Þjóðviljinn - 12.08.1973, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 12.08.1973, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 12. ágúst 1973. DIÚDVIUINN MÁLGAGN SÓSÍALISMA VERKALYÐSHREYPINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Útgefandi: Otgáfuféiag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson (áb) Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson Fréttastjóri: Eysteinn Þorvalds§on Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur) Áskriftarverð kr. 300.00 á mánuöi Lausasöluverö kr. 18.00 Prcntun: Blaðaprcnt h.f. BREYTINGAR A SKATTALÖGUM Pólitiskir andstæðingar núverandi stjórnvalda vilja stundum halda þvi fram, að núgildandi skattalög séu i alla staði ó- hæf og að skattlagning hafi verið mun réttlátari á timum viðreisnarstjórnarinn- ar. Þannig segir Morgunblaðið i forystu- grein á föstudaginn, að þjóðin hafi um langt skeið búið við óhæf skattalög, þar til viðreisnarstjórnin tók sér fyrir hendur að gera á þeim umbætur. Siðan segir ritstjóri Morgunblaðsins frá þvi, hvernig siðferði i skattamálum hafi batnað við þessar breytingar og vill meina, að flestir hafi ti- undað tekjur sinar rétt á sjöunda áratugn- um. Það hafi ekki verið fyrr en vinstri- stjórnin gerði grundvallarbreytingar á skattlagningu, að menn hafi freistazt til að svikja undan skatti. Þjóðviljinn hefur áður lýst þvi yfir, að núgildandi skattalög eru ekki að öllu leyti til fyrirmyndar, en það er þó ómótmælan- leg staðreynd, að breytingar þær, sem nú- verandi stjórnvöld gerðu á skattalögun- um, höfðu i för með sér meiri jöfnun á tekjum en áður var. Má vera að einmitt þetta atriði hafi freistað fleiri fjárafla- manna en ella til að telja ekki fram allar tekjur sinar, og þvi vilji Morgunblaðið gera lltið úr umbótunum. Þjóðviljinn álit- ur aftur á móti, að nauðsynlegt sé að ganga miklu lengra i þessum efnum. Núgildandi skattalög hafa þó marga og meinlega galla. Augljóst er, að áðurnefnd tekjuöflun nær aðeins til skattlagðra tekna, sem i mörgum tilfellum eru miklu lægri en framtaldar tekjur. Auk þess hefur ekki komið i veg fyrir að ýms- ir starfshópar telji aðeins fram hluta launa sinna. Umbætur á skattalögunum eru nauðsynlegar, og þær umbætur verða að takmarka svigrúm ýmissa þjóðfélags- hópa til að sleppa við að greiða skatt af öllum tekjum sinum. Ef skattlagningin á að jafna rauntekjur þegnanna, verður að taka til gagngerrar endurskoðunar frádráttarákvæði skatta- laganna. Ljóst er, að menn sitja ekki allir við sama borð, þegar að skattafrádrætti kemur. Launamenn verða i flestum tilvikum að telja fram allar sinar tekjur. Vaxta- greiðslur þeirra eru smávægilegar miðað við skuldakóngana, og þeir geta ekki ætlað stóran hluta tekna i fyrningar. Skattlagn- ingin leggst þvi á launamenn af fullum þunga. Um daginn vakti Þjóðviljinn athygli á þvi, að fimm Dagsbrúnarmenn, sem unnu myrkranna á milli siðasta ár og höfðu nærri þvi 700 þús. króna árstekjur, þurfa að greiða hærri skatta en ákveðnir aðilar, er töldu þó fram hærri tekjur til skatts. Sérstaklega var tiltekinn hópur tiu tann- lækna og ákveðinn fasteignasali hér i bæ. Þetta dæmi sýnir þó ekki nema brot af þvi óréttlæti, sem viðgengst i skattamálum. Atvinnurekendur og braskarar hafa ótal smugur til að losna við skattlagningu. Vaxtagreiðslur sumra þeirra eru ævin- týralega háar, en verðbólgan eyðir skuld- unum jafnt og þétt. Almenningi er svo tal- in trú um, að þetta fyrirkomulag sé til fyrirmyndar, og vist er, að hinn almenni launamaður gæti ekki, miðað við núver- andi ástand, steypt sér i miljónaskuldir vegna húsbygginga, ef ekki kæmu til vaxtafrádráttur og rýrnun skulda vegna verðbólgu. En hversu dýru verði kaupir almenningur þessi hlunnindi? Hluti gjaldsins er fólginn i þvi, að auka fjár- málavald burgeisanna. Þjóðviljinn vill meina, að hægur vandi sé að leysa húsnæðismál almennings á skynsamlegri hátt. Morgunblaðið og aðrir talsmenn bur- geisanna halda þvi fram, að bezta lausnin sé að afnema alla beina skatta og afla rikisvaldinu tekna með tollum, söluskatti og eignarskatti. Látið er i það skina, að hátekjumenn greiddu þá sjálfkrafa skatt af öllum tekjum sinum. t þessu sambandi er nauðsynlegt að minna á veigamikið atriði. I auðvaldsþjóðfélagi eru peningar ekki eingöngu notaðir til að kaupa lifsnauð- synjar og lúxusvarning. Auður skapar völd. Ef tekjur eru miklu hærri en nemur almennum framfærslukosnaði, er unnt að kaupa sér völd. Eignarhald á atvinnutækjum er falt fyrir fé, en þar er i flestum tilfellum um að ræða hærri upphæðir en venjulegir laun- þegar hafa handbærar. Réttlátt skatta- kerfi verður að ná til þeirrar veltu, sem burgeisar nota til að auka völd sin i þjóð- félaginu. Aftur á móti er það réttlætiskrafa, sem yfirvöld verða að uppfylla, að raunveru- legur framfærslukostnaður sé algjörlega skattfrjáls. Búfræðingurinn gætir bús og vita Horft heim aö Dalatanga. Vitinn sést efst í horninu til hægri og af blómagarðinum mœttu margir á skjólsælli stöðum öfunda húsfreyjuna á Dalatanga Mikið verður ferðamaður hissa, þegar hann rekst á einn fegursta blómagarð sem hann hefur séð út á yzta annesi, þar sem vindar næða einlægt um og brimið ber klappirnar. Þetta vará Dalatanga, þar sem þýzkættuð eiginkona Erlendar Magnússonar vitavarðar hefur hreint og beint neitaö að beygja sig fyrir izlenzku veöurfari og af dæmafárri elju- og þolinmæði tekizt að koma til izlenzkum jurtum og suðrænum i bland i skjóli við ibúðarhúsið á þeim fimm árum, sfem fjölskyldan hefur búið þarna, en áður voru þau vitaverðir á Siglunesi norður. Þvi miður hittum við ekki hús- móöurina heima, þar eð hún hafði farið i sumarleyfisferð með eigin- manni sinum, en vita, húss og bús var vel gætt af börnunum á mroan, undir forystu elztu systranna, Helgu og Rebekku. Vitastörfin þekkja þær frá öarnæsku og ekki skorti menntunina til hinna starfanna, þvi Rebekka hefur stundað nám við Húsmæðraskólann á Hall- ormsstað og Helga er útskrifaður búfræðingur frá Hólum. Dýrindis rjómaterta var göldruð fram á borðið i hvelli og aðrar kökutegundir svo margar að fara mundi um ófáa Hnall- þóruna. — Og hvað tekur svo við að náminu loknu? — Æ, það er svo gott að vera heima, fannst þeim, en allrahelzt vildu þær samt læra eitthvaö meira, bara ekki búnar að ákveða nákvæmlega hvað. — vh Rebekka t.v. er útskrifuð úr Húsmæöraskólanum á Hallormsstaö, en Helga systir hennar t.h. búfræöingur frá Hólum (Ljósm. vh)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.