Þjóðviljinn - 26.05.1974, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 26.05.1974, Blaðsíða 6
r t . . / > I t t * < i - v < > ♦ ♦ t • 6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 26. mai 1974. UOWIUINN MÁLGAGN SÓSIALISMA VERKALYÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. titgefandi: Útgáfuféiag Þjáöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson (áb) Fréttastióri: Eysteinn Þorvaldsson Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur) iPrentun: Blaðaprent h.f. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ EINI VALKOSTUR VINSTRIMANNA 1 dag hefur kjósandi aðeins tveggja kosta völ er hann gengur að kjörborðinu i bæja- og sveitastjórnakosningum, valið er milli hægri og vinsti i stefnu. i Reykjavik koma þessir tveir valkostir einna skýrast fram. Þeir sem yilja framlengja enn um fjögur ár hálfrar aldar ihaldsstjórn i höfuðborginni kjósa ihaldið. Það þýðir óbreytt ástand, áframhaldandi kerfi stönunar og spillingar embættis- og fjár málamanna sem telur sig eiga þessa borg. Þar rikja menn sem telja sig hafna yfir fólkið. Þessir menn hafa siðustu daga hellt yfir reykviska kjósendur glansmyndum og slagorðaborðum, sem endurspegla málefnafátækt borgarstjórnarihaldsins i „Grænuborg”. Allur þessi áróður ihalds- kerfisins er litilsvirðing við Reykvikinga, áróður sem tekur mið af að almenningur sé skynlausar skepnur, en ekki hugsandi verur. Fólkið i Reykjavik hafnar forsjá slikra manna og fellir ihaldskerfið i dag. Hinn valkostur reykviskra kjósenda er að knýja fram breytingu á stjórn höfuð- borgarinnar, að setja i öndvegið róttæka félagshyggju, raunverulega vinstri stefnu. Það gera Reykvikingar með þvi að styðja G-lista, lista Alþýðubandalagsins. Hin öra stjórnmálaþróun til vinstri að undanförnu liggur i raun alla leið til Al- þýðubandalagsins. Vinstri menn mega ekki kasta atkvæði sinu á glæ. Hannibal og Gylfi brjótast nú um á strandstað, Joð-smyrsl þeirra dugar ei til að lækna hina helsærðu stjórnmálaforingja. Joð- listaframboðið er steinrunnið nátttröll brostinna sameiningardrauma misheppn- aðra foringja. Framsóknarmenn, sem tróna með fulltrúa hernámssinna á lista sinum og Möðruvellinga utangarðs, veita heldur ekki vinstri mönnum sannan vinstri valkost. Þvi siður listi Bjarna Guðna, sem nú heyrir til fortiðar islenskra stjórnmála. Eina aflið gegn ihaldinu i Reykjavik er Alþýðubandalagið. Það er heilsteyptur vinstri flokkur, sósialiskur verkalýðsflokkur, sem einum er treyst- andi til að knýja fram vinstri þróun i is- lenskum stjórnmálum. Allir vinstri menn, sem vilja vinstri sigur, verða að fylkja sér um Alþýðubandalagið. Eini valkostur i dag er G-listi. Þvi kjósa Reykvikingar til vinstri i dag, þeir kjósa G-lista. ins. Vinnið ötullega að þvi að tryggja sem glæsilegastann G-lista-sigur. Kjósið snemma og fáið liðsinni kunningja og starfsfélaga, þannig vinnst vinstri sigur. Með samstilltu átaki á kjördag uppskera vinstri menn sigur Alþýðubandalagsins, sigur vinstri manna. ALÞYÐUBANDALAGIÐ I SOKN TIL SIGURS Allt stuðningsfólk Alþýðubandalagsins á mikið verk að vinna, þvi i dag verður ihaldskerfið i Reykjavik að falla. Sam- stillt átak f jöldans getur unnið slikt þarfa- verk, þvi i dag er hver stuðningsmaður G-listans starfsmaður Alþýðubandalags- Af Lýðrœðisflokkum: Deila um listabókstafinn Ólgan á hægri væng islenskra stjórnmála fer greinilega dag- vaxandi og berast stöðugt nýjar fréttir af uppreisnar- og klofningshreyfingum á þeim vett- vangi. Er ekki annað hægt að sjá Eins og kunnugt er lesendum Þjóðviljans hefur SÁL, samtök áhugamanna um leiklist, haldið af miklum myndarskap uppii tvö ár leikskóla, sem hið unga lista- fólk stendur að mestu leyti undir sjálft. Nú er þeim fjár vant til þess að greiða kennurum sinum laun, og i þvi tilefni efna þau til skemmti- legrar nýbreytni á kosningadag- inn, það er að segja á sunnudag- inn 26. mai n.k. Þá verður á veg- en rikjandi skoðun hjá miklum þorra fylgismanna Sjálfstæðis- flokksins sé sú að flokkurinn þeirra sé staðnaður i gömlum formum, að honum hafi tekist með eindæmum illa upp i um SÁL i húsunum á Bernhöfts- torfunni flóamarkaður, þar sem margt áhugavert verður á boð- stólum, svo sem áletraðir bolir, mussur ýmiskonar, batikmunir og kannski kruðeri eins og rauð- magi og grásleppa. Verður það væntanlega kærkomin tilbreytni fyrir fólk sem trúega á margt leið um miðbæinn vegna kosning- anna, að koma við á markaði unga leiklistarfólksins á Torf- unni. dþ stjórnarandstöðunni og að forustan sé svo máttlaus og lit- laus, að flokkurinn geti varla heitið annað en höfuðlaus her. Stofnun að minnsta kosti tveggja Lýðræðisflokka sunnan lands og norðan er eitt merkið um þetta upplausnarástand hjá ihaldinu, enda augljóst af stefnu- yfirlýsingum þessara flokka að þeir höfða fyrst og fremst til hægri sinnaðra kjósenda. Og inni i herbúðum Sjálfstæðisflokksins sjálfs kveða stöðugt við nýir her- brestir af völdum framagjarnra flokksmanna, sem krefjast aukinna metorða á vegum flokksins og bera þvi við að núverandi forustulið hafi sýnt og sannað að það sé alls ófært um hlutverk sitt. Af Lýðræðisflokknum syðra er það siðast að frétta að i fyrrad.,23. mai, hélt hann framhaldsstofn- fund i Tjarnarbúð. Var þar endanlega gengið frá stofnun flokksins, sem mun að sögn forustumanna koma að sinni fram sem einn flokkur i Reykja- vík og á Reykjanesi, en annars mun tilætlunin að flokkurinn starfi sem sjálfstæð eining i hverju kjördæmi, og hafi enga beina miðstjórn. Á fundinum i Tjarnarbúð var samþykkt áskorun til allra þeirra manna i öðrum kjördæmum, sem sam- þykkir eru stefnuyfirlýsingu flokksins, að þeir stofni lýðræðis- flokka eða -flokksdeildir hver i sinu kjördæmi og bjóði fram. Þá var á fundinum kosin þriggja manna miðsjórn fyrir Lýðræðis- flokk Reykjav. og Reykjaness, og eiga sæti i henni Björn Baldursson, Helga Mattina Björnsdóttir og Jörmundur Ingi. Að stefnuy firlýsingum Lýðræðisflokkanna hefur þegar verið vikið, en þær eru á margan hátt keimlikar, sú norðlenska þó harðlinukenndari. Vill Lýðræðis- flokkur Norðurlands, sem hlýtir leiðsögn Tryggva Helgasonar, flugmanns, gera forsétann að helsta valdsmanni landsins að bandariskri fyrirmynd, svo og að þátttaka Islands i „varnarsam- tökum vestrænna þjóða” verði lögfest. Lýðræðisflokkurinn syðra leggur hvað mesta áherslu á niðurskurð stofnana og útgjalda á vegum rikisins og afneitun póli- tiskrar skiptingar i hægri og vinstri. Einn forustumanna þess flokks, Jörmundur Ingi, skýrði blaðinu svo frá að ekkert samband væri milli flokkanna tveggja, og komin er upp þræta milli þeirra um það hvorum beri listabókstafurinn L við næstu alþingiskosningar. Úrskurður i þvi máli liggur ekki enn fyrir, en Jörmundur kvaðst telja vist að Lýðræðisflokknum syðra yrði úthlutað stafnum, þar eð hann hefði orðið á undan að sækja um hann og þar að auki hefðu þeir félagar stofnað sinn flokk viku fyrr. Kvað Jörmundur mikla bjartsýni rikja i röðum flokksins og hefðu allmargir haft samband við flokksmenn og lýst yfir samúð með stefnumiðum þeirra. Þess má geta að sá kunni kaliforniski vegagerðarmaður Sverrir Runólfsson hefur komið talsvert við sögu þessara flokka beggja. Báðir hafa þeir að visu afneitað honum opinberlega, en Sverrir mætti engu að siður á fundinum i Tjarnarbúð og kynnti sig þar sem sérlegan sendifull- trúa Lýðræðisflokks Norðurlands eystra. — Þá hefur blaðið fregnað að komið hefði til greina að nefna Lýðræðisflokkinn syðra Þjóðveldisflokkinn, og detta manni þá ósjálfrátt i hug fyrri flokkar sem leitað hafa á mið ihaldsins og borið nöfn eins og Lýðveldisflokkur og Þjóðernis- flokkur. dþ Flóamarkað- ur SÁL á Bernhöftstorfu á kosningadaginn Minningarorð Asgrímur Gíslason, bifreiðastjóri Ekki fer það á milli mála, að þeir menn,sem á fyrstu tugum þessarar aldar skipuðu sér i sveit meðal verkafólks til sjós og lands og eru nú óðum að hverfa, skilja eftir sig merk spor i félagsmála- sögu verklýðssamtakanna og ef þáttur þeirra væri skráður geymdi hann sanna mynd af þvi hugarfari er á bak við áhugann og einbeitnina bjó. Vist er að timabil kreppuár- anna mótaöi mjög lifsviðhorf þessa fólks og þá ekki sist þann hópinn er stóð i forustu. Það voru ár mikillar reynslu og mikill skóli sem að gagni kom þessu fólki siðar i lifinu. Það er þvi næsta eðlilegt að margir úr þessum hópi hafi gjarnan annað mat á hinum ýmsu viðfangsefnum,sem við er að fást, en hinir yngri sem vinna að þessum málum i dag. Asgrimur Gislason vöru- bifreiðastjóri sem verður til moldar borinn á morgun (mánudag) var einn þeirra manna sem þekkti mæta vel þann mismun sem orðinn er á kjörum fólks i þessu landi siðustu áratug- ina. Það má segja að hann hafi staðið mitt i starfi bæði til sjós og lands alltmesta framfaratimabil i atvinnusögu þjóðarinnar. Ég sem þessar linur rita starfaðium mörg ár með Ásgrimi að sameiginlegum áhugamálum, sem bundin voru við hagsmuni þeirra manna sem við störfuðum með. Með Asgrimi var gott að starfa, hann var athugull og fróð- ur um marga hluti, en umfram allt var hann skyldurækinn og fús að taka á sig erfið viðfangsefni ef hann taldi lausn þeirra verða stéttarfélaginu til hagsbóta. Ásgrimur var ávallt vinsæll meðal stéttarbræðra sinna og var þvi um áratugi einn af aðal- forustumönnum vörubifr.stj. Hann var um skeið form. Vörubil- stjórafélagsins Þróttar og I stjórn þess félags um langan tima. Hann var heiðursfélagi i Þrótti og var sýndur margskonar annar sómi fyrir margháttuð og heillarik störf. Ásgrimur sat fjöldamörg þing Alþýðusambandsins og naut þess mjög að fylgjast með fram- gangi hinna margþættu verkefna er verkalýðshreyfingin vinnur að. Ég kveð þennan ágæta vin minn með miklu þakklæti fyrir náið samstarf um áratuga skeið. Ástvinum Ásgrims, börnum, barnabörnum og öðru skyldfólki eru færðar samúðarkveðjur, og hann er kvaddur af stéttarbræðr- um sinum með mikilli virðingu og þökk. E.ö.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.