Þjóðviljinn - 27.10.1973, Side 1

Þjóðviljinn - 27.10.1973, Side 1
 Unnið við breikkun Skúlagötunnar með uppfyllingu í sjó fram. Myndina tók AK f gær Aukning magns í framleiðslu •X x§ íonaoi annað hvort kyrrstaða eða nokkur framleiðsluaukning, en hvergi var um verulegan sam- drátt aö ræða i framleiðslunni. Auk Ftl stendur Landssam- band iðnaðarmanna að ,,hag- sveifluvog iðnaðarins.” Á 2. ársfjórðungi þessa árs jókst framleiðslumagn í iðnaðinum um 10-12% miðað við sama árs- fjórðung í fyrra. Kemur þetta í Ijós á svonefndri „hagsveifluvog iðnaðar- ins" sem Félag ísl. iðnrek- enda lét gera á grundvelli ákveðinna spurningalista um afkomu fyrirtækja. Starfsmannafjöldi stóð nokkurn veginn i stað i iðnaðinum á milli samanburðartimabilanna og er ekki fyrirsjáanleg aukning segir i fréttatilkynningu frá FII. Um helmingur þeirra fyrir- tækja sem svöruðu spurn- ingunum hefur á prjónunum fjár- festingu á árinu. Framleiösluaukning var einkum i brauða- og kökugerð og kexgerð. Veruleg aukning varð á framleiðslu i sútun, ullariðnaði og húsgagnagerð. 1 öllum þessum greinum varð þó söluaukningin minni en framleiðsluaukningin þannig að birgðir fóru vaxandi. 1 flestum öðrum iðngreinum varð í DAG Viliuskam mlur Flosa af matarkúr Aðalfundur flokksfélagsins í Reykjavík: Sigurður Magnússon kosinn formaður Sigurður Magnússon, var kjörinn einróma til þess að vera formaður Alþýöu- bandalagsins í Reykjavik á aðalfundi félagsins i fyrra- kvöld. Aðrir í stjórn voru kosnir, sem hér segir: Aðalmenn: Álfheiður Inga- dóttir, Erlingur Viggósson, Gisli Þ. Sigurðsson, Guðmundur Ágústsson, Guðmundur Bjarn- leifsson, Gunnar Eydal, Óttar Proppé, Tryggvi bór Aðal- steinsson. Sýning Ásmundar Yfirlitssýningin á verkum As- mundar Sveinssonar sem nú stendur yfir, er haldin i Listasafni rikisins, en ekki i húsakynnum listamannsins sjálfs við Sigtún eins og misritaðist i blaðinu i gær. Varamenn: Erla E. Ársæls- dóttir, Sigurður Hlöðversson, Kristin Þorsteinsdóttir, Jón Hannesson, Jóhannes Harðarson. Þá var á fundinum kosinn 30 manna hópur og varamenn á flokksráðsfundinn um aðra helgi. Verður listi yfir fulltrúa flokks- félagsins i Rvik á flokksráðsfund birtur i blaðinu á morgun. Hver vinnur fyrir hverjum? — sjá bls. © Frekki nóg að mynd sé © mynd? — Viðtal við Sverri Haraldsson © Y erkamannasambandsþing: Fulltrúar 17 þúsunda Þing Verkamannasambands islands verður sett i Lindarbæ niðri klukkan 2 eftir hádegi I dag. Um 90 fulltrúar 40 verka- mannaféiaga eiga seturétt á fundinum, og vitað er um að yfir 80 fulltrúar munu sækja þingið. Nær 80% félagsmanna innan verkamannafélaga sem rétt eiga til þátttöku i Verkamannasam- bandinu eru innan vébanda þess. Að sögn Þóris Danielssonar, framkvæmdastjóra Verka- mannasambandsins veröur dag- skráin með þeim hætti að fyrst eru venjulegir og fastir liðir slikra þinga, svo sem setningar- ræða, álit kjörbréfanefndar, upptaka nýrra félaga, skýrsla stjórnar og reikningar. Aðalmál þingsins verður að sjálfsögðu kjaramál. Formaður Verkamannasam- bandsins er Eðvarð Sigurðsson formaður Dagsbrúnar. Heildar- tala félaga innan sambandsins er um!7þúsund. —úþ Kröfur Dags- brúnar Verkamannafélagið Dagsbrún hefur nú gengið frá kröfugerð sinni á hendur atvinnu- rekendum að þessu sinni varðandi alla almenna taxta félagsins. Varð full samstaða um þetta á félagsfundi Dagsbrúnar sem haldinn var á miö- vikudagskvöld. Kröfur Dagsbrúnar eru i tvennu lagi. Annars vegar eru þær kröl'ur sem ákveðnar voru á kjaramálaráðstefnu Alþýðusambandsins fyrir hálfum mánuði, hins vegar eru kröfur félagsins um breyt- ingar á kauptöxtum i öðrum atriðum. Er þar fyrst og fremst um að ræða breytingar á röðum starfa i taxtaflokka, þá um starfsaldurshækkanir o.fl. Að félagsfundinum voru samþykktar þær breytingar á töxtum lélagsins sem stjórn og trúnaðarmannaráð hafði gert tillögur um. Eftir er að gera kröfur um breytingar á sérsamningum félagsins við atvinnurekendur. — Nánar verður hér i blaðinu gert grein fyrir kröfum Dagsbrunar um laxtabreytingar þegar samningamenn félagsins hafa lormlega lagt þær l'ram fyrir viðsemjendur þess. Kröfur Dagsbrúnar, eins og nú hefur verið gengið frá þeim, verða meðal þeirra mála sem kynnt verða og rædd á þingi Verkamanna- sambandsins um helgina. ASÍ rœðir við BSRB Á fundi sinum i fyrrakvöld samþykkti samninganefnd Alþýðusambands tslands ein- róma að fela sjö manna fram- kvæmdanefndinni að ræða við samninganefnd BSRB, hvort um samstöðu gæti orðið að ræða og þá með hvaða hætti. Eins og skýrt var frá i Þjóð- viljanum i gær óskaði BSRB eftir samstarfi við ASl um gerð kjarasamninga. Er þess þvi að vænta að full- trúar samninganefnda ASI og BSRB eigi viðræður næstu daga, en BSRB hafði ekki fengið formlegt svar frá ASI i gr. — vh Hljóp fyrir bifreið I fyrrakvöld varð það slys uppi Gufunesi að 6 ára drengursem sem var að koma útúr skólabíhljóp út á götuna fyrir aftan bilinn og lenti framan á bifreið sem kom úr gagnstæðri átt. Drengurinn fékk mikið höfuðhögg og liggur enn á Borgarsjúkrahúsinu en mun þó ekki vera i lifshættu. — S.dór.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.