera niður hernaðar-
brölt.
Undir nýjum fánum
Nýja-Sjáland og Astralia hafa
bæði afnumið herskyldu — rétt
fyrir jól voru menn þeir látnir
lausir i Ástraliu, sem neitað höfðu
að gegna herþjónustu — mest
Aiþýöubandalagsfélag Fljóts-
dalshéraös hélt aöalfund á Egils-
stööum 30. deseinber. Var
Kapitóla Jóhannsdóttir kjörin
lormaöur, Sigurjón Bjarnason
kjörinn gjaldkeri, Björn Agústs-
son ritari og meðstjórncndur
kjörnir þcir Sveinn Árnason og
Gunnar Halldórsson.
Tiu nýir félagar gengu i félagið.
Þá voru mættir þarna alþingis-
mennirnir Helgi Seljan og Sigurð-
ur Blöndal.
Eftirfarandi tillaga var sam-
Norman Kírk: þokaöi EBE Ný-
sjálendingum til vinstri?
vegna aðildar landsins að Viet-
namstriðinu. Löndin hafa bæði
kallað heim siðustu hernaðar-
ráðuneuta sina i Suður-Vietnam
og vilja segja sig úr hernaðar-
samstarfi innan Suðaustur-Asiu-
bandalagsins, SEATO. Báðir slita
sambandi við stjórn Sjang-Kæ
Sjéks á Tævan og taka upp stjórn-
málasamband við Peking, sem
Whitlam hafði reyndar heimsótt
niu mánuðum áður en Nixon kom
þar. Og báðir ætla að koma i veg
fyrir að Frakkar haldi áfram til-
raunum sinum með kjarnavopn á
Mururoa-ey jaklasanum.
Fleira rennirstoðum undir um-
mæli á þá leið, að þessi fjarlægu
lönd standi á timamótum. Hinir
nýju ráðamenn stefna bersýni-
lega að þvi, að lönd þeirra verði
ekki framar eins konar útibú frá
hinu gamla móðurlandi, Bret-
landi, suður i Kyrrahafi — hvorki
i pólitiskum né heldur efnahags-
legu tilliti. Litið dæmi um þetta en
ef til vill táknrænt: Astralia og
Nýja-Sjáland ætla bæði að losa
sig við þann þjóðsöng sem þau
hafa tekið i arf frá Bretum og fán-
ana, sem geyma brezka fánann i
horninu. Aströlsk blöð efna þegar
til hugmyndasamkeppni um þjóð
söng og fána og leggja fyrir við-
komandi nefndir.
Ljóðið „Frægðar land og vonar,
þar sem kengúran býr” fann að
visu ekki náð fyrir augum dóm-
nefndar og ekki heldur sá frægi
sigræningi „Waltzing Mathilda”.
þykkt á þessum aðalfundi.
„Fundur haldinn i Alþýðubanda-
lagsfélagi Fljótsdalshéraðs 30.
desember 1972 lýsir fullum stuðn-
ingi við ákvarðanir ráðherra Al-
þýðubandalagsins við nýafstaðn-
ar efnahagsaðgerðir, og telur að
rikisstjórnin eigi mörg mikilvæg-
ari verkefni óleyst en svo, að
hætta megi á, að þau verði fengin
öðrum i hendur. Ennfremur skor-
ar fundurinn á rikisstjórnina að
sýna meiri hörku gegn land-
helgisbrjótum en verið hefur til
þessa”.
Kosningasigur Whitlams: áfall fyrir brezk-bandarfsk áhrif
Lýsa stuðningi við
ef n ahagsaðger ðirn ar
RtMINGARSALA - BIJTASALA
í DAG HEFST GLÆSILEG RÝMINGARSALA Á
Gluggatjaldaefnum og storesum
- VERÐ FRÁ KR. 100,- METERINN -
★ GERIÐ ÚRVALS KAUP Á ÓDÝRUM GLUGGATJALDAEFNUM.
GLUGGAIAL — Grensásvegi 12