Þjóðviljinn - 09.01.1973, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 09.01.1973, Blaðsíða 16
Almennar upplýsingar um læknaþjónustu borgarinnar' eru gefnar í simsvara Læknafélags Reykjavikur, simi 18888. Þriðjudagur 9. janúar 1973 Lyfjaþjónusta apótekanna vikuna 6.-11. janúar er i Holtsapóteki og Laugarnes- apóteki. Slysavarðstofa Borgarspitalans er opin all- an sólarhringinn. Kvöld-, nætur og helgiáaga- vakt a heilsuvernarstöðinni. Simi 21230. Lúna-21 á leið til tunglsins MOSKVU 8/lMannlaust geimfar, Lúna-21, hélt af stað til tunglsins i dag, að þvi er sovézka fréttastof- an Tass hermir. í tilkynningu Tass segir, að Lúna-21 eigi að halda áfram rannsóknum á tunglinu og um- hverfi þess en ekki er sagt hvort geimfarið muni lenda á tunglinu. Fyrir ellefu mánuðum sendu sovézkir vísindamenn Lúnufar til tunglsins, og var um borð sjálf- virk bifreið sem tók sýni þar og sneri aftur til jarðar. Bandariska þjóðlagasöngkonan Baez hitti á jólum i Hanoi nokkra nýtckna bandariska striðsfanga. Palme ósmeykur við refsiaðgerðir: Reiðubúinn að ítreka gagnrýni á Bandaríkin Meðan Kanar kasta sprengjum á eigin menn: Friðarviðræður hóf- ust aftur í París PARIS SAIGON 8/1 Viðræður þeirra Henry Kissingers og Le Duc Tho um vopnahlé i Viet- nam hófust aftur i Paris i dag. Af opinberri bandariskri hálfu er mjög dregið úr bjartsýni manna á að skjótur ár- angur náist. Lofthernaði heldur áfram i Vietnam af þvi kappi, að Banda- rikjamenn hafa i mis- F yrsta loðnan komin á land í gærmorgun kom fyrsta loðnan á land i Eskifirði. Landaði Eld- borgin þar nær 40 tonnum af loðnu i bræðslu. Fékk báturinn þessa loðnu á Bakkaflóadýpi með flot- vörpu. Loðnan stóð nokkuð djúpt og var farin að mynda torfur. Er vonlaust að veiða loðnuna i nót ennþá. Ekki þótti fært að taka loðnuna i frystingu fyrir japanskan mark- að", þegar henni var landað I gær- morgun á Eskifirði. Eldborgin veiddi þessa loðnu á laugardag, og er ekki hægt að taka loðnu eldri en tólf tima i frystingu. Loðnan er hins vegar stór og feit. Okkur vantar fólk til að bera út blaðið Skjól Hjarðarhaga Miðbæ Hverfisgötu Skúlagötu Höfðahverfi Háteigshverfi Sólheima Nökkvavog Voga 2 Sogamýri DJOÐVIUINN gáningi gert loftárás á eigin flugbækistöð. Þeir Kissinger og Le Duc Tho hófu þriðju umferð friðarumleit- ana i Paris i dag og ræddust þeir við i hálfa fimmtu stund. Er þetta i 23. sinn að þeir koma saman. Þegar Kissinger kom til Paris- ar seint i gærkvöldi, sagði hann að Nixon hefði sent sig til að reyna að ljúka samningum. Kiss- inger gaf ekkert til kynna um af- stöðu bandariskra stjórnvalda til einstakra atriða, en kvaðst vona að viðræður yrðu „alvarlegar”. Stjórnarfulltrúar í Washington hafa að undanförnu verið ósparir á að draga úr bjartsýni manna á, að friðargerð sé á næsta leiti. Fréttaskýrendum ber nokkuð saman um að það, sem helzt beri á milli sé það, að Norður-Viet- namar standi fast á þvi, að Viet- nam sé eitt land, en Bandarikja- menn vilji bjarga skjólstæðingi sinum Thieu, með þvi, að sam- komulag byggist á þvi, að rikin séu tvö og að Thieu fari með for- ræði yfir öllu Suður-Vietnam. Þá mun og ágreiningur um það, hve öflug sú alþjóðanefnd á að vera sem á að fylgjast með fram- kvæmd vopnahlésins. Striðið Nokkrum stundum áður en við- ræður Kissingers og Le Duc Tho hófust aftur i Paris gerðu 165 bandariskar sprengjuflugvélar loftárásir á sunnanvert Norður- Vietnam, og um 250 flugvélar gerðu árásir á ýmsa staði i Suður- Vietnam þar sem Þjóðfrelsisher- irnir hafa haft sig einna mest i frammi. Fimm bandariskar flugvélar hentu i misgáningi sprengjum á flugstöð bandarikjahers i Da Nang. Grönduðu sprengjur þess- ar einum Vietnama, særðu niu bandariska flugmenn og löskuðu eina þyrlu. Málið er i rannsókn. Varð fyrir voðaskoti og lézt samstundis 15 ára gamall piltur varð fyrir voðaskoti i Vik i Mýrdal sl. laugar- dagskvöld og lézt sam- stundis af skotsárinu. Atvik voru þau, að nokkrir drengir höfðu stolið skammbyssu i sláturhúsinu i Vik og voru að leika sér að skjóta i mark með henni um miðnætti sl. laugar- dagskvöld. Þá gerðist það að drengurinn sem fyrir skotinu varð kom hlaupandi fyrir húshorn ásamt nokkrum öðrum piltum. Rakst hann á þann er á byssunni hélt að þvi er haldið er, og hljóp þá skotið með einhverjum hætti úr byssunni og i brjóst piltinum' sem mun hafa látizt samstundis. Að þvi er fulltrúi sýslumanns i Vik i Mýrdal sagði i gær, voru! piltarnir sem með byssuna voru i I það miklu uppnámi, að litið hafði verið hægt að ræða við þá. Þó er vitað að þeir höfðu áður leikið sér með þessa byssu og tekið hana i óleyfi til þess arna. S.dór. Afgreiðslubanni ót bandariskar vörur er haldið áfram í Astralíu WASHINGTON PARIS 8/1 Olof Palme, forsæt- isráðherra Svíþjóðar, hefur lýst þvi yfir i við- tali við franska vikuritið Nouvel Observatur, að hann sé reiðubúinn til að itreka hina hörðu gagn- rýni sina á Bandarikin, ef að viðræðum um frið i Vietnam verur aftur slitið og ótakmarkaður lofthernaður tekinn upp á ný gegn Norður-Viet- nam. Skipti þá engu máli hvort Bandarikin reyni að beita Sviþjóð efnahagslegum þving- unum eða ekki. Palme lagði áherzlu á að hann finni ekki til haturs i garð Banda- rikjanna og eigi gagnrýni hans á hernaði þeirra i Vietnam einfald- lega rætur að rekja til þess, aðhann sé lýðræðisinni. Hann segir að vonbrigði sin yfir atferli Bandarikjanna i Vietnam séu jafn sterk og trúin á lýðræðishug- sjónir, sem Bandrikin einu sinni vörðu. Palme kvaðst ekki búast við þvi, að Bandarikin mundu setja viðskiptabann á Sviþjóð, en Sviar muni ekki heldur breyta um af- stöðu þótt til þess kæmi. Palme segir að Nixon ætti að vita það manna bezt, að þegar stórveldi beitti smáþjóð þvingunum þá efldist mótstöðukraftur smá- þjóðarinnar. 1 hálfsiðu viðtali við Palme, sem i dag er birt I New York Times, segir sænski forsætisráð- herrann, að hann vonist til að ná- in samskipti milli landanna verði tekin upp aftur þegar Vietnam- striðinu lýkur. Segir hann, að lik- lega séu Sviar hlynntari Banda- rikjunum en flestar þjóðir aðrar i Evrópu — en ,,sá er vinur er til vamms segir”. Frh. á bls. 15 Sendinefnd frá Alþingi í Sovétrikjunum MOSKVU 8/1.1 dag kom til Moskvu sendinefnd frá Al- þingi íslands sem heimsækir Sovétrikin i boði Æðsta ráðs- ins. Formaður sendinefndar- innar er Eysteinn Jónsson, en aðrir nefndarmenn eru Garðar Sigurðsson, Steinþór GestssonBenóny Arnórsson og Bragi Sigurjónsson. Sendi- nefndin verður I Sovétrikjun- um til 16. janúar og heimsækir auk Moskvu Leningrad og Rigu. A Sjeremetevoflugvelli tóku á móti sendinefndinni Jadgar Nasriddinova, forseti Þjóð- ernisráðs Æðsta ráðsins og sendiherra Islands, dr. Oddur Guðjónsson. Við komuna lét formaður nefndarinnar, Eysteinn Jóns- son, i ljós ósk um að heim- sóknin mundi stuðla að eflingu vináttu og gagnkvæms skiln- ings milli þjóðanna. (APN) Yiðurkenn- ling staðfest Einar Agústsson utanrikisráð- herra hefur með simskeyti til Hanoi, sem dagsett var i gær, til- kynnt rikisstjórn Alþýðulýðveld- isins Vietnams viðurkenningu ís- lands. N or ðurlöndin taki þátt í eftirlitinu OSLO — Norskur stjórnmála- maður hefur vakið máls á þvi, að Norðurlöndin, hvert um sig eða öll sameiginlega taki þátt i eftir- liti I Vietnam, ef til kemur, eftir að friður hefur verið saminn og vopnahléi lýst yfir. — Norðurlöndin ættu að lýsa yfir, hvert um sig eða sameigin- lega, að þau séu tilbúin að taka þátt i þessu eftirliti, sagði Helge Seip, nýkjörinn formaður Vinstri- flokksins, i ræðu fyrir helgina, en hann er jafnframt formaður utanrikisnefndar norska þings- Gagnrýni á Spasski i Prövdu: ÆFÐI SIG Á OF LÉLEGUM MÖNNUM FYRIR EINYÍGIÐ MOSKVU: Sovézki stór- meistarinn Kotof heldur því fram i grein sem birtist i Prövdu, að Boris Spasski hafi tapað heimsmeistaratign i skák til Fischers vegna þess m.a. að hann hafi verið of illa undirbúinn. Kotof heldur þvi fram, að Spasski hafi gert sig sekan um bæði praktiskar og fræðilegar yfirsjónir og auk þess hafi að- stæður verið slæmar af hálfu skipuleggjara einvigisins. En aðalástæðan til þess að Spasski tapaði, segir Kotof, er samt sem áður sú, að sovézkar skákrannsóknir eru á lægra stigi. Þvi eru ástæður til ósig- ursins miklu hörmulegri en ósigurinn sjálfur. Samt sem áður, segir stór- meistarinn, mega menn ekki gera of litið úr þeirri stað- reynd að Boris Spasski var illa fyrirkallaður i öllu einviginu og ástæðan til þess er sú, að hann valdi sér of lélega and- stæðinga til að æfa sig á heima i Sovétrikjunum áður en hann fór til Reykjavikur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.