Þjóðviljinn - 26.05.1974, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 26.05.1974, Blaðsíða 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 20. mal 1974. Sunnudagur 26. mal 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 KOSN NGASPAR Jón G. Zöega Siguröur Magnússon Páil Jónsson Hvað segja kosningastjórar stjórnmálaflokkanna eða kosningasamtaka um kosningarnar sem fram fara i dag? Þetta var sú spurning sem við lögðum fyrir þá og báðum þá svara.og þeir brugðust allir vel við,og hér á eftir fara svör þeirra og spár um úr- slitin, sem við fáum svo að heyra i nótt. Bjarni Sigtryggsson Eini möguleikinn til að fella íhaldið er að kjósa G-listann Sagði Sigurður Magnússon kosn- ingastjóri Alþýðubandalagsins NU FELLUR ÍHALDIÐ Sagði Páll Jónsson kosningastjóri Framsóknarflokksins Gætum allt eins fengið 10 fulltrúa Sagði Jón Gunnar Zoéga kosningastjóri Sjálfstæðisflokksíns Það munar um hvert atkvæði ef fella á íhaldið Sagði Bjarni Sigtryggsson kosn- ingastjóri Frjálslynda flokksins — Ég hef þá trú að ihaldið missi meirihluta sinn i borgarstjórn að þessu sinni, sagði Sigurður Magnússon kosningastjóri Al- þýðubandalagsins. — Við siðustu borgarstjórnar- kosningar vantaði aðeins herslu- muninn til að fella ihaldið. Ef Al- þýðubandalagiö hefði þá fengið 300 til 400 atkvæðum fleira hefði i- haldið fallið. Og i alþingiskosn- ingunum siðustu gekk fylgið mik- ið af ihaldinu en það hefði þó samt haldið velli með aöeins 42% at- kvæða á bak við sig vegna óhag- stæðrar skiptingar atkvæða milli hinna flokkanna. En það, að i- haldið heldur velli með aðeins rúm 40% á bak við sig, getur að- eins gerst vegna sundrungar vinstri flokkanna. Þess vegna er Alþýðubandalagið eini flokkurinn sem vinstrimenn sem vilja fella i- haldið geta sameinast um með von um árangur. — Ég vona sannarlega að vinstrimenn geri sér þetta ljóst og fylki sér um Alþýðubandalagið til þess að atkvæði þeirra nýtist. Við vitum að Framsóknarflokkurinn heldur sinum 3 mönnum, J-listinn fær einn og V-listinn einn, slagur- inn stendur þvi um 8, mann i- haldsins og 3. mann Alþýðu- bandalagsins. — Hvernig hefur kosninga- starfið gengið? — Óvenju vel. Það hefur verið mjög létt og skemmtilegt að starfa. Fólk gerir sér fyllilega grein fyrir að i þessum kosning- um og i alþingiskosningunum i júni fer fram afgerandi uppgjör i pólitikinni og á þessu uppgjöri veltur framvinda islenskra stjórnmála næstu árin. — En hvernig ætlar þú þá að spá? — Ég sleppi tölum en nefni að- eins fulltrúafjölda hvers flokks. B-listi 3 fulltrúa D-listi 7 fulltrúa G-listi 3 fulltrúa J-listi 1 fulltrúa V-listi 1 fulltrúa. S.dór — Þú vilt að ég spái fyrir um úrslit þessara borgarstjórnar- kosninga? Ekki er ég nú mikill spámaður en þó þykist ég viss um eitt og það er að nú missir ihaldið meirihluta sinn i Reykjavik, loks eftir ein 50 ár. — Þú ert svona bjartsýnn? — Já, ég er það. Ég þykist nú vera orðinn allvanur að starfa i kosningabaráttu sem þessari og ég get sagt þér eins og er að það er langt siðan að svo létt hefur verið að starfa i kosningabaráttunni sem nú. Hingað til okkar kemur ó- liklegasta fólk og býður sig fram til starfa af krafti og áhuga. — Hvað heldur þú að valdi þessu? — Ég hef tekið eftir þvi að eftir að þingið var rofið og landsmálin tóku að blandast meira inni kosn- ingabaráttuna en áður hefur þetta breyst mikið vinstri flokkunum i hag. — Hvers vegna? — Vegna þess, að fólki finnst vinstri stjórnin undir forystu Framsóknarfl. hafa sýnt ábyrgð og festu i glimunni við að- steðjandi vandamál gagnstætt þvi sem hægt er að segja um stjórn- arandstöðuna. Og þegar rikis- stjórn stendur sig vel, þá hlýtur það að hafa áhrif i sveitarstjórn- arbaráttunni. — Og spáin þá? — Já, ég ætla að sleppa tölum, en aðeins að spá um fulltrúafjölda hvers flokks. B-listi 3 fulltrúa D-listi 7 fulltrúa G-listi 3 fulltrúa J-listi 2 fulltrúa V-listi engan fulltrúa S.dór Það var ekki þungt yfir mönnum þegar okkur bar að garði á kosningaskrifstofu Sjálf- stæðisflokksins — Það er kannski of létt að starfa fyrir þessar kosningar sagði Jón G. Zöega kosninga- stjóri, slíkt gerir menn frekar andvaralausa. Mér finnst hafa verið léttara og betra að starfa fyrir þessar kosningar en oftast áður. — Svo þið eruð þá liklega bjart- sýnir Sjálfstæðismenn? — Við erum það. Ég er sann- færður um að við höldum meiri- hlutanum, 8 mönnum, en það get- ur allt eins verið að við fáum 9 eða jafnvel 10 fulltrúa, það fer eftir þvi hve mikið fellur dautt af at- kvæðum hjá hinum flokkunum. — Hvað veldur þvi að þið búist við sigri? — Ég tel að þar valdi mestu um óvinsæl vinstristjórn. — Blandast landsmálin mikið inni þessa kosningabaráttu? — Þau gera það kannski ekki beint, en þegar óvinsæl vinstri- stjórn fellur, hlýtur það að hafa sin áhrif. Og þarna sannast enn einu sinni það sem við sjálfstæðis- menn höfum alltaf sagt — vinstri flokkarnir geta ekki unnið saman. — Viltu þá ekki gera spá fyrir Þjóðviljann? — Jú, það er alveg sjálfsagt. B-listi 7200 atkv. 2 fulltrúa D-listi 24000 atkv. 8 fulltrúa G-listi 9000 atkv. 3 fulltrúa J-listi 5700 atkv. 2 fulltrúa V-listi 1500 atkv. engan fulltrúa. S.dór —• Ég er i miklum vafa um að það takist að fella ihaldsmeiri- hlutann að þessu sinni, en auðvit- að vonar maður það, sagði Bjarni Sigtryggsson kosningastjóri Frjálslynda flokksins i Reykja- vik. Og ég er viss um að það er hægt að fella ihaldið,en til þess að svo megi verða, þurfa öll atkvæði vinstri flokkanna að koma til skila. Við megum ekki gleyma þvi, að vinstri flokkarnir hafa meirihluta atkvæða á bak við sig i Reykjavik, en það falla bara svo mörg at- kvæði dauð hjá þeim og þess vegna heldur ihaldið meirihlutan- um. Ef vinstri flokkarnir hefðu boðið fram einn lista til borgar- stjórnar, þá þarf engum blöðum um það að fletta, að ihaldið hefði fallið. Bæði tel ég að með þvi móti hefðu vinstri flokkarnir bætt við sig miklu af atkvæðum og eins jafnvel þótt þeir hefðu ekki gert það, hefði það dugað til að fella i- haldið. — Finnst þér að það hafi verið létt að starfa i þessari kosninga- baráttu? — Já, það hefur verið það, og eftiraðljóst var að þingkosningar fara fram aðeins mánuði eftir sveitarstjórnarkosningar, virðist mér sem áhugi fólks hafi aukist til muna. Margir lita svo á að borg- arstjórnarkosningarnar verði einskonar prófkosningar fyrir al- þingiskosningarnar i júni. — En hvernig viltu þá spá um úrslit kosninganna i dag i Reykja- vik? — Ef ég læt ekki óskhyggju ráða, þá er spá min þessi: B-listi 6800 atkv. 2 fltr. D-listi 22600 atkv. 8 fltr. G-listi 8100 atkv. 3 fltr. J-listi 4600 atkv. 1 fltr. V-listi 3100 atkv. 1 fltr. S.dór KOSNINGASTJÓRAR FLOKKANNA SPÁ IJM ÚRSLIT KOSNINGANNA Garöar Sveinn Arnason Við fáum þrjá menn kjörna Segir Garðar Sveinn Árnason kosningastjóri J-listans A kosningaskrifstofu J-listans, lista Alþýðuflokksins og SFV rikti mikil stemmning er okkur bar þar að garði og menn voru bjart- sýnir á úrslit kosninganna. Þarna náðum við tali af Garðari Sveini Arnasyni, kosningastjóra þessara kosningasamtaka, og spurðum hann fyrst hvernig hon- um hafi þótt að starfa i þessari kosningabaráttu sem nú er að ljúka. — Mjög gott. Þetta hefur verið einstaklega létt fyrir okkur J- listamenn og við erum harla bjartsýnir á úrslitin. Það er greinilega mikill áhugi hjá fólki að styðja J-listann i þessum kosn- ingum. Það sem gerst hefur i póli- tikinni siðustu daga virðist mér ætla að verða til þess að styrkja okkar stöðu. — Missir ihaldið meirihluta sinn i borgarstjórn? — Þaö þykist ég viss um. Mér sýnist að það sé alveg sama hvað þeir eyða mörgum miljónum i þessar kosningar, „grænu bylt- inguna” eða hvað það nú er sem á að vera þeirra aðal-kosninga- bomba, það dugar þeim ekki. Fólk er farið að gera sér grein fyrir þvi, að svo löng valdaseta, sem raun ber vitni með ihaldið i borgarstjórn Reykjavikur, er nei- kvæð fyrir málefni borgarinnar. — Hefur landsmálapólitikin mikið blandast inn i kosningabar- áttuna i þessum sveitarstjórnar- kosningum? — Já, alveg tvimælalaust. og það sem verra er i þvi sambandi. einstök borgarmál hafa þeirra vegna horfið i skuggann. — En þú ert samt bjartsýnn á úrslitin? — Já, mjög. Málefnalegur mál- flutningur okkar manna undan- farna daga hefur vakið verð- skuldaða athygli og við uppsker- um þvi áreiðanlega eins og við sá- um. — Þá er það spáin? — Já, við skulum sjá. Ég ætla að sleppa tölum en spá þess i stað um fulltrúafjölda hvers flokks: B-listi 2 fulltrúa D-listi 7 fulltrúa G-listi 3 fulltrúa J-listi 3 fulltrúa V-listi engan fulltrúa —S.dór

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.