Þjóðviljinn - 05.06.1973, Síða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 5. júni 1973.
Viðlagasjóður auglýsir
Auglýsing nr. 3 frá Viðlagasjóði um bætur
fyrir tekjumissi.
í 26. grein reglugerðar nr. 62, 27. marz
1973 um Viðlagasjóð segir:
,,Nú verða tekjur manns, sem búsettur
var i Vestmannaeyjum 22. janúar 1973,
lægri á árinu 1973 en þær voru á árinu 1972
af ástæðum, sem ekki verða raktar til
annars en náttúruhamfaranna. Skal
sjóðnum þá heimilt að greiða honum bæt-
ur allt að þvi sem þessum mun nemur.
Með tekjum er hér átt við launatekjur,
hreinar tekjur af eigin atvinnustarfsemi
eða eignum og allar tekjuskattskyldar
bætur almannatrygginga, svo og greiðslu
frá lifeyrissjóðum og atvinnuleysis-
tryggingum. Sjóðnum er heimilt að
greiða bætur þessar með þeim hætti, að
veita bótaþega leiguivilnun búi hann i hús-
næði á vegum sjóðsins. Þegar bótaþörf
manns er metin, skal við það miðað, að
hann hafi neytt þeirra atvinnutækifæra,
sem sanngjarnt getur talizt að ætlast til af
honum við þessar aðstæður.”
Skv. 27. gr. skal sá, sem vill fá bætur skv.
26. gr. senda umsókn til sjóðsins i þvi
formi sem sjóðsstjórn ákveður og með
þeim gögnum sem hún krefst. Hér með er
auglýst eftir slikum umsóknum frá
einstaklingum. Skulu þær sendar
skrifstofu Viðlagasjóðs, Tollstöðinni við
Tryggvagötu i Reykjavik og; skal fylgja
þeim afrit af skattframtali 1973 (tekjuárið
1972), lýsing á þvi hvaða tekjur um-
sækjandi hefur nú hvaða atvinnu hann
stundar og atvinnuhorfum og tekjuáætlun
fyrir árið 1973.
Stjórn Viðlagasjóðs
Viðlagasjóður auglýsir
Auglýsing nr. 4 frá Viðlagasjóði um
bráðabirgðalán til fyrirtækja.
í 29. grein reglugerðar nr. 62, 27. marz
1973 um Viðlagasjóð segir:
,,Nú skortir atvinnufyrirtæki, sem starf-
rækt var i Vestmannaeyjum 22. janúar
1973, en hefur orðið að hætta starfsemi
sinni þar,fé til að standa við greiðsluskuld-
bindingar sinar eða skortir fé til að hefja
starfsemi sina aftur i landi, og er sjóðnum
þá heimilt að veita þvi bráðabirgðalán
vegna þessa, enda séu rök að þvi leidd,
sem stjórn sjóðsins metur gild, að fjár-
skorturinn sé afleiðing náttúruham-
faranna i Vestmannaeyjum.
Umsóknir um lán þessi skulu vera i þvi
formi og studd þeim gögnum, sem stjórn
sjóðsins ákveður. Auglýst skal i blöðum
um lán þessi.”
Lán þessi verða veitt til allt að eins árs,
enda gert ráð fyrir að þau verði gerð upp
með bótum sem lántaki kann að fá úr
sjóðnum, en ella verður samið um þau sið-
ar.
Hér með er auglýst eftir umsóknum um
lán skv. framangreindu. í umsókninni
skal gerð grein fyrir þeim ástæðum sem
til fjárskortsins liggja og taldar upp þær
greiðslur, sem verja skal lánsfénu til.
Umsókninni skal fylgja afrit af skattfram-
tölum 1972 og 1973 (tekjuárin 1971 og 1972)
og greiðsluáætlun fyrir árið 1973.
Umsóknum skal skilað til skrifstofu
Viðlagasjóðs, Tollstöðinni við Tryggva-
götu i Reykjavik.
Stjórn Viðlagasjóðs.
Alsey
r
Alsey var afhent
í síðustu viku
Slippstöðin hefur smíðað 5 skip fyrir Einar Sigurðsson
Þann 30. mai afhenti Slippstöð-
in h.f. á Akureyri 150 iesta stál-
fiskiskip til Hraöfrystistöövar-
innar i Reykjavik h.f. — Einar
Sigurðsson. Skipið var sjósett 17.
marz s. 1. og hlaut þá nafnið
„M/B Alsey VE 502”. Þetta skip
er það fimmta, scm Slippstööin
afhendir Einari Sigurðssyni á
þessu og síðasta ári og jafnframt
siöasta skipið, sem Slippstöðin
h.f. smiðar fyrir Einar aö sinni.
Með smiði þessara fimm skipa
tók Slippstöðin h.f. upp raðsmiði
150 lesta fiskiskipa, og hefur sú
raðsmiði gefið mjög góða raun,
þar sem betur er hægt að koma
við staðlaðri hlutasmiði, sem
leiðir til aukinna afkasta. Starfs-
menn stöðvarinnar eru rúmlega
200.
Slippstöðin h.f. hyggst enn um
sinn smiða fleiri 150 lesta fiski-
skip og er nú verið aö smiða tvö
næstu skip og nýlega búið að
semja um smiði þess þriðja.
„M/B Alsey” er útbúin til linu-,
neta-, tog- og nótaveiða, og er
togbúnaöurinn gerður fyrir
neOex
2500 klukkustunda lýsing
við eðlilegar aðstæður
(Einu venjulegu perurnar
framleiddar fyrir svo
langan lýsingartíma)
NORSK ÚRVALS
HÖNNUN
Heildsala Smáse ia
Einar Farestveit & Co Hf!
Bergstaðastr. 10A Slmi 1G995I
skuttog, sem er nýjung. Skipið er
búið öllum nýjustu siglinga- og
fiskleitartækjum, og má þar
nefna tvær ratsjár af gerðinni
KELVIN HUGHES og DECCA,
ATLAS-fisksjá, og asdic af gerð-
inni SIMRAD. Aðalvél er af gerð-
inni MANNHEIM, 765 hestöfl og
reyndist ganghraði 12 1/2 mila i
reynsluferð. Auk þess eru tvær
hjálparvélar af gerðinni BUKH,
84 hestöfl hvor, sem geta fram-
leitt 72 kgw. samtals. t skipinu er
innbyggður hraðamælir af gerð-
inni SAL-LOG 64. Senditæki eru af
gerðinni SAILOR T 122,16 rása og
viðtæki 23 rása. Lengd skipsins er
31 metri og breidd 6,7 metrar. All-
ar ibúðir, sem eru fyrir 12 manns,
eru i afturskipi.
Skipstjóri á „M/B Álsey” er
Ölafur Kristinsson og vélstjóri
Pétur Sveinsson. Skipið heldur
strax á togveiðar.
”—— ÞEGAR DÝRIN^IKNARh HÖFÐU MÁL EFFEL
9 d. J i ./ \\
Og nú ætlar kollegi okkar, Héroso, að koma fram og
herma eftir mink.