Þjóðviljinn - 24.05.1973, Side 3

Þjóðviljinn - 24.05.1973, Side 3
Fimmtudagur 24. mal 1973 IÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Fjölmennur fundur herstöðvaandstœðinga í Keflavík: EKKI LENGRI FRESTUN- ósk um uppsögn herstöðva- samningsins Herstöðvaandstæðingar á Suðurnesjum efndu til almenns fundar um herstöðvamálin i Ungmenna- félagshúsinu i fyrrakvöld. Húsfyllir var á fundinum, um 250 manns. Ólafur Ragnar Grimsson, lektor, var fyrsti framsögu- maður. Hann lagði einkum áherzlu á þá spillingu sem stafaði af dvöl hersins hér á landi, ræddi um nauðsyn þess að halda vináttu við Bandaríkin án þess þó hún væri keypt við undarlegum hætti. Gunnlaugur Stefánsson, formaður Æskulýðssambands Islands, hvatti fundarmenn til þess að fjölmenna af Suður- nesjum og taka þátt i mót- mælunum hér vegna komu þeirra Nixons og Pomidous. Gunnlaugur lét i ljós von um að jafnaðarmenn i landinu væru að komast á þá skoðun að hér ætti að vera herlaust land. Karl Sigur- bergsson bæjarfulltrúi i Keflavík ræddi um þau húsnæðisvandræði sem löngun hefðu verið i Kefla- vik, en nú væri um að ræða hreint neyðarástand eftir atburðina i Vestmannaeyjum. Karl hvatti unga framsóknarmenn á Suður- nesjum til þess að veita þing- manni sinum, Jóni Skaftasyni, pólitiskt aðhald. Þá tók til máls Stefán Jónsson dagskrárfulltrúi. Rifjaði hann upp fyrri kynni sin af Suöurnesjamönnum og kvað ástæðu til bjartsýni þar sem fækkandi færi hernámssinnum á Suðurnesjum. Þá tóku til máls: Orgel- tónleikar Þessa dagana er hér á ferð tékkóslóvaskur organisti, Bo- humil Piánský að nafni, og mun hann halda tónleika i Hallgrimskirkju i kvöld klukkan 20.30. Plánský er fæddur 1932 i Krnou i Tékkóslóvakiu og nam orgelleik hjá þekktum tékkó- slóvönskum organista og kennara, B. A. Wiedermann. Hann hefur verið prófdómari i tónlist og tónlistarfræðum við Tónlistarháskólann i Prag og i 14 ár organisti við hina þekktu St. Jakobskirkju i Prag. Hann hefur haldið fjölda tónleika heimafyrir og i Austur-Þýzka- landi og Sovétrikjunum, ýmist einn eða með öðrum. Hann er nú tæknilegur ráðunautur við orgelverksmiðjuna Rieger- Kloss en þar er orgel Hall- grimskirkju smiðað. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og öllum heimill með- an húsrúm leyfir. Stefán Hallsson, Oddbergur Eiriksson, Elias Jóhannsson (sá eini ræðumanna er virtist fylgj- andi hernáminu), Eyþór Þórðar- son og Finnur Torfi Hjörleifsson. Stofnuð var nefnd herstöðva- andstæðinga á Suðurnesjum. Fundarstjórar voru Sigmar Ingason og Eyjólfur Eysteinsson. Fundurinn samþykkti ályktanir um endurskoðun herstöðvasamn- ingsins, um yfirgang Breta i land- helgisdeilunni og húsnæðisvand- ræði Keflvikinga vegna búsetu hermanna utan vallarins. Alyktanir voru á þessa leið: Almennur fundur herstöðva- andstæðinga á Suðurnesjum, haldinn i Keflavik 22. mai 1973, á- lyktar að skora á rikisstjórnina: 1 fyrsta lagi, að hún fresti ekki lengur að óska eftir formlegum viðræðum við Bandariki N-Ame- riku um endurskoðun varnar- samningsins og láti þar með koma til framkvæmda ákvæði málefnasamnings stjórnarflokk- anna um endurskoðun eða upp- sögn samningsins i þvi skyni, að herinn hverfi brott af Islandi á kjörtimabilinu. Vill fundurinn I þessu sambandi vekja athygli á þvi, að herlaust land á 1100 ára afmæli Islands- byggðar væri afmælisgjöfin, sem þjóðin kysi helzt. 1 öðru lagi ályktar fundurinn: Vegna siðustu aðgerða Breta i landhelgisdeilunni, þar sem þeir beita okkur vopnuðu valdi, vill fundurinn eindregið hvetja rikis- stjórnina til að standa fast á þeirri ákvörðun, að ísland semji ekki við aðila, sem otar að okkur byssum. Við gerum ekki nauð- ungarsamning. Bendir fundurinn á, að rökrétt svar við hinu vopnaða ofbeldi sé, að slita stjórnmálasambandi við Breta strax, og að Island segi sig úr Norður-Atlanzhafsbandalag- inu, þar sem einu þjóðirnar, þ.e. Bretar og V-Þjóðverjar, sem eigi hafa viðurkennt i verki rétt okkar til útfærslu fiskveiðilögsögunnar i 50 sjómilur, eru aðilar að NATO, og önnur þeirra, Bretar, beitir okkur nú i annao sinn hervaldi. Sýnir slikt endurtekið ofbeldi bet- ur en margt annað hversu fráleitt það er, að Islendingar leyfi her- stöðvar og herlið NATO i landi sinu. 1 þriðja lagi ályktar fundurinn að skora á rikisstjórnina, að hún beiti sér fyrir þvi, að varnarliðið og útlendingar á vegum þess rými þegar i stað húsnæði, sem þeir hafa búsetu i utan Keflavik- urflugvallar, þar sem algjört Framhald á bls. 15. Szymon Goldberg á lokatónleikum Sinfóníunnar Finninn Okko Kamu stjórnar Lokatónleikar Sinfóniuhljóm- sveitar tslands á þessu starfsári eru annaö kvöld, 24. mai. Tveir erlendir tónlistarmenn koma fram á tónleikunum, einleikarinn Szymon Goidberg fiðluleikari og ungur finnskur hljómsveitar- stjóri, Okko Kamu. A efnisskránni er fiðlukonsert Mozarts i D-dúr og Finnlandia Sibeliusar, en auk þess verk eftir Beethoven, Sallinen og eitt islenzkt, Chaconne eftir Pál tsólfsson. Szymon Goldberg er mjög þekktur fiöluleikari, fæddur i Póllandi 1909, stundaöi nám i Berlin, fór mjög ungur aö koma fram á tónleikum og var orðinn einleikari með Berlinar Filharmóniuhljómsveitinni 15 ára gamall. Hann starfaöi i Þýzka- landi, i Dresden og Berlin fram til 1934, en 1934-40 ferðaðist hann viða um Evrópu og Asiu til tón- leikahalds. Goldberg var tekinn til fanga af Japönum á Java 1942 og var fangi þeirra I 2 1/2 ár Uppúr 1946-7 ferðaðist hann viða um heimsálfur til tónleikahalds, gerðist bandariskur rikisborgari 1953, en býr nú i London. Sýning á grafíkmyndum er Jón Engilberts átti I kvöld kl. 8 verður opnuð sýning á innlendri og erlendri grafik i sýningarsal Jóns Engilberts að Flókagötu 17. Sýndar verða myndir sem Jón heitinn Engilberts safnaði saman á 30-40 árum og eru margar þeirra eftir heims- þekkta listamenn. Þarna er fjöldi mynda eftir Gunnlaug Scheving gerðar einhvern- timann fyrir 1930 og "er það von ekkju Jóns að safn kaupi þær i einu lagi. Þarna má sjá margvisleg stilbrigði i grafikinni og sumar myndanna eru i dag mjög verðmætar. Haft var t.d. samband við hinn kunna danska listamann Carl Henning Pedersen og hann spurður um verðgildi tveggja mynda sem gerðar eru 1948 (þessar myndir eru reyndar ekki grafik) og sagði hann, að ekki mætti láta þær fyrir minna en 80 þúsund krónur hvora um sig. Auk mynda eftir Scheving eru þarna myndir eftir Kjarval, Veturliða og Þorstein Þorsteinsson, en erlendir höfundar eru 23 talsins. Þetta er sérstæð sýning, ilmandi af gömlum kúltúr. Hún verður opin i 2 vikur frá 2- 10 daglega. sj I sýningarsalnum, talið frá vinstri: Veturliði Gunnarsson, Tove, ekkja Jóns, Brynja Benediktsdóttir og Ragnar i Smára. Frá vinstri Gunnar Guðmundsson, Okko Kamu og Szymon Goldberg. Okko Kamu er aöeins 27 ára gamall og hóf einnig feril sinn sem fiöluleikari og varö 18 ára leiöandi fiðluleikari i einum þekktasta kvartett Finnlands Suhonen kvartettinum. En jafn- framt fiðlunáminu lagöi hann stund á hljómsveitarstjórn og 22ja ára var hann oröinn að- stoðarhljómsveitarstjóri Finnsku I óperunnar. 1 fyrstu hljóm- j sveitarkeppni Herberts von Karajans vann Okko Kamu glæsi- legan sigur, og eftir það hefur hann verið mjög eftirsóttur hljómsveitarstjóri i Evrópu og Bandarikjunum. Hann er fast- ráðinn aðalstjórnandi Finnsku útvarpshljómsveitarinnar. Á þessu starfsári hefur Sin- fóniuhljómsveit Islands haldið 16 áskriftartónleika, 3 aukatónleika, 3 fjölskyldutónleika, 1 barnatón- leika, 2 skólatónleika og leikið utan Reykjavikur i Garöahreppi, Minni-Borg, Keflavik, Selfossi, Arnesi, Hornafirði, Neskaupstað, Egilsstöðum. Tónleika för út á land Hljómsveitin mun fara 1. júni i tónleikaför og leikur i Búðardal 1. 1 júni kl. 21.00, Hvammstanga 2. júli kl. 14, Blönduósi 2. júni kl. 21.00, Húsavik 3. júni kl. 16.00 og á Akureyri 3. júni kl. 21.00. Stjórnandi verður Páll P. Pálsson. A starfsárinu 1973-74 eru fyrir- hugaðir hjá Sinfóniuhljóm- sveitinni 16 áskriftartónleikar, þeir fyrstu 4. október og siöan annan hvern fimmtudag, eins og veriö hefur. Aðalhljómsveitar- stjóri veröur Karsten Andersen, sem mun stjórn 8 tónleikum, en aðrir hljómsveitarstjórar ma.: Jean Pierre Jaquillat, Róbert A. Ottósson, Vladimir Askenasý, Jussi Jalas, Páll P. Pálsson og Bohdan Wodiczko. Auk áskriftartónleika mun hljómsveitin halda 4 fjölskyldu- tónleika og einnig skólatónleika og i ráði er að halda óperutón- leika og aukatónleika þar sem koma munu fram ungir islenzkir einleikarar og einsöngvarar.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.