Þjóðviljinn - 24.05.1973, Síða 2
2.SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. maí 1973
Hvað má taka
mikið
af laununum?
Magnús Jóhannsson spyr:
Ilvcrsu stóran hluta af launum
er leyfilegt að taka upp I opinber
gjöld, sem eru fallin f gjald-
dagaj af einstakling, af fyrir-
vinnu fjölskyldu?
Gjaldheimtustjóri, Guðmund-
ur Vignir, svaraði þvi til, að eins
5g fyrirframgreiðslan væri álögð
ímgjöldum ársins skipt niður i
fimm jafna hluta, og má taka
það sem þarf af laununum til að
ná þeim greiðslum.
Með eftirstöðvarnar fyrri árs
útgjalda giltu hins vegar þær
reglur, að eftir að búið væri að
taka gjöld liðins árs af launun-
um, mætti taka 2/5 hluta launa
af kaupi fyrirvinnu fjölskyldu
en 2/3 hluta launa einstaklings.
—úþ
r" " " """"n
Áskriftarsimi
Þjóðviljans er 18081.
íslenzkir iðnnemar í heimsókn til Austur-Þýzkalands:
Kynntu sér verkmennt
Nýlega fóru 6 islenzkir iðnnem-
ar I opinbera heimsókn til A-
Þýzkalands fyrir milligöngu
Þýzk-islenzka félagsins, til að
kynna sér verkmenntun og iðn-
nám þar f landi. t þessum hópi
var Tryggvi Þór Aðalsteinsson
fyrrum formaður Iðnnemasam-
bandsins, og ræddum við stutt-
lega við hann eftir heimkomuna
og inntum hann frétta úr þessari
ferð.
— Fyrir islenzka iðnnema var
þessi ferð að sjálfsögðu afar lær-
dómsrik, þegar borin er saman
verkmenntun á Islandi og i
A-Þýzkalandi. Það sem maður
tekur fyrst eftir er hvað vel skipu-
lögð öll verkmenntun er i landinu.
Hér á landi teljast iðngreinar eitt-
hvað um 60,en i A-Þýzkalandi eru
300 starfsgreinar, sem kenndar
eru, og er byrjað strax i barna-
skóla að undirbúa nemendur und-
ir verkmenntun og svo er haldið
áfram i gegnum allt skólakerfið.
Við fengum mjög gott yfirlit um
hvernig þeir byggja sitt verk-
menntunarkerfi upp með heim-
sóknum i skóla og samtölum við
menn,og ég verð að segja að
uppbyggingin er til mikillar fyrir-
myndar, sagði Tryggvi. Þar i
landi er verkmenntun í háveg-
um höfð,en hér á landi er iðnnám
oft þrautarlending hjá mönnum.
Mikill er sá munur.
Við vorum einkum á tveim
stöðum meðan á heimsókninni
stóð, i Berlin og Erfurt. A báðum
þessum stöðum kynntum við
okkur bæði verkmenntun og eins
öryggi á vinnustöðum og
almannatryggingakerfið sem að
lslenzku iðnnemarnir, sem fóru til A-Þýzkalands. F.v. Þorbjörn Guðmundsson, Erling Sigurðsson,
Kristján Ragnarsson, Sævar Guðbjörnsson, Danfel Engilbertsson og Tryggvi Þór Aðalsteinsson.
okkar dómi er mjög fullkomið og
má geta þess f þvi sambandi að
A-Þjóðverjar verja sem svarar
13% af heildarútgjöldum sinum
tii almannatrygginga. Þá er á
hverjum vinnustað einn maður
sem hefur eftirlit með öllu öryggi
á vinnustað, og er hann sér-
menntaður til þessa starfa.
Iðnnám hliðstætt þvi sem við
þekkjum er ekki til þarna,en það
tekur ungan mann 2-3 ár að hljóta
svipuð réttindi og iðnsveinn hefur
á Islandi. Nemendur i slikum
greinum eru yfirleitt mun yngri
en hér á landi eða 16 til 17 ára,og
þeir eru allan timann i skóla, fara
sumsé ekki á hinn almenna
vinnumarkað eins og islenzkir
iðnnemar. Þá hafa þeir náms-
styrk sem nemur 80 til 120 mörk-
um á mánuði.
Það er von min, sagði Tryggvi
að lokum, að með þessari ferð
okkar sex-menninganna skapist
nánari tengsl milli islenzkra iðn-
nema og hliðstæðra nemenda i A-
Þýzkalandi þvi að við getum mik-
ið af slikum tengslum lært. A
næstunni fara tveir islenzkir iðn-
nemar á þing danskra kollega
sinna, og er það nýmæli. Oll
svona samskipti eru okkur mjög
til gagns, sagði Tryggvi.
Þeir félagar höfðu islenzkan
túlk allan timann sem þeir dvöldu
i A-Þýzkalandi, Fylki Þórisson,
og voru allar móttökur til mikill-
ar fyrirmyndar. —S.dór.
RÁÐSTEFNA
um launajöfnuð — jafnréttí
ALÞÝÐU B AN DALAGIÐ
í REYKJAVÍK:
Adda Bára
Sigfúsdóttir,
aðstoðarmaður
ráðherra:
Tekjujöfnun —
Tryggingar
Dagana25. og26. mai (föstudag og laugar-
dag) efnir Alþýðubandalagið i Reykjavik til
ráðstefnu um efnið LAUNAJÖFNUÐUR —
JAFNRÉTTI.
Ráðstefnan verður haldin i Þinghól i
Kópavogi og hefst kl. 20:15 á föstudag.
Flutt verða 13 stutt erindi. Einnig fara
fram umræður og frummælendur svara
fyrirspurnum.
Ráðstefnan er opin öllum stuðningsmönn-
um Alþýðubandalagsins.
Fundarstjóri verður Sigurjón Pétursson,
borgarráðsmaður.
Frummælendur og heiti erinda eru sem
hér greinir:
Guðmundur J.
Guðmundsson,
varaformaður
Dagsbrúnar:
Er ófaglærður
maður afskiptur
i launum?
Gunnar
Guttormsson,
hagræðingar-
ráðunautur:
Atvinnulýðræði:
Orðaleikur eða
raunhæft markmið
Guðjón Jónsson,
formaður
Félags
járniðnaðar-
manna:
Öryggi og
aðbúnaður
á vinnustöðum
Haraldur
% Steinþórsson,
framkvæmda-
0^ 1 stjóri BSRB:
Launakerfi
opinberra
starfsmanna
Hjalti
Kristgeirsson,
hagfræðingur:
Jöfnuður og
baráttan fyrir
sósialisma
Jón Snorri
Þorleifsson,
formaður
Trésmiðafélags
Reykjavikur:
Kostir og gallar
ákvæðisvinnu
Tekjujöfnun —
Skattar
Ólafur Jónsson,
framkvæmda-
stjóri
Alþýðu-
bandalagsins:
Svava Vilborg
Jakobsdóttir. Harðardóttir,
:J| a,Þingsimaöur: % blaðamaður:
■L '***# mS Wm JP'
sBNf Æ Njóta konur
8§r fa * M jafnréttis úti
W Jafnlaunaráö * $ i atvinnulifinu?
Þórey
Jónsdóttir,
verkakona:
Aðstaða kvenna
I fisk-
iðnaðinum
Þröstur Ólafsson, hagfræðingur:
Samneyzla — Jöfnuður