Þjóðviljinn - 09.01.1973, Blaðsíða 9
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur 9. janúar 1973
Þriðjudagur 9. janúar 1973 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 9
Skúli Þorsteinsson, námsstjóri.
Fræðslufundur á Keyðarfirði 19(i9. Austfirzkir kennarar ásamt þrem fyrirlesurum úr Reykjavik, þeim
Skúla Þorsteinssyni, Herði Bergmann og Pálma Jósefssyni.
„Aldrei gleyma hinu uppeldis-
lega hlutverki skólans”
SPJALLAÐ VIÐ SKÚLA ÞORSTEINSSON, SEM NÚ LÆTUR AF NÁMSSTJÓRN
Skúli Þorsteinsson fv.
námsstjóri Austurlands
hætti nýlega störfum sök-
um heilsubrests. Þjóðvilj-
inn átti viðtal við Skúla um
skólamál fyrr og nú.
— Hvaö ertu búinn að starfa
lengi að kennslu- og skólamálum,
Skúli, og hvar?
— Ég kenndi tvö ár á Stöðvar-
firði áður en ég tók kennarapróf,
en árið 1932 útskrifaðist ég úr
Kennaraskóla tslands. Að loknu
kennaraprófi var ég kennari við
Austurbæjarskólann i Reykjavik i
sjö ár. Þaðan flutti ég til Eski-
fjarðar og var skólastjóri þar
við barna- og unglinga-
skóla Eskifjarðar i átján ár.
Arið 1957 flutti ég aftur til
Reykjavikur og var kennari við
Melaskólann i sjö ár. Ég var svo
skipaður námsstjóri fyrir Austur-
land 1964 og gegndi þvi starfi i
átta ár, eða til haustsins 1972, en
þá varð ég að hætta störfum sök-
um sjúkleika. Ég hef þvi starfað
aðskólamálum á fimmta tug ára.
Lá úti á
f jallvegi
— Var ekki námsstjórnarsvæði
þitt stundum erfitt yfirferðar að
vetrarlagi, þegar allra veðra er
von?
— Námsstjórnarsvæðið náði
yfir fjórar sýslur, nánar tiltekið
Múlasýslur og Skaftafellssýslur. I
námsstjórnarferöum var ég auð-
vitað nær undantekninarlaust að
vetrinum eða þann tima ársins,
sem skólarnir voru að störfum.
Ferðalögin reyndust þreytandi á
stundum, þótt ferðazt væri að
mestu með bilum. Um skip og
flugvélar var varla að ræða sem
farartæki milli staða innan fjórð-
ungsins, sem féllu inn i fyrirfram
gerða ferðaáætlun. Það kom fyrir
að ég lagöi land undir fót með
pjönkur minar, þegar farartækið
gafst upp og komst ekki lengra
sökum fannfergis. Einu sinni
varð ég að liggja úti næturlangt á
fáförnum fjallvegi i óupphituðum
bil. Þá greip ég til þess ráðs að
kveða stemmur að fornum hætti.
Annars gengu þessar ferðir yfir-
leitt vel og án verulegra erfið
leika eða stórtiðinda, en alltaf
hlakkaði ég til að koma i áfanga-
stað og heimsækja börnin og
kennarana.
Verkefni námsstjóra
— Hver eru helztu verkefni-
námsstjóra?
— Ég vil taka fram, að þegar
ég tala um námsstjóra þá á ég við
svæðanámsstjóra, en ekki fag-
námstjóra. í reglugerð um nám-
stjórn frá 1965 er gerð allýtarleg
grein fyrir starfi námsstjóra, sem
oflangt mál er að rekja hér, en
nokkrum ákvæðum get ég greint
frá i stuttu máli. Námsstjórar
eiga að fylgjast með þvi, að lög-
um, reglum og fyrirmælum
fræðslumálastjórnar sé fram-
fylgt. Þeir eiga að leiðbeina
skólastjórum, kennurum og
skólanefndum um réttindi þeirra
og skyldur, ef þörf krefur, og
kynna sér starfsskilyrði og aðbúð
nemenda og kennara, og enn-
fremur að sjálfsögðu árangur
kennslunnar. Einnig ber þeim að
kynna sér uppeldisáhrif skólans,
félagsstörf og samvinnu heimila
og skóla, og leitast við að gefa
viðkomandi aðilum góð ráð eftir
beztu getu. Ef börn eru i skóla-
hverfinu, sem ekki eiga samleið
með öðrum börnum vegna and-
legs vanþroska eða af öðrum
ástæðum, ber námsstjóra að hlut-
ast til um, að þau njóti þeirrar að-
stöðu i skóla sinum eða utan hans,
sem lög og reglur gera ráð fyrir.
Námsstjóra ber að leysa eftir
getu úr ágreiningi, sem upp kann
að koma milli þeirra aðila, sem
hlut eiga að málum viðkomandi
skóla, og gera sér far um aö efla
samvinnu heimila og skóla, t.d.
með þvi að halda erindi á for-
eldrafundum um skólamál eða fá
aðra til þess að samráði við stjórn
skólans. Námsstjóri reynir eftir
fremstu getu að hafa hvetjandi
áhrif á kennara og nemendur, og
flytja með sér ferskt lif i skóla-
starfið. Námsstjóri skal vinna að
hagkvæmum breytingum á skip-
un og framkvæmd skólahaldsins.
Námsstjóri skal að jafnaði
heimsækja hvern skóla einu sinni
á ári. Þetta mun þó i framkvæmd
hafa verið þannig, að námsstjór-
ar hafa heimsótt skólana oftar, og
tel ég nauðsynlegt, að skólarnir
séu heimsóttir tvisvar á ári, haust
og vor. Um dvalartima náms-
stjóra I hverjum skóla fer eftir á-
stæðum, t.d. fjölda nemenda og
kennara. 1 lok hvers skólaárs skal
námsstjóri gefa fræðslumála-
stjóra heildarskýrslu yfir störf
sin á árinu og veita upplýsingar
eftir þörfum og óskum.
30/5% án réttinda
— Hefur kennaraskortur ekki
verið tilfinnanlegur á Austur-
landi, eins og viðast hvar annars
staðar á landinu?
— Jú, mjög hefur reynzt erfitt
að fá kennara með fullum réttind-
um að skólum á Austurlandi.
Skólaárið 1970—71 voru 30,5%
fastra kennara og skólastjóra við
barnaskóla þar án kennararétt-
inda, en á sama tima var hliðstæð
taia á öllu landinu 9,83%. Siðast-
liðið skólaár voru þessar hlut-
fallstölur ivið lakari.
— Stundum hefur skólastarfið
ekki getað hafizt á réttum tima
vegna þess hve seint hefur gengið
að ráða kennara til starfa, en það
er auðvitað mjög slæmt.
— Mikið hefur verið rætt og rit-
að á undanförnum árum um að-
stöðumun nemenda i dreifbýli og
þéttbýli, misjafna aðbúð i skólum
og mislangan starfstima. Hver er
þin reynsla, Skúli, i þeim efnum?
— Þvi verður ekki neitað, að
aðstöðumunur er verulegur, og i
mörgum tilfellum óviðunandi.
Skólarnir á Austurlandi eru
margir hverjir mjög fátækir af
kennslutækjum, og húsnæði er
viða bágborið. Bókasöfn eru al-
gerlega ófullnægjandi og sums
staðar varla til, að heitið geti. Þó
hefur að sumu leyti stefnt i rétta
átt siðustu ár.
Starfstimi flestra skólanna er
alltof stuttur. Skólaárið 1970—71
störfuðu aðeins þrir skólanna i
niu mánuði, en þá voru barna-
skólar á námsstjórnarsvæðinu
samtals þrjátiu og fjórir. Fimm-
tán skólar störfuðu i átta mánuði,
fimm i sjö mánuði, en aðrir
skemur. Við suma skólana voru
einnig unglingadeildir.
Myndarlegir
heimavistarskólar
Skólaárið 1964—65, þegar ég hóf
störf sem námsstjóri, voru fjöru-
Vinnubækur frá Barnaskóla Eskifjarðar meðan Skúli var þar skólastjóri.
Siðustu skólaslit hjá Skúla Þorsteinssyni á Eskifirði 1957.
tiu og tveir barnaskólar á svæð-
inu. A þvi timabili, sem ég var
námsstjóri, sameinuðust smærri
skólahverfi um byggingu hinna
myndarlegu heimavistarskóla á
Hallormsstað og Kirkjubæjar-
klaustri, og var það mikil bragar-
bót i skólamálum þeirra héraða.
Einnig sameinuðust smærri skól-
ar á sama timabili um unglinga-
fræðsluna, t.d. við heimavistar-
barnaskólana á Eiðum og Nesj-
um i Hornafirði. I Nesjaskóla er
nú verið að reisa myndarlega við-
bótarbyggingu. Einnig var byggt
á þessum árum glæsilegt skóla-
hús á Vopnafirði, og ein hæð i fé-
lagsheimilinu á Borgarfirði hefur
verið innréttuð sem skólahús-
næði.
Arið 1964—65 voru aðeins ellefu
skólahverfi af fjörutiu og tveim-
ur, sem framkvæmdu fræðslu-
skyldu til fimmtán ára aldurs, en
skólaárið 1970—71 var fræðslu-
skylda framkvæmd samkvæmt
lögum, i heimaskóla og/eða ann-
ars staðar, i ölium skólahverfum
á námsstjórnarsvæðinu að und-
anteknum þremur.
Ekki utangarðsþegnar
— iHvað viltu segja um fjár-
hagslega aðstöðu þeirra, sem
verð'a að stunda framhaldsnám
fjarri heimilum sinum og átthög-
um?
— Það eru sjálfsagt öllum ljós-
ir þeir fjárhagserfiðleikar, sem
þeir nemendur búa við, sem
stunda þurfa framhaldsnám
fjarri heimili sinu og átthögum
miðað við þá, sem geta sótt skóla
frá heimili sinu. 1 þvi efni rikir
mikið misrétti. Nemendur strjál-
býsisins eiga ekki að vera utan-
garðsþegnar. Allir hljóta að eiga
siðferðilegan rétt á sem jöfnust-
um möguleikum til náms, hvar
sem þeir eru búsettir á landinu.
Það er vel, að á siðustu árum
virðast stjórnvöld hafa komið
auga á þessa staðreynd og sýnt
nokkurn vilja i verki til úrbóta.
En betur má ef duga skal.
— Arið 1971 voru samþykkt lög
um Kennaraháskóla Islands, sem
hafa i för með sér mjög aukna
menntun barnakennara i fram-
tiðinni, og nú liggur fyrir Alþingi
frumvarp til laga um grunnskóla,
sem gerir ráð fyrir nokkkurri
breytingu á skólakerfinu, aukinni
fjölbreytni og meiri námskröfum.
Fannst þér kennaranám of stutt
á meöan Kennáraskóli Islands
var aðeins þriggja vetra skóli?
Var menntun kennara þá ófull-
nægjandi?
— Ég held, að þriggja ára
kennaraskóli hafi varla verið
nægilega langur námstimi fyrir
kennaraefni á þeim tima, en þó
verður að taka tiilit til þess, að
nemendur voru þá yfirleitt eldri
og þroskaðari og margir hverjir
höfðu þvi nokkra reynslu i starf-
inu. Þá er rétt að taka fram i
þessu sambandi, að kennarar
hafa jafnan sýnt mikla fórnfýsi og
dugnað við að afla sér viðbótar-
menntunar, bæði heima og er-
lendis, þrátt fyrir bágborin
launakjör og aðbúð i starfi og
þess vegna hafa þeir dugað betur
en lengd skólagöngu þeirra gefur
til kynna. Það var þó mikilsvert,
þegar kennaraskólinn varð fjögra
ára skóli.
Þörf fyrir betur
menntaöa kennara
Það er staðreynd, að þjóðfélag-
ið hefur tekið stórstigum breyt-
ingum siðustu áratugi, sem krefj-
ast fjölbreyttari og meiri fræðslu
og kunnáttu nemenda á skyldu-
námsstigi, en af þvi leiðir óhjá-
kvæmilega þörf fyrir betur
menntaða kennara.
Lög um Kennaraháskóla ts-
lands og frumvarp til laga um
grunnskóla á þvi rætur að rekja
til þessara staðreynda, sem þjóð-
félagið hlýtur að láta sig miklu
varöa. Skólarannsóknadeild
menntamálaráðuneytisins hefur
á undanförnum árum unnið mikið
og merkilegt starf, sem ég hygg
að vænta megi góðs af i framtið-
inni, þegar reynsla er fengin og
hagnýtt.
— Þú hefur starfað lengi i sam-
tökum barnakennara, verið for-
maður þeirra um langt skeið og
fulltrúi stéttarinnar i norrænum
kennarasamtökum og á alþjóða-
þingum. Var ekki kjarabaráttan
stundum þreytandi og félagsmál-
astörfin timafrek.
— Jú, það er rétt. Ég hef leitazt
viða að leggja stéttarsystkinum
minum nokkurt lið i félagsmálum
á liðnum árum. Ég var formaður
Sambands islenzkra barnakenn-
ara i allmörg ár og hef átt sæti i
ýmsum nefndum sem fulltrúi
samtakanna. Kjarabaráttan hef-
ur auðvitað tekið mikinn tima og
oft borið litinn árangur, þótt
stefnt hafi i rétta átt. Min skoðun
er sú, að barnakennarastarfið sé
meðal vandasmöustu og
ábyrgðarmestu starfa i þjóðfé-
laginu. Ég er ekki einn um þá
skoðun, hún á sér formælendur
marga i öllum þjóðfélagshópum,
bæði hér heima og erlendis. Mér
virðist margt benda til þess, að
islenzkir barnakennarar búi við
lakari launakjör, miðað við aðrar
starfsstéttir, heldur en starfs-
systkin þeirra i nágrannalöndum.
Of löng
kennsluskylda
A norrænni kennararáðstefnu,
sem haldin var hér haustið 1971,
voru gestir okkar fremur fáorðir
á blaöamannafundi, en þó tóku
þeir sérstaklega fram, að dagleg
kennsluskylda islenzkra kennara
á skyldunámsstigi væri alltof
löng. Hins vegar töldu þeir orlofs-
árið og afslátt á kennsluskyldu
aldraðra kennara til fyrirmyndar
og höfðu orð á þvi að berjast fyrir
sömu hlunnindum i heimalöndum
sinum.
Ég hef alltaf álitið sanngjarnt
og sjálfsagt að gera miklar kröfur
til kennarans, en hnn verður þá
lika að njóta viðurkenningar og
launa i fullu samræmi við kröf-
urnar.
Ég vil ekki láta hjá liða að
leggja áherzlu á það, að islenzkir
barnakennarar og samtök þeirra
hafa alltaf látið sig öll menn-
ingarmál stéttarinnar miklu
skipta, svo sem menntun kenn-
ara, og einnig alla aðbúð nem-
enda. Ég hygg, að ekki sé ofmælt
þótt sagt sé, að flestar eða allar
framfarir i islenzkum fræðslu-
málum á skyldunámsstigi eigi
rætur að rekja til frumkvæðis eða
fylgis samtakanna.
Úr þvi við ræðum hér um fé-
lagsmál kennara, þá langar mig
til að hafa orð á þvi, aö ég hef haft
i huga að stuðla að stofnun sam-
taka með kennurum, sem hættir
eru störfum og komnir eru á eftir-
laun. Eins og nú háttar, eru þeir
úr öllu sambandi við fyrrverandi
starfsfélaga sina og stéttarsam-
tök. A þvi þarf að ráða bót.
Kannski geta þessir kennarar
lagt þar sjálfir hönd að verki.
Hefur þjóðfélagið efni á þvi að
nýta ekki starfskrafta þeirra og
reynslu á einhvern hátt?
Daglegur námstími
veröi samfelldur
— Viltu segja eitthvað sér-
stakt, áður en við ljúkum þessu
samtali?
— Jú, ég vil að lokum gjarnan
segja þetta: Nútiminn krefst auk-
innar og fjölbreyttari fræðslu og
meiri kunnáttu nemenda að
skyldunámi loknu, en það má
aldrei gleyma hinu uppeldislega
hlutverki skólans.
Bein fræðsla og nám hefur að
sjálfsögðu nokkur uppeldisáhrif,
en skipuleg félagsstörf innan
veggja skólans eða i tengslum við
hann, þar sem börnin eiga frum-
kvæði uhdir leiðsögn kennara, eru
liklegri tilfarsælla uppeldisáhrifa
og hjálpa bezt til þess að móta
heilbrigða hegðun barnanna og
gott andrúmsloft i skólastarfinu.
Félagsstörfin má þvi alls ekki
vanrækja, og nauðsynlegt er að
ætla þeim rúm i stundarskrá.
I þessu sambandi vil ég geta
þess, að ég tel sjálfsagt að keppa
að þvi, að daglegur námstimi
barnanna verði samfelldur i skól-
anum, og þegar börnin koma
heim hafi þau lokið sinu skyldu-
verki. Til þess að svo geti orðið,
þurfa börnin að fá máltið i skól-
anum.
Að siðustu vil ég láta þá skoðun
i ljós, að ég tel að fagnámsstjórar
geti ekki, af eölilegum ástæðum
gegnt þvi hlutverki, sem svæða-
námsstjórum hefur verið ætlað.
Svæðanámstjórarnir eiga að láta
sig skipta allt skólastarfið i heild:
nám, félagsstörf, skólabrag allan
og aðbúð nemenda og kennara.
Þeir eiga að vera i lifrænu sam-
bandi við skólana og dvelja meö
kennurum og nemendum eftir þvi
sem timi vinnst til. Hlutverk fag-
námsstjóra er hins vegar að ann-
ast tilraunir i einstökum náms-
greinum eða hafa umsjón með
þeim og leiðbeina á námskeiðum
kennara.
Eg vona, að ný fræðsluiög verði
framkvæmd þannig, að þau störf,
sem svæðanámsstjórar hafa
hingað til haft með höndum, verði
ekki vanrækt i framtiðinni, þó
einhverjar breytingar verði gerð-
ar á starfsháttum.
Förum
við þá allir
til
Heljar?
Fjölmenni á fundi ásatrúarmanna
Ásatrúarmenn vilja skira og grafa sjálfir, þeir eru á
móti fóstureyðingum, þeir jafna blóti við nútima
sláturhús, þeir hafa orðið fyrir jarteiknum, en þeir
eru ekki vissir um lífið eftir dauðann.
Þetta var meðal þess, sem
fram kom á kynningarfundi
Asatrúarfélagsins á þrettándan-
um, sem haldinn var á Hótel Esju
og dró að sér um hundrað manns,
en ekki er ljóst, hve margir þeirra
játa ásatrú og hve margir komu
af forvitni.
1 upphafi skýrði einn forystu-
manna, Jörgen Ingi Hansen, frá
tildrögum að stofnun Asatrúarfé-
lagsins og las bréf , sem félagið
hefur sent dómsmálaráðuneytinu
með ósk um viðurkenningu á fé-
laginu sem trúarfélagi og þeirri
málaleitan, að félagið sjái sjálft
um skirnarathafnir og fái eiginn
grafreit, en allsherjargoði sjái
um framkvæmd skirna og útfara.
Átti félagið von á svari ráðu-
neytisins i gær, manudag.
Kom fram i umræðum að erindi
þeirra ásatrúarmanna hefði
dómsmáiaráöuneýtið sent
biskupnum yfir lsiandi til um-
sagnar og hefði hennar þegar
verið beðið alllengi. Óttuðust þeir
félagar, að umsögn yfirmanns
kirkjunnar yrði ekki óvilhöll og
bentu á, að þetta virtist vera eina
umsögnin, sem ráðuneytið hefði
leitað eftir og ætlaði að styðjast
við.
Gestur á fundinum, Páll Heiðar
Jónsson, upplýsti hins vegar, að
herra Sigurbjörn Einarsson hefði
sjálfur fyrir um 40 árum reynt að
endurvekja ásatrú og þá veriö á
móti þeim gyðinglegu trúar-
brögðum, sem hingað hefðu verið
flutt inn.
Allsherjargoði ásatrúarmanna,
Sveinbjörn Beinteinsson, ræddi
um siðfræði ásatrúarinnar og
Þorsteinn Guðjónsson um sitt-
hvað sem viðkemur félaginu.
Trúleysingi, Arni Björnsson þjóð-
háttafræðingur, mætti á fundin-
um og sagði frá uppruna jólanna
sem heiðinnar skammdegishátið-
ar.
Blóðþorsti
íslendinga.
Siðfræðin þvældist fyrir fundar-
mönnum, og i umræðum eftir
framsöguerindi var m.a. spurt
um mannfórnir og blót. Svöruðu
ásatrúarmenn þvi til, að einmitt
þetta væri sú spurning, sem lýsti
bezt blóðþorsta Islendinga og
menn legðu ævinlega fyrst fyrir
þá, — hverju ætti að blóta og
hvar. Sögðu þeir blót ásatrúar-
manna fyrrum ekki hafa verið
annað en slátrun á hátiðum, rétt
eins og tslendingar nú ætu kjöt,
en létu að visu slátra fénu fyrir
sig i sláturhúsum.
Þorsteinn Guðjónsson bætti við,
að kristnir menn þyrftu ekki að
vera að hreykja sér hátt varðandi
mannfórnir eða hvort kristnir
menn teldu ef til vill rétt að taka
upp galdrabrennur á nýjan leik.
Helgi Hóseasson trésmiður
spurði, hvað allsherjargoði ætti
við með orðinu skirn, þvi skirn
þýddi hreinsun, og hvort ása-
trúarmenn ætluðu þá eins og þeir
kristnu að þykjast vera að
hreinsa nýfædd börn af einhverri
erfðasynd.
Var Helga svarað, að orðið
skirn væri hér notað i óeiginlegri
merkingu um nafngift og ásairú-
armenn teldu fráleitt að hreinsa
ungbörn af erfðasynd.
Spurt var, hvort ásatrúarmenn
teldu rétt að bera út börn og svar-
aði allsherjargoði, að þetta hefði
verið neyðarúrræði i harðinda-
árum áður fyrr og hann gæti ekki
séð, að nú væri nein sú neyð rikj-
andi, er réttlætti slikt. Hann vildi
hinsvegar taka fram, að hann
teldi engan eðlismun á þvi að
bera út börn i neyðarárferði og
hinu, að eyða börnum i móður-
kviði eins og fólk vildi nú gera i
velferðárþjóðfélögum.
Jarteikn
Kjartan M. Kjartansson skýrði
frá reynslu af blóti og jarteiknum
miklum er þá urðu. Höfðu tveir
menn saman reist skurðgoð i
Flatey af guðinum Frey með til-
keyrandi kyntáknum. Blótuðu
þeir siöan hana Frey til dýrðar,
en er þeir ruðu blóðinu á goðið
flaug valur mikill með krfu i
kjaftinum og þúsundir krfa á eftir
honum. Sem þeir úthella blóði
hanans vita þeir ekki fyrri til en
valurinn missir kriuna og hún
fellur niður á fótstall Freys.
Einn fundarmanna spurði,
hvort ásatrú hefði verið við lýöi á
timum nazista i Þýzkalandi. Kom
fram, að þar hefði rikt með
ýmsum aðilum mikil þjóðernis-
og þjóörembingshreyfing, bæði
þá og fyrir þann tima, og þá m.a.
borið á viðleitni til að taka upp hin
fornu mánaðaheiti, en svo virtist
þó sem nazistar sjálfir hefðu ekki
talið heppilegt að gera ásatrú aö
rikistrú, gátu enda borið fyrir sig
kristnina til margra verka.
Baráttu- og trúarljóð bar á
góma og kom i ljós, að ljóðakyns
telja ásatrúarmenn sig hafa af
nógu að taka i heiðnum kveðskap;
öllu erfiðara væri um sönghæf
lög, en málið þó i athugun. Útgáfa
málgagns reyndist lika á at-
hugunarstigi, en verður sinnt
þegar er fjárhagslegt bolmagn er
fyrir hendi.
Ekker svar
Aðeins við einu virtust þeir
ásatrúarmenn engin svör kunna,
nefnilega hinni eilifu spurningu
mannkynsins, — hvað verður eft-
ir dauðann? Þar sem nútima
Islendingar dæju ekki með vopn i
hönd, en yrðu — ó, vei, — senni-
legast sóttdauðir, þá gætu þeir jú
ekki orðið Einherjar hjá Óðni i
Valhöll. Fara þeir þá allir til
Heljar?
En um þetta vildi allsherjar-
goðinn ekki dæma og svaraði með
stóiskri ró, að enn væri margt
órannsakað i þessu efni.vh.