Þjóðviljinn - 05.06.1973, Page 16
UÚDVIUINN
Þriöjudagur 5. júni 1973.
Almennar upplýfeingar una
læknaþjónustu borgarinnar
erú-gefnar i simsvara Lækna-
félags Reykjavikur, simj,.
18888.
Nætur-, kvöld- og helgarþjón-
usta lyfjabúóanna vikuna 1.-7.
júni er i Vesturbæjarapóteki og i
Háaleitisapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspital-
ens er opin allan sólarhring-
tnn.
Kvöld-, nætur og helgidaga-
vakt á heilsuverpdarstöðinni.
Simi 21230.
i gærmorgun hófst að
Hótel Loftleiðum ráð-
stefna um öryggismál
Evrópu, sem boðað er til
af um 40 íslenzkum og
alþjóðlegum samtökum.
Ragnar Arnalds setti
ráðstefnuna með ræðu
þar sem fjallað var um
íslenzk vandamál i
tengslum við hugsanlegt
öryggiskerfi í Evrópu,
þáflutti Einar Ágústsson
utanríkisráðherra ræðu
og fluttar voru fram-
sögur um ýmsa mála-
flokka. Kom fram,
einkum hjá Norður-
landamönnum, drengi-
legur stuðningur við
Skyndisöfnun Þjóðviljans
Eins og fram kom i sunnudagsblaði Þjóðvilj-
ans hefur stjórn útgáfufélags Þjóðviljans
ákveðið að fara i fjársöfnun um allt land til
þess að tryggja útgáfu blaðsins i sumar.
Til þess að koma i veg fyrir yfirvofandi
stöðvun á rekstri blaðsins þarf að safna 1,5
miljónum króna i þessum mánuði.
Til þess að undirbyggja um leið rekstur
blaðsins til frambúðar verður þessi fjársöfnun
tengd þeirri áskrifendasöfnun, sem unnið hefur
verið að, á þann hátt að þeir sem leggja fram
peninga geta fengið blaðið sent til kunningja
sinna, sem þeir tilnefna, fritt til næstu ára-
móta.
Fyrir hverjar 10.000 krónur annast skrifstofa
Þjóðviljans útsendingu á blaðinu til nýrra
áskrifenda i sex mánuði og kannar svo hvort
viðkomandi aðili vill ekki gerast áskrifandi.
Með samstilltu átaki getum við bjargað
Þjóðviljanum úr þeirri kreppu, sem hann er nú
i,og tryggt blaðinu betri fjárhagsgrundvöll til
frambúðar.
Skrifstofa söfnunarinnar er á Grettisgötu 3
simi 18081.
Ragnar Arnalds í setningarrœðu á öryggismálaráðstefnu:
„Ekkert land hýsi erlendan her
Ekkert öryggiskerfi á kostnað smáþjóða
eða þriðja heimsins
99
málstað (slendinga í islenzka
landhelgismálum og við leitni.
sjáltstæðisvið-
Nixon ráðlagt
að gufa upp
NEW YORK 4/6 Eftir siðustu
uppljóstranir í Watergatemálinu
lagöi Clark Clifford, fyrrum
varnarmálaráðherra
Bandarikjanna, það til i dag, að
þcir Nixon og Agnew varaforseti
scgðu af sér og I stað þeirra komi
menn sem Nixon útnefni úr hópi
sem tilnefndur er af þinginu. IVleð
sliku móti, segir Clifford, þarf
Nixon ekki að lýsa sig sekan,
hcldur viðurkennir að misklið
innan stjórnarinnar hafi gert
hana óhæfa um að sinna hags-
munum þjóöarinnar.
Ýmsir öldungadeildarmenn i
nefnd þeirri sem rannsakar
Watergate-málið álita að yfir-
heyra eigi sem fyrst aðalvitnin i
málinu til að það verði ljóst sem
fyrst hver staða forsetans var. 1
gær birtust i tveim blöðum yfir-
lýsingar James Dean, fyrrum
lögfræðilegs ráðunautar Hvita
hússins, þar sem hann segir, að
frá þvi i janúar og fram i april
hafi hann einum 35sinnum rætt
við Nixon einslega eða með
öðrum og þá hafi það oftlega
borið á góma, aö tilraunir hefðu
verið gerðar af hálfu embættis-
manna Hvita hússins að þagga
málið niður m.a. með þvi að múta
þeim sem ieiddir voru fyrir dóm
vegna innbrotsins i Watérgate-
húsið sjálft. Þvi hafi Nixon verið
vel kunnugt um það, hverju fram
fór. Dean hafði áður lýst þvi yfir
að hann vildi ekki verða blóra-
böggull fyrir forsetann i máli
þessu.
Talsmenn Hvita hússins hafa
visað staðhæfingum Deans á bug
og segja þær lið i rógsherferð
blaðanna gegn Nixon með það
fyrir augum að koma honum á
kné.
Einn af þingmönnum Demó-
krata, Paul McCloskey, hefur
haft frumkvæði um að taka málið
upp i fulltrúadeildinni. Segir hann
að deildin ráði þvi, skv. stjórnar-
skránni, hvort það eigi að stefna
forsetanum eða ráðherrum fyrir
rikisréit eða ekki. McCloskey er
mjög harðorður og segir fulla
ástæðu til að ætla að forsetinn
hafi reynt að koma i veg fyrir
rannsókn málsins.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Akureyri
Askrifendasöfnun Þjóðviljans er hafin á Akureyri.
Tekið er á móti nýjum áskrifendum á skrifstofu Alþýðubandalagsins
að Geislagötu 10 alla virka daga kl. 9 til 11 fyrir hádegi.
Þeir sem ekki fá blaðið með góðum skilum eru vinsamlega beðnir um
að hafa samband við skrifstofuna á fyrrgreindum tima i sima 21875.
Norðurland eystra
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins i Norðurlandskjör-
dæmi eystra verður haldinn laugardaginn 9. júni i félagsheimilinu á
Raufarhöfn.
Farið verður með hópferðabil frá Akureyri föstudaginn 8. júni og eru
fulltrúar beðnir að tilkynna þátttöku á skrifstofu Alþýðubandalagsins
simi 21875 kl. 9 til 11 f.h.
Dagskrá fundarins verður nánar auglýst siðar.
Stjón kjördæmisráðsins.
Styrktarmenn Alþýðubandalagsins
Styrktarmenn flokksins eru minntir á giró-seðla, sem sendir voru út,
með siðasta fréttabréfi til greiðslu á styrktarmannagjaldi fyrir áriði
1973. ■
Ráöstefnuna sækja um 5Ú-60
fulltrúar, og skiptast þeir I
þrjá nokkuö jafnstóra hópa frá
Norðurlöndum, Vestur- og
Austur-Evrópu.
1 ræðu sinni sagði Ragnar
Arnalds m.a. aö Islendingar
hefðu lengi hlakkað til þess að
sjá á bak erlendum her i
landinu og nú færi sú stund aö
nálgast með þvi að viðræður
um endurskoðun á her-
stöðvarsamningnum væru aö
hefjast. Sumir gætu spurt
hvort ekki væri skynsam-
legast að Islendingar biðu með
ákvöröun i málinu þar til
fundizt heföi heildarlausn á
öryggismálum Evrópu. En
Islendingar hafá þegar beöið
of lengi. Þeir vilja gjarna meö
frumkvæöi sinu vona að það
hafi góð áhrif á heildar-
þróunina. Brottför hersins er
fyrst og fremst framkvæmd á
þeirri meginreglu að ekkert
land hýsi erlendan her. Við
segjum að brottför hersins sé
islenzkt einkamál, en eins og
það er skylda hvers og eins aö
gera hreint fyrir sinum
dyrum, þá er það og ljóst að
hernaðarbandalögin verða
ekki leyst upp og öryggismál
Evrópu leyst án sameiginlegs
átaks. Það er hugsanlegt að
litið land eins og Island standi
utan við alla samninga um
öryggi Evrópu — og svo
verður að vera ef stórveldin
leysa málin á þann veg sem er
óaðgengilegur fyrir smá-
þjóðir. En við treystum þvi að
hægt sé að skipuleggja
öryggismál Evrópu á þann
veg að það tryggi tilverurétt
og sjálfstæði allra þjóða og
komi i veg fyrir utanað-
komandi ihlutun um þeirra
mál. I þessu sambandi höfum
við sérstakan áhuga á
friðlýsingu tiltekinna svæða
og viljum nota tækifærið til að
vekja athygli ráðstefnunnar á
þeirri hugmynd að friðlýsa
Norður-Atlanzhafið.
Vonbrigði
með Nato
Næstur flutti ræðu Einar
Agústsson utanrikisráðherra
sem gaf yfirlit yfir utanrikis-
stefnu tslands. Hann sagði
m.a. á þá leið, aö hann heföi
ávallt verið hlynntur aöild að
Nato, en aö valdbeiting Stóra-
Bretlands hefði valdið sér
miklum vonbrigöum. Hann
sagði og, að i framtiðinni
mundi ekki þörf á bandalögum
eins og Nato og að aðild aö
Natoyröi ávallt til endurmats.
Þá voru haldnar sex fram-
söguræður og siöan voru
umræður. Rafett var um undir-
búning að öryggismálaráð-
stefnu þeirri sem hefst i '
Helsinki um næstu mánaða-
mót, um samvinnu i Evrópu
ofl. Einar Karl Haraldsson
ræddi um svæðisbundnar
lausnir á öryggismálum,
minnti á hugmyndir Kekk-
onens i sambandi við kjarna-
vopnaiaust belti á norður-
slóðum og þær hugmyndir
þeim skyldar, sem hér hafa
komið fram.
Hættur
Bandarikjamaðurinn John
Shippee frá friðarrannsóknar-
Framhald á bls 15.
Fyrsta hljóðfráa far-
þegaþotan, TU-144,
ferst rétt hjá París
PARiS 4/6 Frönsk-sovézk
rannsóknarnefnd hóf í dag
rannsókn á því slysi sem
gerðist á flugsýningunni á
Le Bourget flugvelli við
Paris í gær, en þá hrapaði
sovézk hljóðfrá farþega-
þota af gerðinni Tupoléf-
144 til jarðar f lendingu.
Sex meðlimir áhafnarinnar
fórust og svo að minnsta
kosti niu manns i út-
borginni Goussainville, þar
sem flugvélin kom niður.
Um 30 manns særöust i sama
byggðarlagi. Flugvélin, sem er
risastór, reif þakið af tiu húsum
og féll niöur á skólabyggingu sem
var auð. Þungt málmstykki úr
vélinni lenti á oliubil sem sprakk
og kveikti i mörgum húsum.
Borgarstjórinn i Goussainville
hefur i þessu tilefni farið hörðum
orðum um þá aðila, sem leyft
hafa flugsýningar yfir byggðum
svæðum við Le Bourget.
300 þúsund manns urðu
áhorfendur að slysinu. Tu-144
hafði farið i sýningarflug og sneri
aftur til að lenda. Allt i einu
lækkaöi vélin flugið skyndilega og
i 500 metra hæð tók hún að hrapa.
Fyrst rifnaði vinstri vængur af
vélinni og siðan sá hægri.
Moskvublöðin voru fáorð um
slysið i morgun. Tu-144 var stolt
sovézkra tæknimanna, fyrsta
hljóðfráa þotan sem fór á loft — I
árslok 1968. Nokkrum mánuðum
siðar fór brezk-franska þotan
Concorde i sitt fyrsta reynsluflug.
Þekktasti flugvélasmiður Sovét-
rikjanna, A-ndrei Túpoléf, sem
lézt i fyrra, er höfundur
vélarinnar, en sonur hans, Alexei,
tók við starfi hans. Flaug hann
þegar I þyrlu á slysstaöinn i gær.
Búast má við að slysiö komi i
veg fyrir, að Tu-144 taki upp
áætlunarflug um áramótin 1974-75
eins og gert hafði verið ráð fyrir.
Bandarikjamenn hafa þegar hætt
við smiöi hljóöfrárrar farþega-
þotu, og mjög mörg flugfélög hafa
dregið til baka pantanir sinar á
Concorde, sem reyndar tók einnig
þátt I flugsýningunni i gær.
Seinni fréttir herma, að sér-
fræðingar reki slysiö til yfir-
sjónar flugmanns en ekki til
smiðagalla á vélinni. Bæði
sovézkir og franskir flugvéla-
smiðir hafa lýst þvi yfir, aö haldið
verði áfram að prófa og bæta
hljóöfráar þotur, Concorde og Tu-
144. Dementéf, sovézki flugmála-
ráðherrann, sagði að Sovétmenn
mundu koma á næstu flugsýningu
I Paris með Tu-144 með farþega
innanborðs. Verðúr sýningin
haldin i Paris 1975.
Fram vann Breiðablik i gær-
kvöldi I fyrstudeildarkeppninni,
2:1. Staðan i hálfleik var 2:0.
Nánar á morgun.