Þjóðviljinn - 26.05.1974, Blaðsíða 20
uomnuiNN
Sunnudagur 26. mai 1974.
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu borgarinnar eru géfnar i
simsvara Læknafélags Reykja-
vikur, simi 18888.
Kvöldsimi blaöamanna er 17504
eftir klukkan 20:00.
Helgar-, kvöld- og næturvarsla
lyfjabúða i Reykjavik 24.-30. mái
er i Laugavegs- og Holtsapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspítálans
er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur-og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
DREIFIÐ F.KKI
ATK V ÆÐUNUM
EINING ER AFL
Vinstrimenn! Notið
það tœkifœri9 sem
styrkur Alþýðu
bandalagsins
getur tryggt
til sigurs i dag
Geri vinstrimenn sér ljóst i dag að kosn-
ingaúrslitin velta á þvi hver styrkur Al-
þýðubandalagsins verður er fullvist að
verulegur árangur næst. 1 kosningunum
1971 fékk sjálfstæðisflokkurinn aðeins 42%
atkvæða, en hefði haldið meirihlutanum i
borgarstjórn engu að siður. Stafaði þetta
af mikilli dreifingu atkvæðanna á hina
ýmsu lista. Nú er hins vegar augljóst að
vaxandi fjöldi vinstrimanna gerir sér ljóst
að eining um Alþýðubandalagið er það afl
sem ihaldið óttast og getur velt þvi úr
sessi ef þeir fylkja sér um G-listann i
kosningunum i dag.
Kosningafundur Alþýðubandalagsins i
Laugardalshöllinni var stærsti fundur
kosningabarátunnar i höfuðborginni.
Þessi fundur var vitnisburður um styrk
vinstrimanna, er þeir fylkja sér um Al-
þýðubandalagið. Ef vel er starfað i dag,
kjördag, geta spádómarnir um sigur
breyst i veruleika þegar talið verður upp
úr kjörkössunum i kvöld.
Haldi vinstrimenn áfram að dreifa at-
kvæðum sinum á ónýta lista er augljóst að
ihaldið getur áfram haldið valdataumun-
um i höfuðborginni. En vinstrimenn verða
að nota það tækifæri sem styrkur Alþýðu-
bandalagsins býður i dag til þess að sækja
fram til sigurs.
Reykviskir vinstrimenn!
tJrslit kosninganna i dag geta oltið á
þinu starfi, á þinu atkvæði. Notið tækifær-
ið og eflið einingu gegn ihaldi til sigurs.
X-G.
Kosningarnar eru þáttur í hagsmunabaráttu verkafólks:
Alþýðubandalagið þarf að koma
sem sterkast út úr kosningunum
— segir Eðvarð Sigurðsson, formaður Yerkamannafélagsins Dagsbrúnar
„Það eru hagsmunir
alþýðufólks i Reykjavik, að
Alþýðubandalagið komi veru-
lega sterkt út úr þessum kosn-
ingum, með hliðsjón af þvi
hvaða bein áhrif á kjör fólks
það hefur, hvernig Reykjavik
er stjórnað og i þágu hverra”,
sagöi Eðvarð Sigurðsson for-
maður Verkamannaféiagsins
Dagsbrúnar, er Þjóðviljinn
ræddi við hann um kosning-
arnqr og afstöðu launafólks.
Eðvarð sagði:
1 borgarstjórnarkosningum
hugsa menn kannski sem svo,
hvort fyrirtækið Reykjavikur-
borg sé vel eða illa rekið. En
málin snúast ekki um það,
heldur hvaða stefna það er
sem ræður og við þarfir
hverra þessi stefna miðast.
Það er svo sem ekki vafi á þvi,
'saga borgarstjórnarmeiri-
hlutans ber meö sér, að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur i
stefnumörkun sinni haft i huga
sérhagsmunasjónarmið
þeirra sem betur mega sin. í
málefnum borgarstjórnar hef-
ur Alþýðubandalagið fyrst og
fremst sjónarmið verkalýðs-
stéttarinnar i Reykjavik i
viðri merkingu. Stefna Al-
þýðubandalagsins markast af
þörfum og baráttu þess fólks
og er þvi að þvi leyti einn þátt-
ur verkalýðsbaráttunnar. Auk
þess er stærð borgarinnar svo
mikil að sá sem hefur stjórn
hennar með höndum getur
ráðið býsna miklu um gang
mála i þjóðfélaginu i heild.
Það mætti gjarnan likja þvi
við, að einhver tiltekinn aðili
hefði völdin i Alþýðusamband-
inu en aðrir aðilar réðu
stærsta eða þýðingarmesta
verkalýðsfélagi i landinu og
stefna þessara aðila færi ekki
saman. Þá er ljóst, hvar vald-
ið liggur. Þvi eru það beinir
hagsmunir alþýðufólks i
Reykjavik, að Alþýðubanda-
lagið komi verulega sterkt út
úr þessum kosningum, með
hliðsjón af þvi, hvaða áhrif á
kjör fólks það hefur, hvernig
Reykjavik er stjórnað og i
þágu hverra.
Takmarkið er að sjálfsögðu,
að meirihluti Sjálfstæðis-
flokksins verði felldur nú i
Framhald á bls. 17.
Alþýðubandalagið í Reykjavik
F élagsfundur
Alþýðubandalagið i Reykjavik heldur félags-
fund á þriðjudagskvöld, 28. mai.
Á dagskrá meðal annars: Framboð vegna al-
þingiskosninganna 30. júni.
Nánar i þriðjudagsblaðinu.
Alþýðubandalagið i Reykjavik
„Ferðin sem aldrei var farin”
DANMERKURFLUG
GUÐNA 1 SUNNU
Feröaskrifstofan Sunna og
leifuflugrckstur hennar, sem
gengur undir heitinu Air Viking,
hafa átt i nokkrum erfiðleikum að
undanförnu með farþegafiutn-
inga á sinum vegum til Danmerk-
ur. Um siöustu helgi átti önnur af
þotum Sunnu að flytja um 90 far-
KÓPAVOGSBUAR!
Alþýðubandalagið i Kópavogi læt-
ur fólkið i friði á kjördag. Við
treystum á áhuga og dómgreind
kjósenda.
Kosningaskrifstofan að Álfhólsveg
11 er opin allan daginn og veitir
upplýsingar um kjörskrá og hefur
bila fyrir þá sem þess óska.
Upplýsingar og bilasimar á kjör-
dag:
Vesturbær simi 43-3-96 — Austur-
bær simi 41-7-46.
Kaffiveitingar i veitingasalnum
allan daginn á kjördag.
Alþýðubandalagið i Kópavogi
þega til Danmerkur, en eftir 2ja
daga bið var þeirri ferð aflýst á
þriðjudaginn. Farþegar úr fyrra
Danmerkurflugi Sunnu biðu lang-
ieitir i Kauðmannahöfn fram á
fimmtudagskvöld, en þá kom
,,Víkings”-vél loks eftir þeim
þangað.
Fyrir leiguflugi á milli landa
þarf samþykki flugmálayfirvalda
i báðum löndum, en Danir munu
ófúsir að veita Sunnu slikt leyfi
nema að fá gagnkvæm réttindi
fyrir sig. tslensk yfirvöld telja
hins vegar að slik gagnkvæmni
geti verið hættuleg islenskum
hagsmunum, samkeppni af hálfu
voldugra erlendra aðila get rutt
þeim islensku út af markaðinum.
Forráðamenn Sunnu segja gagn-
kvæmni á þessu sviði rikjandi i
samskiptum allra landa, tslend-
ingar geti ekki annað en hagnast
á henni þar eð feröafúsir menn
séu fleiri i útlöndum en hér á
landi. Synjun, leyfis fyrir Dan-
merkurflug til handa Sunnu væri
sprottin af hagsmunagæslu fyrir
Flugleiöir h.f. (þ.e. Flugfélag ts-
lands og Loftleiðir) á kostnað is-
lensks almennings, og tala
Sunnumenn i þvi sambandi um
forréttindi ákveðinna hluthafa.
Formælandi Flugfélagsins seg-
ir að hömlulaust leiguflug gæti að
visu tryggð nokkra ferðamögu-
leika að sumrinu, en gert áætl-
unarfélögunum ókleift að fá að
sumrinu eitthvað upp i það tap
sem óhjákvæmilega skapast á
öðrum árstimum. Ef lagalega
væri á haldið gæti leiguflugið rið-
ið öllu áætlunarflugi milli tslands
og annarra landa að fullu og þar
með gert Island samgöngulaust i
lofti við nágrannalöndin nema
yfir hásumarvertiðina.
Það sem sagt er hér á undan er
sett saman eftir upplýsingum frá
þeim Brynjólfi Ingólfssyni ráðu-
neytisstjóra, Guðna Þórðarsyni
forstjóra Sunnu og Sveini
Sæmundssyni blaðafulltrúa Flug-
félagsins.
Guðni segist bjartsýnn á það,
að flugmálayfirvöld beggja
landa, Islands og Danmerkur,
leysi vandann þannig aö flugvélar
hans geti flogið álika oft til Dan-
Framhald á bls. 17.