Þjóðviljinn - 04.10.1973, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 4. október 1973
J. Kíritsjenko, sendiherra Sovétríkjanna á Islandi:
Þrjátíu ára afmœli
stjórnmálasambands
FYRIR þrjátiu árum, þann 4.
október 1943, var komið á beinu
stiórnmálasambandi milli Is-
lands og Sovétrikjanna. Islenskir
stjórnmálamenn hafa oftar en
ekki lagt áherslu á það, að Sovét-
rikin hafi verið i hópi fyrstu
rikjanna, sem viðurkenndu Is-
land. Aðsinu leyti varð Island eitt
af fyrstu kapitalisku rikjum i
Evrópu til að styja mikilvægt
frumkvæði Sovétrikjanna á sviði
þróunar verslunarsamskipta á
grundvelli langtimasamninga.
Eins og menn vita, hafa lengi
verið vinsamleg samskipti milli
þjóða landa okkar, sem engir
árekstrar hafa varpað skugga á.
Þegar til forna áttu tslendingar
kaupskap og ýms önnur sam-
skipti við þjóðir Rússlands, svo
sem lesa má á fornum bókum. Á
siðustu öld efldist áhugi á islenskri
menningu i Rússlandi meö
þýðingum á tslendingasögum og
verkum Gests Pálssonar, Þorgils
Gjallanda og fleiri. Arið 1849 gaf
hinn þekkti sagnfræðingur og
málfræðingur Sabinin út islenska
málfræði, sem hann hafði samið.
Rússneska þjóðin hefur ávallt
haft samúð með islensku þjóð-
ipni, sem lengi barðist fyrir
þjóðfrelsi. 1 þeim efnum áttu
þjóðirnar að nokkru leyti samleið
— um sama leyti og fyrsta rússn-
eska byltingin 1905 gróf verul.
undan innviðum einveldisins,
efldist barátta islenskra fram-
farasinna fyrir aukinni sjálfs-
stjórn. Sigur rússnesku þjóðar-
innar, i Októberbyltingunni 1917,
bar upp á auknar kröfur Is-
lendinga um sjálfsákvörðunar-
rétt — en 1. desember 1918 var Is-
lands vo lýst sjálfstætt riki. Og Is-
land var lýst lýðveldi 1944, um
það leyti, sem sovéski herinn háði
úrslitaorrustur við árásarher
Hitlers.
UM ÞESSAR mundir ber það
ekki ósjaldan við, að viðhorf Is-
lands og Sovétrikjanna til
eflingar friði eru skyld, eða falla
jafnvel saman. Aðalritari KFS, L.
Brézjnéf, sagði á hátiðafundi i
Kief þann 26. júli s.l.: „Vér
viljum að öll lönd, stór sem smá,
losni undan styrjaldarhættu.
Smáriki hafa, vel á minnst, i liðn-
um heimsstyrjöldum verið dregin
inn i hildarleikinn, ósjaldan þvert
gegn vilja sinum.”
Sovésk-islensk samskipti hafa
mjög þróast að undanförnu, eins
og kunnugt er. Sovétrikin fylgja
þeirri friðaráætlun, sem mótuð
var á 24ða þingi KFS, og beita sér
fyrir samstarfi á jafnréttisgrund-
velli milli þjóða, sem búa við mis-
munandi þjóðskipulag. 1 þessu
sambandi mætti og minna á um-
mæli Ólafs Jóhannessonar for-
sætisráðherra um að samskipti
Sovétrlkjanna og Islands séu gott
dæmi um sambúð stórveldis og
smárikis, sem búa við mismun-
andi þjóðskipulag.
AÐ ÞVl er varðar samskipti á
pólitiska sviðinu ber fyrst af öllu
að minna á það, að um 14 ára
skeið hafa þingmannaferðir milli
landanna orðið góð hefð. tslenskir
þingmenn, undir forystu Eysteins
Jónsonar alþingisforseta, heim-
sóttu Sovétríkin nú siðast i janúar
1973. Sovétrikin hafa á ýmsum
timum heimsótt þeir Einar 01-
geirsson, Eggert G. Þorsteinsson,
Gylfi Þ. Gislason, Lúðvik Jóseps-
son og Pétur Thorsteinsson ráðu-
neytisstjóri. Sendinefnd Fram-
sóknarflokksins hefur sótt Sovét-
rikin heim.
Island hafa heimsótt m.a. E.
Furtséva menntamálaráðherra,
A. Isjkof sjávarútvegsráðherra,
L. Zémskof aðstoðarutanrikis-
ráðherra og N. Bélokhvostikof,
yfirmaður Norðurlandadeildar
sovéska utanrikisráðuneytisins.
Að sjálfsögðu hafa þessar heim-
sóknir haft jákvæð áhrif á
sovésk-islensk samskipti á hinum
ýmsu sviðum.
Saga alþjóðasamskipta Sovét-
rikjanna ber þvi glöggt vitni að
bætt pólitisk samskipti greiða
fyrir betri nýtingu á þeim mögu-
leikum, sem eru á samstarfi
landa, sem búa við mismunandi
þjóðskipulag, á sviði verslunar og
efnahagsmála. Um leið er þróun
hagkvæmra viðskiptatengsla
þýðingarmikil aðferð til að koma
á eðlilegum pólitiskum aðstæð-
um. Reynslan sýnir, að þetta á
einnig fyllilega við um samstarf
Sovétrikjanna og íslands á sviði
verslunar, efnahagslifs og tækni.
Æ MEIRI þroska ná samskipti
landanna á sviði menningar og
visinda. Þróast þau i samræmi
við samkomulag um samstarf á
sviöi menningar, tækni og
visinda, sem undirritað var árið
1961. Báðir aðilar lýstu sig reiðu-
búna til að stuðla að sendinefnda-
skiptum og gagnkvæmum heim-
sóknum fulltrúa visinda og lista,
ýta undir ferðalög o.s.frv. I april
1973 var undirrituð fyrsta áætlun i
sögu samskipta landanna um
samstarf þetta, og gildir hún fyrir
árin 1973 og 1974. I fyrra fóru á
milli landanna u.þ.b. tuttugu
sendinefndir fulltrúa visinda og
mennta frá hvoru landi. Flest
bendir til, aðsendinefrid'askipti
muni fara i vöxt.
Sovétmenn bera mikla virðingu
fyrir fornri menningu Islendinga.
Liklega má nú finna i hverju
sovésku bókasafni tslendinga-
sögur, sem i ár voru gefnar út i
300þúsund eintökum. Hinn þekkti
fræðimaður, Steblin-Kamenski,
sem nokkrum sinnum hefur gist
tsland, og aðrir sovéskir fræði-
menn hafa skrifað bækur um is-
lenska menningu. 1 sovéskum há-
skólum er lögð stund á islenska
sögu og menningu.
Mikill gaumur er og gefinn að
samtiðarmenningu Islands. Við
hlið Islendingasagna standa i
bókasöfnum okkar verk Halldórs
Laxness, Þórbergs Þórðarsonar,
Jóhannesar úr Kötlum, Jónasar
Árnasonar og Ólafs Jóhanns
Sigurðssonár. Miljónir sjón-
varpsáhorfenda hafa fylgst með
kvikmynd um Island. Fyrir
skemmstu klöppuðu tónlistar-
unnendur lof i lófa Kristni Halls-
syni, sem söng i nokkrum sovésk-
um borgum. Ahugi á islenskri
menningu fer vaxandi, og beðið
er eftir nýjum samfundum við
fulltrúa hennar.
A Islandi þekkja margir til
sovéskrar menningar og listar.
Islendingar hafa séð nokkrar
sovéskar kvikmyndir og vildum
við vona, að kvikmyndahús muni
einnig i framtiðinni reiðubúin til
að svara eftirspurn islenskra
áhorfenda eftir sovéskum kvik-
myndum. Ýmsir sovéskir rit-
höfundar, listamenn og tón-
listarmenn hafa heimsótt Island.
Meðal þeirra voru rithöfundarnir
Polevoj, Dolmatovski, Zaligin og
Budris, myndlistarmaðurinn
Orest Vereiski, tónlistar-
mennirnir Maxim Sjostakovitsj,
Vajman, Sjakhovskaja og
Katsatúrjan. Starfsmenn blaða,
útvarps og sjónvarps hafa heim-
sótt hver annan reglulega, og hef-
ur þess orðið vart á dagskrám
fjölmiðla. Magnús Jónsson sýndi
kvikmynd um Island á nýlegri al-
þjóðlegri kvikmyndahátið i
Moskvu. Ferðalög hafa aukist
milli landa, enda þótt möguleikar
beggja landa á þvi sviði séu
hvergi nærri fullnýttir.
Það skiptir miklu um þróun
menningarsamskipta, að tungu-
málaveggurinn sé klifinn. Það er
okkur ánægjuefni, að á nýbyrjuðu
námsári mun sovéskur kennari
kenna rússnesku við Háskóla Is-
lands.
Undanfarin þrjú sumur starfaði
sovéskur jarðfræðileiðangur á
Islandi með leyfi islenskra stjórn-
valda, og i nánu samstarfi við is-
lenska visindamenn. Hann hefur
unnið að rannsóknum i samræmi
við alþjóðlega áætlun, sem
UNESCO hefur stutt. Hafa is-
lenskir fræðimenn farið lofsam-
legum orðum um starf
leiðangursins.
Mjög virk hafa gerst samskipti
milli verkalýðsfélaga og æsku-
lýðsfélaga landanna. A þessu
ári einu hafa þrjár sovéskar
sendinefndir heimsótt Island á
vegum verkalýðssamtakanna og
þrjár islenskar Sovétrikin.
30 ARA saga stjórnmálasam-
skipta Sovétrikjanna og tslands
hefur liðið án deilna. Við getum
horft yfir þetta langa timabil án
þess að þurfa að hugsa um ein-
hver óleyst vandamál. Þvert á
móti: á þessum tima hafa sam-
skiptin á hinum ýmsu sviðum
orðið báðum löndunum til hags-
bóta. Við teljum, að ófáir mögu-
leikar séu á áframhaldandi þróun
samskipta miili landanna. Vin-
samleg samskipti þjóðanna og
svipuð viðhorf til ýmissa alþjóða-
mála opna nýja mögul. á sam-
starfi, stuðla að auknum gagn-
kvæmum skilningi milli Sovét-
rikjanna og íslands.
Prófessor
við KHÍ
Foseti tslands hefur að tillögu
menntamálaráðherra skipað dr.
Þuriði J. Kristjánsdóttur pró-
fessor i uppeldissálarfræði við
Kennaraháskóla Islands frá 1.
ágúst 1973 að teija.
Danska
þingið sett
KAUPMANNAHÖFN 2/10 — 1
ræðu sinni við setningu danska
þjóðþingsins i dag sagði Anker
Jörgensen forsætisráðherra að
stjórnin myndi beita sér fyrir að
bæta greiðslustöðu Danmerkur
gagnvart útlöndum og tryggja
fulla atvinnu.
Jörgensen sagði að þrir mikil-
vægustu þættirnir i stefnu stjórn-
arinnar væru að hamla gegn
þenslu i opinberum útgjöldum,
einkaneyslu og húsnæðismálum,
endurskoðuðu lánamálin og koma
verðlags- og kaupgjaldsmálum i
eðlilegt horf og meira jafnvægi.
Jörgensen lagöi áherslu á það i
ræðu sinni að velferðarþjóðfélag-
ið ætti viö sin sérstæðu vandamál
að striða sem eru alls ólik þeim
sem áður hefur orðið að glíma
viö.
Blek framtíöarinnar setur Ballograf Epoca í sérflokk
Fyrstir allra kúlupcnnafnimleiöcnfla hcfur Ballograf framieitt blck i
gæðaflokki, scm stenzt kröfur um varanlcik, settar fram af gœðaprófunar-
stofnun sænska ríkisins. Þctta blck er kallað spjakfskrárblek og cr sam-
þykkt til notkúnar á opinbcrar skýrslur.
Þctta er afjcins cih dæmi um tæknilcga fullkomnun BAI>IX)GRAF EP(X!A,
og ein af ástaíðunum sem gcrl hafa EPOCA jjennann víðfrægan.
BALLOGRAF EPOCA cr fáanlcgur í úrvali lita og efnis:
úr plastic, stáli, gulli o.s.frv, 4 hóflegu vcrði.
BALLOGRAF EPOCA þekkíst hvar sem cr, vegna formfegurðar.
Umboðsmenn ÞÓRÐUR SVEINSSON & CO H/F.
Sfmi 1870«.
epoca
Ný ljósprentunarstofa.
Hef opnað Ijósprentunarstofu undir nafninu
LJÓSTAK
Annast ljósprentun teikninga; almenna Ijósritun á meðan beðið
er.
Smækkun og vélritun. Reynið viðskiptin.
Ljóstak, Borgartúni 29, sími 19514
Hrannar G. Haraldsson
IÞROTTAFELAG KVENNA
hefur vetrarstarfsemi sína fimmtudaginn 4,
október.
Rytmisk afslöppunar- og þjálfunarleikfimi i Mi8-
bæjarskóla, mánudaga og fimmtudaga kl. 8—9
s.d.
Skokk og leikfimi miðvikudaga í Laugardal.
Kennari verður Helga Magnúsdóttir.
Innritun og upplýsingar í síma 14087 og í
tFmunum.