Þjóðviljinn - 10.04.1973, Blaðsíða 10
1» SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 10. apríl 1973.
Allt snerist
um 100. mark
Einars í
leik Armanns
og Yíkings
Leikur Ármanns og
Víkings sl. sunnudags-
kvöld varð að algerri leik-
leysu undir lokin, þegar
allt snerist um það hvort
Einari Magnússyni tækist
að skora sitt 100. mark í 1.
deild í vetur eða ekki.
Þetta gekk svo langt
undir lokin, að forráða-
menn Víkingsgáfu liðinu
fyrirskipun um að leyfa
Ármenningunum að
skjóta óhindrað á
Víkingsmarkið til þess að
tími gæfist til að hefja
eina sókn enn, en þá hafði
Einar skorað 8 mörk í
leiknum sem þýddi 99
mörk í vetur. Og i siðustu
sókninni var dæmt víta-
kast á Ármann og úr þvi
skoraði Einar sitt 100.
mark og innsiglaði sigur
Vikings yfir Ármanni
21:19. Einar varð þar með
fyrstur til að skora 100
mörk i 1. deild eftir að
keppnin færðist í Laugar-
dalshöllina og þetta gerði
hann i 14 leikjum. Hins-
vegar á Ingólfur
óskarsson metið 122 mörk
í 10 leikjum meðan keppt
var i iþróttahúsinu að
Hálogalandi, met sem
sennilega verður aldrei
slegið.
bað eina sem þessi leikur
haföi uppá að bjóða fyrir þá sem
komnir voru i Laugardals-
höllina var að sjá Jón Hjaltalin
leika með Vikingi og það hvort
Einari tækist að skora 100.
markið. Leikurinn var lengi vel
jafn, en undir lok fyrri hálfleiks
náði Vikingur 3ja marka for-
skoti 9:6, siðan 10:6og 11:6, en i
leikhléi var staðan 11:7.
Þessi 3ja til 4ra marka munur
hélzt lengst af út siðari hálf
leikinn, 16:12, 17:14, 19:15,
20:16, en honum lauk svo með
sigri Vikings 21:19. Heldur
leiðinlegur leikur á að horfa,
enda höfðu liðin ekki að neinu að
keppa, nema Vtkingar að 100.
marki Einars Magnússonar.
Jón Hjaltalin gerði ekkert
sérstakt i þessum leik, skoraöi 2
mörk en geröi greinilega sitt til
aö Einari mætti takast að skora
100. markiö. Einar virtist aldrei
taka á allan ieikinn fyrr en
undir lokin, þá var einsog hann
hefði loks áhuga á að ná þessu
takmarki, allir aörir virtust
hafa miklu meiri áhuga fyrir
þvi
Armanns-liðiö lék hvorki
betur né verr en það hefur gert
undanfarið. Beztu menn þess
voru Ragnar Jónsson, Hörður
Kristinsson og Olfert Naaby.
Mörk Vikings: Einar 9, Jón
Sig. 6, Jón Hj. Sigfús og Magnús
2 mörk hver.
Mörk Armanns: Ragnar 6,
Björn 4, Vilberg, Þorsteinn,
Hörður og Jón 2 mörk hver.
Olfert 1 mark. —S.dór.
Jóhannes
áfram
með Yal?
Allar likur eru nú á að hinn
snjalli knattspy rnumaður
Jóhannes Eövaldsson hætti
við að fara sem þjálfari og
leikmaöur til Neskaupstaðar
eins og hann hafði ráðgert, og
leikur hann því áfram með Val
i sumar. Astæöan fyrir
ákvörðun hans að hætta við að
fara austur er sú mikla
ánægja sem rikir meðal Vals-
ntanna með sovézka
þjálfarann sem þeir hafa ný-
verið fengið. Segjast þeir
aldrei hafa kynnzt jafn snjöll-
unt þjálfara, og vænta Vals-
menn mikils af honum I
sumar.
bað styrkir Vals-liöið mjög
mikið ef Jóhannes, sem er án
vafa einn snjallasti knatt-
spyrnumaður okkar, leikur
með því I suntar.
Þá er einnig ljóst að Hörður
Hilmarsson kemur suður og
leikur mcð Val I sumar, cn
hann hefur dvalið á Akureyri I
vetur. Róbert Eyjólfsson kem-
ur einnig aftur i liðið, en hann
hefur verið kennari I vetur
austur á fjörðum.
Einar Magnússon fyrir ofan allt eins og svo oft I leikjum hans I vetur, en hann snýr frá vörninni (Ljós-
mynd Gunnar Steinn)
Góður lokasprettur
bjargaði Frömurum
Þegar þeir sigruðu KR 23:18
Þá er útséð með það, að
KR fellur niður með
aðeins eitt stig og það eru
árog dagar síðan lið hefur
fallið með jafn slæma út-
komu og þá ekki sízt nú
þegar leikirnir í 1. deild
eru orðnir 14. Það gekk þó
ekki átakalaust fyrir
Fram að vinna KR á
sunnudaginn. Allan fyrri
hálfleik og allt þar til 7-8
mínútur voru eftir af
leiknum var hann
hníf jafn og leiddu liðin til
skiptis. En mjöq qóður
endasprettur, einkum hjá
Axel Axelssyni, tryggði
Fram 5 marka sigur 23:18.
Þennan mikla
endasprett Fram þoldi
KR-liðið ekki og brotnaði
algerlega saman. I heild
var leikurinn vel leikinn
af hvorugu liðinu, og er
Ijóst að Framliðið hefur
enn ekki komizt yfir KR-
skrekkinn sem það hefur
haft í mörg ár, svipað og
Valur gegn iR.
Framan af var leikurinn mjög
jafn eins og áður segir. Jafnt
Leikur Yals og Fram
y erður úr slit aleikurinn
r
Breiðablik og Armann berjast um fallið
Úrslit leikja í 1. deildar-
keppni kvenna í fslands-
mótinu i handknattleik
urðu á þann veg sl. sunnu-
dag, að leikur Vals og
Fram á sunnudaginn
kemur sem er síðasti leik-
ur mótsins verður hreinn
úrslitaleikur um hvort
liðið sigrar í 1. deildar-
keppninni í ár. Þá er
einnig Ijóst að Breiðablik,
sem hefur lokið leikjum
sínum og er með 7 stig
berst við Ármann, sem
einnig er með 7 stig, en á
eftir einn leik, um fallið.
Valur — UBK 18:13
Eins og markatálan gefur til
kynna voru yfirburðir Vals all-
miklir i þessum leik, og virðist
Vals-liðið nú heldur að ná sér á
strik aftur, en það hefur verið i
nokkrum öldudal undanfarið. 1
leikhléi var staðan 10:4 Val i vil.
bar með hefur Valur hlotið 13
stig og leikur til úrslita við
Fram um íslandsmeistara-
titilinn.
Framhald á bls. 15.
var 5:5, en áður hafði KR haft
þetta eins til tveggja marka for-
skot, 6:6, 7:7, 8:8 9:9, og i leik-
hléi var staðan 10:9 KR i vil.
Jafnt var enn 10:10, 11:11,
12:12, 13:13 14:14 og 15:15 i
siðari hálfleik, og var þá 21
minúta liðin af siöari hálfleik,
En þá komst Fram i 17:15 og
siðan i 18:16 og uppúr þvi sigldu
Framarar fram úr og komust i
23:17 en leiknum lauk með sigri
Fram 23:18.
Fram, sem á litinn sem engan
möguleika á sigri i deildinni aö
þessu sinni, en á hinsvegar
mikla möguleika á silfurverð-
laununum virtist ekki hafa
mikinn áhuga fyrir þessum leik.
Hinsvegar voru KR-ingar með
sprækasta móti. 1 Fram-liðinu
bar mest á Andrési Bridde
framan af, en undir lokin fór
Axel að láta að sér kveða svo
um munaði, og þá fór lika
munurinn að verða meiri.
Ingólfur átti einnig ágætan leik i
Fram-liðinu, svo og Jón
Sigurðsson markvörður eftir að
hann kom inná i siðari hálfleik.
Hjá KR voru það þessir sömu
menn og borið hafa liöið upp I
vetur, þeir Haukur Ottesen og
Birnirnir báðir, Pétursson og
Blöndal.
Mörk Fram: Axel 7, Björgvin
5, Ingólfur 4, Sigurbergur 3,
Pétur 2, Arni og Andrés 1 mark
hvor.
Mörk KR: Björn P. 4, Haukur
3, Bjarni 3, Sigurður Jurgen,
Björn B og Bogi 2 mörk hver.