Þjóðviljinn - 17.06.1973, Side 6

Þjóðviljinn - 17.06.1973, Side 6
fi StDA - ÞJ6ÐVIL.I1NN Sunnudagur 17. júnl 1973. DJOÐVIUINN MALGAGN SÓSIALISMA, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS (Jtgefandi: (Jlgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson (áb.) Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Slmi 17500 (5 linur). Askriftarverö Jcr. 300.00 á mánuöi. Lausasöluverö kr. 18.00. Prentun: Blaöaprent h.f. OKKAR HLUTUR Við höldum þjóðhátið i dag. 29 ár eru lið- in frá þvi islenzka lýðveldið var stofnsett á Þingvöllum og þjóðin sagði erlendum valdsmönnum upp trú og hollustu, að loknu nær sjö alda skeiði erlendra yfir- ráða. Nú eru timar mikillar þjóðlegrar bar- áttu, en jafnframt hefur eitt höfuðeinkenni i þróun siðustu ára á íslandi verið vaxandi alþjóðahyggja, — ekki sizt hjá unga fólk- inu. Ýmsum hættir til að líta á þjóðlegan metnað og alþjóðahyggju sem tvær ill- sættanlegar andstæður, en fyrir smáþjóð eru fáar kenningar hættulegri en sú. Vissulega þekkjum við dæmi um afvega- leidda þjóðernishyggju eða öfugsnúná al- þjóðahyggju, sem leitt hafa til ófarnaðar. Samt er það staðreynd að i þessum efnum þarf ekki og má ekki vera um neinar and- stæður að ræða. Þjóðleg barátta okkar íslendinga byggir með gildum rökum á sannfæringu um að liðsinni okkar við baráttufélaga i öðrum löndum látum við bezt i té með þvi að standa okkur á eigin heimavigstöðvum. Þjóðleg barátta okkar beinist nú að fullum yfirráðum i islenzkri landhelgi, að hreins- un lands okkar af erlendum her og þvi að tryggja eigið forræði i atvinnulifi á ís- landi. Þessari baráttu er ekki beint gegn alþýðu annarra landa, hvorki i einu landi né öðru. Þvert á móti er fullvist að með sigri okkar á vettvangi þjóðlegra baráttumála leggjum við jafnframt fram drýgstan skerf til baráttu þjóða og stétta i öðrum löndum, er eiga samúð okkar, og heyja skylda baráttu við alþjóðlegt auðvald og stórveldastefnu. Okkar þjóðlega barátta á ekkert skylt við þjóðernishyggju, sem valdhafar sumra stórþjóða hafa á ýmsum timum leitazt við að magna upp i þvi skyni að upphefja eigin þjóð til að drottna yfir öðr- um og fótumtroða rétt þeirra, er minna máttu sin. Við krefjumst aðeins réttarins til að sitja einir að eigin landi, og til að njóta gæða þess og fiskimiðanna við íslands- strendur. Þennnan rétt teljum við helgað- an af ellefu alda búsetu islenzkra manna hér. Við höfum i timans rás þolað bæði blitt og stritt i okkar góða iandi og goldið náttúruöflum þess á láði og legi þann skatt, er gerir rétt okkar ótviræðan. Þjóðlega baráttu okkar skulum við þvi efla án hiks og sækja fram til nýrra sigra, ekki til að hreykja sjálfum okkur i fila- beinsturni, heldur i vitund þess, að með þeim hætti gegnum við bezt okkar alþjóð- legu skyldum. En minnumst þess, að alþjóðlegar skyldur okkar eru ekki við valdhafa stór- velda eða þeirra bandalög, heldur við al- þýðu heimsins, — það fólk sem er mikill meirihluti mannkyns og enn hefur ekki náð að hrista af sér hlekki framandi auð- drottna og hervalds. Takist okkur að sigra i baráttu okkar við brezkt auðvald og bandariska hernaðar- stefnu þá réttum við striðandi alþýðu heimsins þann fána, sem íslandi er stærstur sómi að. Þessa er vert að minnast á okkar þjóð- hátiðardegi. Búrræöikaiulidatarnir 12, sem útskrifuðust I vor úr frainhaldsdeild Bændaskólans að Ilvanneyri. Fyrir miðju i fremri röð er skólastjórinn, Magnus B. Jónsson. Bændaskólanum á Hvanneyri slitið t vetur stunduöu 83 nemendur þar af 3 stúlkur, nám viö Bænda- skólann á Hvanneyri. i Bænda- deild, sem er eins vetrar nám, voru 55 nemendur, en i Fram- haldsdeild, sem er þriggja vetra nám aö loknu búfræöiprófi og al- mennu undirbúningsnámi, voru 28 nemendur. Bændadeild var slitiö 10. mai og voru aö þessu sinni brautskráöir 49 búfræðingar. Hæstu einkunn á búfræöiprófi, 9.19, hlaut Vignir Vigfússon, Skinnastööum, Torfa- lækjarhreppi, A-Hún. Jón Eiriksson, Búrfelli, Miöfiröi, V- Hún. hlaut einnig ágætiseinkunn. Hlööver Hlöðversson, Björgum, Köldukinn, S-Þing., fékk verölaun frá S.Í.S. fyrir hæstu einkunn I búfjárfræöi. Benedikt Þor- björnsson úr Reykjavik hlaut ..Morgunblaösskeifuna" fyrir beztan árangur viö tamningu hesta. Framhaldsdeild var slitið 9. júni og voru brautskráðir 12 bú- fræðikandidatar. Hæstu einkunn á kandidatsprófi (B.Sc.), 9.28, hlaut Jónatan Hermannsson, Gaitalæk, Biskupstungum Arn. og er það jafnframt bezti árangur sem til þessa hefur náðst á kandidatsprófi i Framhaldsdeild, en hún var stofnuð 1947. Aðra hæstu einkunn, 8.64, hlaut Ari Teitsson, Brún, Reykjadal, S- Þing. Félag islenzkra búfræði- kandidata veitti Jónatan Her- mannssyni bókaverðlaun fyrir ágætan námsárangur. Skólastjóri veitti vandaðri sýningarvél móttöku sem gjöf til skólans frá 10 ára búfræöikandi- dötum. Meðal þeirra, sem tóku til máls við skólaslit, var Gisli Sigur- björnsson, forstjóri, og bauðst hann til að gefa á prenti 5 beztu aðalritgerðir til kandidatsprófs 1973 auk stuttra yfirlita úr hinum ritgerðunum 7. Skólastjóri þakkaði Gisla þetta rausnarlega boð, svo og hlýhug hans i garð skólans. Verið er að byggja nýtt skóla- hús á Hvanneyri. Fyrsta áfanga er að mestu lokið, en i honum eru ibúðir fyrir 58 nemendur og 2 ibúðir fyrir kennara. Annar áfangi er i byggingu, en i honum verða eldhús, matsalur, setu- stofur, ibúðir fyrir starfsfólk heimavistar og ibúðir fyrir 28 nemendur. Nú er unnið aö heildarskipulagi Hvanneyrar hjá Verkfræðistofu Guðmundar G. Þórarinssonar og hafa frumuppdrættir nú þegar verið lagðir fram. Skólastjóri Bændaskólans á Hvanneyri er Magnús B. Jónsson. Frá Öháða söfnuðinum: SUMARFERÐALAGIÐ verð- ur i Þórsmörk sunnud. 24. júní. Farmiðasala og upplýS- ingar i Kirkjubæ l8. og 19. júni kl 5—7 sd. simi 10999. Miðnefnd Samtaka herstöðvaandstœðinga Mótmælir aðild íslands að NATO Alyktun gerö á fundi miönefndar Samtaka her- stöðvaandstæðinga 6. júní s.l.: Eins og flestum mun Ijóst, er höfuðmarkmið herstöðvaandstæðinga að allar herstöðvar verði lagðar niður á íslandi. I Ijósi þeirra uggvænlegu at- burða, að brezki NATO- herinn hefur ráðizt á íslenzku þjóðina, vill miðnefnd Samtaka her- stöðvaandstæðinga i Reykjavik mótmæla ein- dregið veru íslands i því hernaðarbandalagi, sem er forsenda þess, að erlendar herstöðvar eru á íslandi á friðartímum. Miðnefndin varar einnig alvarlega við því, að nokkuð verði gefið eftir af kröfum í herstöðvamálinu og NATO-málinu gegn sigri í landhelgismálinu. Land- helgismálið sýnir almenningi á íslandi, að því fyrr sem hann rekur bandaríska herliðið og NATObrott af landinu, því betra fyrir hans eigin hags- muni. Þvi eru kröfur okkar: Einhliða útfærsla. Herinn burt. ísland úr NATO Nýtt met Július Hjörlrifsson, 18 ára gamall lR-ingur, setti nýtt ung- lingainet í 8(1« mctra hlaupi i Ny- kiibing i Sviþjóö s.l. föstudags- kvöld og varð annar. Timi Júliusar var 1.56,2. Sá fyrsti i hlaupinu var með timann 1.56,1. Eldra unglingametið átti Ilalldór Guðbjörnsson, en það var 1.57,1. Þetta er jafnframt bezti timi ls- lendings á þessari vegalengd i ár. Málverkasýning á Sauðárkróki Um hvitasunnuhelgina stóð yfir listavcrkasýning i Safnahúsinu á Sauðárkróki. Þá sýndi Elias B. Halldórsson listmálari verk sin. Myndin er af Elíasi á sýningunni.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.