Þjóðviljinn - 15.05.1974, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVIL.JINN Miftvikudagur 15. mai 1974.
CAPRICHOS KENJAR
Mynd: Francisco Goya y Lucientes
Mál: Guðbergur Bergsson
39.
Jafnvel afi hans
Asninn allstóri athugar ættatöluna
sina, og hann kemst að raun um það,
sér til mikillar ánægju, að hann er
hreinkynjaður asni.
Ættfræðingar og herkonungar hafa
látið vesalings asnann ganga af göfl-
„Ættfræðingar og herkonungar hafa
látið vesalings asnann ganga af göfl-
unum. Uann er ekki sá eini”,segir P-
handritið.
Tvær frumteikningar hafa fundist,
önnur er rauð blekteikning. Á henni
eru fætur asnans undir borði, og
skjaldarmerki ættar hans sést óljóst.
Á hinni teikningunni, pennateikningu,
stendur: „Bókmenntaasninn”. Þar
situr asnakjáninn i bókaherbergi við
lestur eða aðra bókmenntaiðju. Hann
horfir beint fram með stór, útbreidd
eyru likust vængjum. Höfuð hans virð-
ist vera á flugi á asnaeyrunum af ein-
tómri andagift fagurbókmenntanna,
bæði útblásinn og innblásinn asni,
klæddur flosjakka. Hann situr i höfð-
inglegum leðurstól, studdur púðum, og
j fagurt kniplingahálshnýti skýlir rim-
þýðum barkanum. Á veggnum hangir
mikið og flúrað skjaldarmerki ættar-
innar.
Á koparstungunni er asninn aðeins
einn af þeim venjulegu ösnum, sem
rýna i ættartöluna sina, fremur alþýð-
legur asni. En kannski er hann kominn
af einhverri mikilli presta/hrossaætt
að norðan, sem sendir krakkana sina i
æðriskóla menntanna, til þess að þeir
geti riðlast þar á öðrum ættstórum
krökkum, þannig að ættarblóð hans
blandist öðru stórættarblóði, uns þétt-
riðinn ættarvefur tengir með þráðum
sinum alla forustumenn þjóðarinnar,
og blóðbönd binda saman allt heila
„klabbið”, en hengja alþýðuna annað
hvort hreinlega, eða við þrældóminn,
ellegar i halann á sér, eins og tiðkast
hérlendis, svo að útkoman verður múl-
asnamúgur; þaðer afkvæmi hrossa og
asna.
ÞROUNARSYNING
ATYINNUYEGANNA
Haldin í Laugardalshöll í sumar
Akveðið hefur verið aö einn
þáttur þjóðhátfðarhaldsins i sum-
ar verði veigamikil sýning, er lýsi
þróun atvinnuveganna og þjóðlífs
í landinu, frá upphafi byggðar
fram á þennan dag, auk þess sem
reynt verður að bregða upp mynd
af liklegri framþróun næstu ára.
Sýningin verður i Laugardals-
höllinni i Reykjavik og næsta um-
hverfi hennar. Ætlað er, að hún
standi dagana 19. júli til 19. ágúst.
Þjóðhátiðarnefnd hafði fyrir
meira en ári siðan forgöngu um
að kalla saman fulltrúa frá sam-
tökum höfuðatvinnuveganna.
Stöðugt hefur verið unnið að und-
irbúningi sýningarinnar siðan.
Auglýsingastofa Kristinar Þor-
kelsdóttur gerði tillögur um aðal-
tilhögun sýningarinnar og voru
þær lagðar fram i janúar s.l.
Þá var endanlega myndað fast
sýningarráð með einum fulltrúa
frá hverjum aðila, sem að sýning-
unni stendur.
Sýningaraðilar verða þessir:
1. 1 aðalsal Laugardalshallar-
innarverða höfuðatvinnuvegirnir
fimm með sinar deildir.
Landbúnaður á veguip bænda-
samtakanna og sölusamtaka
bænda.
Iðnaður — á vegum samtaka
iðnaðarmanna og iðnrekenda.
Verslun— á vegum Verslunar-
ráðs og samvinnuverfilnnarinnar
Samgöngur — á vegum sam-
gönguráðuneytisins.
2. Auk þess hefur Reykjavikur-
borg sýningarsvæði fyrir miðju i
aðalsalnum og á sviðinu, og verð-
ur þar sýnt likan af borginni og
annað, er sýnir þróun borgarinn-
ar og framtiðaráform.
3. 1 anddyri hallarinnar verður
sýningardeild á vegum rikis-
stjórnarinnar, er sýna á framlag
rikisins til atvinnuveganna og
örvun þess við atvinnuuppbygg-
inguna i landinu.
4. 1 kjallara undir anddyri
verður sýningardeild á vegum
menntamálaráðuneytisins, þar
sem sýnd verður þróun skóla-
kerfis landsins og þáttur þess til
örvunar og framfara atvinnu-
lifsins.
1 aðalsal, þar sem atvinnuveg-
irnir rekja sögu, þróun og fram-
tiðarmöguleika, verður gamla
býlið með búskap, útvegi og
handiðnaði, þar sem allt var áður
unnið á einum stað, miðpunktur
og upphafspunktur allra hinna
sýningardeildanna. Þetta gamla
býli á að vera meö öllum helstu
húsum, sem tilheyrðu stórbýli,
þar sem jafnframt var stundað
útræði. Þar verður einnig gömul
verslun.
Það er ætlun þeirra, sem að
sýningunni standa, að hún verði
fræðandi um sögu og þróun at-
vinnulifs i landinu. Sýni unga
fólkinu nú, hvaða óhemju breyt-
ingar hafa orðið á timum þeirra
eldri, sem enn lifa, og frá þeirra
uppvexti.
Jafnframtá sýningin að kenna
fólki á öllum altíri nokkuð um
það, hvar islenskt atvinnulíf er nú
á vegi statt.
I þriðja lagi á sýningin að
bregða upp framtiðarmyndum og
sýna hvað fyrirhugað er og hvað
liklegt þykir, verði á næstu
áratugum.
Þessi sýning verður á tvennan
hátt frábrugðin þeim sýningum,
sem áður hafa verið i Laugar-
dalshöllinni og öðrum stórum
sýningum, sem hér hafa verið.
1 fyrsta lagi er þetta ekki sölu-
sýning eða auglýsingasýning.
Hver atvinnuvegur kemur fram
sameinaður og sýnir hvað hann
gerir og getur. Enginn einstakur
framleiðandi sýnir vöru sina sér-
staklega. Það kemur fram hvað
islenskur iðnaöur getur og gerir,
islensk verslun og islenskur sjáv-
arútvegur, o.s.frv., óháð þvi
hvaða einstök félög eða fyrirtæki
standa að hverju og einu.
1 öðru lagi sýna hér allir höfuð-
atvinnuvegirnir saman. Það á að
sýna okkur órofa tengsl þeirra og
gagnkvæmt mikilvægi, og mikil-
vægi atvinnulifsins sem heildar i
þjóðfélaginu.
1 sýningarráði eru:
Fyrir sýningardeild rikisins
Jónas Jónsson, sem var kosinn
formaður.
Fyrir Reykjavikurborg Aðal-
steinn Guðjohnsen, varaformað-
ur, fyrir landbúnað Agnar Guðna-
son, fyrir sjávarútveginn Guð-
mundur Ingimarsson, fyrir iðn-
aðinn Björn Guðmundsson, fyrir
verslunina Hilmar Fenger, fyrir
samgöngur Brynjólfur Ingólfs-
son, fyrir menntamálaráðuneytið
Ilelgi Eliasson.
Framkvæmdastjóri sýningar-
innar hefur verið ráðinn Agnar
Guðnason og arkitekt Einar
Tryggvason.
Skemmtiatriði verða á sýning-
unni, sennilega öll kvöld, og hefur
þjóðhátiðarnefndum hvarvetna
um landið verið boðið að koma
með það besta úr þeim hátiðar-
dagskrám, sem verða á hátiðum
þeirra. Auk þess verður fleira
viðhaft, sem of snemmt er að
skyra frá.
Kjörskrá
til Alþingiskosninga i Reykjavik, sem
fram eiga að fara 30. júni n.k., liggur
frammi almenningi til sýnis i Manntals-
skrifstofu Reykjavikur, Hafnarhúsinu við
Tryggvagötu, 2. hæð,frá 16. mai til 8. júni
n.k., frá kl. 8.20 til 16.15 mánudaga til
föstudaga.
Kærur yfir kjörskránni skulu berast skrif-
stofu borgarstjóra eigi siðar en 8. júni n.k.
14. maí 1974
Borgarstjórinn i Reykjavik
Úrslit ítölsku
þjóðaratkvaeða-
gréiðslunnar:
Rokna-
áfall fyrir
kirkjuna
og íhaldið
RÓM 14/5 — Mikill fögnuður rikti
um ítalíu endilanga I gærkvöld og
nótt, eftir að kunnugt varð um
niðurstöður þjóðaratkvæða-
greiðslunnar um hjónaskilnaðar-
löggjöfina. 59,1 af hundraði
þeirra, sem atkvæði greiddu,
voru ineð því að iögin, sem leyfa
itölskum hjónum að skilja, skyidu
vera i gildi áfram, en þau lög hafa
nú vcrið i gildi í þrjú ár.
Niðurstöður atkvæðagreiðsl-
unnar og fagnaðarlætin i kjölfar
hennar eru talin alvarlegur ósig-
ur fyrir Kristilega demókrata,
hægri flokk þann sem er stærsti
stjórnmálaflokkur Italiu. Lika
eru þetta miklar hrakfarir fyrir
kaþólsku kirkjuna, en bæði
Kristsdemókratar og kirkjan,
sem eru I nánu bræðralagi, höfðu
lagt áherslu á, að fá skilnaðarlög-
gjöfina fellda úr gildi. Eins og
kunnugt er, leggur kaþólska
kirkjan blátt bann við hjónaskiln-
aði, enda hjónavigslan sakra-
menti samkvæmt kaþólskum
skilningi.
Geysifjölmenn blysför var i
gærkvöld farin eftir götum Róm-
ar til þess að fagna úrslitunum.
Blysfararnir söfnuðu saman
miljónum dreifiblaða gegn skiln-
aðarlöggjöfinni og brenndu þau á
báli. Talið er að úrslit atkvæða-
greiðslunnar geti leitt til þess að
stjórn Marinos Rumors, sem var
ekki of sterk á svellinu fyrir,
verði að segja af sér.
20. sýning á
Kerta-logi
í kvöld verður 20. sýning á
Kertalogi, leikriti Jökuls Jakobs-
sonar. Leikritið hefur verið mjög
vel sótt — uppselt á flestar sýn-
ingar. Leikurinn fjallar um tvær
ungar manneskjur sem hittast á
geðspitala og reyna að losa sig
undan hleypidómafullu umhverfi
og skapa sér sitt eigið sjálfstæða
lif. Með aðalhlutverkin fara Anna
Kristin Arngrimsdóttir og Arni
Blandon. Sú breyting hefur orðið
á hlutverkaskipan, að Soffia
Jakobsdóttir hefur tekið við hlut-
verki Brynju Benediktsdóttur,
sem hefur leikið móður piltsins,
en Brynja er á förum til Þýska-
lands til að starfa við sviðsetn-
ingu á Lýsiströtu i þýsku leikhúsi.
Lausasölu-
verð
35 krónur