Þjóðviljinn - 04.10.1973, Síða 2
2 StDA — ÞJOÐVÍLJINN Fimmtudagur 4. október 1973
Akurnesingar
Þeir, sem urðu fyrir tjóni i óveðrinu 23.
og 24. september siðastliðinn tilkynni
bæjarskrifstofunni ef þeir óska eftir
mati, vegna umsóknar til Bjargráða-
sjóðs.
Fólki er bent á að lesa tilkynningu Bjarg-
ráðasjóðs i blöðunum nú nýlega, þar sem
gerð er grein fyrir matsreglum.
Umsóknum um mat sé skilað eigi siður
en 20. október n.k.
Bæjarskrifstofan
ÚTBOÐ
Tilboð óskast um sölu á 3000 m af
,,Ductile”-pipum fyrir Vatnsveitu
Reykjavikur.
Útboðsskilmálar eru afhentir i skrifstofu
vorri.
Tilboð verða opnuð á sama stað, þriðju-
daginn 30. otkóber 1973, kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvagi 3 — Sími 25800
Óskum að ráða
starfsmann á smurstöð vora, þarf að vera
vanur.
Skodaverkstæðið h/f, Auðbrekku 44-46.
Simi 4260?.
RAFLAGNIR
SAMVIRKI
annast allar almennar raflagnir. Ný-
lagnir, viðgerðir, dyrasima og kall-
kerfauppsetningar.
Teikniþjónusta.
Skiptið við samtök sveinanna.
Verkstæði Barmahlið 4
SÍMI 15460 milli 5 og 7.
FÍIAC ÍSLEU HLJÖMLISTAIiMAlA
útvegar yður hljóðfæraleikara
og hljómsveilir við hverskonar tækifœri
Vinsamlcgast hringið í 202SS milli kl. 14-17
IffiíSiB
Indversk undraveröld.
Vorum að taka upp mjög glæsilegt og fjölbreytt
úrval af austurlenskum skraut- og listmunum
m.a. Bali-styttur, veggteppi, gólf-öskubakka,
.smádúka, batik-kjólefni, indversk bómullarefni,
töfl úr margskonar efniviði, málmstyttur, vörur
úr bambus og margt fleira nýtt.
Einnig margar tegundir af reykelsi og reykelsis-
kerum. Gjöfina sem gleður fáið þér í
Jasmin Laugavegi 133.
A Húsavík er einna mest smábátaútgerð á landinu. Þeir hafa skapað
mikia atvinnu þar i sumar svo að varla hefur áður verið þar meira að
gera. (Ljósm. sj)
innlend
Rœkjuvertíðin
hafin
Gisli Hjartarson fréttaritari
Þjóðviijans á tsafirði simaði að
rækjuvertfð hefði byrjað þar
vestra 2. september og myndu um
40 bátar vera gerðir út á rækju frá
tsafirði i haust og vetur. Leyfilegt
er að veiða 160 tonn á viku og fari
bátarnir yfir þennan kvóta,til að
mynda veiöi 180 tonn á viku,
mega þeir ekki veiöa nema 140
tonn næstu viku. Rækjuvertiðin
stendur fram i miðjan desember
en liggur svo niðri yfir svartasta
skammdegið en byrjar svo aftur
uns þeim kvóta yfir heildarveiði-
magn, sem leyfilegt er að veiða,
er náð.
GIsli kvað gott að fá mannskap
til rækjuvinnslunnar þar eð hún
væri uppgripavinna, mikil nætur-
og eftirvinna. Hinsvegar væri
hætt við að það gæti eitthvaö
komið niður á fyrstihúsunum,
sem ættu þá erfiðara með að fá
mannskap i vinnu. A Isafirði eru 3
rækjuverksmiöjur.
Mikil vinna hefur verið á Isa-
firði I sumar og i ágúst-mánuði
barst svo mikill afli á land af
skuttogurunum að frystihúsin
gátu ekki annaö smábátunum og
neituðu að taka við afla þeirra.
Olli þetta mikilli gremju hjá sjó-
mönnum á minni bátunum, enda
má segja að þetta sé óæskileg
þróun og afleiðingarnar ófyrir-
sjáanlegar.
i Þetta vandamál er auðvitað úr
isögunni nú vegna þess að það eru
einmitt þessir sömu smábátar
sem stunda rækjuveiðarnar sem
|nú eru að hefjast. —S.dór
Miklar annir
í sláturtíðinni
Guðmundur Theódórsson
fréttamaður Þjóðviljans á
Blönduósi sagði, að nú væru
miklar annir þar enda stæði
sláturtið sem hæst og um 2000 f jár
væri slátrað á dag. Aður en skól-
arnir byrjuöu gekk sæmilega að
manna sláturhúsiö, en nú vantar
fólk þar eins og i önnur störf á
Blönduósi, en Guðmundur sagði,
að mannekla væri nokkuð mikil
Guðmundur sagöi, að mjög
mikiö hefði verið byggt af Ibúðar-
húsnæði á Blönduósi I sumar.
Væru milli 10 og 15 ibúðir I
byggingu sem stæði, og væri það
óvenju mikið.
1 sumar hefur verið sett oliumöl
á nokkrar götur, samtals á annan
kilómeter, og eru þetta fyrstu
göturnar sem sett er á varanlegt
slitlag á Blönduósi.
Sem kunnugt er er Blönduós
fyrst-og fremst iðnaðarbær. Fyrir
utan trésmiðaverkstæði, bifreiða-
verkstæöi og önnur þjónustufyrir-
tæki eru þar tvær plastverk-
smiðjur. önnur framleiðir m.a.
öll plastilát fyrir Tóbaks- og
áfengisverslunina en hin allt frá
smádollum uppi báta og flot-
bryggjur, að sögn Guðmundar.
Þar er um tref japlast að ræöa. Þá
er starfrækt prjónastofan Pólar-
prjón og einnig naglaverksmiðjan
Málmur.
A Blönduósi var næg atvinna i
fyrravetur og sagöi Guðmundur
að útlit væri fyrir að svo yrði
einnig i vetur. —S.dór
Þriðji
skuttogarinn
kominn
Þriðji skuttogarinn i eigu Sauö-
kræklinga kom sl. sunnudag til
Sauðárkróks. Heitir hann Skafti
og er keyptur til landsins frá Nor-
egi. Eigendur togarans eru út-
gerðarfélagiö á Sauöárkróki og
útgerðarfélagið Nafar á Hofsósi.
Hreinn Sigurðsson fréttaritari
sagði að mjög mikil atvinna væri
nú á Sauðárkróki og gæti frysti-
húsið á staönum ekki annaö afla
allra þriggja skuttogaranna og
væri hluta aflans ekið til Hofsóss
til vinnslu. Annars stendur til að
sameina þessi tvö útgeröarfyrir-
tæki sem eiga Nafar, útgerðar-
félögin á Hofsósi og Sauðarkróki.
Nýlega var stofnsett ný prent-
smiðja á Sauðárkróki og er það
fyrsta prentsmiðjan þar. Aö sögn
Hreins standa vonir til að næg
verkefni verði á Sauðárkróki
fyrir þessa prentsmiðju.
Sokkaverksmiöjan á Sauðár-
króki hefur nú verið lokuð um
mánaöartima og er óvist hvenær
hún opnar aftur en fjárskortur
mun hamla rekstri hennar.
Smábátaútgerð er litil frá
Sauðárkróki, þó hafa fáeinir
bátar verið á dragnótaveiðum og
einn bátur lagði net innanfjarðar
nýlega og fékk 3 tonn af góðum
fiski.
Þess má að lokum geta að
Hofsósbúar vænta mikils af nýja
togaranum sem er sameign
þeirra og Sauðkræklinga, enda
hefur atvinna verið litil og stopul
á Hofsósi en með komu togarans
vonast menn til aö atvinna á
Hofsósi verði meiri og jafnari og
að atvinnuleysi hverfi.
—S.dór.
Nœr 40 þús.
fjár slátrað á
Húsavik i haust
t haust mun verða slátrað um
40 þúsund fjár I siáturhúsinu á
Húsavik, sem er eitt af full-
komnustu sláturhúsum landsins,
búið mikiili sjálfvirkni. En þrátt
fyrir þessa miklu sjálfvirkni
vinnur margt fólk i þessu stóra
sláturhúsi. Sæmilega gekk að fá
konur til starfa I haust, en öllu
erfiöar að fá karlmenn, enda
hefur atvinna sjaldan eða aldrei
verið meiri á Húsavík en um
þessar mundir.
Svo mikil atvinna hefur verið i
frystihúsinu I sumar og haust að
aka hefur þurft hluta aflans til
annarra staða til vinnslu. Auk
þess hafa sjómenn orðið að taka á
sig fiskaðgerðina um borð I
bátunum, þar eð ekki hefur verið
hægt að anna þvi I landi.
1 september hafa borist á land
rúmlega 400 tonn af fiski veiddum
á llnu, sem er mun meira en á
sama tima i fyrra. Verður hefur
verið mjög hagstætt I haust fyrir
noröan og gæftir þvi góðar.
Mikið hefur verið byggt I sumar
á Húsavlk og eru nú 40 Ibúðir I
byggingu. Allt eru þetta raðhús
eða einbýlishús.
Nú er verið að ljúka við að
steypa aðalgötu bæjarins en
unnið hefur veriö við þetta I
sumar. Nýlega var tekin I notkun
nýr matsalur og kaffiteria i hinu
nýja hóteli á Húsavik. Feröa-
mannastraumur hefur verið með
mesta móti til Húsavikur I
sumar og hefur sennilega sjaldan
eða aldrei verið meiri.
íbúum á Húsavik hefur fjölgað
nokkuð enda er litiö orðið um að
ungt fólk flytjist burtu eftir að
næg atvinna er orðin á staðnum.
Sjö íbúðarhús
í byggingu
á Raufarhöfn
Blómlegt atvinnullf er á
Raufarhöfn og hefur atvinna
aldrei verið eins mikil þar nyrðra
siðan á sildarárunum. Til marks
um bjartsýni Raufarhafnarbúa
undir vinstri stjórn er, að nú eru
þar I byggingu 7 ibúðarhús, en i-
búð hefur ekki verið byggð á
Raufarhöfn siðan sfldarævin-
týrinu lauk.
Heimir Ingimarsson sveitar-
stjóri sagði að menn væru mjög
bjartsýnir á Raufarhöfn, enda
væri þar nú meiri atvinna en
nokkru sinni fyrr. Hann sagði að
þessi sjö ibúðarhús væru byggð
með samvinnusniði þannig að
aðeins er keypt mótatimbur fyrir
eitt hús en það síöan notaö við öll
hin og þannig yrði reynt aö hafa
raðsmiði á öllu sem hægt er við-
komandi byggingu húsanna.
Fólkiö sem þarna byggir er bæði
heimafólk og aðflutt. Fyrir
þessum byggingum mun standa
verktakafyrirtæki sem veriö er
að stofna.
Haustið hefur verið eindæma
gott á Raufarhöfn og atvinna svo
mikil að fólk hefur vantað til
flestra starfa. Skuttogarinn á
Raufarhöfn hefur aflað sæmilega
i haust en mestur afli hefur þó
borist á land af smábátunum sem
eru 30 á Raufarhöfn. Hafa gæftir
verið góðar og eru þeir enn við.
Heimir sagði að félagslif yæri
heldur dauft á Raufarhöfn en
menn hefðu nú fullan hug á aö
bæta úr þvl I vetur. Aðstaða öll er
hin besta, þar sem er nýtt og
glæsilegt félagsheimili á
staðnum.
—S.dór