Þjóðviljinn - 19.06.1973, Side 5

Þjóðviljinn - 19.06.1973, Side 5
Þriðjudagur 19. júni 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Staðaruppbætur og risnugreiðslur Svör utamikisráðuney tisins við fyrirspurnum dagblaðsins Þjóð- viljans um staðaruppbætur og risnugreiðslur til starfsmanna utanrikisþjónustunnar erlendis: A. Staðaruppbætur. 1. Staðaruppbætur nefnist sá hluti af heildargreiðslum til starfsmanna utanrikisþjónust- unnar erlendis, sem umfram er grunnlaun þeirra, án visitöluupp- bóta, þegar þeir eru við störf heima (i utanrikisráðuneytinu). Allir útsendir starfsmenn utan- rikisþjónustunnar, jafnt skrif- stofustúlkur sem sendiherrar og aðrir starfsmenn, fá staðarupp- bætur. 2. Akvörðun staðaruppbóta ein- stakra starfsmanna i hinum ýmsu löndum er flókið mál. Auk verðlags á vörum og þjónustu þarf að taka tillit til margra ann- arra atriða i hverju starfslandi sem frábrugðin eru aðstæðum á íslandi. Flutningur milli landa hefur margvislegan kostnað i för með sér ( auk venjulegs flutn- ingskostnaðar sem ráðneytið greiðir). Og það eitt að vera full- trúi erlends rikis útheimtir sam- kvæmt alþjóðavenjum ýmisleg aukaútgjöld. 3. í utanrikisþjónustu flestra eða allra landa eru staðaruppbætur greiddar eftir ákveðnu kerfi sem reynt er að hafa þannig, að mis- munur staðaruppbóta hinna ýmsu starfsmanna i hinum ýmsu löndum sé sem sanngjarnastur. íslenzka kerfið er að mestu leyti sniðið eftir kerfi Norðmanna. Ef islenzka utanrikisþjónustan ætti ein að afla allra þeirra gagna sem byggja þarf á við ákvörðun staðaruppbóta starfsmannanna erlendis og sjá um alla úrvinnslu úr þeim, þyrfti að bæta við nokkr- um starfsmönnum. En við fáum þessi gögn frá hinum Norðurlönd- unum, sem hafa með sér sam- vinnu i þessu efni. Hjá okkur eru staðaruppbætur ákvarðaðar þannig, að islenzkur starfsmaður fær allmiklu lægri greiðslur (grunnlaun að viðbættum staðar- uppbótum) en sambærilegur norskur starfsmaður við sam- bærileg störf i sömu borg. Norskir starfsmenn fá aftur nokkuð lægri greiðslur en sambærilegir dansk- ir, finnskir og sænskir starfsmenn i sömu borg. B. Risna Risnufé er greitt öllum sendi- herrum og öðrum stjórnarerind- rekum (diplomatiskum starfs- mönnum) erlendis. Risna telst til reksturskostnaðar sendiráðs, en ekki til launagreiðslna. Þeir starfsmenn, er risnu hafa, gera grein fyrir notkun risnufjárins að loknu hverju almanaksári á til- skildum eyðublöðum. Risnan er hlutfallslega hæst þar sem sam- skiptin þurfa að vera mest við stjórnvöld og áhrifamenn. Upp- hæðirnar eru byggðar á reynslu undanfarinna ára. Þær eru yfir- leitt miklu lægri en risnugreiðslur til sambærilegra starfsmanna hinna Norðurlandanna. Utan- rikisráðneytið fylgist með þvi að risnufé sé notað i samræmi við gildandi reglur (sem samþykktar hafa verið af utanrikisrikismála- nefnd Alþingis i samræmi við lög- in um utanrikisþjónustu Islands). f vissum tilvikum er leyfilegt að hluti árlegrar risnuupphæðar flytjist milli ára. Komi fram, að heimiluð risnufjárhæð sé óþarf- lega há, verður hún lækkuð, en til sliks hefur ekki komið, þvi að nær allir starfsmenn hafa notað meira fé til risnu en þeim hefir verið út- hlutað og þá borið umframkostn- aðinn sjálfir. Risnufé er ekki hækkað umfram verðlagshækk- anir nema að undangenginni ná- kvæmri athugun og þá ekki aftur- virkt. Þakskífur, sperrur og gólfbitar í ár Eyjuna Viðey hér við bæjardyrnar heimsækja fleiri og fleiri á sumrin. Hafsteinn Sveinsson hefur undanfarin sumur haldið uppi ferðum á hraðbát út í Viðey og eru þessar ferðir mjög vinsælar af almenningi. Eyjan er full af fugli, fjörurnar eru marg- breytilegar og það þarf engum að leiðast sem dvelur þar dagstund. Eins og mörgum er kunnugt hefur undanfarin ár staðið yfir viðgerð á Viðeyjarstofu og báðum við Þór Magnússon, þjóðminjavörð, að fræða okkur um þær framkvæmdir: Skifur og gólfborð — 1 sumar verður tiltölu- lega litið um framkvæmdir i Viðey. Við höfum ekki fengið þá peninga sem okkur van- hagar um til að setja kraft i viðgerð á Viðeyjarstofu. Við fáum árlega 1.5 miljón til verksins og i ár eyðum við mestan part af þessari fjár- hæð til að kaupa skifur á þakið, svartar þakskifur, likastar þvi sem arkitektinn mun hafa hugsað sér i upp- hafi. Við þurftum einnig að kaupa mikið af timbri frá Banda- rikjunum og i þetta fór nú kúfurinn af peningunum. Þetta timbur fer i bita, sperrur og gólfborð. 011 gólfin eru ónýt og var reyndar búið að skipta um gólfborð fyrir langalöngu. Jarðvegur hefur hækkað það mikið umhverfis húsið, að gólfin hafa fúnað. Fyrir einum sextiu árum var málið leyst með þvi að hækka gólfið — leggja gólf ofan á það gamla, en það er eihnig orðið ónýtt. Við förum þannig að núna, að við lækkum jarð- veginn i kring, náum niður jarðvatninu og setjum siðan gólf i húsið. Þetta eru griðar- breiðar gólfþiljur, 12 tommur á breidd og 5 1/4 tomma á þykkt. Gólfið á semsagt að vera likast þvi sem það var. Menningarlegt aösetur — Verður húsið opið fyrir almenning þegar viðgerð lýkur? — Já, en framtiðin að þessu leyti er óráðin. Það er ekki hægt að komast þarna út nema á sumrin i góðu veðri, og það gerir það að verkum, að það er erfitt að hafa einhverja sérstaka starfsemi þarna úti. En ef að væri vegur þarna út, sem i sjálfu sér er ekki æski- legt, væru margir möguleikar að nýta húsið — ekki endilega sem safn, heldur fremur sem einhverskonar menningarlegt aðsetur. — Hefur húsið verið kynt að undanförnu? — Nei, það er ekki komin i það nein hitun. Markmið okkar er að setja húsið i gott stand og gera það likast þvi sem það var i upphafi. Það er ýmislegt sem veröur að breyta og að sjálfsögðu verður sett þar upp hitun. Það var von okkar einu sinni að ljúka viðgerðinni fyrir næsta ár, en sá draumur mun ekki rætast. A eigninni eru útihús sem fyrrverandi eigandi á. Við ætlum að kaupa þessi hús og notum þau sennilega fyrir geymslu. Kirkjan eilitið yngri — En hvað er um kirkjuna að segja? — Kirkjan var aldrei i mjög slæmu ástandi. Það fór fram á henni viðgerð árðið 1964, en það þarf samt að gera henni dálitið til góða áður en þessu lýkur. Við þurfum lika að snyrta þarna i kring og lag- færa kirkjugarðinn. — Hvað er mikill aldurs- munur á kirkjunni og stofunni? — Stofan er byggð 1752 — ’54., en ég held að kirkjan sé reist i kringum 1760. Það var Skúli sem lét byggja hana. Loftið og gólfið er eins og það var, og bekkir að ég held lika, ennfremur altari og pre- dikunarstóll. Predikunar- stóllinn er uppi á altarinu, og eins er þarna svokallað hásæti, eða skriftarstóll, sem var sæti Skúla fógeta. Stóllinn var einu sinni kominn hingað i safnið, en var fluttur út aftur. Að norðanverðu i kirkjunni, andspænis þessu sæti, var ein- hvers konar „baldakin”, eða þviumlikt, en það er löngu farið, þannig að við vitum ekki hvernig það hefur verið, en annars ber kirkjan að mestu sama svip og hún hefur haft i upphafi og var hún aldrei eins illa farin og Stofan. Stofan var vægast sagt i hörmulegu ástandi og reyndist miklu verr farin en við héldum i upphafi. Þegar farið var að hreyfa timburverk, þiljur og slikt, þá kom i ljós að fúinn var miklu meiri en við héldum, og breytingarnar, sem voru gerðar i kringum 1910, þegar Eggert Briem átti Viðey, voru meiri en við ætluðum, þannig að við urðum að færa meir i upprunalegt horf en við áttum von á. Teikningarnar hafa varðveitzt — Eigið þið teikningar af húsinu — hafa þær varðveitzt? — Já, frumteikningar arki- tektsins eru hér i Þjóðskjala- safninu. Stofan var teiknuð af Nikolaj Ægtved, sem var einn þekktasti byggingameistari Dana á sinum tima, og eftir hann eru mörg þekkt hús i Kaupmannahöf n. Margir Danir hafa gaman af að vita að hús eftir hann sé til hér á tslandi. Þessar teikningar eru ekki mjög nákvæmar, en á teikn- ingunum er húsið tvilyft. Það var ætlun arkitektsins að þetta yrði tvilyft hús og hann teiknar það þannig, en hvað hefur gerzt, þegar byrjað var að byggja húsið, veit ég ekki. Kannski hefur peninga þrotið eða mönnum hefur litizt á húsið einlyft. Engu að siður var þetta á sinum tima lang- stærsta og veglegasta hús á Islandi og var það lengi, allar götur þar til menntaskólinn var byggður. Þetta hús er miklu stærra en t.d. Bessa- staðastofa, að maður tali ekki um Nesstofu, sem er nú frá svipuðum tima og sambæri- legthús. sj

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.