Þjóðviljinn - 15.07.1973, Page 1

Þjóðviljinn - 15.07.1973, Page 1
A bls. 6 fer GIsli Sigurösson meö les- endur um Sufturferöa- leiö þeirra Selvogs- inga. A bls. 10 er brot af feröasögu um Hornstrandir eftir Guörúnu Guövaröar. Myndin er tekin um síðustu hvíta súnnu, í austri er Hjörleifshöfði hvít ur af snjó. Ljósm. Gunnar Hannesson bað verður slfellt algeng- ara, að menn fari i ferðalög bæði innan lands og utan. Auk- inn bílakostur, bættar sam- göngur og almennur orlofs- tlmi hafa haft I för með sér stóraukna umferð ferða- manna um Island. Auk þess hefur útlendingum, sem koma hingað til að skoða náttúru landsins, fjölgað gifurlega á siðustu árum. Hér virðist ekki um tima- bundna þróun að ræða. Búast má við, að ferðamanna- straumurinn aukist jafnt og þétt næstu ár og áratugi. Þetta hefur i för með sér viss vanda- mál, sem ekki má láta liggja I láginni. Abyrgð ferðamanna gagn- vart landinu eykst um leið og þeim fjölgar. Þvi telur Þjóð- viljinn nauðsynlegt, jafnframt þvi að hann óskar öllum ferða- löngum góðrar ferðar og heillarikrar heimkomu, að minna á nokkur atriði, sem öllum ferðalöngum verður að vera ofarlega I huga. Stundum hefur Islandi verið likt við gimstein. Skærir litir og fegurð landsins eru svo mikil, að útlendinga, sem koma frá gráum stórborgum iðnaðarlandanna, stingur I augun. Landið er tiltölulega lltið og fjölbreytnin I náttúr- unni sllk, að ekki þarf að leggja á sig löng ferðalög til að komast I nýtt og gjörólikt um- hverfi. Likt og unnt er að velta gimsteini fyrirhafnarlitið milli fingra sér og hrífast af mismunandi ljósbrigðum hans. Talsverð hætta er á, að gim- steinninn Island glati nú ljóma sinum og skugga beri á skæra liti og heillandi fegurð náttúr- unnar. Allir verða að leggjast AUKIN ÁBYRGÐ FERÐA- MANNA á eitt að það megi a'ldrei verða. Ómengað land, heilbrigður gróður, hreinir lækir og heil- næmt loft eru að verða alger munaður á Vesturhveli jarð- ar, þar sem verksmiðjureykur grúfir yfir mannabyggð. Áður lofsungu skáldin árnar Rin og Dóná, en nú hafa þær glatað lífi og lit. Island er að verða vin i eyði- mörk. Óspillt náttúra og hreinleiki landsins eiga eftir að gera það að eftirsóttum án- ingarstað ferðamanna frá er- lendum stórborgum. Ekki eru allir á eitt sáttir hvort rétt sé, að ýta undir þá þróun, að út- lendingar komi hér til hvildar frá vélareyk og verksmiðju- glamri. En eitt er vist, Island verður aldrei áningarstaður erlendra ferðamanna, ef ís- lendingar sjálfir læra ekki að umgangast landið. Þvi miður vantar mikið á, að svo sé. Viða má sjá, hvern-!, ig islenzkir ferðamenn hafa i eytt gróðri landsins, ýmist vit- andi vits eða i hugsunarleysi. j Ferðamannastaðir bæði i byggð og i óbyggðum eru þaktir rusli og flöskubrotum. Þaö sama má reyndar segja um þjóðvegina og næsta um- hverfi þeirra. Fólk sem aldrei dytti i hug að drepa i sigarettu á gólf- teppinu heima hjá sér, hikar ekki við að gera stykkin sin á gangstigum við helztu nátt- úrudjásn landsins. Margir eyða þúsundum króna og óteljandi vinnu- stundum i garðrækt heima hjá sér, en spæna upp. viðkvæman fjallagróður um helgar með þvi að aka um mýrar og móa. Hjólförin verða að vatnsfar- vegi, sem veitir gróöurmold- inni á braut. Siðan kemur vindurinn og fullkomnar verk- ið. Landið fer að blása upp. Þannig getur ein torfæruferð i jeppa eyðilagt margra alda starf náttúrunnar. örtröð á mörgum vinsælum, næstum sigildum ferða- mannastöðum getur eyðilagt alla fegurð þeirra. Oft fara is- lenzkir þéttbýlismenn vfir bæjarlækinn til að sækja vatn. T.d. eru fjölmargir sérstæðir og undurfagrir staðir i ná- grenni höfuðborgarinnar næsta fáfarnir á meðan Revk- vikingar þyrpast i bilum sin- um á hina „klassisku" ferða- mannastaði. A Reykjanesi eru viða fagrir og sögufrægir staö- ir; á marga þeirra er reyndar ekki unnt að komast nema gangandi. Það er undarlegt. að menn skuli ekki láta sig muna um að sitja timunum saman innilokaðir i bifreiö, en hafa ekki hug til að leggja á sig hálftima göngu út i guðs- grænni náttúrunni. Okkur er vissulega mikill vandi á höndum. Takist okkur ekki að varðveita hina eftir- sóknarverðu og óspilltu nátt- úru Islands, höfum við ekki aðeins glatað draumnum um ferðamannanýlenduna. heldur einnig þvi veigamesta. sem þjóðin mun þurfa að gripa til i framtiðinnij ómenguðu um- hverfi. Margir íslendingar hafa á- fellzt forfeður sina fyrir að eyða birkiskógunum. Það var þó gert vegna brýnna þarfa. Skógurinn var undirstaöa rauðablásturs og eini eldivið- urinn viða um land. Hvaöa dóm munu afkomendur núlif- andi kynslóðar kveða upp, ef við spillum náttúru landsins að þarflausu?

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.