Þjóðviljinn - 16.06.1974, Qupperneq 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. júni 1974
UÚÐVIUINN
MáLGAGN SÓSIALISMA
VERKALYÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Otgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson
Svavar Gestsson (áb)
Fréttastióri: Evsteinn Þorvaldsson,
'Ritstjórn, afgrelösla, auglýsingar:
Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur)
[Prentun: Blaöaprent h.f.
FÓLKJÐ FLÝÐI „YIÐREIS^". EN SÆKIR HEIM TDL VINSTRISTJÓRNAR
Það þótti ýmsum i mikið ráðist fyrir 30
árum þegar hin fámenna islenska þjóð
lýsti yfir stofnun sjáifstæðs lýðveldis. Það
var þá fámennasta riki heims. Það var
fyrst og fremst trúin á landið og þrótt
islensku þjóðarinnar sem réði þvi að
þjóðin samþykkti einhuga i lýðveldiskosn-
ingunum að lýsa yfir stofnun lýðveldis.
Sjálfstæðisbaráttan við Dani hafði styrkt
þjóðernisvitund manna. En þvi miður
hefur trú manna á efnahagslegt sjálfstæði
landsins verið misjafnlega mikil og
stundum heyrst þær raddir að íslendingar
megnuðu ekki að standa á eigin fótum,
Skemmst er að minnast þeirra ummæla
Gylfa Þ. Gislasonar á 100 ára afmæli
þjóðminjasafnsins ,,að besta ráðið til að
varðveita sjálfstæði þjóðarinnar væri að
fórna þvi”. Óhætt er að fullyrða að minnst
hafi trúin á landið verið i tið viðreisnar-
stjórnarinnar á árunum 1959-71, þá voru
uppi raddir um að eina ráðið til að hægt
væri að lifa i þessu landi væri að semja við
erlenda auðhringi um að byggja upp stór-
fyrirtæki, á islenska atvinnuvegi væri ekki
hægt að treysta. Þannig talaði t.d.
framkvæmdastjóri Landssambands
iðnaðarmanna og sagði orðrétt: ,,Með
þetta atriði i huga ásamt þeirri stað-
reynd að hér er hægt að fá mikla orku
mjög ódýrt og að vinnulaun eru hér enn
tiltölulega lág miðað við það sem gerist i
Vestur-Evrópu, er dkki óliklegt að fyrir-
tæki vestan hafs mundu hafa áhuga á að
koma hér upp verksmiðjum með út-
flutning til Friverslunarbandalagsins i
huga.” (Þessi orð voru töluð á fulltrúa-
ráðsfundi Sjálfstæðisfélaganna i Reykja-
vik.)
Á timum viðreisnarstjórnarinnar tókst
að veikja svo trú manna á landið og að hér
mætti skapa sómasamleg lifskjör, að
fjöldi fólks varð landflótta. Á árunum
1966-70 fara frá íslandi samkvæmt
upplýsingum Hagstofunnar, að meðaltali
650 fleiri en koma inn i landið til búsetu.
Næstu fimm árin á undan sem einnig voru
viðreisnarár var nettótap hinnar fámennu
islensku þjóðar 212 landflótta menn á ári
Á árunum 1968-’70 fluttu samtals 288
íslendingar búferlum til Ástraiíu. Þeir
flúðu atvinnuleysi og eymd viðreisnar-
innar”. Þannig var komið trú þjóðarinnar
á landið i lok viðreisnarinnar.
Nú hefur þetta breyst. Vinstri stjórnin
og atvinnuuppbygging hennar sem á ný
hefur glætt trú manna á möguleika
undirstöðuatvinnuvega þjóðarinnar og
þar með trúna á landið. Nú búa
Islendingar við einar hæstu þjóðartekjur á
mann i heimi. Nú þurfa menn ekki að flýja
til annarra landa i atvinnuleit. Þetta sýna
tölur Hagstofunnar glöggt. Nú hefur á
annað hundrað þeirra ísl. er fóru til
Ástraliu snúið heim, og aðeins á árinu 1972
fluttist 53 íslendingum fleira heim frá
Ástraliu en fóru útþangað. Á fjórum árum
1968-’71 töpuðust landinu 2.700 islenskir
rikisborgarar sem fluttu búferlum tii
útlanda, en á árinu 1972 bættust landinu
samtals 160 islenskir flóttamenn. Ef talinn
er saman fjöldi íslendinga og útlendinga
er hér fá búsetu á árinu 1972, þá kemur 431
maður inn i landið til búsetu umfram það
sem flyst út. Þetta er i fyrsta skipti um
margra ára skeið sem þessi jöfnuður er
hagstæður.
Þessar tölur tala sinu máli. Stefna
vinstri stjórnarinnar hefur endurvakið
trúna á landið, atvinnuuppbyggingin
hefur treyst efnahagslegt sjálfstæði
þjóðarinnar. Jafnframt þvi hefur verið
mörkuð stefna um þjóðlega reisn i sam-
skiptum við erl. þjóðir og vonir glæðst
um það að hægt verði að aflétta þeirri
smán af islenskri þjóð að búa i hersetnu
landi. Þannig hefur efnahagslegt og póli-
tiskt sjálfstæði þjóðarinnar aukist i tið
vinstri stjórnar, en þau óþjóðlegu
viðreisnaröfl verið sett hjá, og vonandi
ber islensk þjóð gæfu til á 30 ára afmæli
lýðveldisins að sjá svo um að þau öfl
komist ekki á ný til áhrifa og valda. Stað-
reyndirnar tala sinu máli: Fólkið flúði
„viðreisn”, en það sækir heim til vinstri
stjórnar. Það er afmælisósk Þjóðviljans
til islenska lýðveldisins á 30 ára afmæli
þess, að aukast megi trúin á land, þjóð og
tungu — sú þrenning sönn og ein lifi með
islenskri þjóð.
AF SÆMUNDI
FRÓÐA
Dagskrá i samvinnu
Leikfélags Reykjavikur og Leikbrúðulands.
Leikmynd og brúður: Guðrún Svava Svavarsdóttir.
Texti: Böðvar Guðmundsson og
Vigdis Finnbogadóttir.
Söngvar: Böðvar Guðmundsson
Dagskráin af Sæmundi fróða er
annaö aðalframlag Leikfélags
Reykjavikur til Listahátiðar, i
samvinnu við Leikbrúðu-
land. Þessi dagskra mun vera
áfangi eða aðföng annars konar
sýningar, samfellds brúðuleiks,
sem tekinn verður upp i haust.
Eigi að siður er dagskráin með
öllu sinu brotasilfri furðu sam-
stæð, og á fyrstu sýningu á
fimmtudagskvöld datt vist fáum
annað I hug en að um fullbúið
verk væri að ræða. Dagskráin er
byggð upp samhliða af brúðuleik,
samlestri og söngvum. Sam-
lesturinn ber mikinn keim af
siðdegisstundum Leikfélagsins i
vetur,og hefur reynslan af þeim
vafalaust komið i góðar þarfir.
Án hennar hefði varla verið að
vænta svo liflegrar og fjöl-
breyttrar dagskrár.
Efnið er fyrst og fremst sótt til
þjóðsagna, en jafnframt i helgi-
sögur og miðaldarit. f sam-
lestrinum er lesið beint upp úr
þessum ritum með liflegu og
skemmtilegu látbragði, en i
söngvum og brúðuleik er unnið
upp úr þessum efniviði. Þessi
atriði eru mikilsverðustu þættir
sýningarinnar og gefa góð fyrir-
heit um hinn fullbúna brúðuleik i
haust. Þátturinn i Svartaskóla,
þegar Jón helgi kemur að bjarga
Sæmundi, er t.d. hnyttilega sam-
inn, enda þótt meira hefði mátt
gera úr stagli hins þrieina
Gregoriusar. En bestur er siðasti
þátturinn um Kálf Arnason og
skuld hans við kölska, þá einu
skuld, sem eyðist ekki i verð-
bólguþjóðfélagi.
Samlesttarefnið er yfirleitt vel
valið og tengt. Að visu orkar tvi-
mælis að fJytja þarna næstum i
heild kvæði Einars Benedikts-
sonar um • Svartaskóla, sem
stingur mjög i stúf við annað efni.
Eina hugsanlega réttlætingin
fyrir þeim lestri væri að bregða
upp óhugnaði þeirrar stofnunar,
en það hefði mátt gera með
öðrum hætti. t heild miðar dag-
skráin fyrst og fremst að dægra-
styttingu og skemmtun, sem tekst
ágæta vel. Prýði sýningarinnar
eru Ieiktjöld og ekki sist brúður
Guörúnar Svövu Svavarsdóttur,
fallega unnar og hnyttilegar.
Efnið er tengt og útlagt I
skemmtilegum söngvum, sem
nutu sin vel i flutningi Kristinar
Ölafsdóttur, Kjartans Ragnars-
sonar og höfundar.
Vonandi verður þetta upphaf
náinnar samvinnu Leikfélagsins
og Leikbrúðulands; um slika
samvinnu gefur þessi sýning góð
fyrirheit.
Þorleifur Hauksson.
Hættum
segir íhaldsforystan
r
Afram
segir horgarstjóri íhaldsins
Menn þurfa ekki endilega að
vera sammáia um meginmálefni
þó svo þeir séu I „einingarflokkn-
um” mikla, Sjálfstæðisflokknum.
Þannig var það til að mynda á
dögunum, aö Sjálfstæðisflokkur-
inn lét fulltrúa sina I sjónvarps-
kynningu telja landslýðnum trú
um, aö allt væri að komast i kalda
kol, og eitt af þvi, sem skilyrðis-
laust bæri að gera, væri að stöðva
erlendar lántökur með öllu, þvi
nóg væri komið af sliku.
Borgarstjóri Sjálfstæðisflokks
ins i Reykjavik er ekki aldeilis á
sömu skoðun og flokksforystan,
nema að flokksforystan meini
ekki það sem hún segir i þessu
máli, og varla getur það hugsast.
Það vill nefnilega svo til, að
þessa dagana er borgarstjórinn i
Reykjavik að ganga frá láni fyrir
Reykjavikurborg vestur i Banda-
rikjunum. Og það er ekkert smá-
lán, sem Sjálfstæðisflokkurinn
beitti sér fyrir að þar yrði tekið,
núna þegar allt er komiö i kalda-
kol i efnahagsmálunum, eins og
þeir sjálfir segja.
Lánsupphæðin: 820 miljónir
króna.
—úþ.
Ingunn og Maria fyrir utan hús Jóns Sigurðssonar f Kaupmannahöfn.
Hús Jóns Sigurðssonar í
Kaupmannahöfn opnað
Vegna sivaxandi ferðamanna-
straums verður hús Jóns
Sigurðssonar, östervoldgade nr.
12, opið I sumar fyrir Islenska
feröamenn, og aðra, sem áhuga
hafa á að skoða húsið.
Gefst fólki þarna tækifæri á aö
kikja I Islensk blöð og fá sér
kaffisopa eða aðra hressingu.
Húsið veröur opið daglega frá kl.
14-18 (lokað á mánudögum), en á
föstudögum verður opið frá kl.
16-22.
0
Það eru tvær Islenskar stúlkur
Ingunn Jónasdóttir og Maria L.
Einarsdóttir, sem sjá um starf-
semina i Jóns Sigurðssonar-hús-
inu í sumar. Þess er vænst aö ts-
lendingar sem staddir eru i
Kaupmannahöfn, notfæri sér
þessa menningaraðstöðu.