Þjóðviljinn - 24.05.1973, Page 8
8 stÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. maí 1973
CREEN
Gamlir fánar
verklýðsfélaga
„Eftir öllum Commercial
Road stóðu þúsundir kvenna
sem komu til að sjá menn sina
og syni ganga framhjá i sigur-
göngu. Sólin virtist bjartari og
músikin áhrifameiri og fánarn-
ir fleiri en nokkru sinni fyrr.”
Þetta er úr samtimalýsingu á
sigurgöngu hafnarverkamanna
þann 15. september 1889 er þeir
höfðu fengið viðurkenningu á
samtökum sinum. og sex pens á
klukkutímann.
Lýsingin er tilfærð i ágætri
bók sem John Gorman hefur
lekiö saman og nefnist „Skin þú,
fáni” („Banner Bright”),og er
þetta myndskreytt saga fána
brezkra verklýðsfélaga, Má af
þessum myndum rekja merka
áfanga i verklýðssögu.
Það var einmitt árið 1889 að
George Tutill gerðist aðalteikn-
ari verklýðsfélaganna, en fána-
gerðhans er enn við lýði. Stili sá
sem hann mótaði var siðan ráð-
andi i næstum þvi heila öld.
Ýmislegt blandaðist saman i
þessum elztu fánum. Þar komu
við sögu merki iðnfélaganna og
svo hugmyndir elztu „vinafé-
laga” verkamanna, þar sem
kristindómur og útópiskur
sósialismi Owens og fleiri
blandaðist saman. En eftir 1910
gerast áletranir á fánunum her-
skárri — eða eins og stendur á
einum fána frá 1913 — „Frelsun
verklýðsstéttarinnar er i hönd-
um verkamanna sjálfra.”
MYNDIRNAR:
1. Þessi fáni verkamanna i Ken-
sal Green sýnir verkafólk á
gangi umhverfis Maistöng al-
þýðunnar. Þar segir meðal ann-
ars: „Málstaður verkafólks er
von heimsins.”
2. Keir Hardie, Marx og Lenín
prýddu fána námuverkamanna
i Durham.
3. Fyrir háifri öld setur Al-
menna verkamannasamhandið
þessa lýsingu á átökum verk-
fallsmanna og verkfallsbrjóta á
fána sinn.
5
4. Bibllan kom oft við sögu á
hinum eldri fánum verklýðsfé-
laga. Skraddarafélagið i Belfast
setti á fána sinn mynd af Adam
og Evu á leið út úr Paradís —
þeir hafa sjálfsagt viljaö láta að
þvi liggja, aö meö þcssum at-
buröi hefjist starf klæöskcra.
5. Námuverkamenn i Wombwell
i Yorkshire bera fána sinn 113
ára gamlan og hafa saumaö á
hann svartar rendur vegna þess
aö námu þeirra hefur verið lok-
iö. Verkamaðurinn á fánanum
er á leiöinni til sósialismans.
MYNDIR ÚR NÝLEGU RITI
m
■a:wN