Þjóðviljinn - 07.01.1973, Side 12
12. StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 7. janúar 1973
HUSNÆÐISMALASTOFNUN
RfKISINS
EINDAGINN 1. FEBR.1973
FYRIR LÁNSUAASÓKNIR
VEGNA ÍBÚÐA í SMÍÐUM
llúsnæðismálastofnunin vekur athygli á
neúangreindum atriðum:
1.
2.
3.
4.
5.
6.
Einstaklingar, er hyggjast hefja byggingu ibúða eða
festa kaup á nýjum ibúðum (ibúðum i smiðum) á
næsta ári, 1973, og vilja koma til greina við veitingu
lánsloforða á þvi ári, skulu senda lánsumslóknir sinar
með tilgreindum veðstaö og tilskyldum gögnum og
vottorðum til stofnunarinnar fyrir 1. febrúar 1973.
Kramkvæmdaaðilar i byggingariðnaðinum, er
hyggjast sækja um framkvæmdalán til ibúða, sem þeir
hyggjast byggja á næsta ári, 1973, skulu gera það með
sérstakri umsókn, er verður aö berast stofnuninni fyrir
1. febrúar 1973 , enda hafi þeir ekki áður sótt um slik
lán til sömu ibúða. Slikri umsókn skulu þá strax eða
siðar, fylgja tiiskildar áætlanir i sérstöku formi, á
eyöublöðum stofnunarinnar. Berist áætianir i öðru
formi, verður umsóknum visað frá.
Sveitarfélög , félagasamtök, einstaklingar og fyrir-
tæki, er hyggjast sækja um lán til byggingar leigu-
ibúða á næsta ári i kaupstöðum, kauptúnum og á
öðrum skipuiagsbundnum stöðum, skulu gera það fyrir
1. febrúar 1973.
Sveitarstjórnir, er hyggjast sækja um lán til nýsmiði
ibúða á næsta ári (leiguibúða eða söluibúða) i stað
heilsuspiliandi húsnæðis, er lagt verður niður skulu
senda stofnuninni þar að lútandi lánsumsóknir sinar
fyrir 1. febrúar 1973, ásamt tilskildum gögnum sbr.
rlg. nr. 202/1970, VI kafli.
beir , sem nú eiga óafgreiddar lánsumsóknir hjá
stofnuninni þurfa ekki að endurnýja þær.
Umsóknir um ofangreind lán, er berast eftir 31. janúar
1973, verða ekki leknar til meöferðar við veitingu láns-
loforða á næsta ári.
Iteykjavik 31. október 1972.
HÚSNÆÐISMALASTOFNUN RIKISINS
LAUGAVEGI77, SlMI 22453
Stúlka óskast
á heimili islenzkrar konu i Englandi, að gæta 2ja barna.
Nánari upplýsingar i sima 40591.
Pípulagnir
Getum bætt við okkur verkefnum í pípu-
lögnum. Nýlagnir. Breytingar. Viðgerðir.
Tenging tækja.
Simi: 36929, H.J.
Frá
húsmæðrakennaraskóla
Islands
Sex vikna dagnámskeið i matreiðslu og
hússtjórn hefst þriðjudaginn 23. jan.
Innritun i sima 16145 kl. 9—15 virka daga.
bsuikliiii cr baklijarl
Ibúnaðarbankinn
Jörn Birkeholm:
HJÁLP
Það er fíll
undir rúminu mínu
Nú heyrðu þeir fótatak úti fyrir.
Hurðinni var hrundið upp og Bassi
salatbruggari kom æðandi inn. Það
var garðmold á gúmmistigvélunum
hans og það var svo mikill asi á hon-
um að moldin slettist upp á bakka
með rjómakökum.
,,Það hefur fíll verið í matjurta-
garðinum okkar í nótt! Hann hefur
borðað kynstrin öll af gulrótum og
baunum!" hrópaði hann.
,,Hefurþúséð hann?"spurði herra
Diðrik og hristi höfuðið.
,,Nei", másaði Bassi, því hann
hafði ekki hlaupið svona hratt í
mörg ár, ,,en það eru fílaspor um
allt. Fæturnir á honum eru miklu
stærri en dýrasta terta".
hvorki upp né niður lengur.
„Þetta er næstum óskiljanlegt",
sagði hann. ,,Ég held að þetta sé
eitthvað sem ykkurer að dreyma. Á
ég ekki að reyna að klípa ykkur í
handlegginn? Það er alltaf gert til
að aðgæta hvort mann dreymir eða
hvort maður er vakandi. Greppur
brettu upp ermina, svo ég geti klipið
þig i handlegginn"!
Herra Greppur bretti upp ermina
og Diðrik kleip hann fast í handlegg-
inn.
,,Á-á!! Þú klípur"! veinaði herra
Greppur og kveinkaði sér.
„Þig dreymirsem sé ekki", sagði
herra Dirik. „Afsakið. Þá verðum
við að reyna handlegginn áBass...",
byrjaði hann, en áður en hann gæti
lokið setningunni opnuðust dyrnar
enn einu sinni og frú Kamilla kom
inn með ógreitt hár.
SKYRUPPSKRIFTIR
Hér fara á cftir þær uppskriftir
sem hlutu vcrðlaun i samkeppni
um skyruppskriftir:
Bökuð ýsa með skyrsósu
1. verðlaun.
Ilöfundur: Linda Wendel
Blöndubakka 15,
Reykjavik.
5l)()-(>()0 gr. ýsuflök.
2-3 msk. smjör.
2 laukar
1-2 hvitlauksrif
100-150 gr. nýir sveppir (má
sleppa)
I 1/2 msk. ný stcinselja eða 1 1/2
tsk. þurrkuö
3/4 tsk. timian
Múskat eftir smekk
Sage á hnifsoddi (má sleppa)
salt og pipar
Ofninn er hitaður i 175 gr. C.
Grunnt ofnfast fat er smurt. Ýsu-
flökin eru roðflett, skorin i mátu-
leg stykki og raðað i botninn á fat-
inu. Salti og pipar stráð á.
Smjör brætt á pönnu. Laukur
skorinn i þunnar sneiðar og hvit-
laukur brytjaður smátt. Sveppir
hreinsaðir og sneiddir þunnt og
steiktir i smjörinu ásamt lauk og
hvitlauk. Kryddað með stein -
selju, timian, múskati, sage, ör
litlu salti og pipar. Blandan steikt
unz laukurinn er meyr. Lauk-
blandan er svo sett á fiskinn i fat-
inu.
250 gr. skyr
majónes, jafnt rúmmál og skyrið
ca. Karrý, þurrsinnep, salt og
pipar.
Skyri og majónesi blandað
saman og kryddað eftir smekk.
Sósunni svo jafnað vel yfir fiskinn
og iaukblönduna svo hylji. Lok
eða álpappir settur yfir fatið.
Rétturinn bakaður i ofni i 30 min.
eða unz fiskurinn er tilbúinn.
Gott er að bera með þessu hris-
grjón soðin með saffron eða
tumeric (verða gul) og grænt sal-
at.
Þennan fiskrétt má útbúa fyrir-
fram, geyma hráan i kæli og baka
1/2 klst. fyrir notkun.
Til tilbreytingar má nota soðn-
ar grænar baunir eða snittu-
baunir i staðinn fyrir sveppi.
Baunirnar eru þá ekki steiktar
með lauknum, en blandað saman
við hann áður en laukblandan er
sett i fatið.
Notað er pakkaskyr.
Síldarréttur m/skyri.
Höfundur: Guðbjörg Blöndal,
Melabraut 39,
Seltjarnarnesi.
3 marineruð sild
1 litil dós skyr
4 msk. rjómi
1 epli
1 laukur
1 harðsoöið egg
1 1/2 tsk. karrý
3-4 tsk. sykur.
Sildarflökin skorin i litla bita og
raðað á fat. Eplið skrælt og skorið
i litla bita, raðað ofan i sildina
ásamtsöxuðum lauknum. Karrý,
rjóma og sykri hrært saman við
skyrið. Hellt yfir sildina. Smátt
saxað harðsoðið eggið látið yfir.
Borðað með rúgbrauði og
smjöri.
Fjallagrasaskyr.
Höfundur: V'alur Þorvaldsson,
Vallholti 28,
Selfossi.
Þjóðlegur skyrréttur, uppskrift
fyrir fjóra.
2 dl. fjallagrös (þvegin og söxuð)
2 dl. mjólk
4 msk. púðursykur (Ijós)
1/8 tsk. salt
1 dós skyr (5 dl.)
Þvoið fjallagrösin vel og saxið
þau eða klippið smátt. Hitið
mjólkina að suðu og bætið fjalla-
grösunum og púðursykrinum út i.
Sjóðið við vægan hita i 10 min-
útur og hrærið stöðugt i. Saltið.
Hrærið skyrið samanvið, og berið
réttinn fram i pottinum.
Fjallagrasaskyr er ljúffengur
ábætisréttur, með rjómablandi,
en einnig er rétturinn kjörinn
uppistaða i litla máltið, t.d. á móti
einni heitri máltið á dag, og er þá
gott að bera sneiðar af súrmat
og/eða grófu brauði með.
Rétturinn bragðast bezt nýlag-
aður, með hitastigi nálægt
likamshita.
„GERPLA"
Höfundur: Þórunn Sigurðardóttir,
Vonarstræti 8,
Reykjavik.
100 gr. skyr (hrært)
100 gr. þeyttur rjómi
100 gr. rækjur (nýjar)
100 gr. gaffalbitar i vinsósu
1/2 litill laukur
sólseljugrein (hclzt ný eða fryst,
annars þurrkuð)
5-6 kartöflur
„GERPLU” má framreiða
bæði heita og kalda.
Heit „GERPLA"
Kartöflurnar eru hráar, flysj-
aðar og skornar i þunnar sneiðar.
Laukurinn skorinn mjög smátt,
gaffalbitarnir skornir i minni
bita. öllu biandað varlega sam-
an, vinsósunni af gaffalbitunum
hellt saman við. Sólseljan klippt
eða mulin yfir. Rétturinn er sett-
ur i ofn i eldföstu móti og bakaður
i ca. 30 minútur.
Köld „GERPLA"
Kartöflurnar eru hér soðnar, en
að öðru leyti er eins að farið. Bor-
ið fram iskalt. Hér geta góðir
sildarmenn aukið magnið af gaff-
albitunum. „GERPLA” er ljúf-
feng með islenzkum flatkökum og
smjöri, góðum pilsner, að ekki sé
talað um Egil sterka fyrir þá sem
1 hann ná, til þess að styrkja enn
þjóðrækniskenndina.
Varðandi innihaldið i
„GERPLU” má minnka eða auka
það innbyrðis eftir smekk, t.d. má
auka magnið af skyri og rjóma,
einkum i köldu „GERPLUNNI”;
fer það nokkuð eftir bragðstyrk-
leika gaffalbitanna, sem getur
verið nokkuð misjafn. Að sjálf-
sögðu eru bæði rækjurnar og
gaffalbitarnir rammislenzk. Og
að lokum, bezt er að hafa flatkök-
urnar vel heitar.
Sinneps-sild.
Höfundur: I.aila Björnsson,
Geitlandi 4,
Reykjavik.
2 sildarflök (marineruð)
1 epli
ca. 1 dl. majones
ca. 1 dl. skyr (hrært með vatni og
sykri)
2-3 msk. sinnep
1 tsk. paprikuduft
örlitil kryddsósa (t.d. HP-sósa)
Epli og sildarflökin skerist i
smábita. Siðan er öllu blandað vel
saman. Borðist með brauði.