Þjóðviljinn - 03.04.1973, Síða 10
4KR
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur J. april 1973.
Enn vinnur Haraldin
þrefalt í badminton
/
V
Reykjavikurmeistaramótið i badminton fór
fram um siðustu helgi og enn einu sinni sýndi
Haraldur Korenliusson hvilikur yfirburðamaður
hann er i þessari iþróttagrein hér á landi. Hann
varð Reykjavikurmeistari i einliðaleik, tviliða-
leik og tvenndarkeppni. Annars var þetta mót i
daufara lagi og minna um jafna og skemmtilega
leiki en oft áður. Má vera að menn séu að spara
púðrið þar til um næstu mánaðamót þegar sjálft
íslandsmótið fer fram.
Þeir Haraldur Korneliusson
og Sigurður Haraldsson, tveir
beztu badmintonleikarar hér á
landi, léku til úrslita i einliða-
leik. Einhverra hluta vegna nær
Sigurður ekki upp að hliðinni á
Haraldi og varð að þola stór tap
i fyrri lotunni 2:15 en sú siðari
var aftur á móti jafnari en
Haraldur vann hana 15:12. Þar
með var Haraldur orðinn
Reykjavikurmeistari i einliöa-
leik. Þetta var þó bara fyrsti
titillinn af 3 sem hann vann á
sunnudagskvöldið.
I tviliðaleik léku þeir
Haraldur og Steinar Petersen
gegn þeim Sigurði Haraldssyni
og Garði Alfonssyni og var þar
um nokkuð skemmtiiega keppni
að ræða. Haraldur og Steinar
unnu fyrstu lotuna 15:12,
Sigurður og Garðar þá næstu
15:10 en úrslitalotuna unnu
Haraldur og Steinar með mikl-
um yfirburðum, 15:3.
Næst kom svo tvenndar-
leikurinn. Þar léku llaraldur og
Hanna Lára Pálsdóttir saman
gegn Steinari og Lovisu
Sigurðardóttur. Haraldur og
Hanna unnu báðar loturnar, þá
fyrri 15:11 en siðari lotuna 15:8
og þar með hafði Haraldur
unnið alla þrjá titlana sem hægt
var að vinna á þessu móti.
Um þaö þarf engum blöðum
að fletta að Haraldur er i sér-
flokki hérsem badmintonmaður
og verður það eflaust enn um
sinn enda ungur að árum. Menn
eru farnir að vera langeygir
eftir ungum manni sem veitti
Haraldi verðuga keppni og
virðistætla að verða einhver bið
enn um sinn á þvi að Sigurður
Haraldsson geri það, en hann er
yngri en Haraldur og mjög efni-
legur.
Þá saknar maður þess að sjá
ekki einliðaleik kvenna á bad-
mintonmótum hér. Að visu eru
ungar stúlkur og efnilegar að
koma upp og verður þá senni-
lega ekki langt að biða þess að
konur fari að keppa i einliðaleik.
NM unglinga
Árangurinn er áfall
Þvi miður virðist það alltaf
svo að þegar menn búast við
miklu er uppskeran oftast
minnst. Þannig var að þessu
sinni mcð unglingalandslið pilta
á NM i handknattleik. Maður
átti von á góðri frammistöðu,
jafnvel sigri þess i mótinu, en
útkoman er einhver hin lakasta
frammistaða islenzka liðsins á
NM um árabil. Aðeins einn sig-
ur, 20:13 yfir Finnum, en tap
fyrir Dönuin, 25:18, Svium
17:13, og Norðmönnum 16:13 og
liðið lendir i næstneðsta sæti
með aðeins 2 stig. Danir unnu
mótið, Sviar númer 2, Norð-
menn númer 3, þá islendingar
og lokst Finnar eins og vant er.
Þessi árangur er vægast sagt
mikið áfall fyrir islenzkan
handknattleik.
Stúlkurnar urðu i næst-neðsta
sæti,' hlutu 2 stig eftir sigur yfir
Norðmönnum 13:12. Siðan töp-
uðu þær bæði fyrir Svium og
Dönum, sem unnu inótið. Þetta
var þvi sigurmót fyrir ,,vini”
vora Dani.
Skalla-
grímur
upp í
1. deild
Lið Skallagrims úr Borgar-
nesi sigraði i 2.- deildarkeppn-
inni i körfuknattleik og 'flyzt
þvi uppi 1. deild aftur en liðið
féll niður i fyrra.
Þá er næstum öruggt að um
leið og handknattleikslið Þórs
frá Akureyri virðist vera að
komast uppi 1. deild fellur
Þórs-liðið i körfuknattleik
niður i 2. deild. Ekkert getur
bjargað þvi héðan af nema
kraftaverk.
ÍR og KR
unnu
sína leiki
Eins og vanalega unnu bæði
IR og KR sina leiki i 1. deildar-
keppninni i körfuknattleik um
hlegina. KR sigraði Armann
78:69 en IR sigraði IS 97:81.
Marteinn Geirsson I baráttu við tvo Eyjamenn og hefur betur.
Hanna Lára Pálsdóttir og Haraldur Korneliusson sigurvegarar I
tvenndarkeppni.
AUt gengurá
afturfótunum
hjá Islands-
meí sturunum
ÍBY sigraði Fram auðveldlega 2:0
Allir muna sjálfsagt
eftir hinni einstöku sigur-
göngu íslandsmeistar-
anna Fram í fyrravor og
fram á haust. Liðið lék
eina 15 leiki án taps, sem
bæði kom fyrir getu og á
stundum mikla heppni.
Nú virðist öldin önnur. Oll
'heppni er frá liðinu farin
og getan er enn sem
komið er langt frá því
sem var í fyrra. Og það
sem einkennilegast er,
vörn liðsins, sem var betri
hluti þess í fyrra og
óumdeilanlqga sú bezta
hér á landi þá, er nú
vægast sagt léleg. Bæði
óörugg og þung.
A laugardaginn léku Fram og
ÍBV i meistarakeppninni og fór
leikurinn fram á MELA-
VELLINUM, Svo fóru leikar að
IBV sigraði 2:0 og var nær þvi
að skora 3ja markið en Fram að
skora eitt. Þó yfirburðir IBV
væru nokkrir vantar enn mikið
uppá að liðið sé komið i fulla
þjálfun, eða eins og einn
stjórnarmanna IBV sagði, ,,nú
förum við að æfa fyrir
sumarið”.
IBV lék undan nokkuð
sterkum vindi i fyrri hálfleik og
er skemmst frá þvi að segja að
þeir sóttu látlaust allan hálf-
leikinn, ka'nnski einum of stift
þvi 21 maður var nær allan fyrri
hálfleikinn á vallarhelmingi
Fram. Ekki náði IBV að skora i
þessari 45 minútna sóknarlotu.
En á 8. minútu siðari hálf-
leiks kom fyrra markið. Mar-
teinn Geirsson átti i höggi við
Orn Óskarsson og hafði betur og
hugðist senda boltann til mark-
Frh. á bls. 15