Þjóðviljinn - 05.06.1973, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 5. júni 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Pólitiskum föngum, sem Campora hefur látið lausa, er ekið á brott úr fangelsi við góðar undirtektir
mannfjöldans.
Valdataka Perönista í
Argentínu
Enn fjölgar þeim ríkjum sem fylgja
þjóðernissinnaðri umbóta-
stefnu andstœðri Bandaríkjunum
Á opinberum pólitiskum fundi
var Juan Perón spurður að þvi
hvernig heilsufari hans væri hátt-
að. Þetta var árið 1954, ári fyrr en
her Argentinu steypti forsetanum
af stóli. Einn af áhangendum
Peróns hrópaði þá: „Perón mun-
um við hafa hjá okkur i hundrað
ár.” Og Perón bætti við sjálfur,
mannfjöldanum til mikillar hrifn-
ingar: „Þið munið eiga Perón i
5000 ár, þvi að jafnvel þótt ég
sjálfur hverfi af sviðinu þá mun
hin pólitiska stefnuskrá min
halda áfram.”
Staðgengillinn
Juan Domingo Perón, sem nú
er 77 ára gamall og hefur verið i
útlegð i 18 ár, mest á Spáni, er nú
aftur kominn til valda i Argen-
tinu. Hann er ekki forseti sjálfur
vegna þess að herforingjastjórn-
in, sem hafði sett Alejandro Lan-
usse i forsetaembættið, neitaði að
samþykkja að Perón sjálfur yrði i
framboði. Forysta argentinskra
liðsforingja, sem hafa farið með
völd siðan 1966, hefur megna and-
úð á Perón vegna þeirra alræðis-
aðferða, sem hann beitti á árun-
um eftir strið. En sá forseti sem
tók við embætti við hátiðlega at-
höfn á föstudaginn var, hlýðir
Perón i einu og öllu.
Hinn nýji forseti, tannlæknirinn
Hector Campora, hefur þjónað
meistara sinum af mikilli holl-
ustu allt siðan Perón hóf feril sinn
árið 1943 — fyrir þrjátiu árum.
Campora var forseti þingsins
lengst af á frægðarferli Peróns
(1946-1955) og sló þá öll met i
opinberum lofsöngvum um ágæti
Peróns og konu hans, Evitu, sem
mjög var dýrkuð af landsmönn-
um.
Það var Perón sem ákvað það
sjálfur að Campora skyldi verða
forsetaefni Perónista i kosning-
um þeim sem fram fóru i landinu
þann ellefta marz.
Hector Campora fékk helming
greiddra atkvæða, afgangurinn
skiptist á milli átta keppinauta
hans. Þetta var árangur kosn-
ingabaráttu sem fram fór undir
vigorðinu: „Campora sem for-
seta, Perón til valda.” Enginn
kjósandi átti að vera i vafa um að
Campora átti aðeins að vera
handlangari Peróns.
'Kosningasamsteypa sú sem
Perónistar og nokkrir smáflokkar
Ungir Perónistar marséra um götur Buenos Aires.
an Perón var hrakinn frá völdum
má heita að kaupmáttur launa
hafi sifellt verið að skreppa sam-
an.
Misjafn sauður
Meðal Perónista má finna ólik-
legasta samsafn af pólitiskum
skoðunurh. Allt frá nýfasisma og
ihaldssemi til Maókommúnisma
og borgarskæruliða. En i heild
sinni má segja að Perónisminn sé
hagstæður verkalýð og umbóta-
sinnaður. Campora hefur sett á
dagskrá „verulegar kauphækk-
anir” til verkamanna, þjóðnýt-
ingu peningastofnana og umbæt-
ur i landbúnaði.
Meðal gesta við eiðtökuna var
William Rogers, fulltrúi Nixons
forseta. En Campora hafði og
boðið Dorticos, forseta Kúbu, og
Allende, forseta Chile. Báðum
þessum sósialistum á forsetastól-
um var ákaflega vel fagnað af þvi
unga fólki, sem þyrptist saman tii
að fagna Campora. Þvi hefur
þegar verið lýst yfir að Argentina
muni taka upp stjórnmálasam-
band við Kúbu. Starfsemi
Kommúnistaflokksins hefur verið
leyfð á nýjan leik. Og sumpart til
að efna gefin heit, en sumpart
einnig fyrir sakir þrýstings frá
æskufólki, hafa verið náðaðir og
látnir lausir um eitt þúsund póli-
tiskir fangar. Marg bendir til
þess, að hinn sundurleiti Perón-
ismi muni þróast til vinstri innan
tiðar — eða svo mun vilja sá mikli
fjöldi æskumanna sem hefur léð
hreyfingunni fylgi sitt.
Með valdatöku Perónista i ein-
hverju þýðingarmesta landi Suð-
ur-Ameriku hefur enn eitt riki
bætzt i hóp þeirra, sem fylgja
þjóðernissinnaðri umbótastefnu,
andstæðri Bandarikjunum.
Halldór Sigurðsson
(með viðbót úr DN)
Friðarsókn
mynduðu, Réttlætis- og frelsis-
fylkingin, (FREJULI), náði
óvenju góðum árangri — hún
hlaut 20 landstjóraembætti af 23,
43 af 69 þingsætum i öldungadeild
og 146 af 234 þingsætum i fulltrúa-
deild.
Afleit aðkoma
Campora sór embættiseið sinn
þann 25. mai sem fyrr segir, og
verður þetta mjög sögulegur dag-
ur. Liðsforingjarnir hafa afhent
völdin borgaralegum öflum, eftir
að þeir hafa i fyrsta sinn siðan
1930 viðurkennt, að þeir séu ekk-
ert færari um að stjórna landinu
en óbreyttir borgarar. Það var
Hector Campora
árið 1930 að liðsforingjarnir
frömdu sitt fyrsta valdarán, og
þeir hafa ekki hætt siðan ihlutun
sinni um stjórnmál.
Argentina hefur verið eitt þró-
aðsta land Suður-Ameriku og eitt
það rikasta frá náttúrunnar
hendi. En valdstjórn hersins
hefur verið slik, að ungir menn og
reiðir tala með eðlilegum rétti um
að „Argentina er eina landið I
heiminum sem hefur vanþróað
sig sjálft.” A siðasta ári nam
verðbólgan i landinu 76%, og það
var i sjálfu sér ekki neitt eins-
dæmi. Um 10-15 af öllum vinnu-
færum mönnum voru atvinnu-
lausir (1-1,5 miljónir manns). Sið-