Þjóðviljinn - 27.10.1973, Síða 7

Þjóðviljinn - 27.10.1973, Síða 7
Laugardagur 27. október 1973 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 7 Sakleysiö og pólitíkin — Rifbjerg, eða allt er betra en íhaldið — Sérstaða Wolfs Biermanns — Að yrkja frá vinstri hlið fyrir austan KLAUS RIFBJERG, ham- hleypa hin mesta i rithöfundastétt og þúsund þjala smiður, hefur bætt við enn einni skáldsögu. Sem fyrr fær hann hrós fyrir kunnáttu sina i þvi að leggja fram efni sem festir við sig forvitni áhorfenda, vinna úr þvi á æsilengan hátt án þess að falla i reyfarasyndir. Sagan heitir „Ahugamenn” og gerist á Spáni, en þangað hefur Rifbjerg leitað áður að vettvangi fyrir sögur sinar. Aðalpersónan er John nokkur Bandler, pró- fessor i lifefnafræði, sem hefur fundið ýmsar leiðir til að stjórna heilabúinu með efnafræðilegum aðferðum. Að launum fyrir þessar tilraunir (sem að sjálf- sögðu voru gerðar á dýrum) fær hann ársleyfi á Spáni, og nýtur lífsinsvel. („Hugsa sér, hve mað- ur getur verið frjáls i einræðis- landi.”) Hann grunar að tilraunir hans geti haft skuggalegar afleið- ingar, en hann ýtir þeim grun- semdum jafnharðan frá sér. Hann er að fást við hin hreinu og ósingjörnu visindi og þar með búið. En mitt i þessu pólitiska sak- leysi taka að gerast skuggalegir atburðir. Pólitiskur bófaflokkur, sem vill komast yfir formúlur Bandlers, rænir konu hans og vinkonu og heldur þeim sem gislum. Þessi flokkur er fasiskur og vill nota visindin til að tryggja sér völdin áfram eftir að Franco er dauður. Ein aðalhugmynd bókarinnar er semsagt sú að póli- tiskt „sakleysi” eða lausleg „áhugamennska” bjóði glæpum heim. En þar fyrir utan er Rif- bjerg sem fyrr úrræðagóður höf- undur sem kann á galdur hins óvænta og að lýsa upp fyrirbærin frá mismunandi sjónarhornum. RIFBJERG hefur nokkuð sýslað með flokkspólitik heima hjá sér. Hann segir i nýlegu viðtali við Information, að hann hafi haft mikla samúð með Vinstri sósialistum, sem klufu sig út úr Sósialiska alþýðuflokknum, SF, fyrir nokkrum árum. Þeir töluðuum praktiska vinstripólitik sem ekki var kreddubundin eins og hjá kommúnistum eða út- vötnuð og borgaraleg eins og hjá krötum, segir Rifbjerg. En nú eru þeir úr sögunni, klofnir i ótal smáhópa. Klofningurinn á vinstri armi danskra stjórnmála hefur orðið til þes að Rifbjerg hvetur menn nú til að styðja sósialdemó- krata. — Ég er, segir hann sjálfur, einskonar sósialiskur stjórnleysingi og dauðhræddur við allt áhrifavald. En það þarf að stjórna, og ég held að það sé skárra að þeir „gamaldags rauðu” sitji þar heldur en enginn, frekar en að Glistrup verði áhrifamaður á þingi og viðar og annað afturhald. Og einhverra hluta vegna hefur Rifbjerg ekki trú á danska SF. Aftur á móti fagnar hann mjög sigri Sósíaliska kosningabandalagsins i Noregi — og ef slik sameining ætti sér stað i Danmörku væri hann ekki i vafa um hvað hann ætti að gera. Rifbjerg ætlar sér sem sagt að hafa afskipti af flokkspólitik úr nokkurri fjarlægð og undir þvi gamla vigorði, að allt sé betra en ihaldið. Og kannski með þann leynda draum i vasanum að nær- vera brokkgengs rithöfundar geti hresst nokkuð upp á hið pólitiska handverk, sem að dómi Iiifbjergs hefur orðið fyrir mikilli gengis- fellingu á liðnum árum.” Það er eins og heljarmikil ryksuga hafi dregið út af þingi allar persónur sem hafa útlinur. persónuleika”, sagði hann. Það er eins og maður hafi heyrt þetta áður. SAMBÚÐ RITHöFUNDA við pólitik er mjög misjöfn eftir löndum, eins og að likum lætur. Fáir munu þó i þverstæöufyllri aðstöðu en ljóða og lagasmið- urinn Wolf Biermann, sem er búsettur i Austur-Þýskalandi, DDR. Bierman er pólitiskur visnasmiður og söngvari, sem játar marxisma og hefur reist auðvaldinu og heimsvaldastefnu marga niðstöng. Hann kaus sjálfur að flytja til DDR. 1953. Foreldrar hans höfðu bæði verið kommúnistar og faðir hans lét lifiö i fangabúðum Hitlers. En fyrir austan mættu honum mörg þau fyrirbæri, sem honum þóttu viðs fjarri sósialisma. Og að sjálfsögðu orti hann um þau. Afleiðingin var sú að siðan 1965 hafa verk hans ekki komið út i DDR og honum hefur verið bannað að koma þar fram. Hafa meira að segja dýrmætir ungir kjarnorkufræðingar verið reknir úr stöðum sinum fyrir þá ósvinnu, að fá Biermann til að raula nokkur lög sin i þar til leigðum sal. Lifir Biermann nú á þeim plötum og textum sem út koma eftir hann i Vestur-Þýska- landi. En hann vill með engu móti flytja þangað og gerast þar kommúnískur áróðurssöngvari. Klaus Hifbjerg: llinu pólitlska handverki liefur farið mikið aftur hjá okkur. Wolf Kiermann: Meira að segja gömul ástarljóð min hafa verið tekin út úr safnritum. Hann telur að hlutverk sitt hljóti að vera fólgið i þvi að sitja i DDR og slást fyrir betri sósialisma. „Allt mitt hugsana- og til- finningaapparat er stillt inn á það, segir hann i nýlegu viðtali við Spiegel, að fjalla um þetta fyrsta þróunarstig eftir austur- þýsku byltinguna. Ég hef mestan part siðan ég komst til vits og ára lifað i þessu samfélagi, þar sem fyrsta skrefið og það mjög þýðingarmikið skref hefur verið stigið, en það er ekki það skref sem dugar." Biermann er ekki i hópi þeirra sem gagnrýna austur- evrópskan sósialisma frá sjónar- hóli borgaralegrar frjálshyggju eins og t.d. sovéski eðlisfræð- ingurinn Sakharof. Hann gagn- rýnir frá vinstri — og það er lik- lega þess vegna, sem hann er ekki eins mikið á ferð i vestrænum blöðum, og t.d. Sakharof. En um eitt eru þessir andstöðumenn i austri sammála: þeir hafa vantrú á þeirri bættu sambúð austurs og vesturs, er hefur verið á döfinni a.m.k. þar til striðið fyrir botni Miðjarðarhafs braust út. „Ég held, segir Biermann, að minnkandi spenna milli austurs og vesturs auki spennuna i vestri og austri.” Biermann hel'ur gaman al' að fjalla um þverstæðurnar i stöðu sinni. Einmitt bannið, sem ég hef verið settur i, gerir það að verkum, að ég er sá maður i Austur-Þýskalandi, sem síst er einangraður”. Til hans er stöð- ugur gestagangur fólks sem vill ra'ða málin og heyra hann taka lagið. Þótt plötur hans séu bannaðar eða komi ekki út, þá er fullt af segulbandslækjum meðal ungs fólks i landinu, — og til hvers ættu þau að vera nema að taka upp Biermann? Sem fyrr segir hefur Biermann ekki komið fram opinberlega í álta ár. Nema eitt kvöld á Heims- móti æskunnar, þá báru menn kennsl á hann á Alexanderplar/. og báðu hann að syngja. Það gerði hann i meira en tvær stundir og ra-ddi við samherja og andstæðinga. Hann byrjaði og endaði á ljóði sinu um Che Guevara, sem Ijóðanelnd heims- mólsins hafði hafnað. Og nú hefur hann samið nýjan söng um Chile. A.K. tók saman. Frægðarmenn og fjölmiðlar Watergatemálin þýkja að vonum engin sérstök meðmæli með bandarisku samfélagi. En þeir sem hafa vilja og nennu til að bera i bætifláka fyrir það, finna þó jafnan einn ijósan punkt. Það eru bandarisku fjöl- miðlarnir. Þeir eru sterkir segja menn. Þeirsparka Agnew úr varaforsetaembætti og Hvita húsið leikur allt á reiðiskjálfi fyrir skeytum þeirra. Þeir eru trygging bandarisks lýðræðis, hvað sem Nixon liður. Og vissu- lega er það rétt, að bandariskir fjölmiðlar hafa reynst mjög áhrifasterkir að undanförnu. En menn gleyma þvi, að þau áhrif eru tvibent. Blaðamaður einn, sem var i siðasta kosningaslag þar vestra staddur i fjáröflunarveislu með Nixon, tók eftir fróðlegu smá- atriði. Nixon hélt kortérsræðu i veislunni. Um leið og hann hóf mál sitt og myndavélar tóku að suða og blossa, gaut kona hans, Pat Nixon, upp á hann augum og setti upp sitt besta bros. Þannig sat hún allan timann meðan ræðan var flutt. Óhagganleg. Þau hjón ætluðu ekki að eiga neitt á hættu eða þá ráðgjafar þeirra. Engum ljós- myndara skyldi takast að ná mynd af eiginkonu forsetaefnis, þar sem hún horfði i aðra átt en til hans, fitlaði við úrið sitt eða skó sinn eða fremdi aðra slika óhæfu. Enginn skyldi sjá annað til hennar þessar fimmtán ræðuminútur en aðdáun og far- sæld i bliðu brosi og augnaráði sem fest var i 45 gráða stefnu upp til Hans Sjálfs. ÞESSI LITLA LKIKSYNING ein af hundruðum úr kosninga- slagnum, minnir einmitt ræki- lega á hið tvibenta hlutverk fjöl- miðla, sem áður var getið, tvi- bent gagnvart sannleika um menn og málefni. Fjölmiðlar geta afhjúpað hneyksli og gera það sumir hverjir, þeir geta knúið á um rannsókn slikra mála og verður stundum allvel ágengt. En þeir eru einnig not- aðir til að byggja upp helgi- sagnir, dýrðarljóma, skapa mönnum þaö álit, þau áhrif, sem þeir geta siðan notað til að fela á bakvið margvisleg myrkraverk. Bandarikjamenn tala um að „selja forseta” fólkinu og það er vitaskuld ekki nema réttnefni. Þegar unnið er að sigri fram- bjóðanda koma saman til þaul- skipulags hópstarfs djúpsálar- fræðingar, félagsfræðingar, kvikmy ndarar, leikstjórar, legrunarfræðingar, megrunar- fræðingar og fólk úr skyldum greinum og búa til mynd af frambjóðandanum, ekki vöruna sjálfa heldur mynd af henni, félagsleg tengsli fyrir hana, rétt eins og gerist á hinum almenna neyslumarkaði borgaralegs félags. Þetta er ekki aðeins gert með beinum auglýsinga- myndum og filmum, þótt margar séu, heldur ekki síst með þvi að skipuleggja nærveru frambjóðandans i fjöl- miðlunum. Plata fréttirnar ef svo mætti segja. Búa til tilefni, kenna rétt svör, skipuleggja réttar spurningar, búa til bakgrunn fyrir „fréttir” osfrv. Að ógleymdu brosinu, sem enginn getur án verið. (Útsend- arar Nixons þjörmuðu svo meö íllkynjuðum prakkaraskap að einum af sterkum hugsanlegum mótframbjóðendum hans, Muskie, i fyrra, að hann brast i grát fyrir framan sjónvarps- vélar. Þar með var Muskie auð- vitað úr leik.) Við allt þetta bætast siðan hin sefjandi áhrif þeirra miklu valda, sem sá fær sem kosinn er forseti i þessu auðuga riki sem á margar sprengjur og eldflaugar. ÞETTA MIKLA sjónarspil er til þess fallið, að menn gleyma þvi að þeir hafa fyrir framan sig mynd af stjórnmálamanni, frambjóðanda, forseta, en ekki manninn sjálfan. Umbúðir, vörumerkingu, skreytingu, en ekki innihaldið. Islenskur viðskiptafulltrúi brýndi það fyrir útvarpshlustendum á dög- unum, að það væri algengt á bandariskum markaði að umbúðir utan um vöru væru miklu dýrari en varan sjálf. Þetta á að sjálfsögðu mætavel við um vöruna Nixon. Þegar kosningatöfrar eru gleymdir. umbúðirnar hel'ur rignt niður i svaðið og pólitiskur gangster- ismi yfir og allt um kring Nixon orðinn deginum ljósari vegna klaufaskapar Watergatemanna sem „stela en kunna ekki að fela”, þá fara menn loks að spyrja að þvi, hver hann eigin- lega sé þessi Nixon. Bæði landar hans og þeir sem hugsa likt og bandariskur þögull meðal- borgari. Eins og fyrri daginn kemur það á daginn að kóng- urinn er allsber. Og i þeirri mynd er hann svosem ekki neitt. MKNN HKYNA án árangurs að rifja upp, hvaö varð um glæsileg fyrirheit Nixons í innanlandsmálum. Gerði hann nokkuð þaö sem mætti leysa vanda borganna, glæpi þeirra, dóp, fátækrahverfi og kynþátta- vandamál? Það fer ekki ýkja mikið fyrir þvi. Hann hefur eins og svo margir aðrir svokallaðir þjóðarleiðtogar reynt að fljóta á utanrikismálum, a vissum árangri i bættri sambúð stór- laugardags velda, sem er tengdur þvi fyrst og fremst, að hann hefur eignast ráðgjala greindan og kald- rifjaðan sérfræðing i valdahlut- föllum, Henry Kissinger. Þátt- taka i stórveldasamkomulagi, sem hefur ekki merkari tilgang en þann, að ekkert breytist i heiminum — það er allt og sumt sem rakið verður til Nixons Fjölmiðlasonar. Eftir stendur. þegar að er gáð, heldur litils- gildur smáborgari, fullur með þröngsyni, tvöfalt siðgæði og iordóma sinnar stéttar, út- blásinn af metnaði og öflugri pólitiskri maskinu lakasta hluta auðvaldsins. Og þegar vindur hefur verið úr honum skekinn er hann ósköp keimlikur smáharð- stjóra, sem út úr vandræðum hefur verið settur vfir heima- vistarskóla uppi i sveit. og kann ekki önnur ráð snjallari en reka þá nemendur. sem ekki lúffa iyrir honum skilmálalaust. Og Nixon er reyndar ekki einn i heiminum, þvi miður. Arni Bergniann

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.