Þjóðviljinn - 04.10.1973, Side 11
Fimmtudagur 4. ofctóber 1973 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
Hibs mátti þakka fyrir að
ná jafntefli gegn ÍBK 1:1
Keflvíkingarnir áttu
hættulegri tækifæri og
sýndu hvað gott
áhugamannalið má sín
gegn atvinnumönnum
Það er svo sannarlega ástæða til að hrósa
Keflvikingum fyrir frammistöðuna i leiknum gegn
skoska atvinnumannaliðinu Hibernian. Keflviking-
ar sýndu að sterkt áhugamannalið getur staðið i at-
vinnumönnum, þvi sannleikurinn er sá að ÍBK átti
sist minna i leiknum og marktækifæri þeirra voru
hættulegri en Skotanna. Það var til að mynda
hroðalegur klaufaskapur hjá Steinari Jóhannssyni
er hann stóð einn á markteig, en skaut himinhátt
yfir i stað þess að leggja boltann i netið. Hins ber
einnig að geta að völlurinn var eins blautur og
þungur og hann hugsanlega getur orðið og þvi erfitt
fyrir leikmenn að fóta sig. Þessi skilyrði eru hag-
stæð fyrir Skotana vegna þess að þeir leika stóran
hluta sins keppnistimabils á velli likum þessum,
þ.e. siðari hluta vetrar. En þrátt fyrir þetta stóðu
Keflvikingarnir sig mjög vel, betur en maður átti
yon á.
Það var greinilegt að Keflvik-
ingarnir ætluðu að berjast af öll-
um þeim mætti sem þeir ráða yf-
ir og virtist þessi feiknar kraftur
koma Skotunum á óvart þar eð
Keflvikingarnir léku lengst alger-
an varnarleik i fyrri leiknum sem
fram fór i Skotlandi. Þetta varð
til þess að Keflvikingar náöu betri
tökum á leiknum.
Fyrsta marktækifæriö sem að
kvað kom á 11. mínútu er Steinar
Jóhannsson komst inn fyrir vörn
Skotanna, en i stað þess að halda
áfram sjálfur og skjóta gaf hann
boltann til Olafs Júliussonar og
hann missti af honum til Skot-
anna. Illa farið með upplagt færi.
Næst gerðist það á 25. minútu að
Ástráður Gunnarsson einn besti
maður IBK I leiknum óö upp
hægri kantinn og skaut frá vita-
teigshorni. Skot hans var mjög
fast og stefndi i blá-horniö niðri en
skoski markvörðurinn varöi
meistaralega.
En svo var það á 34. minútu að
dæmd var hornspyrna á Hibs.
Tbk
missti af
miljón-
inni
Aðeins rúmiega 3500 manns
komu á Laugardalsvöllinn i
gær á leik IBK og Hibs og má
þvi segja að IBK hafi tapaö
miljóninni sem Hibs bauö
þeim ef þeir viidu leika siðari
leikinn ytra.
Það sem Keflvikingar fá inn
i aögangseyri fyrir þennan
leik dugar vart til að standa
undir kostnaði og er ótrúlegt
að endarnir nái saman hjá
IBK að þessu sinni.
Gefið var vel fyrir markið og
Hjörtur Zakariasson kom á fullri
ferð og skallaði aö marki. Bjarg-
að var á linu að manni virtist en
dómarinn sem var mjög vel stað-
settur dæmdi mark og Skotarnir
mótmælti þvi ekki. Hafði sá sem
bjargaði staðiö fyrir innan linu.
Þar meö höfðu Keflvikingarnir
náð forustu og var það vonum
seinna, svo góðan leik sem þeir
höfðu sýnt.
Staðan i leikhléi var 1:0 IBK I
vil þrátt fyrir þaö að Skotarnir
gerðu örvæntingarfullar tilraunir
til að jafna á siðustu 10 minútum
f.h. Pressa þeirra var nokkuð
þung en IBK-vörnin með þá
Einar, Guöna og Ástráð sem
bestu menn gaf ekkert eftir.
Hinsvegar réöu Kefivikingarnir
ekki við skot fyrirliða Hibs,
Stantons á 62. minútu leiksins, en
hann jafnaði með föstu skoti af
nokkuö löngu færi. Dæmd var
óbein aukaspyrna á IBK rétt við
markteigshorn. Boltinn barst til
Stantons sem skoraði glæsilega
1:1.
Keflvikingar tóku aftur viö sér
eftirþetta jöfnunarmark.en þrátt
fyrir margar ágætar tilraunir
náðu þeir ekki forustunni aftur.
Besta tækifærið fékk Steinar eins
og áöur er lýst er hann spyrnti yf-
ir markið af örstuttu færi.
Síðustu minútur leiksins virtist
úthald Keflvikinganna vera þrot-
ið, enda aðstaða öll hin erfiðasta
til að leika knattsprynu. Þessar
lokaminútur sóttu Skotarnir
nokkuð stift en náðu þó aldrei að
skapa sér umtalsvert marktæki-
færi.
Þeir Guðni, Einar og Astráöur
báru af i IBK-liðinu eins og svo oft
áður. Þá áttu þeir Gisli Torfason,
Hjörtur Zakariasson, Ólafur
Júliusson og Þorsteinn Ólafsson
markvöröur góöan leik. Nokkrum
sinnum varði Þorsteinn
meistaralega.
Vinstri útherjinn Duncan var
greinilega besti leikmaður Skot-
anna, leikinn og fljótur. Hann var
sá er hættulegastur reyndir IBK-
vörninni.
— S.dór.
Þorsteinn Ólafsson stóö i ströngu og varöi oft mjög vel. Hér bjargar hann meö úthlaupi
Norðmennirnir unnu
upp 2ja marka for-
skot á þremur mín.
Þegar aðeins 3 mínútur
voru tii leiksloka í síðari
landsleik Islendinga og
Norðmanna i Moss í gær-
kvöldi var staðan 13:11 is-
lendingum í vil, en á
þessum 3 mínútum sem
eftir voru tókst Norðmönn-
um með dyggri aðstoð
sænskra heimadómara að
vinna þetta forskot upp og
jafna 13:13 sem urðu
lokatölur leiksins. Þetta er
5ti jafnteflisleikur Islands
og Noregs í handknattleik í
aðeins 14 leikjum. Segja
má að þessi úrslit komi
þægilega á óvart eftir
ófarirnarsem íslenska liðið
varð að þola i fyrri leikn-
um. Maður átti sannarlega
ekki von á því að það næði
jafntefli hvað þá að svo
litlu munaði að sigur
ynnist.
öll áhersla var lögö á það hjá
Norömönnum að gæta Axels
Axelssonar og var hann lengi vel
alveg tekinn úr umferð. Viö þaö
losnaði um Jón Hjaltalin sem
skoraöi 2 dýrmæt mörk i siðari
hálfleik.
Þá var vörn islenska liðsins
betri að þessu sinni en i fyrri
leiknum og munaði þar mest um
að Norömenn komust aldrei inn i
hægra horninu eins og svo oft i
fyrri leiknum. Fyrir þann leka
var sett rækil. Þá varði Gunnar
Einarsson mjög vel, einkum i
fyrri hálfleik, en hann stóö i
markinu allan leikinn.
Leikurinn var mjög harður og
jafn i fyrri hálfleik og fengu 2
leikmenn einn islenskur og einn
Framhald á bls. 15.
Léku plástraðir
í bak og fyrir
Litlu munaði aö leikur
Islendinga og Norðmanna i
gærkvöldi færi ekki fram.
Þannig er mál með vexti að
islenska landsliðið leikur með
auglýsingu frá Flugfélagi
Islands i bak og fyrir.
Norðmenn voru búnir að
semja við norska sjónvarpið
um að sjónvarpa beint frá
leiknum og neitaði sjónvarpiö
aö sýna leikinn nema
tslendingarnir fjarlægöu aug-
lýsinguna. Leikmennirnir
neituðu að leika i öðrum
peysum og stóö allt fast ör-
fáum minútum áður en leikur-
inn átti aö hefjast.
Svo langt var málið komið
að alþjóöahandknattleikssam-
bandið var komið i málið.
Loks var sæst á það að lima
plástur yfir auglýsinguna, en
Iceland mátti standa. Þannig
léku islensku leikmennirnir
plástraðir i bak og fyrir. Hætt
er er þó við að einn og einn
plástur hafi runnið af og FI
fengiðmun betri auglýsingu út
úr öllu saman, en annars heföi
veriö.