Þjóðviljinn - 16.06.1974, Side 14

Þjóðviljinn - 16.06.1974, Side 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16, júní 1974 Um stórveldi og lýðveldi kvæðri afstöðu Norðurálfu, hlaut að laða Island vestur á bóginn.” Bandarikjamenn sáu sér hér lfka leik á borði að hagnýta sér við- brögð „bræðraþjóðanna” á Norð- urlöndum gagnvart fyrirætlunum okkar um lýðveldisstofnunina, en þau viðbrögð voru ekki ýkja vin- samleg. Benjamin M. Mulley, bandariskur sendiráðsnautur i Reykjavik, skrifaði út frá þessari kuldalegu afstöðu Skandinava: „Ekki skyldu afleiðingarnar vanmetnar, þær lýsa sér i til- henigingu til að halla sér að vin- samlegum Bandarikjum en frá Skandinavlu (leturbr. mln, dþ), sem neitar að skilja eða fallast á málstað Islands.” /,Þeirra væri faðernið..." Á lýðveldishátiðinni á Þingvöll- um vakti það athygli aö einn hinna erlendu sendimanna, sem viðstaddir voru, þagði þunnu hljóði i rigningunni og flutti engar árnaðaróskir frá stjórn sinni: sendiherra Sovétrikjanna I Reykjavik, Alexei N. Krassilni- kof. Samkvæmt upplýsingum, sem fram koma i grein Þórs, var ástæðan sú, að sovéskir ráða- menn gerðu sér, likt og Bretar, fulla grein fyrir þýðingu þessa at- burðar I tafli stórveldanna. So- vétmenn hafa litið svo á, likt og Bretar, að lýðveldisstofnunin táknaði tilfærslu Islands frá Evr- ópu til Amerlku, yfir á áhrifa- svæði Bandarikjanna. Sovétrikin settu sig að visu ekki upp á móti þeirri þróun mála, enda var hún i fullu samræmi við þá skiptingu heimsins milli Bandarikjanna og Sovétrikjanna, sem þeir Roose- velt og Stalin gengu frá i Jalta og Teheran. En auðvitað sáu Sovét- menn enga ástæðu til að fagna þessari stækkun á bandarisku áhrifasvæði, sem lýðveldisstofn- unin þýddi að þeirra dómi, með þvi að senda sérstakan erindreka með heillaóskir á Þingvelli, eins og Bandarikin gerðu. Varðandi þetta viðhorf Sovéta vitnar Þór i Pétur Benediktsson, þáverandi sendiherra íslands i Moskvu: „Ég efast ekki um, að Molotof hefir sagt við sjálfan sig ...Það þyrfti engan að furða, þótt Bandarikjamenn ætluðu að halda króanum undir skirn. Þeirra væri faðernið, svo að þeim mætti vel renna blóðið til skyldunnar.” //...meö vestrænar kúnstir frá Washington..." 1 fyrrnefndri álitsgerð Cumm- ings deildarstjóra er lagt til að sérlegur erindreki Bandarikja- stjórnar á lýðveldishátíðinni, sem hét hvorki meira né minna en Louis Goethe Dreyfus, skyldi halda aðalhátiðarræðuna fyrir hönd erlendra sendimanna. Með þvi var á augljósan hátt verið að undirstrika að hið nýja lýðveldi væri skjólstæðingur Bandarikj- anna, svo að engum þarf á óvart að koma að bandariskir stjórnar- embættismenn skyldu vilja hafa það þannig. Hitt þykir ef til vill einhverjum undarlegra aö þetta var gert samkvæmt ósk Islensku rikisstjórnarinnar, sem var utan- þingsstjórn Björns Þóröarsonar, en auk hans sátu I stjórninni þeir Einar Arnórsson, Björn Ólafsson ísland og Asóreyjar Þaö kom fram af ummælum Roosevelts og annarra banda- riskra framámanna þegar snemma á striðsárunum að þeir höföu einkum hug á tveimur lönd- um i Atlantshafi, sem þeir hugs- Erlendir sendifuiltrúar á gestapaili á Þingvölium, 17. júni 1944. Talið frá hægri: Krassilnikof frá Sovétrlkjunum, Voiilery frá Frakklandi, Johansson frá Sviþjóð, Esmarch frá Noregi, Shepherd frá Bretlandi og Louis Goethe Dreyfus frá Bandarikjunum. Lengst til vinstri er Sigur’- geir Sigurðsson biskup. „Þeir minna á Israels Makkabea...” tslenska rlkisstjórnin viö Stjórn arráðshúsið 18. júni 1944. Frá vinstri: Björn Þórðarson, Einar Arnórs- son, Vilhjálmur Þór og Björn Óiafsson. „Lýðveldisstofnunin 1944 fór að öllu leyti saman við hagsmuni Bandaríkja- manna. Þeir litu orðið á ís- land sem útvirki Vestur- álfu og lék hugur á því, að landið skipaði sér til f ram- búðar í sveit Vesturálfu- ríkja. Með sambandsslit- um hafði island höggvið á tengsl, sem um aldir hafði knýtt landið Norðurálfu. Bandaríkjamenn notuðu því lýðveldisstofnunina til að laða Island i vesturátt með vinahótum. Áhugi þeirra á hernaðaraðstöðu hér á landi að lokinni styrj- öldinni ýtti enn undir til- raunir þeirra til að vinna hylli íslendinga." Þannig kemst Þór Whitehead, sagnfræðingur og framámaður ungra ,,sjálfstæðis”manna að orði I allsnjallri grein um lýðveld- isstofnunina, sem birtist I Skirni 1973 undir titlinum Stórveldin og lýðveldið. Segir I upphafi greinar- innar að tilgangur hennar sé að „draga upp i stórum dráttum mynd af þeim þætti lýðveldis- málsins, sem fram fór að tjalda- baki i erlendum höfuðborgum.” Helstu heimildir eru hvorki meira né minna en skjöl utanrfkisráðu- neyta Bretlands og Bandarikj- anna. Eftirtektarvert er að blöð „sjálfstæðis”manna hafa litt flaggað skrifum Þórs, sem maður skyldi þó i fljótu bragði ætla að þeim væri fengur að, ekki sist með tilliti til þess að snjallir og ritfærir menntamenn eru alltaf heldur fágætir á hægri kantinum. Þetta skýrist þó þegar greinar Þórs eru lesnar, en meginefni þeirra er staðfesting á þvi, sem hernámsandstæðingar hafa frá upphafi haldið fram, að Banda- rikin höfðu þegar snemma á ár- um siöari heimsstyrjaldar ákveð- ið að gera tsiand að herstöð sinni um aldur og ævi og sátu þannig frá upphafi á svikráðum viö sjálf- stæði hins isienska lýðveldis. uðu sér að gera að útvirkjum sin- um gegn hugsanlegum andstæð- ingum I Evrópu og til þess að tryggja itök sin austan megin Atlantshafs. Þessi lönd voru ís- land og Asóreyjar. Sagan sýnir að Bandarikin hafa i meginatriðum komið framvilja sinum varðandi þessi lönd bæði og hafa haft þar þær herstöðvar og eftirlitsstöðv- ar, sem þeir telja sér nauðsynleg- ar til þess að hafa „kontról” á Vestur-Evrópu og miðjarðarhafs- löndum, svo áratugum skiptir. Eftirtektarvert er að þessum i- tökum bæði á íslandi og Asóreyj- um hafa Bandarikin náð og haldið með stuðningi illkyjuðustu aftur- haldsaflanna, sem fyrirfinnast i löndunum, á Asóreyjum (sem eru hluti af Portúgal) meö fulltingi hins sótsvarta afturhalds Salaz- ars og Caetanos, sem Bandarikin I launaskyni efldu til nýlendu- styrjalda og hryðjuverka gegn þjóðum Afriku, og á Islandi með auðfenginni aðstoð þess siðlausa braskaraskrlls, sem ræður öllur i Sjálfstæðis- og Alþýðuflokknum og miklu i Framsóknarflokknum og fúslega lét landsréttindi Is- lands föl fyrir skjótfenginn her- námsgróða. Slegið á strengi sjálfstæðis- baráttunnar Til þess að koma vilja sinum sem greiðlegast fram við íslend- inga slógu bandariskir ráðamenn blygðunarlaust á strengi barátt- unnar fyrir lýðveldinu og sam- bandsslitum við Danakonung. Það var i þessum tilgangi, sem Bandarikin studdu svo afdráttar- laust stofnun lýðveldis á Islandi, og var afstaða þeirra i þvi máli öllu afdráttarlausari en Breta, sem voru nokkuð hikandi i málinu af ótta við að styggja Dani, sem er ein af mestu viðskiptaþjóðum Breta, og einnig sökum þess að breskir stjórnmálamenn gerðu sér fullkomlega grein fyrir hvar fiskur lá undir steini hjá Banda- rikjamönnum. Fyrir strlðið höfðu Bretar talið Island til sins áhrifa- svæðis, og þeir voru ekki of hress- ir yfir þvi að sjá það hverfa yfir á áhrifasvæði Bandarkjanna, þótt þeir fengju ekkert að gert. „Vegna hagsmuna okkar eftir stríö...." Af skjölum bandariska utan- rikisráðuneytisins,, sem Þór Whiteheal styðst viö, kemur greinilega i ljós að Bandarlkin settu heilmikla leiksýningu á svið til þess að telja islensku þjóðinni trú um, að hún ætti lýðveldið og fullt sjálfstæði ekki sist að þakka innilegri og undirmálalausri vin- áttu Bandarikjanna, og var þá skammt i það að gefið væri i skyn að áframhaldandi sjálfstæði ts- lands yrði best tryggt undir sér- stakri vernd þessa sama stór- veldis. Svo var búið um hnútana að þannig liti út að Bandarikin væru einskonar guðfaðir við skirn þess ungviðis, sem lýðveldið Is- land var. 1 þvi augnamiði var á- kveðið að Bandarikin sendu sér- stakan erindreka til þess að vera viðstaddan lýðveldisstofnunina. Hugmyndina að þvi átti Cumm- ing, deildarstjóri I utanrikisráðu- neytinu bandariska. Hann rök- studdi þá tillögu sina á þessa leið: „Ég er þeirrar skoðunar, að nú- verandi samskipti okkar við Is- land, sem byggjast á dvöl hers okkar I landinu o.s.frv., auk hags- muna okkar eftir strið, svo sem beiðni um flota- og flugbækistöðv- ar i samræmi við áætlanir, sem hlotið hafa samþykki yfirher- ráðsins og forsetans, (leturbr. min, dþ) krefjist þess, að við lát- um sérstaklega til okkar taka i tilefni þessa sögulega atburðar i islensku þjóðlifi.” Með kveðju frá Batista Bandarikjastjórn lét ekki hér við lenda, heldur kom hún þvi til leiðar við leppriki sin i Rómönsku- Ameriku að þau sendu tslandi hamingjuóskir i tilefni lýðveldis- stofnunarinnar, og var litið á ósk- irnar sem viðurkenningu á lýð- veldinu. Þetta framtak varð til þess að þegar við stofnun sina var islenska lýðveldið „heiðrað” með hamingjuóskum frá alírahanda fasistadólgum, sem drottnuðu af náð Bandarikjastjórnar yfir hin- um og þessum bananalýðveldum, þótt fæstir þeirra muni hafa heyrt Island nefnt fyrr en þeim barst skipun frá Washington um að við- urkenna það. Einn þessara höfð- ingja, sem voru meðal þeirra fyrstu er árnuðu islenska lýðveld- inu heilla, átti siðar eftir að ná heimsfrægð: Fulgencio Batista, einræðisherra á Kúbu. Um ástæð- ur Bandarikjanna fer Þór White- head svofelldum orðum: Að laða island vestur á bóginn." „Þessa ráðstöfun verður einnig að túlka sem lið i viðleitni Banda- rikjanna til að auka velvild Is- lendinga i sinn garð... Eindreginn stuðningur Vesturálfu við lýð- veldisstofnun gagnstætt nei-

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.