Þjóðviljinn - 16.06.1974, Side 1
Gleðilega
þjóðhátíð
Á 30 ára afmæli lýðveldisins verður Islend-
ingum hugsað til Þingvalla þar sem þessi
mynd er tekin af Gunnari Hannessyni. 1 blað-
inu i dag er viðtal við Gils Guðmundsson sem
lengi hefur átt sæti i Þingvallanefnd. Einnig
eru i blaðinu viðtöl við allmargt fólk sem á
sama afmælisdag og lýðveldið og man lýð-
veldisstofnunina á Þingvöllum 17. júni 1944.
Þjóðviljinn óskar íslendingum gleðilegrar
hátiðar og til hamingju með þritugsafmæli lýð-
veldisins.
■
m&s§ -
Í81
-
*«!**«
FIAT\ FORD OG VOLKSWAGEN
Stærstu innflytjendur
Af 10 stœrstu eru 9 nátengdir Sjálfstœðisflokknum
— hvað fékk flokkurinn mikið af 240 miljónunum!
Arið 1973 flutti Davíð
Sigurðsson hf. inn flesta
bíla á Islandi/ eða á að
giska áttunda hvern bíl
sem kom til landsins.
Næstur honum kom Sveinn
Egilsson hf. Þá kom Hekla
hf./ Véladeild SIS og
Bifreiðarog Landbúnaðar-
vélar hf. Þessir voru allir
með fyrir 9% af heildar-
fjöldanum, en nokkru
minni var P. Stefánsson
hf. Með milli 4 og 5% hlut-
deild voru Gunnar Ásgeirs-
son hf., Kr. Kristjánsson
hf. og Sveinn Björnsson og
Co. Ræsir hf. var með um
2,5% bilaf jöldans, en
sennilega allt að 5% inn-
flutningsverðmætisins.
t framhaldi af frétt Þjóðviljans
um tekjur bifreiðainnflytjenda,
þótti rétt að kanna, hverjir væru
stærstu bilainnflytjendurnir.
Nú vildi svo til að bilainnflytj-
endur létu dreifa til blaðanna i
vetur skýrslu um tegundir og
fjölda allra innfluttra bila á sl.
ári. Hefur þeim nú verið skipt
niður á innflytjendur með þeim
árangri sem að ofan greinir. Má
vera að einhverju skakki, og geta
þá heildsalarnir leiðrétt það.
Þvi var slegið föstu i Þjóð-
viljanum i gær að brúttótekjur
bilainnflytjenda fyrstu fjóra
mánuði þessa árs væru 240 mil-
jónir króna, og sennilega hefðu
þeir haft um 400 miljónir á sl. ári.
Skráin hér að ofan gefur dálitla
hugmynd um, hvernig þessir
fjármunir skiptast.
Svo virðist vera, sem 5 stærstu
innflytjendurnir flytji inn yfir
50% allra bíla, og þeir næstu 5
flytji inn rúmlega fjórða hlutann.
Þá eru um 15 aðilar sem bítast
um það sem eftir er.
Samvinnuhreyfingin flytur inn
um 10% bilanna, en að öðru leyti
eru bilainnfiytjendur yfirleitt
Framhald á 21. siðu.
HIN
ÆÐRI
STÉTT
Landvarnarmenn
tala ekki við
hvern sem er
„Sjálfstæðishetjurnar góðu”,
forvigismenn Varins lands eru
engin smámenni: prófessorar og
doktorar, sem gengið hafa
menntaveginn gerðan og greidd-
an af almenningi, finir herrar
með „fagrar hugsjónir.” Slik
stórmenni tala ekki við hvern
sem er.
Vegna kátlegrar greinar, sem
Morgunblaðið birti I fyrradag
eftir fjögur stórmenni og forvigis-
menn undirskriftasöfnunarinnar
um ævarandi hersetu, hugöist
Þjóðviljinn leita svara við nokkr-
um spurningum sem vöknuðu við
lestur greinarinnar.
Fyrst var fyrir að hringja i
„sjálfstæðismanninn,” stjarn-
fræðinginn og prófessorinn
Þorstein Sæmundsson. Þegar
honum hafði verið gert erindið
ljóst og tilefni upphringingarinn-
ar, svaraði stórmennið:
„Já, þaðerbest að ég taki fram
strax, að ég hef ekki áhuga á að
ræða við blaöamenn Þjóð-
viljans.”
— Viltu þá ekki svara spurning-
um frá okkur?
„Ég mun ekki ræða við blaða-
menn Þjóðviljans.”
— Og ekki svara þvi til
dæmis....
„Ég hef þegar sagt allt sem ég
ætla að segja.”
Annað stórmenni reyndum við
að fá til að segja okkur einhver
tiðindi af þessari sérkennilegu
„sjálfstæðisbaráttu,” Þorvald
Búason, eðlisfræðing og
prófessor. Spurning, sem við
Framhald á 21. siðu.
Skólakór M. T. á
ferð um
Fœreyjar
Á. 7. siðu er viðtal við tvo félaga
úr skólakór Menntaskólans við
Tjörnina um nýafstaðna tónleika-
ferð kórsins um Færeyjar. Farar-
sljóri hans i feröinni var Þór
Vigfússon, kennari, cn stjórnandi
kórsins er Snorri Sigfús Birgis-
son, annar þeirra tveggja, sem
við er rætt.
Hönnun byggðarlín unnar á lokastigi
Framhvœmdir hefja
Aö því er Guðjón Guð-
mundsson hjá rafmagns-
veitum ríkisins sagði í
gær/ er hönnum byggðar-
línunnar nú á lokastigi og
verður hafist handa um
framkvæmdir síðar í
sumar. Hönnunin sem er
síðla sumar
mjög mikið verk hefur
farið fram bæði hér á
landi og í Noregi en hefur
þó algerlega verið unnin
af íslenskum verk-
fræðingum.
Búið er að velja linunni
endanlega leið endamarka á
milli og varð að breyta þeirri
leið dálitið frá þvi sem upphaf-
lega var ákveðið. Taka þurfti
tillit til vega, sima, náttúru-
verndarsjónarmiða og fleira.
Linan liggur upp Borgarfjörð,
Norðurárdal, yfir Holtavorðu-
heiði og fyrir botn Hrútafjarðar,
siðan nokkuð út Hrútafjörðinn
en siðan norður um,kemur við i
Laxárvatni fyrir sunnan
Blönduós og þaðan yfir til
Varmahliðar i Skagafirði en
þangað nær endinn að norðan.
Efniskð'nnun stendur yfir og
er vonast til að hægt verði að fá
eitthvertefni tii linunnar þegar i
sumar þannig að hægt verði að
byrja á framkvæmdum fyrir
haustið. Byrjað verður að
leggja linuna frá syðri enda
hennar, þ.e. frá Andakilsár-
virkjun i Borgarfirði, vegna
þess að ekki hefur verið ákveðið
enn hvort lina suður þaðan ligg-
ur i Hvalfjörð og yfir i Geitháls
eða hvort hún kemur til með að
liggja vestur um að Ljósafossi.
Astæðan fyrir þvi að ekki hefur
verið ákveðið hvor leiðin verður
farin er sú að i athugun er hvort
málmblendisverksmiðja verður
reist i Hvalfirði eða ekki. Fer
staðsetning linunnar eftir þvi
hvort af þessu verður eða ekki.
—S.dór