Þjóðviljinn - 24.05.1973, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 24.05.1973, Blaðsíða 1
/ UuÐVIUINN Fimmtudagur 24. mai 1973 — 38. árg. —118. tbl. ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERZLA í KRON k A Mótmœlum ofbeldi Rreta: FJÖLMENNIÐ Á ÚTIFUNDINN! Frá f jölmennum fundi herstöðvaandstœðinga í Keflavík. — Sjá frétt á 3ju síðu Sýnum Bretum einhug okkar og samstöðu- Fundurinn hefst á Lœkjartorgi kl.5 Alþýðusambaud islands boðar til útifundar i Reykjavik kl. 5 i dag. Fundurinn verður haldinn á Lækjartorgi. Fundarstjóri verður Snorri Jónsson, forseti Alþýðusambands íslands. Stjórnmálaflokk- arnir tilnefndu ræðumennina á fundinn, en þeir eru: Lúðvik Jósepsson, sjávarútvegsráðherra, Benedikt Gröndal, alþingismaður Jón Skaftason, alþingismaður Ólafur Hannibalsson, skrifstofustjóri Geir Hallgrimsson, alþingismaður. Fundurinn er haldinn til þess að mótmæla ofbeldi Breta i islenzku landhelginni. Þjóðviljinn heitir á almenning allan að f jölmenna á útifundinn og sýna þannig i mótmælum eindregna samstöðu islenzku þjóðarinnar við ofbeldisyfirgang Breta. Kaupið hækkar 1. júní um rúm 5% Framfærsluvísitalan hækkarum tæp 10% en fjölskyldubætur um, 38,5% Kauplagsnefnd hefur reiknað visitölu fram- færslukostnaðar i mai- byrjun 1973 og reyndist hún vera 201 stig, (miðað við 100 i janúar 1908) eða 18 stigum hærri en i febrúarbyrjun 1973. Hækkunin nemur tæplega 10%. bá hefur kauplagsnefnd reiknað kaupgreiðsluvisitölu fyrir timabilið 1. júni — 31. ágúst 1973 og hækkar kaupgreiðsluvisi- Asgeir Magnússon æðsti maður frímúrara Eins og kunnugt er var Vil- hjálmur heitinn Þór lengi æðsti maður islenzku friinúrararegl- unnar. Eftirmaður hans varð síð- an Valdimar Stefánsson, yfir- sakadómari. Valdimar er nýlát- inn og i fvrrakvöld var nýr maður settur inn i embættið háa — Ás- geir Magnússon, framkvæmda- stjóri Samvinnutrygginga. talan úr 124,32 stigum i 130,68 stig eða um rúmlega 5%. Á timabilinu 1. júni til 31. ágúst n.k. skal greiða 30,68% verðlagsuppbót á grunn- laun. Kaupgreiðsluvisitalan verður 3,75 stigum lægri en ella vegna þess, að rikisstjórnin hefur ákveðið að stórauka fjölskyldu- bætur frá 1. mai s.l. að telja og einnig verða niðurgreiðslur á vöruverði auknar frá 1. júni. Fiölskvldubæturnar hækka um 38,5% eða úr kr. 13000 - á ári i kr. 18.000, — á ári með hverju barni. Af þessum ástæðum einum lækkar kaupgreiðsluvisitalan um 2,65 stig, enn koma til samkvæmt ákvörðun rikisstjórnarinnar auknar niðurgreiðslur, sem valda lækkun kaupgreiðsluvisitölu um 1,1 stig. Af einstökum liðum framfærsluvisitölunnar hækkar mest. A — iiðurinn, vörur og þjónusta úr 201 i 225 stig. B — liðurinn, húsnæði hækkar úr 149 stigum i 155 stig. Snorri I.úðvik Benedikt Ólafur Lepja dauðann úr skel Þeir lepja dauðann úr skel sagði talsmaður landhelgisgæzlunnar, þegar við spurðum hann siðdegis i gær um fréttir af Bretunum. Veiðin er þetta 10-14 körfur i hali, og hefði einhvern tíman ekki þótt mikið. Margir skip- stjór.ar hafa óskað eftir að mega flytja sig annað og þá helzt norður á bóginn, en herskipin halda þeim i hnapp, eins og fé i rétt. Þeireru þetta 15-25 mílur út af Hvalbak suður eða suö- austur. 1 gær voru þarna 28 togarar, herskipin 3, birgða- skip og dráttarbátar. Eitt her- skipanna, sem hingað kom i upphafi innrásarinnar hélt heim i eær, var það Lincoln en i staðinn kom Jupiter, sem er af álika stærð. Einnig hélt dráttarbáturinn Irishman heim á leið, en Statesman kemur á laugardag i hans stað. Eftirlitsskipið Othello og Miranda eru þarna lika. Kristján Júliusson, tals- maður landhelgisgæzlunnar sagði að á þessum árstima væri yfirleitt ekki mikið um, að Islendingar stunduðu veiðar, þar sem Bretarnir halda sig nú. Hann benti á, að við þessar aðstæður gætu Bretarnir ekki einu sinni notað fiskleitartækin, en yrðu að kasta þar sem þeir væru komnir, þó vonlitið væri um veiði. Þetta eru aðstæður, sem sjómenn af hvaöa þjóð sem er, geta aldrei unað við til lengdar sagði Kristján. Við spurðum um þýzku togarana. Þeir reyndust ekki hafa verið undir verndarvæng brezku herskipanna i gær, en eru fáir og dreifðir hér og þar. Þjóðverjarnir hifa nú inn trollið i skyndi, ef þeir sjá varðskip nálgast.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.