Þjóðviljinn - 30.05.1974, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 30. mai 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
ÚTVARP
KLUKKAN 19.40:
Qankworth,
Árni Egils-
son og
Tebaldi
Gestir og heimamenn heitir
þáttur, sem Baldur Pálmason
dagskrárfulltrúi stjórnar i út-
varpi i kvöld. Baldur ætlar að
fjalla um og kynna ýmsa þá út-
lendinga og heimamenn sem
fram munu koma á listahátiðinni
i næsta mánuði.
— Þetta er 2. þátturinn i röð-
inni, sagði Baldur, hinn þriðji
verður eftir viku, og þá munu
nokkrir menn leggja saman i
púkk og kynna myndlist.
— En i kvöld?
— Við munum kynna nokkuð
tvö ný, islensk verk, sem flutt
verða, þ.e. Þrymskviðu eftir Jón
Asgeirsson, og likur eru á að við
getum flutt kafla úr nýju verki
Birgis Sigurðssonar, Selurinn
hefur mannsaugu. Eyvindur Er-
lendsson er leikstjóri.
Þá verðum við'með mörg tón-
listaratriði. M.a. Pinchas Zuker-
man, hinn 25 ára gamla Israels-
mann, sem hefur náð heimsat-
hygli. Hann leikur á fiðlu, og hér
spilar hann með Sinfóniuhljóm-
sveit Lundúna.
Þá flytjum við talsvert af
djassi. Það kemur hingað mjög
góð hljómsveit frá Bandarikjun-
um, skipuð frægum djassmönn-
um, — Andre Previn stjórnar
hópnum, en nöfnin sem við getum
nefnt, eru t.d. Dankworth, Árni
Egilsson og söngkonan Creo
Lane.
Þá flytjum við i kvöld létta
músik, sem Finnar, Danir og
Norðmenn framleiða.
Og við ljúkum þættinum með
þvi að heyra i þeirri frægu Renötu
Tebaldi, sem syngja mun með
Sinfóniuhljómsveit íslánds undir
stjórn Askenasys á lokatónleikum
hátiðarinnar i Laugardalshöll.
—GG
KLUKKAN 20,15:
Hver drap
þann lamaða
óvæntur vinur, heitir leikritið,
sem flutt verður i útvarpið i
kvöld.
Leikritið er eftir franska leik-
skáldið Robert Thomas, en sá
hefur samið fjöldann allan af
leikritum, og hefur eitt þeirra
a.m.k. verið sýnt hér á landi. Það
er „Gildran”, sem hefur verið
sýnt viða um land.
Þetta leikrit, sem i kvöld
verður flutt, samdi Thomas upp
úr sögu eftir Agötu gömlu
Christie og gerist það i Frakk-
landi.
Stefán Baldursson hjá Leiklist-
ardeild útvarpsins tjáði Þjóðvilj-
anum, að leikurinn væri að sinu
viti skemmtilegur. — Það er tals-
vert af húmor i þessu, enda kallar
höfundurinn leikritið lika saka-
mála-gamanleik, sagði Stefán.
Fiutningurinn tekur einn og
hálfan tima — leikurinn hefst á
hráslagalegu kvöldi, þegar þrum-
ur kveða við og regnið streymir
og ferðalangurinn gengur frá bil-
uðum bil sinum heim að herra-
garðinum. Þar hefur morð verið
framið. Húsbóndinn, iamaður
eldri maður liggur dauður og hjá
honum stendur eiginkona hans,
sem játar á sig glæpinn. Og svo
koma til sögunnar margir dular-
fullir, svo sem hjúkrunarkona
hins myrta, sonur hans, tauga-
veiklaður unglingur og fleiri. Og
gesturinn óvænti, flækist inn i
spennandi morðgátu.
—GG
Kjallararogdrykkjumenn
Þessa sveitasælumynd rák-
umst við á i ungversku blaði. Á
textanum segir i stuttu máli, að
þessar þokkafullu byggingar séu
vinkjallarar, og náungarnir fyrir
utan eru — eins og hver maður
getur reyndar sagt sér sjálfur —
vindrykkjumenn.
Það var mikið verk að skeyta saman þessa skjaldbökuskel. Hún fannst
árið 1972 i norðurhluta Venesúela. Skjaldbaka þessi hefur lifað í ósöltu
vatni, og sérfræðingar telja að hún hafi verið uppi fyrir 6 miljónum ára.
Þetta er stærsta skjaldbökuskel sem fundist hefur til þessa, átta fet á
lengd og sex fet á breidd.
Illa
gert...
Eftirfarandi visa varð
til er menn voru á vinnu-
stað einum að ræða
kosningaúrslitin og út-
reið Alþýðuflokksins:
Það var orðið opinbert
að ýmsir voru að glepj’ann
en ósköp var það illa gert
af ihaldinu að drep'ann.
— Stattu upp fyrir dömunni,
Nonni minn.
Hér sjáum við glæfralegt tiUæki fram af pallinum og lendir eftir an þess sem er næst lendingar-
— italskur lögreglumaður kemur að hafa svifið yfir 27 liggjandi staðnum! Þessi sýning fór fram i — Ogsvo fór ég i Hagkaup og það-
akandi á mótorhjóli sinu, flýgur lögreglumenn. Hugsið ykkur lið- Róm i góðgerðarskyni an i Domus og...
SÍÐAN
Umsjón:
GG og SJ
Rekin
fyrir aö
vera of
fríö!
Bandarisku stúlkunni Patty
Hughes, 28 ára, var á dögunum
sagt upp starfi hjá fyrrtækinu
International Harvester. Astæðan
var sú að yfirmönnum fannst
stúlkan of falleg og þarafleiðandi
hefði hún of truflandi áhrif á hið
sterka kyn. Patty lét sér þetta
ekki vel lika og kvartaði hjá stétt-
arfélagi sinu, sem kom henni aft-
ur i vinnu hjá fyrirtækinu. ,,Ég
get ekki neitað þvi, að i uppsögn-
inni voru fólgnir ákveðnir gull-
hamrar, en ég hef aldrei litið á
sjálfa mig sem fallega. Ég er
ósköp venjuleg kona.”
Ó"
venju-
legt
feröa-
lag
Ungur bandariskur búddamunk-
ur lagði af stað i óvenjulegt ferða-
lag frá San Fransiskó, i október
sl. Áfangastaðurinn er 1200 milur
i burtu, en munkurinn beygir sig
niður i þriðja hverju skrefi og
snertir jörðina með enninu. Hann
kemstá þennan hátt 6milur á dag
og býst við að ná áfangastaðnum
Marblemount, siðsumars. Hann
segisthafa ákveðið þetta ferðalag
er hann heyrði um kinverskan
munk, sem á þennan hátt ferðað-
istþvert yfirKina, um 6000 milur,
i byrjun aldarinnar.
SALON GAHLINe
sannað er að allt er dýrara i ár en
i fyrra.