Þjóðviljinn - 30.11.1973, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 30.11.1973, Blaðsíða 15
Föstudagur 30. nóvember 1973. | ÞJÓÐVILJINN—' SIÐA 15 Viö höfum áður minnst hér á það nýjasta í svif- f lugi, sem ryður sér mjög til rúms i Bandaríkjunum og víðar, en það eru litlar svifflugur sem menn gera sjálfir og svífa framaf brekkubrúnum, þar sem gott uppstreymi er. Myndirnar hér á síð- unni lýsa best byggingar- laginu, en í nýjasta hefti Time er sagtýtarlega frá þessari nýju íþrótt sem á mjög vaxandi vinsældum að fagna. Time segir m.a. frá tveimur mönnum, sem hentu sór fram af tindi 10.830 feta hás fjalls, San Jacinto i Palm Spring i Banda- rikjunum. Annar þeirra lýsti þessu svo: fcg þaut i átt að fjall- inu eftir stökkið, og gat ekkert gert. Svona átti þá ævi minni að ljúka. En skyndilega hætti óg að falla. Mér fannst ég allt i einu hafa fulla stjórn á svifflugunni og hélt svo áfram um hrið. Þá byrjaði fallið skynidlega á ný, og ég þaut enn i átt að fjallinu, en aftur bjargaði uppstreymið mér. Það var eins og vindurinn væri að ieika sér að okkur, og ég gat ekkert gert annað en hjala við sviffluguna: Svona, barnið gott, reyndu að hanga á lofti. Hann sagðist hafa röflað svona allan timann, og bjóst reyndar á hverri stundu við að vir slitnaði eða segl rifnaði, en hann komst niður heilu og höldnu — hafði meira að segja haft rænu á að taka nokkrar ljósmyndir þegar best lét. SVIFÐU SEGLUM ÞÖNDUM 6 eða 7 banaslys En það hafa ekki allir verið jafn heppnir. Skráð eru sex eða sjö banaslys, og margir hafa slasast meira eða minna, en það heldur ekki aftur af þessum ofurhugum. Það hafa meira að segja verið veitt verðlaun fyrir sögulegustu hrakningana og ó- höppin ilendingu Yfir 30 fram- leiðendur gera sér góðan mat úr þessu. og verðið á svifflugunum er frá 50 til 800 dollarar. Ekki þarf að skrá þessi farartæki. Þegar er hafin formleg keppni og er sá sigurvegari, sem lengst er á lofti og lendir nákvæmast á fyrirfram gefnum stöðum. Ekki eru allir þeir, sem stunda venjulegt svifflug, hressir yfir þessari samkeppni, enda eru ekki margir hentugir staðir fyrir svifflug og vill þá SÍÐAN UMSJÓN: SJ vera þröng á þingi þegar öllum tegunum sviffluga ægir saman. A litlu svifflugunum ná menn svifi með þvi að hlaupa fram af brún, eins og áður segir, en stundum láta menn bila eða mótorbáta draga sig á loft, en sú aðlerð er mun hættulegri. Fvrir þremur árum lokaðist bándarisk kona inni i saunabaði i 90 minútur er hurðarhandfang liafði brotnað, Þessi reynsla haföi þau áln if á konuna. sem er 17 ára og sjö barna móðir, að kynhvöt hennar varö svo sterk að hún för að veiða karhnenn i stórum slil. Vegna alls þessa befur hún farið i mái viö frain- leiðanda saunabaðsins og krefst ylir iniljón doliara i skaðabæt- ur. Salon Gahlin o — Þá sjaldan ég hitti naglann á böfuðiö lendir putti á milli.... Bisauir 5YKUH Conrect. m«eá»e leíundlr áéaflae leÓMndir. Hver þekkir verslunina? Þessi verslun var eitt sinn við I.augaveginn og húsið stendur þar ennþá litið breytt. Núver- andi eigandi er Nesco hf. Enn má'sjá ummerki i vegg hússins eftir þessi skrautlegu og lokkandi auglýsingaspjöld, en allra merkilegast er þó að fróð- ustu menn vita ekki hver hefur átt þessa verslun. Menn giska á að verslunin hefi verið mjög stutt i húsinu. Við erum búnir aö rýna i myndina með stækkunar- gleri og þykjumst sjá stafina AB á merkinu fyrir ofan orðin TE og KEKS. Nú biðjum við alla þá sem eitthvað kynnu að vita um þessa verslun að láta okkur vita, simleiðis eða með bréf- korni. Þetta er semsagt Lauga- vegur 10, sennilega fyrir 1914, en meira vitum við ekki. ALLIR VEGIR FÆRIR Á Yokohama SNJÓBÖRÐUM VÉLAVERK- STÆÐIÐ NEISTI SIGLUFIRÐI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.