Þjóðviljinn - 12.08.1973, Síða 21

Þjóðviljinn - 12.08.1973, Síða 21
Sunnudagur 12. ágúst 1973. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 21 JON CLEARY Sendi- fulltrúinn bezt sem fæstir stóöu að. Ef ske kynni að brytinn yröi tekinn og leysti frá skjóðunni, þá hafði hann til öryggis keypt sér farseðil og færi frá London i kvöld. En á það hafði hann ekki minnzt við madömu Cholon. Malone virti hann fyrir sér stundarkorn, sneri sér siðan aftur að Quentin og hinum. — Hvar er konan min? spuröi Quentin. — Hún fór niöur. Það var kallað á hana i simann. Coburn undir- foringi ætlaði að fylgjast með henni. Madama Cholon og ambassa- dorinn höfðu lenti i hingiðu af gestum og færst fjær; Chen og Pai höfðu lent i annarri hringiðu og voru horfnir lika. Quentin, Lisa og Malone héldu hópinn og tróðust gegnum salinn og út á einar svalirnar. Þau horfðu niður i anddyrið og sáu Coburn á eirðarlausu ráfi. Hann stikaði endanna á milli i anddyrinu, hvarf siðan inn i einn af hliðar- sölunum. — Ég held ég verði ekki lengi hérna, sagði Quentin. — Ég er þreyttur. — Hvenær byrjar fundurinn á morgun? spurði Lisa. — Klukkan hálfellefu. Ég held ég sofi frameftir. Við skulum sleppa þvi að stilla vekjara- klukkuna. Viltu vekja mig um niuleytið, Lisa? Þau sáu Coburn koma fram úr hliðarsalnum, ringlaðan og með áhyggjusvip. Hann stóð kyrr stundarkorn, leit siðan upp og sá þau þrjú standa við svalariðið. Hann hljóp upp stigann til þeirra og vandræði hans voru augljós langt að. — Mér þykir það leitt, herra minn, en konan yðar virðist vera horfin! II. Quentin stóð grafkyrr, greip þéttingsfast um handriðið. Gestir gengu hjá, stráðu um sig kveðjum eins og confetti, en hann heyrði ekki til þeirra. Andlit hans var aftur orðið gráfölt, Malone hélt að það myndi liða yfir hann. Svo dró hann djúpt andann, tók á sig rögg. — Kannski er hún á snyrtiher- berginu? — Ég skal fara og athuga það, sagði Lisa og flýtti sér niður stig- ann, lyfti pilsinu á bláa, siða kjólnum. Brúðkaup Þann 14. júli voru gefin saman i hjónaband i Kópavogskirkju af séra Ingólfi Guðmundssyni ung- frú Kristin Guðnadóttir Borgar- holtsbraut 71, Kópavogi, og As- björn Björnsson Hliðarvegi 10. Heimili þeirra verður I Sviþjóð. STUDIO GUÐMUNDAR, Garðastræti 2. — Við skulum svipast um lika, sagði Malone. — Er allt i lagi með Þig? Quentin kinkaði kolli, fölur og þreytulegur. — Ég verð hér kyrr. Finndu hana, Scobie. Þetta var 1 neyðaróp. Malone og Coburn gengu burt frá honum eftir svölunum. — Leitaðu alls staðar niðri, sagði Malone. — Og talaöu við Ferguson. Hann er úti I bilnum. Ég skal svipast um hérna uppi. 56 — Ég vona bara að hún sé á klúinu, sagði Coburn og flýtti sér niður stigana. Malone gekk eftir svölunum og inn I stóra salinn. Hann mjakaði sér gegnum mannfjöldann, heyrði glefsur úr samtölum sem fylltu hann gremju enn á ný. — Kynferðislega er hún hreinn auli — — Það var svona þokkaleg, niðursoðin svallveizla — ósköp bandarisk — — Elskan, ég var að tala um hestinnminn, ekki manninn minn Fólk leit forvitnislega til hans þegar hann gekk hjá: hann var ekki fulltrúi á ráðstefnunni og átti þvi ekki að vera með áhyggju- svip. Hann sá Pallain sem hélt til móts við hann til að segja eitt- hvað, en hann hristi höfuðið og flýtti sér áfram. Hann sá fleiri andlit sem hann þekkti. Larter, Edgar, bandarikjamennina sem komið höfðu heim i húsið um morguninn. Og hann gekk rétt hjá madömu Cholon og ambassa- dornum. — Þér sýnizt áhyggjufullur, herra Malone, sagði madama Cholon. — Ég er aðleita að frú Quentin. Hafiö þér séð hana? Svipur hennar var næstum of sakleysislegur. —Hefði ég átt að sjá hana? Siðan sneri hún sér frá honum, bað ambassadorinn afsökunar og smaug eins og grænn fugl inn i mannþröngina. Ambassadorinn horfði á eftir henni, siðan á Malone. — Treystu aldrei austr- inu, sagði pabbi gamli. Nú var hann ekki að hlæja; Afrika var margslungnari en margir hugðu. Þann 30/6 voru gefin saman i hjónaband i Dómkirkjunni af séra Lárusi Halldórssyni ungfrú Helen Gunnarsdóttir og Páll Sigurðs- son. Heimili þeirra er að Sjafnar- götu 12, Hafnarfirði. STUDIO GUÐMUNDAR, Garðastræti 2. — Skyldi hann hafa haft rétt fyrir sér? Hvað vitið þér um þessa konu, herra Malone? — Nógu mikið til þess að treysta henni aldrei. — Mynduð þér vilja segja mér frá henni? — Má ég gera það seinna, herra minn? Ég verð að finna frú Quentin. Enhann fann hana ekki. Þegar hann kom fram á svalirnar aftur, voru Lisa og Coburn komin til Quentins. Lisa hafði ekki fundið hana i snyrtiherberginu. — Hún er hvergi niðri, sagði Coburn. — Og billinn er farinn. Þaö bólar ekki á Ferguson. — Jæja, það er þó bót i máli ef hann er með henni. En Quentin hafbi ekki sannfært sjálfan sig. Hann beit á vörina, barði kreppt- um hnefanum i handriöið. — En af hverju fór hún svona oröa- laust? — Hún hefur kannski farið heim, sagði Lisa. — Hún hefur kannski orðið lasin — hún leit ekki vel út — — En hver hringdi til hennar? sagði Malone. — Hringdu heim. Quentin hélt af stað niður stigann og hin eltu hann. — Jósef ætti að vera þar. Lisa fór burt til að hringja. Co- burn gekk aftur að útidyrunum og Malone og Quentin stóðu eftir. Quentin var að horfa i kringum sig, rýndi á konurnar sem fram- hjá gengu, eins og hann byggist við að þær tækju ofan grimuleg andlitin og breyttust i Sheilu. Bakvið þá var kominn hæðnis- svipur á marmaraandlitið á her- toganum af York: hann hafði veriö uppi á timum grimmilegrar kímni. Quentin sagði: — Ég get ómögulega skilið hvers vegna hún fór svona orðalaust. Ef eitthvað hefur komið fyrir hana —og hún kveður ekki, segir ekkert — — Hafðu ekki svona miklar áhyggjur, sagði Malone, altekinn samúð með manninum. — Kannski hefur hún orðið lasin eins og Lisa sagði. Það hefur svo sannarlega nóg dunið yfir hana — Quentin kinkaði kolli, en hann var ekki sannfærður; örvilnun hans var komin á það stig, að hann hlaut að búast við hinu versta. Dagurinn i dag var óhappadagur: fyrst ráðstefnan, siðan þetta, hið versta sem hugsanlega hefði getað gerzt. — Ef þeir hafa gert henni mein — sagði hann, en jafnvel reiði hans var máttvana. — Þau eru hér enn, sagði Malone. — Cholon og Pallain — ef hann er I einhverjum tengslum við hana. Ég sá þau bæði áður en við komum niður. — Það gætu verið fleiri viðriðn- ir þetta — — Ef svo er, þá náum við alla vega i Cholon. En þú mátt ekki hugsa svona. Þú ert alltof bölsýnn — Geturðu láð mér það? Djöfullinn sjálfur, Scobie —. Þetta var i fyrsta sinn sem Malone heyrði hann bölva. — Hvaða ástæður hef ég til að vera bjartsýnn út af nokkrum sköpuð- um hlut? Svar Malones rann út i sandinn þegar bæði Lisa og Coburn komu á vettvang. Lisa sagði: — Það er á tali. Þann 7. júli voru gefin saman i hjónaband i Dómkirkjunni af séra Óskari J. Þorlákssyni ungfrú Sig- riður Pétursdóttir og Sigtryggur Jónsson. Heimili þeirra er að Sól- heimum 34, Rvik. STUDIO GUÐMUNDAR, Garðastræti 2. BRIDGE Opnunarsögnin afhjúpaði leguna Opnunarsögn andstæðingsins i þessari gjöf gerði hollenzka hann kemst inn á spaðaásinn, að láta út tigul, myndu spilalokin verða eins, nema að þá myndi Austur neyðast til að halda eftir tigulgosanum blönkum og honum væri þá komið inn á tigulinn. meistaranum Herman Filarski kleift að geta sér ná- kvæmlega rétt til um hvernig öll spilin lágu og þá jafnframt að vinna lokasögnina fjögur hjörtu. S. K H. AK987 T. KD3 L. KD72 S. AG9764 H. 1062 T. 52 L. G10 S. 8532 H. G54 T. 10987 L. A9 Sagnir: Vestur gefur. Austur- Vestur á hættunni. Vestur Norður Austur Suöur 2 S. dobl pass 3 H. pass 4 H. pass pass Hálfslemma Soulets Franski meistarinn G. Soulet uppgötvaði hvernig hægt var að vinna hálfslemmu i þessari gjöf, hvaða útspil sem Vestur kysi. N sp hj ti. la V sp. A D 7 2 hj. 10 4 ti. 8 4 3 ta. D 8 7 4 S sp. K hj. A K G 9 7 6 3 ti. G 6 la. A 10 6 S. D10 H. D3 T. AG64 L. 86543 . G 10 9 6 . D 2 A D 2 . K G 5 3 A sp. 9 5 4 3 hj. 8 5 ti. K 10 9 7 5 la. 9 2 Vestur lét út laufagosann, Filarski tók meö ásnum. Hann gerði sér ekki miklar vonir um að vinna spiliö, en byrjaði á þvi að kanna tigulinn. Austur, sem geröi ráð fyrir aö laufagosi félaga hans hafði verið einspil, tók tiguldrottningu blinds þegar i stað með ásnum, og lét strax út lauf. Hvernig fór Filarski aö þvi að vinna sögnina fjögur hjörtu gegn beztu vörn? Svar: Filarski tók með laufa- drottningu, tók siðan á ás og kóng i hjarta og kom Vestri inn á spaöaásinn. Vestur lét út hjarta- tiuna sem tekin var á gosann og sagnhafi komst inn á blind, með þvi að trompa spaða. Nú vissi Filarski nákvæmlega hvernig spil andstæðinganna skiptust milli þeirra (þar sem Vestur hlaut samkv. opnuninni að hafa sex spaða) og hann tók á siðasta trompið til þess að koma Austri i kastþröng. Staðan er þessi (spil Vesturs skipta ekki máli). ti K 3 la K 7 Sagnir: Norður gefur. Báðiö á hættu. Sagt samkv. „Canapé”- kerfinu. Vestur Norður Auslur Suður 1. sp. pass pass 3.gr. pass pass 5.ti. pass Hvernig á Suður að haga spilinu til þess að vinna hálfslemmu i hjarta, hvaða útspil sem Vestur velur og hvernig sem and- stæðingarnir reyna að verjast? Athugasemd um sagnirnar: Jafnvel þótt sagt sé samkv. ,,Canapé”-kerfinuter opnunin á einum spaða með gosann fjórða á hendinni hæpin. Hefði verið opnað á einu laufi hefði sagnirnar orðið eðlilegri þótt lokasögnin yrði sú sama: Norður Suður 1. la. 2 hj 2 gr. 3 hj 4 hj. 5 la 5 ti. ' 6 hj < sp 8 ti. 10 9 8 ti, G 6 la, 8 6 Það nægir nú að láta út tigul- kónginn og siðan tigul til þess að neyða Austur til að láta út i laufa- gaffalinn hjá blindum. Velji Vestur þann kost, þegar Hefði Suður svarað opnuninni með einu hjarta, hefði Norður sagt einn spaða, en spaði hans er of veikur til þess að nefna hann þegar Suður hefur sagt tvö hjörtu og Norður á þvi að segja tvö grönd. Þegar Suður hefur sagt fimm lauf, á Noröur að láta uppi að hann eigi tigulásinn. Höfum ávallt fyrirliggjandi allar stærðir skraut- hringja á hjólbarða, bæði alhvíta og hvíta með svartri rönd. Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er. GÚMMÍVINNUSTOFAN H.F. Skipholti 35 — Reykjavik — Sími 30688 Ai ífflvsing asími Þj óðvil jans 17 500

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.