Þjóðviljinn - 26.05.1974, Blaðsíða 13
Sunnudagur 26. mai I974.ÞJ6ÐVILJINN -r SÍDA 13
cn svona hinu megin.
Leitað aðgrœnu
byltingunni
á bak við
borgarstjórann
Græn borg!
Grænn borgarstjóri!
Þjóöviljinn gerði út
mann á dögunum til þess
að taka mynd af grænu
byltingunni á þeim stöð-
um sem helst má ætla að
íhaldið reyni að hafa
þokkalegt í kringum sig.
Við létum Ijósmyndavél-
ina fyrst svipast um í
kringum Morgunblaðs-
höllina. Árangurinn er
birtur hér á síðunni. Þar
hafði engin græn bylting
verið framkvæmd. Græni
borgarstjórinn hvergi ná-
lægur með grasfræið sitt.
Framan við Naustið, eign
Eyjólfs Konráðs Jónssonar,
aðalhugmyndafræðing Sjálf-
stæðisflokksins, var tekin
mynd. Þar lágu að visu nokkrir
staurarsem hafa kannski orðið
grænir aftur í sólskininu ein-
hvern tima, en nú lágu þeir grá-
ir og fúnir ásamt öðru rusli
framan við veitingastaðinn.
Þarna hafði borgarstjórinn
ekki komið með grasfræið sitt,
né heldur aðrir græningjar. En
þá datt blaðamanninum i hug
það snjallræði að svipast um i
kringum húsið þar sem er fund-
arsalur borgarstjórnar og að-
setur nokkurs hluta borgaryfir-
valda. Sannarlega lá þarna
mótatimbur i ljótum bunkum.
Þarna mátti sjálfsagt finna
marga nýtilega spýtuna i girð-
ingarstaur eða kofaræksni. En
borgarstjórinn hafði ekki verið
þarna á ferð. En hinu megin við
borgarstjórnarhúsið? Þá tók
ekki betra við. Sjá mynd.
Er fundin skýringin á öllu
græna talinu i borgarstjóran-
um? Er skýringin sú, að þegar
hann litur á bak við sig i borgar-
stjórn finnist honum að hlaðist
hafi upp rusl sem sé varasamt
að sýna kjósendum?
Borgarstjórinn er geðþekkur
maður. En það verður áreiðan-
lega enginn héraðsbrestur þó að
ihaldið falli frá völdum i borg-
arstjórn. Sá sem ekki kann að
rækta garðinn sinn, þarf að
kynna sér það fyrst áður en
lengra er haldið. lhaldið hefur
Svona er þaö á bak við borgarstjórann
SIGURDÓR TÓK
MYNDIRNAR
en svona hjá ritstjóra Moggans.
vissulega haldið völdunum lengi
i Heykjavik. Til þess hefur i-
haldið notað allskonar belli-
brögð og svik. Kosningar eftir
kosningar hafa verið sett upp
kosningatjöld. svört eða græn
eftir atvikum. En ungi borgar-
stjórinn verður að gera sér ljóst
aö Reykvikingar eru ekki svo
grænir að trúa á grænu bylting-
una hans. — þó að hann sé þvi
miður svo grænn að hafa látið
hafa sig i að gerast talsmaður
hinnar grænu gervimennsku.