Þjóðviljinn - 08.07.1973, Side 12

Þjóðviljinn - 08.07.1973, Side 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 8. júll 1973 Á þessu ári má áætla, að af völdum reykinga tapist hér á landi um 77 þúsund vinnudagar. Ástæðan er sú, að reykingafólk er oftar veikt en hinir, sem ekki reykja. Athuganir hafa sýnt, að veikindafjarvistir eru um 15% algengari hjá reykingafólki en öðru vinnandi fólki. Gera má ráð fyrir, að veikindafjarvistir reykingafólks hér á landi á þessu ári jafngildi því, að 300 manns séu frá vinnu allt árið. Getum við ekki gripið í taumana og reynt að minnka reykingarnar? Hér með tilkynnist það viðskipta- vinum vorum að Rafmótorverk- smiðjan verður lokuð frá 16. júlí til 12. ágúst Engar viðgerðir — né heldur nýsmiði mótora — fer fram á þessu timabili. iÖTUHÍI Hp HmnGBWWT 1». REVKJflVÍH, JÍmi 17080 ATVINNA TRÉSMIÐIR Ármannsfell óskar að ráða nokkra trésmiði til úti- og innivinnu, framtiðarstarf, ef báðum likar. Upplýsingar hjá fyrirtækinu, i sima 13428, og hjá T.R. i sima 14689 og 15429. Dýr mundi Haflifti allur. Eitt málverk eflir meistarann Picasso á 26 miljónir. Picasso-málverk á 26 milj. króna Grable árift 1945. Og Betty er líka horfin Iielzta kynbomda finimta ára- tugsins, Betty Grable, lézt úr lungnakrabba fyrir nokkrum dögum. Gömlu kvikmyndastjörnurnar fölna og hverfa hver af annarri. Þetta byrjar með þvi að þögnin umlykur þær, þær missa aðdráttaraflið og framleiðendur, fjölmiðlar og almenningur gleymir þeim, og ekkert heyrist — l'yrr en dánarfregnin kemur. Og nú kom kallið fyrir Betty Grable, þegar hún var 57 ára gömul. Fyrir 30 árum þekktu hana allir eftiraðhún opinberaði kynþokka sinn i nokkrum vinsælum danskvikmyndum. Hún var sögð hafa fegurstu fætur i heimi, enda voru fætur hennar tryggðir sérstaklega fyrir miljónir sterlingspunda i London. Hjónabandssaga hennar varð fá- breyttari en flestra annarra Hollywood-leikara. Hún byrjaði með þvi að giftast Jackie Coogan, stráknum sem fylgdi Chaplin i gömlu myndunum. Siðan ruglaði hún reytum sinum með hljóm- sveitarstjóranum Harry James og þau byggðu eina sæng i hart- nær 22 ár, þar ti) þau skildu 1965. Þá voru allir búnir að gleyma henni. Blómaskeið þokkadisanna er sjaldan langt, nýjar biða jafnan við þröskuldinn. í staö Bettyar kom engin önnur en Maríyn Monroe. Og hún varð heldur ekki gömul. Málverk eftir Picasso var seltá uppboöi hjá Sothebys i London fyrir nokkrum dögum á 270 þúsund dollara (ca. 26 miljónir króna). Þetta er hæsta verö sem um getur fyrir málverk eftir Picasso. Málverkið var úr dánarbúi hins kunna leikara Edwards G. Robinson, sem er nýlátinn. Seldar voru 23 málverk og höggmyndir úr búi Robinsons fyrir samtals 708 þúsund dollara. Picasso lézt 8. april s.l. Mál- verkið sem hér um ræðir, heitir ,,Le Mort (La Mise au Tombeau)”, og málaði Picasso það árið 1901 á bláa tima- skeiðinu” svonefnda. Á þvi sést hópur syrgjenda umhverfis likkistu i kirkju. Myndina má rekja til sjálfsmorðs vinar lista- mannsins, skáldsins Casagemas. Áður hafði hæst verð verið greitt fyrir málverkið ,,Le Mere et l’Enfant”, sem selt var á 190.000 dollara árið 1968. . — , k - ÞEGAR DÝRIN^'KuNARh HÖFÐU MÁL EFFEL Jæja, loksins kemur þvottavélin! Sjóræninginn

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.