Þjóðviljinn - 19.06.1973, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 19.06.1973, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 19. júni 1973. HORN í SÍÐU Seinheppni Moggans Það er nokkuð misjafnt hversu seinheppnir menn eru. Kykvendisskapur sálarlifsins tekur alltaf fagnaðarkipp þggar seinheppni eltir þá sem manni finnast að eigi það skilið. Slik seinheppni ein- kenndi Morgunblaðið i siðustu viku, og skulu hér tilnefnd þrjú dæmi þess handa þeim sem vilja viðhalda kykvendis- skapnum i sjálfinu. Þá er þar fyrst til að taka. að siöustu vikuna skrifaði ein- hver af huldustrákum Mogga eina eða tvær greinar um ritskoðun og það einræðis- kennda og ómanneskjulega hugarfar sem slikri skoðun fylgir. Slik iðja þrifst að sjálf- sögðu ekki á Morgunblaðinu! Hins vegar þrifst hún afburðavel i austantjalds- löndunum og einræðisrikjum, að sögn huldustráks. Á sama tima og huldustráksgreinin um ritskoðunina birtist var ágætur maður (hingað til tal- inn af Morgunblaðinu), Ingólfur Jónsson, fyrrverandi ráðherra, núverandi hugmyndafræðingur Sjálf- stæðisflokksins, að skoða ritsmiöar flokksbróður sins. Guðmundar Danielssonar, austur á Sejfossi og lyktaði þeirri skoðun svo, að nokkur hundruð eintök af prentuðu málgagni Sjálfstæöisi'lokksins voru eyðilögð, úr blaöinu teknar greinar, óhagstæðar flokknum, þar á meðal samþykktir kjósenda Ingólfs i herstöðvarmálinu og NATÓ- málinu, og Guðmundur Danielsson sagði af sér ritstjórninni vegna vinnu- bragða Ingólfs. Ingólfur skyldi þó ekki vera kom mi eftir allt saman! Hvernig skyldu huldu- strákarnir á Moggaritstjórn- inni taka á honum eftir þessar aðfarir hans gegn skoöana-, tjáningar- og prentfrelsi? Þá er i annan stað að nefna, að dag einn i vikunni sem leið gat að lita eftirfarandi fyrir- sögn á leiðara Morgunblaðs- ins, en leiðarar eru einnig skrifaðir af huldustrákum, sem ekki vilja láta nafns sins getið: — Fjórða gengisfelling vinstri stjórnarinnar. Siðar þann sama dag, voru gefin út bráðabirgðalög, um hækkun gengis krónunnar um 2,2 %! (Einn huldustrákurinn til á Mogganum sagði að visu 1 Rvikurbréfi á sunnudag, að 2 dagar hefðu skilið að þessa tvo framangreindu atburði, en hvað er að sakast um það þó logið sé um 200%! Það telst minni háttar lygi á Morgun- blaðinu.) Loks skat tilnefnt framlag Einars Sigurðssonar skatt- lausa i pistli i Mogga á sunnu- dag. í pistlinum lýsir Einar fyrst með fjálgum orðum ágætri stööu þjóðarbúsins, og dugði orðaforði hans vart til að skýra allar dásemdirnar. Siðan spyr Einar sjálfan sig: ,,En ber þá engan skugga á við þessi merku timamót — þjóöhátiðardaginn — sem ber hér um bil upp á mitt árið?” Og Einar svarar sjálfum sér: „Gifurleg verðbólga og skattaáþján...” (Hvað varstu aftur með i tekjuskatt, Einar? Var það mikið yfir núllinu? Mig minnir að skatturinn þinn hafi staðið um núllið. Þú leið- réttir það þá, ef það er rangt hjá mér.) Aftur segir Einar um skuggahliðar islenzkrar til- veru: „Það er trúlegt, að siðari hluta ársins verði meira framboð en eftirspurn eftir húsnæði, og við það kunni að draga úr þenslunni i byggingariðnaðinum.” Þetta er nú svartsýni i lagi. Ef dregur þenslunni, ef framboð á húsnæði verður meira en eftirspurnin, þá lækkar ibúðaverð, og þar með ætti að verða auðveldara fyrir almenning að eignast þak yfir höfuðið. Þetta eru vægast sagt alveg svakalegar horfur. Það skyldi þó aldrei vera, Einar, að þú fáist við annað og fleira en útgerð og fisvinnslu einvörðungu? Attu kannski eitthvað i byggingarfyrirtækj- um? F a s teig n asölum ? Leiguhúsnæði (að sjálfsögðu á lága verðinu) ? Eða þarftu sjálfur að borga meira i kosningasjóö flokksins þins, ef úr framlagi fasteignabraskar- anna dregur? Menningar- viðleitni doktor Gylfa Þ. - - Hún er næsta ómælanleg menningarviðleitni Gylfa Þ. doktors og fyrrum mennta- málaráðherra. Þetta þurfti að sjálfsögðu ekki að segja neinum. Nú hefur þessi viðleitni og þrá eftir menningarfyllra lifi til handa Islendingum orðið til þess, að doktorinn hefur látið blaðið sitt (Þ.e.a.s. Alþýðu- blaðið, ef einhver skyldi rang- lega hafa ályktað að hans blað væri Morgunblaðið.) rjúfa óformlegt samkomulag allra dagblaða á fslandi, hvort sem þau eru hlynnt hernámi eðá ekki, að birta ekki dag- skrá dátasjónvarpsins i Miðnesheiði. Nú hefur doktorinn hins vegar látið rjúfaþetta samkomulag, og að þvi er fróðir fullyrða, eingöngu vegna menningar- þorsta. Hann hefur sem sé látið bergmál sitt, ritstjóra Alþýðublaðsins, hefja birtingu á dagskrá dátasjónvarpsins, og hefur þar með sannað enn og aftur hver forgöngumaður hann er i menningarmálum og fáa enga á hann sina lika. ýþ Ég skora á öll félagasamtök og alla íslendinga að beita sér gegn hvers konar samningum við Breta eða Vestur-Þjóðverja um veiðirétt innan 50 milna landhelginnar. Magnús. Guðmundsson, Patreksfirði. Gangstéttin við Kirkjustræti frá Aðalstræti og meðfram Austurvelli er rofin fyrir framan Landsimahúsið. Verða menn sem þar fara, (en ég er einn af þeim á leið til vinnu og frá) annað- hvort að troðast á milli bila sem standa þar sem gangstéttina vantar eða hörfa upp á grasflöt- ina. Sést að margir gera það, þvi að hún ætlar ekki að gróa i vor. 1 framhaldi af þessu gangstéttar- leysi verða margir til þess að sneiða yfir Austurvöll og fara ekki gangbrautirnar. Voru þar komnar i vor troðnar slóðir, en þær sýnast ætla að gróa upp i þetta sinn.Það væri þarft verk að skeyta inn i gangstéttarpartinum sem vantar. Það væri litil byrjun á þeirri stefnu að helga gangandi fólki miðbæinn að mestu. Sú stefna hlýtur að sigra fyrr en sið- ar, þvi að hitt getur ekki annað en kæft miðbæinnn að gera Framhald á bls. 15. Radulov, °g Quinteros Millisvæðamótið i Leningrad er aö sjálfsögðu efst á baugi hjá öll- um skákáhugamönnum þessa dagana. Nú hafa flestir sigur- stranglegustu keppendurnir rað- að sér i efstu sætin nema Tal, sem ekki gengur heill til skógar. Mótiö er þó ekki nema hálfnaö, svo að fi. I)dd2 g6 7. b.l Bg7 8. Bb2 BxB Eðlilegra er að leika Rf6, en svartur hefur ákveðna áætlun i huga. 9. DxB Rf6 13. Rd5 e5 14. Re3 Rd4 15. Rc2 Re6 16. Dc3 Bc6 17. f3 Með peðsleikjum sinum á kóngsvæng hefur hvitur tak- markað mjög hreyfifrelsi manna sinna og veikt svörtu reitina i stöðu sinni. 17. . . . a6 18. a4 a5 Svartur reynir kerfisbundið að ná valdi á svörtu reitunum og tekst það mætavel sökum mjög góðrar taflmennsku sinnar. 19. g4 h5 20. De3 h4 21. Hdl Rd7 22. Rbl Rdc5 23. Rba3 Rg5 24. Hh2 Hc8 25. IIf2 Df6 26. Bg2 De7 27. Hfd2 Hfd8 28. Kf2 Rge6 29. Bfl Dg5 Svartur þvingar fram drottn- ingarkaup, þvi að 30. Dc3 kemur ekki til greina vegna 30. . . . Df4. Endataflið er auðunnið fyrir svartan. 30. Hxd6. Ef 30. DxD þá RxD. 31. Hxd6 Rgxe4 32. fxR Rxe4 X 33. Ke3 Rxd6. UMSJÓN: JÓN G. BRIEM nýir menn geta enn skotizt upp i efstu sætin. Meðal þeirra eru tveir ungir skákmenn, þeir Smej- kalog Quinteros, og Raduluv.sem er litlu eldri. Smejkal er stórmeistari og vann sér rétt til þátttöku i milli- svæðamótinu með þvi að verða i 1.—2. sæti á svæðamótinu i Vrn- jaka Banja. Þar voru keppendur 14, og Smejkal hlaut 9 v. ásamt Rauka- vína. Siðan þá hefur hann teflt i mörgum skákmótum og staðið sig vel. Nú siðast tefldi hann á minn- ingarskákmótinu um dr. Vidmar i Júgóslaviu. Eins og ég hef áður greint frá sigraði Portisch glæsilega á þvi móti, fékk 12,5 v. af 17. Næstir komu Gligoric, Smejkal og Quin- teros frá'Argentinu með 11 v. Quinteros er alþjóðlegur skák- meistari með stigatöluna 2465. A þessu skákmóti þurfti 11 v. til þess að ná stórmeistaraárangri, en ekki er alveg ljóst hvort Quint- eros þarf að ná svipuðum árangri aftur til að fá titilinn, eða hvort hann er búinn að þvi. Quinteros vann sér rétt til þátt- töku i millisvæðamótinu með þvi að verða i 2.-3. sæti á svæðamóti S-Ameriku. Það mót var haldið i Sao Paulo i mai og júni i fyrra. Efstur varð Mecking, hlaut 17 v. úr 20 skákum, nr. 2.-3. urðu Panno og Quinteros með 14,5 v. Þeir Smejkal, sem er 27 ára tékki, og Quinteros hafa ekki komið mikið við sögu á milli- svæðamótinu enn sem komið er. öðru máli gegnir um Radulov. Hann er einn af sterkustu skák- mönnum Búlgara. Hann er 34 ára og vann sér réttindi til að mega tefla á millisvæðamótinu með þvi að sigra á svæðamótinu i Forssa, Helsinki, i fyrra. Þátttakendur voru 16, þar af 6 stórmeistarar og 6 alþjóðlegir skákmeistarar. Radulov varð efstur, hlaut 11 v. og næstur varð Gheorghiu með 10,5 v. A millisvæðamótinu i Leningr- ad veitir Radulov efstu mönnum harða keppni. Eftir 9 umferðir er hann með 5 v. og eina biðskák og er i 5.-6. sæti ásamt Gligoric. Hér kemur svo ein skák frá minningarmótinu um dr. Vidmar. Sikileyjarvörn Ilvftt: Ciocaltea Svart: Quinteros 10. Rc3 Bg4 Nú bjóst maður helzt við 10. . . . 0—0, en svartur er sinni köllun trúr. 11. Rd2 Hefðihvitur leikið 11. Rd5, næði svartur takmarki sinu, sem er að ná valdi á d4-reitnum, með 11. . . . e5 12. RxR DxR. 11. ... 0—0 12. hs Bd7 30. . . . DxD 31. KxD HxH 32. IIxII Rxb3 33. Rb5 Rbc5 34. Rc3 Bxa4 35. Ra3 Bc6 36. Rd5 Kf8 37. Rc3 g5 38. Ildl Rd4 39. Hbl Ke7 40. Be2 Kd6 41. Bdl Rce6 Hér gafst hvitur upp þar eð svartur hótar að vinna annað peð með Rf4, og staða hvits verður ekki varin til lengdar. 17. júní í Breiðholti 17. júni kvöldskemintunin við Breiðholtsskóla var að flestu leyti vel heppnuð. Hegðun unglinganna, en þeir voru i mikl- um mcirihluta, var mjög þokka- leg. Umgengni á staðnum var ágæt og löggæzla og eftirlit til fyrirmyndar. ölvun var svo lítil, sem betur fer, að um slikt þarf ekki að fjölyrða. Trúlega hafa u.þ.b. fjórar þúsundir manna verið á þessari skemmtun þegar flest var. Greinilega settu unglingar um fermingaraldur mestan svip á staðinn, enda er Breiðholtshverfi ungt og barnmargt, en þó voru þarna margir fulltrúar af eldri kynslóð: allar götur að áttræðu. Og ekki lét yngsta kynslóðin á sér standa þó kvöld væri gengið i garð, þvi yngsti þátttakandinn var tæplega ársgamall! Skemmtunin átti að hefjast kl. 21.00, en af einhverjum orsökum hófst hún hálftima fyrr með þvi, að þær nöfnurnar Guðrún A, Simonar og Guðrún Kristinsdóttir stigu uppá hljómsveitarpallinn, og þar söng Guðrún A. þrjú lög, við undirleik nöfnu sinnar. Fengu þær fallegt klapp frá rúmlega hundrað Breiðholtsbörnum. Þar á eftir birtist hermikrákan Karl Einarsson. Hermdi hann eftir nokkrum þjóðkunnum mönnum — þó ekki sjálfum sér — og var honum þakkað með dynjandi lófaklappi. Þá hóf hljómsveitin Steinblóm að leika fyrir dansi, og notfærðu margir sér það, en að sumra áliti ekki nógu margir. Kvöldið var milt og fagurt, en sólskinslaust. En unga og glað- væra fólkið i Breiðholtinu hafði nóg af sólskini i sálinni: það dansaði af hjartans lyst. En á grasflötinni fyrir ofan skólann var „öldungadeildin” og horfði á æskuna láta öllum góðum látum á malbikuðum leikvangi Breið- holtsskóla. lth Lýsa stuðningi yið landhelgina Aðalfundur i Samvinnufélagi útvegs og sjómann á Húsavik, haldinn 31. mai 1973. Lýsir stuðningi sinum við að- gerðir stjórnvalda i landhelgis- málinu. Eftir að brezka stjórnin lét tælast til hinna heimskulegu örþrifaráða, að senda hluta af herstyrk Atlanzhafsbandalagsins til verndar brezkum lögbrjótum i islenzkri fiskveiðilögsögu, sem er frekleg og óafsakanleg árás á fullveldi íslands og sjálfstæði. Treystir fundurinn stjórnvöldum fastlega til að hvika hvergi gagn- vart brezku stjórninni. Fundurinn lýsir fyllsta stuðn- ingi við aðgerðir varðskips- manna. 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd 4. Dxd4 Þessi leikur er sjaldgæfur, menn leika nær eingöngu 4. Rxd4, enda er sá leikur áreiðanlega betri. 4..... Bd7 5. c4 Rc6 Auglýsingasíminn er 17500

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.