Þjóðviljinn - 16.06.1974, Blaðsíða 11
Sunnudagur 16. júni 1974 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 11
til Alþingis og hefur setið þar
siðan sem fulltrúi Austfirðinga.
Er óþarft að rekja óteljandi
störf hans á Alþingi en tvisvar
hefur hann gegnt ráðherra-
störfum af einstökum dugnaði og
myndugleik. Lúðvik hefur gegnt
miklum trúnaðarstörfum i
Sósialistaflokknum og Alþýðu-
bandalaginu.
1 Neskaupstað varð Lúðvik
bæjarfulltrúi 1938 og gegndi þvi til
1970. Hann var forseti bæjar-
stjórnar og tók þar af krafti þátt i
öllum störfum sem á hann
hlóðust. Lúðvik beitti sér fyrir að
keyptir væru tveir nýsköpunar-
togarar til Neskaupstaðar og var
um skeið forstjóri Bæjarút-
gerðarinnr. Hann hafði forystu
um stofnun Byggingarfélags
alþýðu. sem reisti fjölda ibúða.
Bygging sundlaugar og sjúkra-
húss voru honum kærkomið
verkefni ti að standa að og drifa
áfram. Þá er eftir sá þáttur i
Neskaupstað, sem Lúðvik á
drýgstan þátt i, en það er forysta
og formennska um 30 ára skeið i
samvinnufélagi útgerðarmanna.
En það félag er aðaleigandi
Sfldarvinnslunnar, sem nú rekur
frystihús, sildarverksmiðju,
niðurlagningarverksmiðju og 3
stór skip ásamt ýmsu fleiru.
Hefur Lúðvik látið sér mjög annt
um samvinnufélagið og átt
drýgstan þátt i að láta það gegna
þvi forystuhlutverki i atvinnulifi
staðarins, sem raun ber vitni.
Eitt það, sem gert hefur
Lúðviki Jósepssyni mögulegt að
afkasta jafn miklu, er hans reglu-
semi og bindindissemi. Slikt var
a.m.k. talið aðalsmerki þegar
baráttan fyrir sósialisma hófst i
Neskaupstað um 1930.
Undirstaða hins mikla starfs,
sem Lúðvik Jósepsson hefir unnið
fyrir heimabyggð sina, Austfirði
alla og þjóðina er fyrst og fremst
starfið i Sósialistaflokknum og
Alþýðubandalaginu. An hugsjóna
og trú á málstað sinn komast póli-
tiskir forystumenn stutt. Þátt-
taka Lúðviks i Sósialistafélagi og
Alþýðubandalagsfélaginu i
Neskaupstað og forysta hans þar
var honum eflaust mikill styrkur i
starfi. Sú eining, sem þar hefur
alltaf rikt, og sá fjöldi liðsmanna,
sem af einhug hefur staðið með
honum i harðri baráttu gegnum
árin, hefur átt mestan þátt i að
styrkja pólitiska samstöðu i
Neskaupstað.
Sú staðreynd, að atkvæðafylgi
Lúðviks i Austurlandskjördæmi
hefur farið vaxandi, ber vott um
traust Austfirðinga á honum, og
það traust og fylgi nær langt
útfyrir raðir pólitiskra samherja.
Ég er þess fullviss, að ég mæli
fyrir munn okkar allra i
Neskaupstað, þegar ég óska
Lúðvik Jósepssyni til hamingju
með þessi merku timamót á
stormasamriævi og þakka honum
frábært starf að þeim óteljandi
verkefnum, sem drýgstan þátt
eiga i þvi að gera Neskaupstað að
búsældarlegum stað.
Þá vil ég og kona min færa
Lúðvik og hans ágætu konu Fjólu
innilegar afmælisóskir og þakkir
fyrir einlæga vináttu allt frá
æskudögum. Þakka ég Lúðvik
náið og gott samstarf að
framgangi sameiginlegra
hugðarefna.
Jóhannes Stefánsson
Það var áður fyrr löng leið efst
af Fljótsdalshéraði niður á Norð-
fjörð og kannski átti það sinn þátt
i þvi, að áratugir liðu frá þvi ég
gerðist pólitiskur stuðningsmað-
ur Lúðviks Jósepssonar og fór að
kjósa hann i aíþingiskosningum,
þar til slik persónuleg kynni min
tókust við hann, sem gera mér
kleift á hátiðisdegi i æfi hans að
senda honum kveðju á opinberum
vettvangi. En lika kemur til með-
fædd hlédrægni hans, sem kemur
m.a. fram i þvi, að hann leitar
ekki gjarnan á menn að fyrra
bragði. 1 þessari einkennilegu
staðreynd felst ein af andstæðun-
um I fari hans: Hinn harðsnúni
pólitiski bardagamaður, sem
veitt hefir andstæðingum einna
þyngst högg núlifandi tslendinga,
er dagfarslega manna óáleitnast-
ur og gæfastur og myndi áreiðan-
lega helst kjósa að þurfa aldrei að
standa i einni né neinni orrahrið.
Á sama hátt kemur fram ein-
kennileg andstæða i lífi Lúðviks
Jósepssonar, að þessi maður,
sem staðið hefir i pólitiskri fram-
linu sem alþingismaður i 32 ár og
Ragnar Arnalds, formaður Alþýðubandalagsins:
Afmœliskveðja
tvisvar ráðherra og þar með i
sviðsljósi þjóðlifsins, myndi helst
kjósa friðsamt og óbrotið lif, þar
sem veisluhöld og ýmis hégóma-
skapur, sem fylgir opinberu lifi,
þekktist ekki, en möguleiki gæfist
hins vegar á að skjótast við og við
til að renna fyrir lax eða skreppa
á knattspyrnuvöllinn, þar sem
enginn bæri kennsl á hann.
Mérhefir oftkomið i hug, þegar
ég hefi virt fyrir mér lifshætti
Lúðviks og viðbrögð, að hann
væri imynd hinna fornu Stóu-
manna, sem ólust upp við sjálfs-
aga og fyrirlitningu á sýndar-
mennsku og hégómaskap, en
sýndu mesta rósemi, er harðast
varbarist. Iðulega hefi ég hin sið-
ari ár hitt hann nýkominn úr póli-
tiskri höggorustu, þegar ætla
hefði mátt, að hann væri tekinn i
andliti og vanstilltur eftir svefn-
lausar nætur, þegar örlög þjóðar-
innar voru ráðin. Þá hefði einatt
mátt ætla, að hann væri ekki að
koma af slikum vettvangi, heldur
úr orlofi sunnan frá sólarlöndum,
sléttur og felldur og lék við hvern
sinn fingur.
Slikum eiginleikum er hollt að
kynnast fyrir yngri mann, þvi að i
raun réttri stendur hann frammi
fyrir þeirri manngerð, sem Is-
lendingasögur gáfu okkur sem
fyrirmynd: Æðruleysi og gaman-
semi i miðri orustu.
A stjórnmálavettvangnum er
nafn Lúðviks öðru fremur tengt
islenskum sjávarútvegi. Sú saga
verður örugglega rakin af öðrum
i tilefni þessa dags. En með þvi
pólitiska uppeldi, sem hann fékk,
hefir hugsun hans snúist um alla
þá hópa þjóðfélagsins, sem
minnst hafa mátt sin og skarðan
hlut hafa frá borði borið.
Fyrir því hefir hann —■ þótt þvi
sé litt fllkað — hugsað meira og
meira um stöðu islenska bóndans
i þjóðfélagi okkar. Ég tók sér-
staklega eftir þessu á áratug
hinnar svonefndu „viðreisnar”,
þegar bændur bjuggu við verstan
hag eftir siðari heimsstyrjöldina.
Ýmsum kann að þykja það ein-
kennilegt, en er þó engu að siður
staðreynd, að flestar kvöldstund-
ir, sem ég hefi átt heima hjá Lúð-
viki, snerist ræðan siðustu einn til
tvo klukkutimana um vandamál
landbúnaðarins á íslandi.
Lúðvik er þannig gerður — og
einstæður hæfileiki hans til sund-
urgreiningar á hverju máli stuðl-
ar að þvi — að hann kafar til
botns, þegar hann fær áhuga á
einhverju máli og fer að velta þvi
fyrir §ér I alvöru. Stálminni hans
sem ég hefi sjaldan kynnst sliku,
kemur gjarnan i góðar þarfir.
Einhvern tima á „viðreisnarár-
unum” varð ég var við, að honum
fór að verða tiðrætt um þann
mikla vanda, sem bændur viða
um land áttu við að glima og var
kannski af misjöfnum toga
spunninn, en hafði þó að sam-
nefnara þá harðleikni, sem þeir
voru beittir af „viðreisnarstjórn-
inni”. Frá þeim tima hefi ég leik-
ið mér að þvi í huganum, að gam-
an hefði verið að fá Lúðvik
sem landbúnaðarráðherra i
sterkri, róttækri vinstri stjórn.
Þessum linum var ekki ætlað að
rekja langan stjórnmálaferil, né
heldur staðreyndatal um ætt og
æfi, heldur láta hugann staldra
við eiginleika i fari manns, sem
mér hefir orðið þvi meira virði að
kynnast eftir þvi sem ég hefi gert
það betur.
Fyrir þessi kynni færi ég nú
Lúðviki þakkir minar og um leið
Fjólu fyrir allar ánægjustundir á
heimili þeirra og sendi þeim árn-
aðaróskir i tilefni dagsins.
A sextugsafmæli Lúðviks á ég
þá ósk, að tslendingar megi bera
gæfu til þess að nota sér enn um
sinn hæfileika hans og dugnað til
forystu i atvinnumálum og fyrir
bættum kjörum og fegurra mann-
lifi vinnandi alþýðu til handa.
Verst þykir mér að sjá ekki raun-
hæfa vona til þess að fá hann til
þess að takast á hendur stjórn
landbúnaðarmálanna, hins mikla
hugðarefnis okkar beggja!
Það er táknrænt fyrir Lúðvik
Jósepsson, að i dag situr hann
ekki i veislu, heldur stendur i
miðjum bardaganum á fram-
boðsfundum austur á Stöðvarfirði
og Fáskrúðsfirði.
Ég óska þess, að mega ætið sjá
hann jafn hressan og kátan eftir
hverja höggorustu stjórnmálanna
og hingað til og hlakka til að
mega enn um sinn eiga von á
ánægjustundum i návist hans og
Fjólu.
Sig. Blöndal.
Sjaldan hafa orðið jafn aug-
ljós þáttaskil i islenskri sögu
og i byrjun heimsstyrjaldarinn
ar síðari. Þá hófst saga her-
námsins. Skyndilega voru ís-
lendingar orðnir striðsgróða-
menn og urðu fyrir þvi láni i ó-
láni að leysast endanlega úr
viðjum kreppunnar miklu.
Skeið þenslu og verðbólgu
leysti atvinnuleysistimann af
hólmi. 1 islenskum stjórnmál-
um urðu einnig afgerandi
kaflaskipti og þá einkum af
tveimur ástæðum: Kjör-
dæmaskipuninni var breytt i
mikilvægum atriðum árið 1942
og tvennum kosningum það ár
óx Sósialistaflokkurinn Al-
þýðuflokknum upp fyrir höfuð
og varð þriðju stærsti stjórn-
málaflokkur landsins. Hinn
róttækari armur verkalýðs-
hreyfingarinnar náði yf-
irhöndinni, sá sigur átti eftir
að hafa langvinn og djúptæk
áhrif á þróun islenskra stjórn-
mála, enda gætir hans enn i
rikum mæli nú þremur ára-
tugum siðar.
Sumarið og haustið 1942
settust óvenjulega margir
ungir menn á þingbekki i
fyrsta sinn og þá ekki sist á
vegum Sósialistaflokksins,
sem fengið hafði 10 þingmenn
kjörna. Að sjálfsögðu varð
þingmannsferill þessara
manna með ýmsum hætti.
Sumir stóðu stutt við og náðu
ekki aftur kosningu. Aðrir fóru
geyst af stað og tryggðu sér
endurkjör, en fuðruðu upp i
hinum pólitiska eldi áður en
varði. Aðeins fáir sátu lengi á
þingi og af þeim eru nokkrir
meðal þekktustu forustu-
manna þjóðarinnar.
Lúðvik Jósepsson,
sjávarútvegsráðherra
sem á sextugsafmæli i dag, er
i hópi þeirra siðastnefndu.
Hann var aðeins 28 ára gam-
all, þegar hann var kjörinn á
þing haustið 1942, og sýnt er,
að eftir næstu kosningar,
verða þeir tveir einir af þeim
sem þá voru kjörnir i fyrsta
sinn: hann og Ingólfur Jóns-
son.
Lúðvik var þó enginn nýliði i
stjórnmálum. Hann hafði þá
þegar setið i bæjarstjórn Nes-
kaupstaðar i fimm ár. Þjóðin
hefur fylgst með þvi, hvernig
þeir samherjarnir, Lúðvik,
Bjarni Þórðarson og Jóhannes
Stefánsson ásamt fleiri félög-
um hafa mótað glæsilega upp-
byggingu Neskaupstaðar i 40
ár. Hitt er svo ekki siður aug-
ljós staðreynd að um leið og
Lúðvik hefur mótað Neskaup-
stað, hefur heimabyggðin
mótað Lúðvik. 32 vetur hefur
það orðið hlutverk hans að
gegna sendiherrastörfum
fyrir bæjarfélagið og fyrirtæk-
in, sem þar hafa verið byggð
upp. Löngu áður en hann varð
sjávarútvegsráðherra var
hann orðinn gjörkunnugur út-
gerðarmálum ekki aðeins frá
sjónarmiði þeirra, sem stund-
að hafa sjómennsku og fisk-
vinnslu, heldur einnig frá
þeirri hliðinni sem snýr að al-
mennum ráðstöfunum i út-
vegsmálum, rekstri fyrirtækj-
anna. Það var þvi engin tilvilj-
un að störf hans sem ráðherra
sjávarútvegsmála i tveimur
rikisstjórnum skyldu verða
svo happadrjúg sem raun ber
vitni, og að undir forustu hans
skyldu storu stökkin i friðun
fiskimiðanna vera tekin.
Lúðvik hefur aldrei gefið sig
mikið að fræðilegum vanga-
veltum um þjóðfélagsmál.
Sósialisk lifsskoðun er honum
i blóð borin og honum lætur
best að fjalla um viðfangsefn-
in, eins og þau blasa við frá
sjónarmiði hins almenna
manns, sem ekki þarf að raða
þeim I reglubundin fræðikerfi,
til þess að sjá hvað er heil-
brigð skynsemi.
1 stjórnmálum eru það eink-
um þrennskonar eiginleikar,
sem úrslitum ráða um vel-
gengni manna.
Undirstaðan er hugrekki og
baráttugleði, og þar hefur
Lúðvik svo sannarlega af nógu
að taka, enda eru það einmitt
þess háttar eiginleikar, sem
gert hafa hann með vigfim-
ustu mönnum, sem setið hafa
á alþingi hin siðari ár. t öðru
lagi er það svo stóra spurning-
in um úthaldið.og um andlegt
og likamlegt þrek Lúðviks
þarf ekki að fara mörgum orð-
um, eftir 32 ára setu hans. I tið
þessarar rikisstjórnar höfum
við I þingflokki Alþýðubanda-
lagsins einmitt dáðst oftar en
einu sinni að geysilegri starfs-
orku hans og ósérhlifni.
Þriðji mikilvægi eiginleik-
inn sem Lúðvik er gæddur I
ríkum mæli, er hæfileikinn til
samstarfs við aðra. Jafnvel
þótt stjórnmálahreyfing hafi
hin ágætustu mál að berjast
fyrir, dugar það skammt ef fé-
lagsþroskann skortir. Það er
samstarfið innan flokks og ut-
an, byggt á sanngirni, skyn-
semi og sterkum vilja i hæfi-
legum hlutföllum sem ræður
úrslitum um það, hvort hreyf-
ing er i vetxti eða hnignun.
A þessum timamótum i lifi
Lúðviks Jósepssonar erum við
allir önnum kafnir upp fyrir
höfuð i miðri kosningabaráttu
og þá ekki sist afmælisbarnið.
Við flokksbræður hans verð-
um að láta okkur nægja að
senda honum hlýjar kveðjur
um leið og við minnumst
margra góðra stunda þar sem
afburðaforustuhæfileikar
hans hafa notið sin tii fulls. Við
sem höfum unnið með honum
daglegum störfum i þingflokki
Alþýðubandalagsins þökkum
honum þar að auki fyrir létta
lund, þvi Lúðvik er manna
fyndnastur, þegar sá gállinn
er á honum.
Fyrir hönd miðstjórnar og
þingflokks Alþýðubandalags-
ins færi ég honum hamingju-
óskir og þakkir fyrir frábær
störf hans i þágu sósialiskrar
hreyfingar á tslandi i 40 ár.
Ragnar Arnalds.
Frá Þjóðviljanum
Lúðvik Jósepsson, sjávarútvegs-
ráðherra, er 60 ára i dag. Enn sér
þess ekki stað á manninum að hann
sé nú að leggja af stað upp sjöunda
tuginn. Hann er enn hress og frisk-
ur, ákafur baráttumaður, fylginn
sér i hverri raun.
Þjóðviljinn flytur Lúðvik heilla-
óskir á afmælinu. Um leið flytur
blaðið þakkir fyrir pólitiska leið-
sögn hans og forustu um langt ára-
bil, ekki sist nú hin siðari árin.
Baráttan fyrir tilveru Þjóðvilj-
ans er daglegt verkefni. I þeirri
baráttu hefur verið gott að eiga
jafn glöggan og ósérhlifinn liðs-
mann og Lúðvik Jósepsson. Með
von og vissu um að enn um langa
hrið verði þeir samferða og njóti
hvor annars, Þjóðviljinn og Lúð-
vik, sendir blaðið heitar baráttu-
kveðjur til afmælisbarnsins i Nes-
kaupstað.
SKAGFIRDINGAR
Fjölbreytt vöruúrval á hagstæðu verði.
Greiðum hæsta verð íyrir framleiðsluvöru
ykkar.
SAMVINNUMENN — ykkar hagnaður er að
verzla við eigin samtök.
Kaupfélag Skagfirðinga
Sauðárkróki, Varmahlíð og Hofsósi.