Þjóðviljinn - 06.02.1974, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Miðvikudagur 6. febrúar 1974.
Meistarakeppní KSÍ
Valur-ÍBK
fyrsti
leikurinn
Tvö efstu liðin úr siðasta íslandsmóti, ÍBK og Valur, munu
opna meistarakeppni KSt sem hefst sennilega fyrstu helgina i mars.
Annars er búið að raða niður i mótið,og verður leikjaröð þessi:
ÍBK — Valur
Valur — Fram
Fram — iBK
ÍBK — Fram
Fram — Valur
Valur — ÍBK
Það fer þvi að styttast i að boltinn fari aö rúlla fyrir alvöru f knatt-
pyrnunni hjá okkur, en nú munu öll liðin byrjuð æfingar af fullum
krafti. Meistarakeppni KSl verður eins og undanfarin ár fyrsta mót
ársins i knattspyrnunni, en siðan rekur hvað annað, Litla bikar-
keppnin, Reykjavíkurmót og loks tslandsmótið.
tslandsmeistarar IBK eru byrjaðir æfingar af fulium krafti.
Enski þjálfarinn er kominn til ÍBK:
Æfingaprógrammiö
er 6 æfingar í viku
Breytingar
bikarglímu
Nokkrar breytingar hafa orðið
varðandi Bikarglimu tslands 1974
frá þvi fréttatilkynning Glimu-
sambandsins var birt. Akveðið
hefur verið, að Bikarglima
Islands 1974 fari fram laugar-
daginn 23. febrúar n.k. og verður
varöandi
íslands
glimt i tveimur flokkum, annars-
vegar þeir sem eru 20 ára og eldri
og hinsvegar unglingar og
drengir. Keppnin fer fram i leik-
fimisal Vogaskólans og hefst kl.
14. Þátttökutilkynningar þurfa að
Framhald á 14. siðu.
— Ég er enginn Hooley, sagði
hinn nýi enski knattspyrnuþjálf-
ari Keflvikinga, George Smith, á
fyrsta fundi sinum með liðsmönn-
um er hann hélt strax eftir komu
sina um siöustu heigi. En eigi að
siður virðist hann harður i horn
að taka, þvi að hann lagði æfinga-
prógrammiö fyrir liðið — 6 æfing-
ar i viku þar til keppnistimabilið
hcfst — en eftir það verður hvilt
daginn fyrir hvern leik.
Þeir vita þvi hvað til sins friðar
heyrir knattspyrnumennirnir i
Keflavik næsta sumar.
— En við ætlum lika að gera
Sigurður N. Brynjólfsson
Afmælismót
Víkverja
Sunnudaginn 27.-1. minntist
U.M.F. Víkverji 10 ára afmælis
sins með fjölmennu glimumóti i
iþróttahúsi Jóns Þorsteins-
sonar. Þó að þessa móts hafi
litilsháttar verið getið i blöð-
unum er ekki hægt að segja að
borið sé i bakkafullan lækinn
þótt nokkru sé bætt við það er
áður hefur verið skrifað.
Þjálfari Víkverja, Kjartan
Bergmann Guðjónsson, setti
mótið og stjórnaði þvi. Tiu
manna glimuflokkur keppti um
bikar, sem Búnaðarbankinn
gaf.
Mótið hófst með glimusýningu
þar sem sýnd voru brögð og
varnir. Inn á milli sýndu svo 10
drengir glimu, og setti það
skemmtilegan' svip á mótið.
Það er skemmst frá að segja
að þetta afmælismót var Vík-
verja, þátttakendunum og ekki
hvað sist þjálfaranum, Kjartani
Bergmann, til hins mesta
sóma. Ég minnist ekki að hafa
séð 10 jafngóöa glimumenn
þreyta svo harða og tvisýna
keppni, án þess að nokkur ljót
giima sæist. Þarna mátti sjá
margar afburða góðar glímur,
og án þess að ég að þessu sinni
ætli aö gefa glimumönnunum
einkunnir, eða skrifa nákvæma
gagnrýni á einstakar glfmur, þá
get ég ekki látið hjá liða að
minnast glimu þeirra Hjálms
Sigurössonar og Péturs Yngva-
sonar. Þrátt fyrir að þeir ættu
báðir mikið ihúfi (urðu númer 2
og 3) glímdu þeir svo afburða
vel og drengilega að það mun
fiestum giímuunnendum, sem á
horfðu, verða lengi i minni.
Auðvitað voru ekki allar glim-
urnar tæknilega fullkomnar.
Það hefur maður raunar aldrei
séð á neinu glimumóti, en mér
fannst hjá ailt of mörgum koma
áberandi fram að hábrögð voru
ekki nægilega nákvæmt og af-
gerandi útfærð. Skemmtilegt
var að sjá hvað margir glimu-
nienn voru ailt að þvi jafnvigir á
hábrögð með hægri og vinstri.
Þetta eykur mjög fjölbreytni
glimunnar og hæfni glimu-
mannanna. Þvi miður hefur það
löngum verið mjög áberandi
hvað fáir glimumenn hafa
verið vel leiknir i að nota hægri
hábrögð.
Sigurður Jónsson, einn af
eldri og reyndari glimuköppum
Víkverja, sigraði að þessu sinni
og var vel að sigrinum kominn
þótt hann iægi engan veginn
fyrirfram m i hendi hans, þvi við
marga slynga var að etja.
Þarna komu og fram kornungir
menn, sem að visu hafa aflað
sér þó nokkurrar keppnis-
reynslu i yngri flokkunum en
þreyttu nú sina fyrstu raun móti
fullorðnum og gamalreyndum
glimumönnum. Ilin ágæta
frammistaða iofar sannarlega
, góðu ef þeir halda tryggð við
iþrótt sina.
En þarna kom lika framm nýr
maður og litt þekktur á glimu-
velli, Þorsteinn Sigurjónsson.
Þorsteinn er óvenjulega mikið
glimumannsefni, kattfimur og
mjög vel sterkur, en fór frábær-
Icga vel með afl sitt. Auðsætt
var er hann glimdi við hina
yngri og óhörðnuðu hvað hann
hliföist við að beita kröftunum.
Með drengilegri glimu og prúð-
mannlegri framkomu vann
hann að verðleikum hylli og að-
dáun áhorfenda. Vonandi fær
þessi húnvetnski bóndi, sem nú
um sinn hefur æft mcð Vikverja,
tækifæri tii að koma við sögu
glimunar á komandi árum.
Kjartan Bergmann hefur ver-
ið þjálfari Vikverja frá upphafi
og fer það ekki á milli mála að
hann er og hefur verið um langt
skcið einn færasti glimuþjálfari
þjóðarinnar. Þess bera nem-
endur hans giöggt vitni. Kjartan
hefur látið máiefni glímunnar
mikið til sin taka, meðal annars
unnið að útgáfu glímubókarinn-
ar, sem kom út 1968, og endur-
skoöunar glimulagana. Hann
hefur stjórnað fjölmörgum
glimunámskeiðum viðs vegar
um landiö, bæði hjá skólum og
félögum, og vcrið hollur ráð-
gjafi annarra þjálfara og fé-
laga, sem ráðist hafa i að efla og
endurrcisa hina fögru þjóðar-
iþrótt okkar i sinum byggðar-
iögum. Ungir giimumcnn hvað-
anæva af landinu hafa ævinlega
verið velkomnir á æfingar hjá
Vikjverja án nokkurra kvaða,
og þeir eru orðnir margir, em
þangað hafa lagt leið sina og
notið uppörvunar og þjálfunar i
þeim ágæta hópi um lengri eða
skemmri tima undir öruggri og
vandlátri stjórn Kjartans. Þess-
ir menn hafa svo flutt kunnátt-
una heim i sitt byggðarlag og
deilt henni þar með félögum sin-
um. Þetta, og að sjálfsögðu á-
samt ýmsu öðru, sem gert hefur
verið undanfarin ár, hefur nú
þegar lyft glímunni úr þeim
öldudal, sem hún óneitanlega
var að komast i á timabiii. Allir,
sem íslenskri glimu unna,
standa i mikilli þakkarskuld viö
mcnn eins og Kjartan Berg-
mann og félag cins og Víkverja.
Sigurður
N. Brynjóifsson
George Smith, hinn nýi þjálfan
ÍBK.
Sigurður
laus úr
keppnis-
banninu
A fundi stjórnar Badminton-
sambands Islands 31. jan. sl.
var ákveðið að aflétta
keppnisbanni þvi sem
Sigurður Haraldsson bad-
mintonleikari var dæmdur i af
stjórn sambandsins 29. nóv. sl.
Þegar keppnisbannið var
ákveðið, var gert ráð fyrir að
það næði yfir eitt opið mót. Nú
i ár eru fyrirhuguð óvenju
mörg opin mót á þvi timabili
sem bannið náði yfir og hefur
eitt mót þegar farið fram.
Stjórn B1 telur þvi að
bannið hafi þegar náð tilgangi
sinum og með hliðsjón af þvi
var þessi ákvörðun tekin.
Stjórn Badmintonsambands
islands
eins vel og i fyrra, jafnvel betur,
sagði Ilafsteinn Guðmundsson
formaður iBK, er við höfðum
samband við hann i gær. Og þeg-
ar Ilafsteinn segir að gera bctur,
þá er það fullt hús stiga i islands-
mótinu og sigur i bikarkeppninni.
Nú verður róðurinn sennilega
öllu erfiðari fyrir iBK en i fyrra,
þar sem öll I .-deildarliðin nema
eitt eru komin með erlendan
þjálfara. En kannski verður þetta
aílt saman til þess að knattspyrn-
an verður betri og skemmtiiegri
næsta sumar en nokkru sinni fyrr.
Hver veit?
Hafsteinú sagði. að allir þeir
sem léku i fyrra yrðu mcð i ár, cn
auk þess myndi Ilörður Ragnars-
son, sem ekki gat æft vegna anna
i Háskólanum i fyrra, Reynir
Óskarsson og Vilhjálinur Ketiis-
son nú koma með af fullum krafti.
Vilhjálmur meiddist eins og
menn kannski muna fyrir 2 árum
og gat ekki verið mcð fyrr en
seint i fyrrasumar. Þá sagði Haf-
steinn að scnnilcga kæmu 3 ungir
og efnilegir 2,-fl. leikmenn inni
þenn 20 manna hóp sem mfl. !BK
væri að jafnaöi valinn úr.
S.dór
Hafsteinn
hættir
sem ein-
valdur
Hafsteinn Guðmundsson,
sem verið hefur einvaldur
landsliðsins i knattspyrnu
undanfarin ár, hcfur neitað
endanlcga þeirri ósk stjórnar
KSl að halda áfram sem slikur
á næsta kcppnistimabili.
Aðspurður hversvegna hann
hefði ákveðið að hætta nú
sagði Hafsteinn, að fieiri en
ein ástæða lægju til þess. 1 I
fyrsta lagi væri það tima- j'
skortur, og hefði hann áður ti
ætlað að hætta af þeim sökum. |
i öðru lagi, sagði Hafsteinn, að ij
sér likaði ekki hvcrnig að [;
iandsliðsmálunum væri staðið -
nú.
— Við höfum notaö vetrar-
æfingar landsliðsins til að ,
finna væntaniegan kjarna fyr- |j
ir komandi keppnistimabil i
undanfarin ár. Þetta var gert I
m.a. vegna þess að enginn |
timicr fyrir æfingar landsliðs- !j
ins eftir að kcppnistímabilið
hefst. Nú cr hinsvegar ckki g
um neinar slikar vetraræfing- •
ar að ræða, og ég fæ ekki séð
hvernig inál landsliðsins :
verða leyst næsta sumar,
sagði Ilafsteinn. S.dórj