Þjóðviljinn - 13.07.1974, Page 11
íslenska
u-lands-
liðið í
golfi
fyrir EM
valið
Björgvin Þorsteinsson
Akveðið hefur verið að is-
lenska unglingalandsliðið i
golfi taki þátt i Evrópu-
meistaramóti unglinga, sem
fram fer I Helsingfors dagana
25. til 28. júli nk. Liðið hefur nú
verið valið og er þannig
skipað:
Björgvin Þorsteinsson GA
Loftur ólafsson.
Ragnar Ólafsson GR
Atli Arason GR
Jóhann Ó. Guðmundsson GR
Sigurður Thorarensen GK
Varamenn:
Guðni Jónsson GL
Þórhallur Hómgeirsson GS
Nýr
sænskur
stór-
hlaupari
setti nýtt
Evrópumet í
3000 m
hindrunarhlaupi
aðeins 1,1 sek.
frá heimsmetinu
r bjargar Arni Stefánsson markvöröur Fram I ieiknum gegn ÍBK. Hann
félagar hans eiga þýðingarmikinn leik á mánudag þegar þeir mæta
kingi.
fréttamaður, Sven Per Jo-
hansson, hjá DN, spáir,að
Gá'rderud muni taka við
merkinu, þar sem þeir Há*gg
og Andersson létu það niður
Hann spáir einnig, að stutt sé
i, að heimsmet Bens Jipcho i
þessari grein falli, og að fleiri
met eigi eftir að falla fyrir
hinum kraftmikla Andreasi
Gárderud fyrr en varir.
Myndin hér að ofan er tekin
er hann kom i mark á nýju
Evrópumeti á dögunum.
9. umferðin byrjuð
Akureyri — Akranes í dag — Keflavík
— KR á morgun og Víkingur — Fram
bliks
Breiðabliksmenn sóttu Selfyss-
inga heim i fyrrakvöld og sigruðu
stórt. Lokatölur urðu 5-0 og fengu
þeir þar með nokkra uppreisn
æru eftir tapleikinn gegn FH-ing-
um i siðustu viku.
Guðmundur Þórðarson skoraði
fyrsta markið, þá kom Heiðar
Breiðfjörð með 2-0 og þriðj mark-
ið skoraði Hörður Harðarson.
Þannig var staðan i leikhléi. 1 síð-
ari hálfleik bætti Hörður 4. mark-
inu við og Ólafur Friðriksson þvi
fimmta.
Lokatölur urðu þvi sannfær-
andi 5-0 sigur Breiðabliks, sem
rétti nokkuð úr kútnum i þessum
leik og hafði yfirburði. —SsP
Sjálfsagt hafa allir frjáls-
iþróttaáhugamenn heyrt talað
um sænsku stórhlauparana
Gunder Hagg og Arne Anders
son, sem voru heimsins bestu
langhlauparar á árunum 1940
til 1950. Siðan þeir hættu hafa
Sviar ekki eignast neina stór-
hlaupara fyrr en nú að kominn
er fram á sjónarsviðið ungur
maður, Andreas^ Garderud,
scm fyrir fáeinum dögum setti
nýtt Evrópumet I 3000 m
hindrunarhlaupi. Hann hljóp á
8:15,08 min., aðeins 1,1 sek frá
heimsmeti Bens Jipcho.
á mánudag
Þá er 9. umferö l.-
deildarkeppninnar í knatt-
spyrnu komin af stað. Hún
hófst í gærkveldi með leik
/als og ÍBV á Laugardals-
rellinum. En f dag fer einn
eikur fram< annar á
norgun og sá þriðji á
nánudag. Segja má að
<eflvikingar hafi bjargað
ipennunni í mótinu sl.
niðvikudag með því að
íigra Fram. Hefðu þeir
ikki gert það væri IA nú
með 4ra eða 5 stiga
Forystu/ sem er of mikið til
jess að hin liðin næðu að
/inna það upp f aðeins 6
jmferðum. En nú er
munurinn á IA og IBK
aðeins 3 stig og allt getur
gerst ennþá.
1 dag leika á Akureyri IBA og
tA og er sá leikur mjög þýðingar-
mikill fyrir Skagamenn, sem
verða að vinna hann, ef þeir ætla
að halda fengnu forskoti. Og sam-
kvæmt reynslunni ættu þeir að
vinna Akureyringana á Akur-
eyri þvi að i gegnum árin munu
Skagamenn aldrei hafa tapað
fyrir Akureyringum fyrir norðan,
og raunar munu Akureyringar
aðeins einu sinni hafa sigrað ÍA.
Það var á Akranesi, árið sem IA
féll niður. Þá vann IBA þar stór-
sigur, en hvorki fyrr'né siðar.
I fyrri umferðinni hlutu Akur-
eyringar mikinn skell fyrir 1A,
töpuðu á Akranesi 0:4, en margt
hefur breyst hjá Akureyrarliðinu
og hefur það unnið óvænta sigra
siðan þá og gæti þvi allt eins náð
sér i eitt eða tvö stig i dag.
Á morgun mætast i Keflavik
heimamenn og KR. Fyrir KR
skiptir þessi leikur ekki ýkja
miklu máli. KR-ingar eiga enga
möguleika á sigri i deildinni i ár.
Hinsvegar eru þeir ekki sloppnir
úr fallhættu, þannig að eitt eða
tvö stig væru þeim mjög kær-
komin. Keflvikingar verða helst
að vinna ef þeir ætla að keppa við
ÍA um tslandsmeistaratitilinn.
Jafntefli væri slæmt fyrir þá, ef
ÍA vinnur fyrir norðan, og tap
væri dauðadómur þess draums,
að berjast um titilinn.
A mánudaginn léika svo á
Laugardalsvelli Vikingur og
Fram. Vinni Fram ekki
þennan leik má bóka liðið fallið,
þar eð það á eftir mjög erfiða leiki
á útivelli á Akranesi, i Vest-
mannaeyjum og á Akureyri. Og
nái IBA stigi af ÍA verður Fram
að vinna Viking. Annars skilja 4
eða jafnvel 5 stig Fram og ÍBA
að, og þá eru raunar önnur lið
komin neðar en ÍBA á töfluna.
Fyrir Viking skiptir þessi leikur
ekki öðru máli en að sleppa
endanlega úr fallhættu. Vikingur
á enga möguleika á sigri i mótinu
úr þvi sem komið er, en staðan i 1.
deild er þessi þegar 9. umferð
hefst:
Akranes 8 5 3 0 12:4 13
IBK 8 4 2 2 10:6 10
ÍBV 8 2 4 2 19:8 8
KR 8 2 4 2 8:8 8
Víkingur 8 2 3 3 8:8 7
Valur 8 : 1 ! > : j 9:10 7
Akureyri 8 3 í 4 10:19 7
Fram 8 0 5 3 8:11 3
t þessari töflu er ekki leikur
Vals og IBV.
Markahæstu menn:
Steinar Jóhannsson tBK 4
Jóhann Torfason KR 4
Matthias Haligrimsson tA 4
Gunnar Blöndal tBA 4
íslandsmótið 1. deild
Þróttur
-ÍBÍ 4:0
Þróttur sigraði ísfirðinga I
fyrrakvöld með fjórum mörkum
gegn engu og gaf Breiðablik þar
með litið eftir i markatölunni.
Jóhann Hreiðarsson skoraði
eina mark fyrri hálfleiks, en þá
áttu ísfirðingar einnig sin tæki-
færi, sem ekki nýttust þó.
Eftir hlé var sem allur vindur
væri úr tsfirðingum, sem sóttu
knöttinn þá þrisvar sinnum i netið
án þess að geta svarað fyrir sig.
Sverrir Brynjólfsson skoraði ann-
að markið, Þorgeir Þorgeirsson
það þriðja og loks kom Jóhann
Hreiðarsson aftur við sögu og
skoraði siðasta mark leiksins.
—gsp
Sigur
Breiða-