Þjóðviljinn - 04.10.1973, Side 13
11.
BOÐORÐIÐ
verið lagður á sjúkrahús með
heilahristing i nótt, eftir að hann
hafði orðið fyrir árás á hótelher-
bergi sinu og veskinu stolið af
honum.
— Ekki veskinu. Peningunum.
— Nú þannig, sagði ég og
gladdist með sjálfum mér yfir
skekkjunni sem hefði getað boriö
sakleysi minu vitni. — En hvernig
vildi þetta eiginlega til?
— Við gátum aðeins lagt fyrir
hann nokkrar spurningar. Hann
segist hafa setið á veitingastof-
unni til klukkan liðlega ellefu. Þá
voru engir gestir eftir þar. Hann
fór beint af veitingastofunni og
upp i herbergi sitt á annarri hæð,
og þegar hann kom inn var ráðist
á hann og hann sleginn i rot og
hann segist ekki geta lýst mann-
inum.
— Jæja, sagði ég og endurtók
það vist meðan ég velti vöngum
yfir frásögn hans. Hann sat
rólegur og horfði á mig óræðu
augnaráði. Mér fannst allt i einu
sem hann væri að biða eftir ein-
hverju, og eftir hverju biður
rannsóknarlögregluþjónn nema
játningum. Hann gat svo sem
fengið eina undir eins. Ég sagði:
— Ég verð að viðurkenna að
mér létti.
— Hvernig þá?
— Jú, sagði ég með brosi, sem
hafði ekki meiri áhrif á hann en
herforingjaráðskortið sem hékk á
veggnum bakvið hann. — Ef ég
hefði gert honum þetta, þá hefði
hann svo sannarlega getað gefið
lýsingu á mér.
— Það er ekki vist, sagði
Jessen.
- Nú?
— Vegna þess að árásar-
maðurinn hafði dregið nælonsokk
niður fyrir andlitið.
— Það er bara svona, sagði ég
og heyrði að ég gaf frá mér vand-
Brúðkaup
Sunnudaginn 17. júni voru gefin
saman i Langholtskirkju,af séra
Siguröi Hauki Guðjónssyni, ung-
frú Sigriður Sigurðardóttir og hr.
Ingvar Björnsson. Heimili þeirra
verður að Vitastig 12, R,
(Ljósmyndastofa Þóris.)
ræðahijóð, eins konar aðdrag-
anda að héralegum hlátri. — Við
erum svei mér að verða með á
nótunum hér úti á lands-
byggðinni.
Jessen virtist ekki kunna að
meta þetta klaufalega spaug
mitt. Það gerði ég ekki heldur,
þetta hrökk bara út úr mér. Ég
varð að gæta min.
— En hvað sem þvi liður, sagði
Jessen, —■ þá áleit Alex Petersen
að maðurinn hefði verið lægri og
grennri en þér.
Ég lét mér nægja að kinka kolli
og umla eitthvað til samþykkis.
— Og þér voruð heima allt
kvöldið, er ekki svo?
— Jú, eins og ég sagði lögreglu-
þjóninum, þá sat ég heima ásamt
Mark, aðstoðarmanni minum.
— Og konan hans afgreiddi á
veitingastofu hótelsins i gær-
kvöldi?
— Já, sagði ég. — En segið
mér, hafði Alex ekki læst her-
berginu?
— Jú, og hann opnaði með lykli
þegar hann kom til baka og þá
var maðurinn inni.
— En hvernig — ?
— Það vitum við ekki enn,
sagði Jessen. — En ef til vill getið
þér frætt mig um dálitið annað.
Hér hefði heiðvirður borgari átt
að svara: — Ef ég get hjálpað
ypur á nokkurn hátt...
En svo heiðvirður bar ég þó
ekki orðinn, þrátt fyrir öll árin
sem liöin voru, að ég gæti tekið
mér þau orð i munn án þess að
eiga á hættu að fá munnherkjur.
Og þvi þagði ég og lét hann um að
tala. Hann sagði:
— Við vorum vist að ræða um
það, að þér hafið þekkt Alex
Petersen frá unga aldri.
— Ég hef þekkt hann, já, en það
voru löng timabil i milli sem við
vissum ekkert hvor um annan.
Við vorum sem sé saman á Börs-
mosegaard þar sem við vorum
báðir að læra trésmiði.
— En hvorugur ykkar lauk við
námstimann þar?
— Nei, sagði ég. — Aðeins tvö
ár. Svo fór það eins og þér getið
trúlega séð þarna.
Ég kinkaði kolli i átt að skýrsl-
unni á skrifborði hans og hann
sagði: — I þessu felst vist að þið
hafið verið saman um þessi strok
af heimilinu ásamt siðari inn-
brotum og fleiru?
— Já, sagði ég. — Eða réttara
sagt ekki þvi sem þér kallið og
fleiru. Ég var einn um að vera
tekinn fyrir nauðgunartilraun og
lika einn um áflogin við lögreglu-
þjóninn i þvi sambandi.
— Ég sé hér að stúlkan tók
kæruna aftur seinna.
— Hún gerði það reyndar
næstum strax. Og ég var þvi
aðeins dæmdur fyrir ofbeldi gegn
lögregluþjóninum sem fékk
sprungna vör. Það stendur vist
ekkert um tilefnið, eða hvað?
— Tilefnið? spurði rannsóknar1
lögreglumaðurinn.
—Já, að hann kom inn i klefann
til min og lúbarði mig, sennilega
vegna þess að ég snerist til
varnar við handtökuna með þvi
að sparka i fæturna á honum og
reka hnéð i kviðinn á honum...
Nei, það er rétt, það er aldrei
tekið mark á slikum upp-
lýsingum.
Jessen sagði ekkert. Hann lét
mig um að tala.
— En látum það liggja milli
hluta, sagði ég. — Ég lenti i ung-
lingafangelsi fyrir þetta.
Jessen kinkaði kolli: — Þar
lukuð þér við námstímann?
Maðurinn talaði bókstaflega
eins og lögregluskýrsla!
— Það var að öllu leyti lær-
dómsrikur timi, sagði ég.
— En seinna tókuð þér próf
sem byggingarfræðingur, sagði
hann og það var engu likara en
raddheimur hans breyttist, ef til
vill af undrun yfir þvi að ég skyldi
gagnstætt öllum vonum hafa
tekið mig á, losnað úr sjálfheld-
unni og orðið virðulegur borgari
að þvi er best var vitað. Siðan
kom reyndar málið, þar sem ekki
reyndist ástæða til að bera fram
ákæru gegn mér, heldur miklu
fremur samhryggjast mér fyrir
það ólán sem ég hafði orðið fyrir.
Aðeins það mál. Og nú var
komið að þvi. Jessen sagði:
— Hvernig vildi það til að þér
hittuð Alex Petersen aftur?
— Við lentum af tilviljun á
sama vinnustað i Kaupmanna-
höfn og nokrru seinna stofnuðum
við byggingafyrirtæki i nánd við
Slagelse. Við rákum það i um þaö
bil þrjú ár — eða voru það fjögur?
Ég man það varla. Siðan fór það
eins og ér vitið áreiðanlega.
— Já, sagði Jessen og sat þegj-
andi stundarkorn. Svo tók hann
upp sigarettupakka og baúð mér.
Ég þáði sigarettuna. Hann kveikti
i henni fyrir mig og virti fyrir sér
útsýnið úr glugganum sem
samanstóð af flisaþökum og skor-
steinum og sagði:
— Við þurfum vist ekki að fara
nánar út i það.Ég get vel skilið að
það veki.. hm, ónot hjá yður að
rifja það upp.
Sjálfsagt var þetta vænsti
maður. Það eru flestir lögreglu-
þjónar, þótt starf þeirra hafi það i
för með sér að erfitt getur verið
að koma auga á það. Einkum ef
maður hefur spegilbrot af gam-
alli andúð i auganu eins og ég.
— Og svo hættuð þið sam-
starfinu? sagði hann.
— Já, sagði ég. Þetta þurfti að
segja og það var betra að ég segði
það en hann: — Við leystum upp
fyrirtækið skömmu eftir að ég
kom heim til min einn góðan
veðurdag og kom að konunni
minni myrtri.
— Já, sagði hann.
— Einhver hafði kyrkt hana,
sagði ég, likt og ég vildi hafa allt
sem nákvæmast. Rödd min virtist
gróf og hrjúf, næstum ónotuð. En
•það voru lika mörg ár liðin siðan
ég hafði notað hana til að segja
þetta sem ég hafði nýlokið við að
segja.
— Það upplýstist ekki hver
verknaðinn hafði framið, sagði
Jessen með sömu hljómlausu
röddinni. Eiginlega var ér fegin
hve hljómlaus hún var og ó-
persónuleg, en sjálfur var ég eins
og dasaður af eins konar létti yfir
þvi að hafa orðað það sem ég lúrði
ævinlega á. Jafnvel rödd min
virtist dösuð þegar ég sagði
— Hann skildi alls engin merki
eftir sig. Það var eins og hann
hefði orðið til úr engu og horfið
sömu leið.
Jessen kinkaði kolli og leyfði
mér að vera i friði smástund
meðan hann horfði enn út um
gluggann. Svo spurði hann:
— Og leystuð þér sfðan fyrir-
tækið upp?
— Já, ég vildi komast burt frá
staðnum. Ég kom hingað að
vesturströndinni og vann fyrst i
tvö á á teiknistofu og fyrir svo
sem fimm árum tók ég svo við
timburversluninni i Strandhuse.
— Hafið þér haft nokkurt sam-
band við Alex Petersen, siðan þið
skilduð?
— Alls ekkert. Þá fór hann til
Kaupmannahafnar og við vissum
ekkert hvor um annan. Ekki fyrr
en i fyrradag, þegar hann birtist
ailt i einu.
— Hann hefur komið i við-
skiptaerindum?
— Já, hann vinnur nú hjá fyrir-
tæki i Árósum sem fæst einkum
við aö byggja sumarbústaði... en
það vitið þér að sjálfsögðu. Hann
lagði fram stóra pöntun i
sambandi við fjörutiu sumarbú-
staði sem fyrirtækið vill reisa i
nánd við Strandhuse. Það er um
það að ræða að steypa grunna og
leggja til ýmiss konar efni.
— Og þetta er stór pöntun?
sagöi Jessen.
— Hún er býsna stór fyrir þetta
litla fyrirtæki mitt.
— Og þér tókuð tilboðinu?
— Já, það gerði ég.
Meðan á samtalinu stóð hafði
hann haldið kúlupennanum
rétt ofan við blokkina fyrir fram-
an sig og stöku sinnum skrifað
fáein orð. En annars rykkti hann
honum til og frá án þess að gera
meö honum bókstafi eða riss-
myndir eða fígúruverk. Þegar
hann spurði mig nánar um tilboð-
iö, sem Alex hafði gert mér, var
eins og penninn fengi þýðingar-
meira hlutverki að gegna. Mér
Litla gula
hœnan sagði:
Við vitum að framkvæmdastjóri
NATó og önnur rlki þar,...
Morgunblaðið 3. október 1973.
Fimmtudagur 4. október 1973 HJóÐVlLJlNtV j- StÐA 13
Fimmtudagur 4. október
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00 8.15 og 10.10
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00 Morgunbæn kl. 7.45.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Guðni Kolbeinsson les
fyrsta hluta sögunnar
„Nafnlausu eyjunnar” eftir
Ingólf Jónsson frá Prests-
bakka. Tilkynningar kl.
9.30. Létt lög á milli liða.
Morgunpopp kl. 10.25:
Carole King syngur. Fréttir
kl. 11.00 llljómplötusafnið
(endurt. þáttur G.G.)
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00. A frivaktinni Margret
Guðmundsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.30 Siðdegissagan: „Hin
gullna framtíð” eftir Þor-
stein Stefánsson Kristmann
Guðmundsson les (10).
15.00 Miðdegistónleikar:
Gömul tónlist Kammersveit
Bath-hatiðanna leikur Svitu
nr. 4 i D-dúr eftir Bach:
Yehudi Menuhin stj.
Manfred Kautzky og
Kammersveitin i Vin leika
óbókonsert i G-dúr eftir
Karl Ditters von Ditters-
dorf: Carlo Zecchi stj.
Alexandre Lagoya og
Andrew Dawes leika Kon-
sertsónötu fyrir gitar og
fiölu eftir Paganini. Virtuosi
di Roma leika Konsert i a-
moll eftir Vivaldi/Bach:
Renato Fasani stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Popphornið
17.05 Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
18.30 Fréttir.
18.45 Veðurfregnir.
18.55 Tilkynningar.
19.00 Veðurspá. Daglegt mál
Helgi J. Halldórsson
cand.mag. flytur þáttinn.
19.10 Landslag og leiðir: t
Ógöngum Erindi eftir dr.
Harald Matthiasson. Ólafur
Haraldsson fiytur.
19.35 Gestur i útvarpssal:
Vera Lengyel frá Banda-
' ríkjunum leikur á pfanó
verk eftir Karl Philipp
Emanuel Bach, Johannes
Brahms, Menaham Avidom
og Ben-Haim.
20.05 Leikrit': „Það er tómt
mál að tala um það” eftir
Don Haworth Þýðandi:
Torfey Steinsdóttir.
Leikstjóri: Gisii Halldórs-
son, Persónur og leikendur:
Georg, Hjalti Rögnvalds-
son., Fred, Þorsteinn
Gunnarsson., Smith, Arni
Tryggvason., Jones
Erlingur Gislason., Harris,
Baldvin Halldórsson.,
Crocker, Hákon Waage.,
Aðrir leikendur: Sigriður
Hagalin, Margrét ólafs-
dóttir, Rúrik Haraldsson og
Harald G. Haralds.
20.55 „Lif og ástir kvcnna”,
lagaflokkur eftir Koberl
Schumann Christa Ludwig
syngur. Gerald Moore
leikur á pianó.
21.20 Ljrttaþýðingar eftir
Yng\„ .. oliannesson Herdis
Þorvaldsdóttir leikkona les.
21.35 Ungverskir dansar eftir
Johannes Brahms Sinfóniu-
hljómsveit ungverska út-
varpsins leikur, György
Lehel stj.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Eyjapistill
22.35 Manstu eftir þessu? Tón-
listarþáttur i umsjá Guð-
mundar Jónssonar pianó-
leikara.
23.20 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
ARISTO
léttir námið
MeS aukinni stærðfræðikennslu og vaxandi
kröfum nútíma tækniþjóðfélags er sérhverjum
námsmanni nauðsyniegt að vera búinn full-
komnum hjálpargögnum við námið.
Aristo reiknistokkurinn er gerður fyrir náms-
fólk með kröfur skólanna í huga.
Aristo reiknistokkur á heima í hverri skóla-
tösku.
PENNAVIÐGERÐIN
Ingólfsstræti 2. Sími 13271.
Auglýsingasiminn er 17500
UOBVIUINN