Þjóðviljinn - 06.10.1973, Side 11

Þjóðviljinn - 06.10.1973, Side 11
Laugardagur 6. október 1973. ÞJóÐVILJJNN — SÍÐA 11 Valsmenn fengu skell Töpuðu með átta marka mun fyrir Gummersbach í síðari leiknum Valsmenn fengu sama skell og svo mörg önnur handknattleikslið sem þurft hafa að mæta Gummersbach á heimavelli þeirra i Dortmund i Þýskalandi, og töpuðu þeir siðari leiknum 8:16 eða með 8 marka mun alveg eins og norsku ineistararn- ir Oppsal i fyrra. Þaðgekkallt á móti Valsmönnum i siðari hálfleik eftir að staðan var 8:6 Guriimersbach i vil i leikhléi. Þeir áttu 5 stangarskot, og tvö víta- köst mistókust hjá þeim i leiknum. Og Þjóðverjarn- ir skoruðu flest sin mörk úr hraðaupphlaupum i síð- ari hálfleiknum. Sjálfsagt landsliðsmenn Vals allir langt frá sinu besta,enda voru þeir nýkomnir úr tveim erfiðum landsleikjum við Norðmenn, þannig að þeir hafa leikið 3 leiki á aðeins 5 dögum og slikt er fljótt að segja til sin i jafn erfiðum leik og þess- um. En samt sem áður er þessi sigur Gummers- bach stærri en maður átti von á fyrirfram. Tveggja til fjögurra marka riiunur var það sem maður átti von á, en ekki átta marka. Þar með eru Valsmenn úr leik i EB að sinni. Valsmenn byrjuöu leikinn mjög vel, og það var fyrirliði þeirra Gunnsteinn Skúlason sem skoraði fyrsta markið strax á 2. minútu. Þjóðverjarnir jöfnuðu, en Bergur kom Val aftur yfir 2:1. Og enn var Bergur að verki stuttu siðar og skoraði 3ja mark Vals, staðan 3:2. Enn jafnaði Gummersbach, Framhald á bls. 15. hér á Hafa islenskir knattspyrnu- áhugamenn séð til þess með tómlæti sinu að siðasti leikur islensks iiðs I Evrópubikar- keppnihafifariðhér fram? Og á ég þá við leik tBK og Hibernian i fyrradag. Þaö eru þvi miöur allar likur á aö svo sé. Einn af forráöamönnum Vestmannaeyinga sagði eftir ieik ÍBV og Borussia Mönchengladbach á dögunum: — Þetta gerum við aldrei aftur — , og átti hann þar við að þeir Eyjamenn myndu ekki oftar reyna að leika heimaleikinn hér á landi, enda höfðu aöeins 2700 manns séö ástæðu til að koma á völlinn og sjá leikinn og tBV fór með bullandi tapi frá öllu saman. Einn af forráöamönnum Keflvikinga sagði við undir- ritaðan daginn sem leikur tBK og Hibernian fór fram, að hann héldi að þetta yrði siöasti EB-leikurinn sem fram færi hér á landi. Hann sagði, að þeir Keflvikingar hefðu alla tið lagt metnað sinn i að ieika heimaleik sinn hér á landi til að launa aðdáendum liösins dyggan stuðning viö það og eins til að gefa islenskum knattspyrnuaðdáendum kost á að sjá bestu erlend lið leika hér á landi. En þegar ekki er hægtaðfánema rúmlega 3000 manns til að koma á völlinn þcgar boðið er upp á lið eins og Real Madrid og Hibernian, þá er greinilega ekki lengur grundvöllur fyrir aö leika Síðasti EB leikurinn landi? heimaleikinn hér á landi. Þvi er hætt við að i framtiiinni muni öil islensku liðin sem taka þátt i EB eöa UEFA- keppninni leika báða leikina ytra. Þau liö, sem hafa gert þetta á undanförnum árum, hafa verið harðlega gagnrýnd og manni fannst það réttmætt. En þegar viöleitni liða, sem leggja metnaö sinn I að leika heimaleikinn hér á landi, er algerlega fótum troðin af áhorfendum þá mun slik gagnrýni sjálfsagt aldrei heyrast oftar. Það getur enginn ætlast til að félögin tapi hundruðum þúsunda bara til að þóknast tvö til þrjú þúsund áhorfendum þegar þarf uppundir 10 þúsund manns á leikinn til að endar nái saman. Hitt er svo annað mál hvort Islensku liðin eiga nokkurt erindi i EB yfirleitt. En tBK- liðið er það sterkt að það virðist fullkomlega eiga erindi i þessa keppni, enda hefur það sýnt sig nú. Aö tapa fyrir besta lliði Skotlands með aðeins 3:1 samanlagt segir allt sem segja þarf. En þegar lið cru farin að tapa með 10 til 15 marka mun sjá allir að þau eiga alls ekkert erindi i keppnina. Slik flenging sem ÍBV fékk I keppninni við Mönchenglad- bach, 16:1 samtals, er ekki til annars fallin en að niðurlægja islenska knattspyrnu úti i heiini og má Ifkja þessum úrslitum við áfalliö 14:2 á sinum tima. S.dór. Agúst ögmundsson átti ágætan leik og fiskaði m.a. vftakast. Afmælisleikur til heiðurs Albert 1 dag fer fram á Melavellinum leikur milli U-landsliðsins og Faxaflóaúrvalsins fræga og er þetta afmælisleikur til heiöurs Albert Guðmundssyni sem varö fimmtugur i fyrradag. Leikurinn hefst kl. 14. Liðin sem leika I dag verða þannig skipuð: Faxaflói: Sverrir Hafsteinsson KR Grimur Sæmundsen Val Þorvarður Höskuldsson KR Guðmundur Ingvason Stjarnan Björn Guðmundsson Viking Ottó Guðmundsson KR Gunnar örn Kristjánsson Viking Gisli Torfason I.B.K. Hörður Jóhannesson l.A. Stefán Halldórsson Víkingi Asgeir Ölafsson Fylki Varamenn: Axel Magnússon Haukum Lúðvik Gunnarsson I.B.K, Gisli Antonsson Þrótti Leifur Helgason F.H, Logi ólafsson F.H. Unglingalandsliðið: Ólafur Magnússon Val Guðjón Þórðarson t.A. Guðjón Hilmarsson K.R. Janus Guðlaugsson F.H. Arni Valgeirsson Þrótti Gunnlaugur Þór Kristfinnsson Vikingi Guömundur Arason Vikingi Hannes Lárusson Val Óskar Tómasson Vikingi Kristinn Björnsson Val Arni Sveinsson I.A. Skiptimenn: Guömundur Hallsteinsson Fram Hálfdán Örlygsson K.R. Ragnar Gislason Vikingi Jóhannes V. Bjarnason Þrótti Árni Guðmundsson K.R. Hafþór Kristjánsson Vikingi. Tveir leikmenn Faxaflóaliðsins frá 1971 eru enn á unglingalands- liösaldri og i Unglingalandsliðinu, þeir Janus Guðlaugsson bak- vörður og ólafur Magnússon markvörður, 1 stað þeirra leika með Faxaliðinu Axel Magnússon Haukum, Logi Ólafsson, F.H. og Leifur Helgason F.H., en allir þessir piltar æfðu með Faxaflóa- úrvalinu, og Logi og Leifur léku með unglingalandsliðinu á ltaliu i KEFLAVÍK — HIBERNIAN á Laugardaisvetlinum í dag kl. 5,15. SALA AÐGÖNGUMIÐA: ~J f Reykjavík, viö Útvegsbankann tii ki. 4 og í Laugardai frá kl. 1, i Kefiavík, í versluninni Sportvík ...... * mennina? Tekst Keflvíkingum aö sigra atvinnu- ÍBK. ÍBK-Hibernian Umsjón Sigurdór Sigurdórsson

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.